Morgunblaðið - 24.02.1989, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
13
formi til komið í höfti án þess að
verulegum vömum hafi verið hreyft.
Rósemd hversdagslífsins á bænda-
býlunum er rofin.
Veturinn 1885—1886 rita and-
stæðingar málsins landshöfðingja
bréf, æðsta embættismanni innan
lands. Vísa þeir til þess, að málið
hafi fengið lítinn og hæpinn undir-
búning heima i sóknunum, flutning-
ur þ. á m. ekki samþykktur í Mos-
fellssókn, Lágafell sé vafasamur
kirkjustaður, jörðin sé í einkaeign
og óvíst um, hvort þar verði prests-
setur í framtíðinni, sumir eigi þang-
að yfir þijár ár að sækja og margir
eigi þangað langan kirkjuveg að
fara o.fl. „ .. .Og lýsum því yfir af
framanrituðum ástæðum, að við af-
segjum að sækja kirkju að Lágafelli
og gjalda til hennar að einu og öllu
og væntum þess, að okkur verði
skiptur tiltölulegur hluti úr Mosfells-
og Gufuneskirkju eignum, sem nú
eru að komast undir umsjón alls
safnaðarins með þeim skilmálum,
er yður kynni þykja nauðsynlegt að
taka fram.“
IV
Árangur af andspymu manna
varð sá, að biskup fór þess á flot
við prófastinn, að hann reyndi að
koma á sáttum og skyldi efnt til
sameiginlegs fundar sóknarmanna í
báðum sóknum, þar sem endanleg
og ljós úrslit málsins yrðu ráðin.
Þessi fundur var haldinn að Korp-
úlfsstöðum 28. ágúst 1886. Boðaði
prófastur sjálfur til fundarins og það
skilmerkilega. í fundarboði lét hann
að því liggja til að örva fundarsókn,
að Qöldi þeirra, sem heima sætu,
skyldi talinn og hann lagður við at-
kvæðatölu meiri hlutans á fundinum.
Ekki varð þó prófasti að þeirri ósk
sinni, að fundarsókn yrði verulega
góð. Atkvæðisrétt í safnaðarmálum
höfðu 57 manns en ekki sóttu nema
35 fundinn. Haft var á orði eftir
fund þennan, að dalbúar og sam-
heijar þeirra hefðu smaiað rækilega.
Féllu atkvæði svo, að 20 voru
andvígir sameiningu og því að kirkja
yrði flutt, en 15 voru því fylgjandi.
Nú bregður prófastur á það ráð í
trássi við fundarboð, að riðið skuli
á bæi og safnað atkvæðum þeirra,
sem heima höfðu setið. Þar fundust
þá önnur 15 atkvæði, sem fylgdu
sameiningu og að Mosfellskirkja yrði
niður tekin. Taldi prófastur því úr-
slit þau, að fylgjendur sameiningar
og nýrrar kirkju að Lágafelli hefðu
farið með sigur af hólmi. Var málið
í ljósi þessa lagt fyrir héraðsfund
að nýju hinn 10. sept 1986. Þessi
héraðsfundur var slælega sóttur sem
hinn fyrri. M.a. kom enginn úr.um-
ræddum sóknum nema safnaðarfull-
trúinn úr Gufunessókn, en hvorki
sr. Jóhann né safnaðarfulltrúi Mos-
fellssóknar, enda kvaðst hann ekki
hafa fengið fundarboðið. Tillagan
um sameiningu var enn samþykkt á
héraðsfundinum. „Þykir fundinum
til fullra vandræða horfa, geti sam-
einingin nú eigi komist á.“ Fullnað-
arsamþykkt landshöfðingja um, að
kirkjur skuli ofan teknar að Gufu-
nesi og Mosfelli, sóknirnar samein-
aðar og ein kirkja reist að Lágafelli
er staðfest með bréfi 24. september
1886 eða 14 dögum eftir héraðsfund.
V
En búendur eru ekki enn af baki
dottnir. Hinn 15. desember 1886
rita þeir biskupi bréf, sem 15 bænd-
ur undirrita. Telja sig órétti beitta
eftir Korpúlfsstaðafund og beiðast
þess að mega halda kirkju sinni að
Mosfelli, en frábiðja sér allan kostn-
að af kirkjusmíð að Lágafelli. Einnig
rita þeir prófasti 20. júlí 1888. Beið-
ast þeir þess þá enn að mega halda
Mosfellskirkju og bjóðast til að
leggja 1.000 kr. af sjóðum hennar
til Lágafellskirkju, sem þá er í
smíðum. En allt kom fyrir ekki . . .
Dagar Mosfellskirkju voru taldir.
Þar var seinast sungin messa í sept-
ember 1888. Kirkjan var rifin á tíma-
bilinu 15.—20. september þá um
haustið. Bóndinn á Hraðastöðum,
Bjarni Eiríksson, var við slátt úti á
engjum, er hann heyrði fyrstu ham-
arshöggin og rifin var Mosfells-
kirkja. Varð honum að sögn svo
mikið um, að hann lagði frá sér orf-
ið og fleygði sér niður í teiginn.
Meðan þessir atburðir gjörast er
unnið ötullega að þvi að reisa kirlq'u
að Lágafelli. Viðurinn var pantaður
frá útlöndum og honum komið með
Lágafellskirkja
skipi í Kollafjörð. Þaðan voru stór-
viðir dregnir á sleðum veturinn
1887—1888. Um vorið var hafízt
handa um að grafa fyrir kirkjunni.
Gekk allur undirbúningur svo og
smíði hennar greiðlega og áfalla-
laust og var vígð með eðlilegum
hætti hinn 24. febrúar 1889. Kirlqan
þótti vönduð og standa með reisn.
Segir prófastur um hana við úttekt
29. júlí 1890: „Kirkjan er yfír höfuð
prýðileg, og á söfnuðurinn mikið
þakklæti skilið fyrir þann áhuga,
sem hann hefir haft á að prýða
hana.“ Harmonium hefur verið keypt
fyrir samskot.
VI
En mótstöðumenn þess, að Mos-
fellskirkja yrði tekin niður, voru
samt ekki af baki dottnir. Með
stjómarskránni 1874 öðlaðist þjóðin
trúfrelsi. Önnur löggjöf komst svo
smám saman á í samræmi við það.
Vorið 1882 voru sett lög um leysing
sóknarbands. Menn vom ekki skyld-
ir að nýta sér þjónustu sóknarprests-
ins. Hægt var að velja sér kjör-
prest. Enda þótt Mosfellskirkja hafi
verið tekin ofan, vilja menn ekki
láta hlut sinn með öllu. Sr. Þorkell
Bjamason var um þessar mundir
sóknarprestur að Reynivöllum í Kjós.
Hann var prestur á Mosfelli á undan
sr. Jóhanni, hafði setið á Alþingi er
þessir atburðir verða, og naut mikill-
ar virðingar. Með þeim Gísla í Leir-
vogstungu var vinátta.
Hinn 2. sept. 1888, um hálfum
mánuði áður en kirkjan var rifín, er
sr. Þorkeli skrifað bréf, sem 12 sókn-
arbændur undirrita, og þar lýsa þeir
því yfír, að „vér hér með kjósum
yður til að vera „kjörprest vom“ og
framkvæma þau prestsverk, er hér
greinan ...“ Eftirþettaverðabréfa-
skriftir milli sr. Þorkels og Gísla
fram eftir haustinu og allt fram í
marz 1889. Sr. Þorkell lýsir fúsleika
sínum að takka þetta að sér. í sein-
asta bréfínu lýsir hann þó þeim ugg
sínum, að hann verði sveigður frá
þessu verki, „þar sem prófastur,
biskup og landshöfðingi em allir
hver með öðmm við þetta riðnir".
Hér em yfírboðarar hans og „þeir
sem undir þeim standa verða að
vera varkárir". Hefir hann meira að
segja frétt, að svipta eigi hann
möguleika á að fá nýjan aðstoðar-
prest, er sr. Ólafur Finnsson, sá sem
fékk Kálfholt 14. jan. 1890, hverfi
frá sér. Upp frá því heyrist ekki
framar minnzt á kjörprestinn, svo
að ætlast má á um endanlegt svar
prestsins á Reynivöllum við málaleit-
an búenda úr Mosfellssókn.
vn
„Þú tryggir ekki eftir á.“ Það er
víst og rétt. En sumir þykjast verða
vitrir eftir á. Ég hefi oft velt því
fyrir mér, hvers vegna þetta gekk
svona á skjön hjá þeim mætu mönn-
um, sem tókust á í Mosfellspresta-
kalli á þessum missemm fyrir rúmri
öld. Prófastur og biskup áttu vafa-
laust þá ósk helzta, að leiða mætti
málin friðsamlega til lykta. Mosfell-
ingar vom engir upphlaupsmenn að
eðli og vildu heldur hvergi halla réttu
máli. Hvers vegna fór þetta svona
úr böndunum? Andstæðingar kirkju-
flutningsins og annað sóknarfólk
gætir ekki hagsmuna sinna á fund-
um heima í héraði. Fundir em hunz-
aðir, en risið upp eftir á, og prófast-
ur túlkar lögin með mjög svo umdeil-
anlegum hætti. Hyggjum að því, að
trúfrelsi hafði aðeins staðið einn
áratug í landinu, er deilur hófust.
Lög um sóknamefndir og safnaðar-
fulltrúa vom að kalla ný af nálinni,
sett fyrst 1880. Til þess tíma var
lýðræði óþekkt í söfnuðum landsins.
Menn vom „hreinlega ekki búnir að
læra á kerfíð". Þar held ég, að fisk-
ur liggi undir steini. En það fólk,
sem þama sórst í andstæðar fylking-
ar, hafði hins vegar það víðsýni til
að bera, að það lét ekki átökin
smækka sig. Smám saman tókst góð
eining um kirkjuna fögm, sem nú
hefir tekið móti söfnuði sínum í heila
öld, og allir, sem staðið höfðu í bar-
daga fylkinganna, urðu menn að
meiri.
vm
Þessir horfnu atburðir höfðu samt
dálítil eftirmál. Búendur þeir, sem
andvígir vom flutningi kirkjunnar,
skomðust undan að greiða gjald
það, sem jafnað var niður á sóknar-
menn til að kosta timburgirðingu
um kirkjugarðinn á Lágafelli, kr.
4,50 á hvem. Synjun sína reistu
þeir á þeim skilningi á lögum, að
aðeins væri hægt að jafna niður
vinnukvöð, en ekki fégreiðslum, þeg-
ar reist væri kirkja eða kirkjugarður
girtur. Hreppstjórinn tók þá lögtaki
hjá Gísla í Leirvogstungu „hárreipi
á 10 hesta". Gísli skaut úrskurði
sýslumanns til landsyfirréttar, en
búendur höfðu áður skuldbundið sig
skriflega til að standa saman um
málarekstur. Dómur var kveðinn upp
í réttinum 28. sept. 1891. „Því dæm-
ist rétt vera: Hinn áfrýjaði fógeta-
réttarúrskurður ásamt eftirfarandi
lögtaksgerð skal úr gildi felldur. Hin
stefnda sóknamefnd í Lágafellssókn
greiði áftýjanda, Gísla bónda Gísla-
syni í Leirvogstungu, sem máls-
kostnað 30 kr., er lúkist innan 8
vikna frá lögbirtingu dóms þessa
undir aðför að lögum.“
Héma var dálítil sárabót.
IX
Á gömlum blöðum segir, að
„framkvæmdamenn og hreppstjór-
ar“ hafí látið „rífa og bijóta ofan
Mosfellskirkju og velta helgidómum
hennar út um kirkjugarðinn, er lágu
þar viku lengur undir hunda og
hrafna driti". Það komst þvi ekki í
hámæli fyrst í stað, að við þessa
útivist hafði klukka kirlq'unnar horf-
ið, sú sem er ein elzt kirkjuklukkna
á íslandi. Því siður varð uppskátt,
að kaleikur kirkjunnar fom og for-
kunnar fagur týndist við útivist
þessa. Seinna varð þó uppskátt, að
næsti nágranni Mosfellskirkju og
formælandi hennar ákafur, Ólafur á
Hrísbrú, hafði komið höndum yfir
klukkuna og varðveitti hana síðan.
Það heimili varð og til þess að
ala upp frá ungum aldri pilt úr
Reykjavík, sem morgun einn að út-
hallanda sumri sást rölta þar í holt-
inu blautur, svangur og kaldur. Stef-
án Þorláksson, seinna hreppsstjóri í
Mosfellssveit, óx upp með þessari
klukku. Og er hann lézt árið 1959
ókvæntur og bamlaus hafði hann
gjört erfðaskrá, þar sem hann kvað
svo á, að þorra eigna sinna skyldi
varið til að reisa Mosfellskirkju að
nýju. Bóndinn á Hrísbrú, Ingimund-
ur Ámundason, skilaði klukkunni í
Mosfellskirkju daginn fyrir vígslu
hennar, 4. apríl 1965. Áður höfðu
og Hrísbrúarbændur jafnan komið
klukkunni í sáluhlið á Mosfelli þegar
þar var greftrað, m.a. við útför Guð-
rúnar nokkurrar Jónsdóttur.
X
En kaleikurinn, sem lítt var
minnzt á, átti einnig örlagasögu.
Gísli bóndi í Leirvogstungu hafði
hann heim til sín. Frá honum komst
hann í hendur Guðrúnar Jónsdóttur,
stjúpdóttur hans, þeirrar sem Hall-
dór Laxness hefír sagt um söguna
af brauðinu dýra. Gunna stóra, eins
og hún var oft kölluð, var sú kona,
að aðrir Mosfellingar hafa ekki verið
henni ófúsari að afsala sér nokkru
af sjálfræði sínu. Og þegar hún gam-
almenni lézt að Æsustöðum í Mos-
fellsdal árið 1936 fannst þessi kal-
eikur ófágaður og ósélegur i föggum
hennar. Hjónin á Æsustöðum skil-
uðu honum fægðum til kirkjunnar.
(Heimildir: Prestsþjónustubækur og
manntalsbækur úr Mosfeilsprestakalli,
gðgn úr fórum landshöfðingja, visi-
tazíubækur biskups og prófasts,
gjörðabók héraðsftinda í Kjalarnes-
prófáatadæmi, blaðið tsafold 1888,
gðmul sendibréf, gnlnuð blöð, fráaagn-
ir 6(júgfróðra vina minna i MoaféUa-
preatakalli 116 og Hðinna.)
Höfundur erprófessor í guðírseði
við Há&kóla fslands ogfymim
prestur að Mosfelii.
GoldStcir
GSM-6330 hljómtækjasamstæða
2 x 15W magnari meö 5 banda tónjafnara,
hálfsjálfvirkur plötuspilari,
útvarp meö FM stereo, MW og SW,
tvöfalt segulband meö hraöupptöku og hátalarar
Fermingartilboð
aðeins 17.980,- kr. eöa
16.720,-
5 stgr.
E
SKIPHOLT119
SÍMI29800