Morgunblaðið - 24.02.1989, Side 15
auðgaði mig að kynnum við hlýtt
og hugulsamt fólk, með fullum skiln-
ingi á þðrf þess að ekki færu forg-
öðrum hlutimir sem forfeður og for-
mæður höfðu bjargast við í erfíðri
lífsbaráttu og vom sem óðast að
týna tölu á tíma mikilla breytinga í
þjóðlífi. Jónína í Þinghól skipar mik-
ið og gott rúm í þeim minnum.
Næmleiki hennar á gildi gamalla
minja tók flestu fram. Mér er enn í
minni dagurinn er hún færði mér
yfírlætislausan borðbút sem bar þess
glögg merki á ávölu homi að hafa
verið fyrir löngu dreginn á reiðings-
hesti utan frá Eyrarbakka austur á
Rangárvelli. Ekki er mér hann minna
virði laslegi axlabandalindinn sem
Jónína færði mér í annan tíma.
Hann horfír við hverjum gesti í sýn-
ingarpúlti í Skógasafni og ég minn-
ist Jónínu í hvert sinn er ég hef
yfír vísuna sem i hann er saumuð
af list:
Ljóst er letur á bandi,
lýðir mega sjæ
Hæstur heilagur andi,
hjálpi þeim sem i
Mörg fleiri dæmi gæti ég tilfært
um þennan skilning vinkonu minnar
á því að bjarga arfi íslendinga til
framtíðar. Fólk af þessari gerð hef-
ur skapað með mér safnið í Skóg-
um.
En við áttum fleira sameiginlegt,
ástina á „fræði og sögnum sögu-
lands.“ Jónína hafði alist upp á
menningarheimili í Miðkrika í Hvol-
hreppi, þar sem fólk, konur og karl-
ar, undu við það að segja sögur úr
fortíð. Móðir hennar var langminn-
ug og oft vitnaði Jónína til ömmu-
systur sinnar, Elínar Sigurðardótt-
ur frá Eystri-Garðsauka, sem var
geymin á gamlar sagnir og margar
þeirra festust í minni. A þeim árum
lærðist Jonínu líf og starf horfínnar
aldar og samtíðar, sem hún skráði
síðar af elju og áhuga um mörg ár
í svörum við spumingaskrám þjóð-
háttadeildar Þjóðminjasafnsins. Þar
er nú brunnur fróðleiks sem margir
munu af ausa.
í nýútkomninni árbók Rangár-
þings, Goðasteini, 1. árg., er ágæt-
ur þáttur skrifaður af Jónínu með
dularminnum föður hennar og dul-
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
15
arminnum heimahúsa og heima-
byggðar.
Jónína var fædd í Miðkrika 11.
maí 1907, dóttir Jóhanns P. Þor-
kelssonar bónda frá Miðkoti i Vest-
ur-Landeyjum, af ætt sr. Jóns Jóns-
sonar í Mið-Mörk undir Eyjafjöllum
(d. 1843) og konu hans, Valgerðar
Guðmundsdóttur, móðursystur
Guðmundar Daníelssonar skálds og
þeirra systkina. Ætt Valgerðar er
rakin til Elínar dóttur sr. Högna
Sigurðssonar prestaföður á Breiða-
bólstað (d. 1770). Þau hjón, Jóhann
og Valgerður, voru bæði ágæta vel
gefin og vel metin, gestrisni og
góðir siðir réðu húsum hjá þeim og
böm þeirra urðu nýtir borgarar í
þjóðfélagi.
Jónína giftist 18. júní 1939 Steini
Egilssyni frá Stokkalæk á Rangár-
völlum, traustum manni, álitlegum
og góðum á alla grein. Mér fannst
alltaf hann sameina alla bestu kosti
bóndans. Þau reistu bú að Þinghóli
í Hvoihreppi 1939 og bjuggu þar
notalegu þrifabúi til 1963. Fluttu
þá til Reykjavíkur, þar sem þau
hjón bjuggu í Hátúni 8, meðan til
entist ævi. Steinn vann þar um
mörg ár hjá Eimskip, vel látinn af
öllum samstarfsmönnum. Jónína
hélt hlýlegt heimili þeirra í góðu
horfí alla tíð og vann, hvenær sem
tóm gafst til, fagra hluti úr íslenskri
ull, að ógleymdum yndisstundum
við lestur góðra bóka og ritstörfum
fyrir þjóðháttadeild.
Steinn átti við heilsubrest að
stríða mörg síðustu árin og Jónína
annaðist hann af einstakri alúð og
nærgætni. Hann andaðist 29. apríl
1988. Þá var eins og hlutverki
Jónínu væri lokið og tómið var mik-
ið í lffí hennar. Hún andaðist 12.
þessa mánaðar. Synir þeirra hjóna
eru Jóhann, forstöðumaður í bú-
vörudeild Sambandsins, kvæntur
Hildi Magnúsdóttur frá Kirkjulælq-
arkoti í Fljótshlíð, og Eyþór raf-
virki, sambýliskona Sigrún Ingi-
bergsdóttir frá Drangsnesi.
Jónínu Jóhannsdóttur, þessari
friðu, fjölhæfu, glaðværu og við-
kynningargóðu konu flyt ég hug-
heila þökk að leiðarlokum.
Þórður Tómasson
YONO
PP 7000 hljómtækjasamstæða
40W magnari með 5 banda tónjafnara,
hálfsjálfvirkur, reimdrifinn plötuspilari,
útvarp með FM stereo, MW og LW,
tvöfalt segulband með hraðupptöku og síspilun,
geislaspilari með fjarstýringu og CD Digital hátalarar
Fermingartilboð
aðeins 33.980,- kr. eða
29.980,
stgr.
SKIPHOLT119
SÍMI29800
Stórútsfilumaikaðar
Ótrúlegl
yerð
Föstudaga.....Id. 13-19
Laugardaga.... Id. 10-16
Aðradaga......Id. 13-18
Fjöldi fyrirtækja
Þessi markaður
stendur aðeins
11.
mars
Jakkar Fínni buxur
2.900,- 1.800,-
Jakkaföt Pils
4.500,- 900,-
Kjólar Frakkar
1.900,- 1.000,-
Gallabuxur Bamasængurverasett
900,- 490,-
Bómullarefni
190,-
Eldhúsgardínuefni
fra 180,-
Dúnúlpur
2.950,-
Bamakjólar
500,-
Snjóqallasett
1.900,-
Vettlinqar
150,-
Treflar
200,-
Úlpur
1.000,-
Varalitir
160,-
95,-
Sængurverasett
m/laki
1.290, -
Sængur
2.290, -
Reiðstígvél
1.790,-
STENDUR SEM HÆST í
FAXAFEN114
(2. HÆÐ), SÍMI 689160
Fínar ullarpeysur
1.690,-
Dragtir
3.900,-
Loðfóðraðir
kuldaskór dömu
1.500,-
Herrakuldaskór
1.500,-
Vinnuskyitur
490,-
Hitateppi
1.980,
Stórir burknar
450,-
Túlípanabúnt
290,-
Jakkaföt úr góðum
efnum
8.900,-
Hljómtæki
fra
14.550,-
Ferðasjónvarp
m/útvarpi _
10.880,-
Símar
frá 1.990,-
Eriendar og íslenskar
plötur og kassettur
frá 99,-
Geisladiskar
frá 599,-
STEINAR HLJOMPLÖTUR - KASSETTUR KARNABÆR BOGART - GARBÓ - TÍSKUFATNAÐUR HUMMEL SPORTVÖRUR ALLS KONAR
SAMBANDIÐ FATNAÐUR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA RADÍÓBÆR HLJÓMTÆKI O.M.FL. Þ.H. ELFUR BARNAFATNAÐUR
HERRAHÚSID/ADAM HERRAFATNAÐUR MÍLANO SKÓFATNAÐUR BLÓM BLÓM OG GJAFAVÖRUR NAFNLAUSA BÚÐIN
EFNI ALLS KONAR THEÓDÓRA KVENTÍSKUFATNAÐUR MÆRA SNYRTIVÖRUR - SKARTGRIPIR PARTY TÍZKUVÖRUR
SKÓGLUGGINN SKÓR O.M.FL. FYRIRTÆKI