Morgunblaðið - 24.02.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐEÐ
íÞRárm PÖSTUDAGUR
24. FEBRÚAR 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN í FRAKKLANDI
íslendingar mæta Pólverjum í úrslitaleik í París á sunnudag:
„Stórkostlegir strákar"
- sagði Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari, eftir að leikmenn hans höfðu tryggt sér sæti í úrslitaleik B-keppninnar
STEMMNINGIN á hótel Altea
í Strasbourg var góð í gær-
kvöldi. Öll liðin í milliriðlinum
búa hér - nema Vestur-Þjóð-
verjar. Stuðningsmenn lands-
liða íslands og Sviss komu hér
við eftir leiki gærdagsins,
sungu og trölluðu og fögnuðu
sínum mönnum innilega. ísland
komst ífyrsta skipti í úrslita-
leik stórmóts og Sviss fer f
A-keppnina á kostnað V-Þjóð-
verja.
Islensku landsliðsmennimir sögð-
ust varla búnir að átta sig á því
að þeir væru komnir í úrslit en
vora þó frá sér numdir af gleði. „Ég
er auðvitað himinlif-
andi. Ég sagði við
strákana í hálfleik
hjá Sviss og Rúm-
eníu að sá leikur
Skaptí
Hallgrímsson
skrífarfrá
Frakklandi
Uppselt
til Parísar
Samvinnuferðir/Landsýn
hugleiða að senda aukavél
UPPSELT er í hópferðina með
Samvinnuferðum/Landsýn á
úrslitaleikina í B-keppninni f
handknattleik í París. Eftir að
Morgunblaðið sagði f rá því í
gærmorgun að fyrirhugað væri
að efna til hópferðar til Parfsar
varð allt vitlaust, orðið uppselt
f ferðina fyrir hádegi f gær og
SO manns á biðlista.
Eftir að ljóst varð í gærkvöldi
að ísland leikur til úrslita f
keppninni stoppaði síminn ekki hjá
Samvinnuferðum/Landsýn og vildi
fólk komast til að sjá úrslitaleikinn
á sunnudaginn. Til marks um þann
mikla áhuga á úrslitaleiknum hafði
áhöfn eins togara samband við
ferðaskrifstofuna og bað um að
útveguð yrði 12-manna leiguflugvél
til að koma þeim til Parísar fyrir
úrslitaleikinn. Togarínn á að koma
að landi á laugardag og vildu sjó-
mennimir ólmir komast út til að
styðja við bakið á handboltalands-
liðinu.
Forráðamenn ferðaskrifstofunn-
ar era að vinna í því að fá aðra vél
til að senda út með stuðningsmenn
á sunnudagsmorgun. Það mun
skýrast um hádegi dag hvort af
aukaferðinni verður.
MILLIRIÐILL1
STRASBOURG
ÍSLAND - HOLLAND---------- 31:17
RÚMENÍA - SVISS ---------- 16:16
V-ÞÝSKALAND - BÚLGARlA.....25:13
ÍSLAND - HOLLAND---------- 31:17
RÚMENÍA - SVISS ---------- 16:16
V-ÞÝSKALAND - BÚLGARÍA.....25:13
Fj. lelkja U i T Mörk Stlg
ÍSLAND 5 4 0 1 114: 91 8
RÚMENÍA 5 3 1 1 121: 103 7
SVISS 5 3 1 1 98: 88 7
V-ÞÝSKAL. 5 3 0 2 112: 89 6
BÚLGARlA 5 1 0 4 99: 120 2
HOLLAND 5 0 0 5 95: 148 0
MILLIRIÐILL2
MARSEILLE
DANMÖRK - fSRAEL ........32:17
SPÁNN - KÚBA........... 28:20
PÓLLAND- FRAKKLAND.......27'24
DANMÖRK - fSRAEL ........32:17
SPÁNN - KÚBA........... 28:20
PÓLLAND- FRAKKLAND.......27'24
Fj. lelkja u J T Mörk Stlfl
PÓLLAND 5 5 0 0 136: 109 10
SPÁNN 5 4 0 1 119: 106 8
FRAKKLAND 5 3 0 2 113: 99 6
DANMÖRK 5 2 0 3 126:117 4
KÚBA 5 1 0 4 111: 121 2
ÍSRAEL 5 0 0 5 88: 141 0
Morgunblaöiö/AFP
Krlstján Arason er markahæstur fslensku leikmannanna í B-keppninni með 20 mörk. Hann gerði flögur mörk í gær
og hér sést hann í baráttu við tvo hollenska vamarmenn.
færi jafntefli, eða 1-2 marka sigur
á annan hvom vegin," sagði Einar
Þorvarðarson.
Einar hefur lengi verið í eldlín-
unni. Hann sagði: „Það er gaman
að þetta hafí gengið svona vel í
keppninni, sérstaklega vegna þess
að við leikmennimir reiknuðum ekki
með að komast svona langt. Voram
passlega jarðbundnir. Ég hef farið
í nokkur stórmót og veit því að
best er að halda sér við jörðina -
þá verður ánægjan mest þegar vel
gengur. Þessi keppni hefur verið
geysilega erfíð ekki síðri en HM í
Sviss 86 og Ólympíuleikamir. Það
hefur verið ofsaleg pressa á okkur,
við höfum verið að vinna leiki en
tryggðum okkur þó ekki endanlega
sæti í A-keppninni fyrr en í dag,“
sagði Einar.
„Stór dagur fyrir islenskan
handknattleik"
Bogdan landsliðsþjálfarí var vita-
skuld ánægður með sína menn.
„Þetta er stór dagur fyrir íslenskan
handknattleik. ísland komst nú í
fyrsta skipti í úrslit á stóra móti
og það er mjög mikilvægt. Þetta
er viðurkenning fyrir mikla vinnu,
ekki aðeins síðustu 1 eða 2 mán-
uði, heldur síðustu 5 árin,“ sagði
Bogdan. Hann sagðist hafa verið
ánægður með það hvemig liðið lék
f Seoul, þó ekki hafí hann verið
ánægður með úrslitin. „Og hér hef
ég verið mjög ánægður með liðið.
Nú er regla á hlutunum hiá þessu
liði og ég vona og svo verði áfram.
Þetta era stórkostlegir strákar,"
sagði þjálfarinn.
„Eigum heima í A-keppninnl"
Jakob Sigurðsson lék sérlega vel
í leiknum í gær. „Við höfum sýnt
í þessari keppni að við eigum heima
f a-keppninni og hvergi annars stað-
ar. Það er gaman að komast í úr-
slitaleikinn, en verður öragglega
erfítt að spila fyrir framan 12.000
áhorfendur. Menn verða fyrst og
fremst að hugsa um að hafa gaman
af þessu."
„í skýjunum"
Þorgils Óttar Mathiesen Ijómaði
af ánægju er Morgunblaðið spjall-
aði við hann í gærkvöldi. „Maður
er alveg í skýjunum yfír þessum
árangri. Þetta er eitthvað sem mann
granaði aldrei, miðað við hve
keppnin er í raun sterk. Sovétmenn
era bestir í heiminum en breiddin
er orðin svo mikil að 10-15 lið koma
í einum hnapp þar á eftir.“ Þorgils
sagði það ótrúlega sterkt að hafa
„náð sér upp aftur eftir að hafa
dottið niður í B-keppnina. Og hér
hefur liðið leikið eins og það getur
best. Með það er ég mjög ánægður
og ég er ákaflega sáttur við það
að við skulum skilja við Bogdan sem
A-þjóð. Það er ekki nóg að segja
og syngja að menn ætli að gera
sitt besta — það verður líka að
gera það. Það höfum við gert og
vona að við geram það einnig í
úrslitaleiknum, þó ég viti að það
verður mjög erfitt að leika gegn
Pólveijum," sagði fyrirliðinn.
Bogdan í
faðmlögum
egar flautað var til leiksloka í
viðureign Svisslendinga og
Rúmena í gærkvöldi, og ljóst að
íslendingar væra komnir í úrslit,
fögnuðu íslendingar vitaskuld
mjög. Bogdan Kowalczyk, lands-
liðsþjálfari, tók á sprett ofan úr
áhorfendastúku, niður á gólf og
byrjaði á því að faðma fram-
kvæmdastjóra svissneska hand-
knattleikssambandsins að sér. Báð-
ar þjóðimar hafa nú tryggt sér
sæti í heimsmeistarakeppninni í
Tékkóslóvakíu á næsta ári.
„Erfltt gegn Pólvetjum"
Úrslitaleikurinn verður í París á '
sunnudaginn. „Það verður erfíður
leikur — eins og allir leikir okkar
gegn Pólveijum hafa verið. Við eig-
um alltaf góða möguleika gegn
Vestur— og Austur-Þjóðveijum og
Dönum, og liðum sem leika svipað
og þau, en gegn Pólveijum, Rúmen-
um og Ungveijum höfum við yfír-
leitt lent í erfiðleikum. Þessar þjóð-
ir leika svo ólíkt okkur. En við eram
komnir í úrslit — fáum því öragg-
lega verðlaunapening. Þetta hefur
verið mjög góður tími hér. Úrslita-
leikurinn verður erfíður og þegar
lið fer í sinn fyrsta úrslitaleik ætti.
það venjulega að tapa. En ég og
strákamir munum gera allt sem við
getum til að vinna þennan leik,“
sagði Bogdan Kowalczyk, landsliðs-
þjálfari.
Bjarkimeð
slKið iiðband
Bjarki Sigurðsson, homa-
maður úr Víkingi, leikur
ekki með íslenska landsliðinu
úrslitaleikinn gegn Pólveijum í
París á sunnudaginn. Það kom
fram í læknisskoðun í gær, að
Bjarki er með siitið liðband milli
sköflungs og dálks í ökkla hægri
fótar.
Bjarki meiddist á síðustu æf-
ingu landsliðsins áður en haidið
var til Frakklands. Hann lék tvo
fyrstu leikina í B-keppninni,
gegn Búlgaríu og Kúvait, en
hefur ekki verið með slðan.
Meiðslin virðast ekki há hon-
um mikið þrátt fyrir allt, ef
hann notar sérstaka spelku til
að vemda ökklan. Hugsanlegt
er að hann geti leikið með
Víkingum út keppnistímabilið
og láti siðan gera að meiðslunum
í sumar.
ísland í fyrsta sinn í úrslit
SPENNAN íRhenus höllinni í
Strasbourg í gœrkvöldi, er
líða tók að lokum leiks Sviss-
lendinga og Rúmena, var
ótrúleg. Rúmenar máttu
vinna með allt að fjórum
mörkum til að ísland kœmist
í úrslit. Með jafntefii yrði ís-
land einnig efst í riðlinum,
bœði Sviss og Rúmenía fœru
upp í A-flokk, en Vestur-
Þjóðverjar sœtu eftir. Og sú
varð raunin.
Svisslendingar börðust frá-
bærlega í leiknum, höfðu
yfír í hálfleik og hleyptu Rúmen-
um aldrei fram fyrir sig. Oft var
Skapti
Hallgrímsson
skrifar
frá Frakktandi
jafnt I seinni hálf-
leik. Þegar tvær
mínútur vora til
leiksloka hófu
Svisslendingar
sókn, staðan var jöfn 16:16, og
umræddri sókn lauk ekki fyrr en
fímm sek. voru eftir. Þá misstu
Svisslendingar boltann, og tíminn
var stöðvaður. Rúmenar reyndu
ekki að sækja - knötturinn var
gefínn á Vasili Stinga og hann
fór upp í hom við eigin vítateig,
skoppaði honum þar til flautað
var til leiksloka og brutust þá út
stórkostleg fagnaðarlæti.
Rúmenar og Svisslendingar
fögnuðu innilega, en ekki minnst
fögnuðu íslendingar - leikmenn,
aðstandendur liðsins og stuðn-
ingsmannahópurinn. ísland var
komið í úrslit á stórmóti í fyrsta
skipti. Stórkostlegur áfangi í
glæsilegri handknattleikssögu
landsins - og það rættist sem
þeir Gunnar Þór læknir og liðs-
stjórinn Guðjón sögðu við undirrit-
aðan áður en keppnin hófst: „ís-
lendingar mæta Pólveijum." Þá
vildu þeir ekki upplýsa í keppni
um hvaða sæti, en nú er það ljóst.
Eftir glæsilegan stórsigur ís-
lendinga á Hollendingum var ljóst
að ísland kæmist upp í A-keppn-
ina, en menn settust niður og biðu
- um hvaða sæti kæmu þeir til
með að leika? Hveijir yrðu mót-
heijamir? ÚrslitaJeikurinn verður
það og mótheijamir engir aðrir
en Pólveijar - landar Bogdans
landsliðsþjálfara. Leikið verður í
Bercy-höllinni í París á sunnudag-
inn.
Það verður stór dagur fyrir
Bogdan og landsliðsstrákana sem
urðu fyrir svo miklum vonbrigðum
á Ólympíuleikum í Seoul í haust
— en hafa svo sannarlega náð að
hrista af sér_ taugaslenið hér í
Frakklandi. íslenska landsliðið
hefur sýnt frábæran handknatt-
leik. „Slæmi“ leikurínn svokallaði
og margumræddi hefur enn ekki
litið dagsins ljós og gerir það von-
andi ekki á sunnudaginn.