Morgunblaðið - 24.02.1989, Síða 44
.SJOVA-ALMENNAR
Nýtt félag með sterkar rætur
JR*f0tuiMfifrUÞ
EINKAREIKNINGUR ÞINN
ílANDSBANKANUMg
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Samgönguráðherra:
Aukið efitir-
lit með einka-
leyfíshöfum
STEINGRÍMUR J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði á Alþingi í
gær, að efla þurfi verðlagseftirlit
með einkaleyfishöfum f fólks-
flutningum. Þetta kom fram í
svari hans við fyrirspum frá Hjör-
leifi Guttormssyni varðandi at-
hugun á ástæðum hárra fargjalda
f innanlandsflugi.
Hjörleifur spurði samgönguráð-
herra hvað stjómvöld hefðu aðhafst
í framhaldi aif ályktun Alþingis frá
liðnu vori um athugun á ástæðum
hárra fargjalda í innanlandsfiugi og
samanburð á fargjöldum á flugleið-
um innanlands og til útlanda. í svari
ráðherra kom fram, að á vegum
Flugmálastjómar hefði verið samin
greinargerð um málið og hún send
Flugleiðum. Fyrirtækið hefði síðan
skilað sérstakri greinargerð, sem
stangaðist allvemlega á við greinar-
gerð Flugmálasyómar. Sagði sam-
gönguráðherra að hugsaniega þyrfti
að kalla til nýja óháða aðila til að
kanna málið.
Kjúklingabændur:
_Sameiginleg1
dreifíngar-
fyrirtæki
FJÖGUR alifuglasláturhús og
kjötvinnsla þeirra hafr stofnað
sameiginlegt dreifingarfyrirtæki,
Alifugiasöluna sf., sem tekur við
sölu á ölium þeirra kjúklingum
og afurðum úr þeim um mánaða-
mótin. Framleiðendur um 90% ali-
fuglaframleiðslunnar standa að
þessu nýja fyrirtæki. Búist er við
að verðlagsnefindir landbúnaðar-
ins verðleggi kjúklinga frá og með
1. mars.
Bjami Ásgeir Jónsson, fram-
■ ktæmdastjóri Reykjagarðs hf., sem
á sæti í stjóminni segir að tilgangur-
inn með stofnun fyrirtækisins sé
fyrst og fremst að spara kostnað við
dreifíngu og bæta innheimtu og
minnka þar með áhættu framleið-
enda vegna gjaldþrota verslana og
veitingastaða.
Stofnendur Alifugiasölunnar sf.
em sláturhúsin Fjöregg, Móar,
Markaðskjúkiingur og Reykjagarður
auk Matfugls hf. sem er kjötvinnsla
þessarra sláturhúsa.
Vetrarrósir íHveragerði
Morgunblaöið/Ragnar Axelsson.
Það veitir sannarlega ekki af blómum, litum og sumarstemmningu í öilum umhleypingunum að
undanförnu, en rósarækt er nú stunduð veturlangt í fyrsta sinn hérlendis í Gróðrarstöðinni Gróður-
mörk 1 í Hveragerði.Þar hefur aukin birta með lömpum og aukin koltvísýringsgjöf frá Hæðarenda
í Grímsnesi skilað þeim árangri að fslenskar rósir hafr verið á boðstólum í allan vetur og standast
vel samkeppnina við innfluttar rósir. A myndinni er Björg Haildórsdóttir með kraftmiklar og
frgrar íslenskar rósir.
12 merktir
laxar í afla
Færeyinga
TÓLF örmerktir laxar af Norð-
urlandi hafa fundist í afla Fær-
eyinga það sem af er þessari
vertíð. Eru það mun fleiri laxar
en tiðkast hefur síðan rann-
sóknir hófust á afla Færeyinga
árið 1982. Þessar upplýsingar
koma fram í bréfi sem veiði-
málastjóri hefur sent Eyjólfi
Konráði Jónssyni, alþingis-
manni, vegna fyrirspumar frá
honum um þetta mál.
Skiptust merkin þannig að sex
laxar voru úr Laxá í Þingeyjar-
sýslu, tveir úr Miðfjarðará, þrír
úr Svartá í Húnavatnssýslu og
einn úr Hjaltadalsá í Skagafirði.
Eyjólfur Konráð hefur miklar
áhyggjur af þessum veiðum Fær-
eyinga og telur að þær beri að
stöðva ef ekki eigi að stofna
íslenska stórlaxastofninum á
Norður- og Austurlandi í hættu.
Ámi ísaksson, veiðimálastjóri,
segir þetta fyrst og fremst gefa
upplýsingar um göngur laxins.
Ekki sé hægt að draga þá ályktun
af þessu eina ári að íslenski stofn-
inn sé i hættu. Laxveiðar í sjó séu
þó alltaf óæskilegar og einungis
leyfðar í lögsögu Færeyinga og
innan við 40 mílur við Grænland.
Laxafli Færeyinga á síðasta ári
var um 200 tonn.
Sjá frásögn á bls. 4.
Sjávarútvegsráðherrar EB:
Heimilt að flytja inn 49.000
tonn af saltfiski á 6% tolli
Ánægjuleg tíðindi segir Magnús Gunnarsson hjá SÍF
Brussel. Frá Kristófer M. Kristóferssyni,
Sjávarútvegsráðherrar Evrópu-
bandalagsins samþykktu á fundi
{ Brussel í gær, að heimila inn-
flutning til bandalagsins á 49.000
tonnum af blautverkuðum salt-
fiski með 6% innflutningstolli.
Jafriframt var heimilaður inn-
fréttaritara Morjfunblaðsina.
flutningur á 500 tonnum af söltuð-
um flökum með 10% tolli. Fyrri
hugmyndir um innflutning á salt-
fiski á lágum toUi voru okkur
óhagstæðari og segir Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
SÍF, þessa niðurstöðu koma sér
vel. Almennur toUur á saltfiski er
13%.
Evrópubandalagið heimilar árlega
innflutning á hráefni til vinnslu-
stöðva innan bandalagsins á lækkuð-
um innflutningsgjöldum. Samkvæmt
tillögum framkvæmdastjómarinnar.
Lífeyrissjóður sjómanna:
Uppboða krafizt á 130 skípum
Útgerðin skuldar lífeyrissjóði sjómanna rúmlega 300 milljónir
ÚTGERÐIR 130 skipa um aUt Upphæðir þessar eru hæstar um
land, að Vestfiörðum og Aust- 10 miHjónir á fyrirtæki, en þar
Qörðum undanskildum, skulda sem skuldabréfin pjóta ekki
Lífeyrissjóði sjómanna nú um
300 miiyónir og hefur verið far-
ið fram á uppboð á þessum skip-
um tíl Iúkningar kröfunni. „Féð,
sem kemur í gegn um greiðslu-
miðlun sjávarútvegsins, skilar
sér vel, en það, sem upp á vant-
ar, eru 4% sem útgerðin tekur
af launum sjómanna og skilar
sfðan ekki. Við höfum fengið
bréf frá 12 fyrirtækjum, sem
hafe óskað þess að við tökum
skuldabréf Atvinnutrygginga-
sjóðs að upphæð um 50 milþ‘ónir
króna sem greiðslu á iðgjöldum.
ríkisábyrgðar og vextir á þeim
eru lágir vijjum við ekki taka
þau,“ sagði Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur og Lífeyris-
sjóðs sjómanna, f samtali við
Morgunblaðið.
„Kaup á þessum bréfum stang-
ast á við lög sjóðsins, sem kveða
svo á að ávaxta skuli fé hans eins
vel og frekast sé unnt,“ sagði Guð-
mundur. „Greiðslumiðlun sjávarút-
vegsins tekur 15% af brúttóverð-
mæti afla og deilir því niður á
ýmsa sjóði útvegsins og þar af fara
1,84% til iðgjalda í lífeyrissjóðinn.
Útgerðarmenn reiknuðu með að
það dekkaði þau 6% af launum sem
vinnuveitandinn á að standa skil á
og þetta fé skilar sér vel.
Svo taka þeir 4% af launum sjó-
manna og það fé skilar sér ekki
nógu vel. Mér virðist nauðsynlegt,
eigp iðgjöldin að skila sér, að hækka
verði hlutfall aflaverðmæta sem fer
í greiðslumiðlunina úr 15% í 17%,
þannig að 3,84% komi þá leið í
Lífeyrissjóð sjómanna, sem dreifir
greiðslum síðan á viðkomandi sjóði.
Skuldabréf Atvinnutrygginga-
sjóðs bera 5% vexti og með þeim
er sem sagt ætlunin að greiða van-
skil á fé, sem þegar hefur verið
tekið af sjóðsfélögum, sem síðan
þurfa að greiða 8% vexti af lánum
úr sjóðnum. Útgerðarmenn eru sem
sagt að biðja um lán úr Lífeyris-
sjóði sjómanna til fimm ára á lægri
vöxtum en sjóðsfélagar greiða. Á
að verðlauna útgerðarmenn fyrir
fjánlrátt með þessum hætti?
Ég held varla. Að auki er þetta
aðeins skammtímalausn, útgerðin
heldur örugglega áfram að safna
skuldum, þar sem raunveruleg
rekstrarskilyrði batna ekkert,"
sagði Guðmundur Hallvarðsson.
Sjá viðtal við Guðmund Hall-
varðsson á bls. 18.
sem lagðar voru fram í lok síðasta
árs, var gert ráð fyrir því, að á þessu
ári yrði heimilað að flytja 30.000
tonn af blautverkuðum saltfiski inn
til EB með 9% tolli. Það var umtals-
verð lækkun frá fyrra ári, en þá
námu þessar heimildir 52.500 tonn-
um á 5% tolli. Þessar tillögur voru
í samræmi við þá stefnu EB að draga
úr innflutningi og afla tekna til að
reka sjávarútvegsstefnuna með inn-
flutningsgjöldum á sjávarafurðir.
Eðlilegur tollur á saltfisk innan EB
er 13%.
„Þetta eru betri skilmálar en upp-
haflegu tillögumar voru,“ sagði
Magnús Gunnarsson í samtali við
Morgunblaðið. „Ég held að þama
hafi kaupendur á íslenzkum saltfiski
og íslenzk stjómvöld beitt sér af
miklum krafti til að fá fyrri hug-
myndum breytt. Þetta er að sjálf-
sögðu mun betri kostur en upphaf-
lega, en þetta er hins vegar litlu slak-
ari kostur en á síðasta ári. Kvótinn
var þá 52.500 á 5% tolli. Það er erfitt
að segja hve miklu af þessum kvóta
við íslendingar getum náð. Miklar
birgðir em til í Portúgal, stærsta
viðskiptalandi okkar, og við eigum
eftir að semja við þá um skilmála
þessa árs. í stað þess að semja í
upphafí janúar eins og undanfarin
ár, höfum við verið að bíða eftir þess-
um niðurstöðum til að átta okkur á
því hvaða áhrif þær hafa á markað-
inn á þessu ári. Við fluttum um
60.000 tonn á síðasta ári til EB og
þá lenti hluti af innflutningi okkar í
13% tolli og svo verður einnig nú,“
sagði Magnús Gunnarsson.