Morgunblaðið - 03.03.1989, Qupperneq 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1989
MORGUNBLAÐIÐ FÖPTUDAGUR 3. MARZ 1989
B 5 -
Islensk hönnun
Form ísland, félag áhugamanna um hönnun, mun
ásamt húsgagnaframleiðendum gangast fyrir
hönnunardegi í Reykjavík 9. mars næstkomandi.
Slíkur dagur var haldinn ífyrsta skipti fyrir ári
síðan, en markmiðið með honum er að kynna
íslenska hönnun og framleiðslu og koma henni á
framfæri. íslenskir húsgagnaframleiðendur eiga
nú um 90% í skrifstofumarkaðnum, en þeim hefur
ekki gengið eins vel að ná til fólks með íslensk
heimilishúsgögn.
Níu framleiðendur og fyrirtæki kynna nýjungar
sínar á sviði húsgagnaframleiðslu á hönnunardeg-
inum að þessu sinni. Þau framleiða skrifstofu- og
stofnanahúsgögn, svefnherbergishúsgögn, eld-
húsinnréttingar, og önnur heimilishúsgögn. Fyrir-
tækin eru Bíró hf., E.E. húsgögn, Axis hf., Kristján
Siggeirsson hf., Steinar hf., Stálhúsgögn, Epal og
Gamla Kompaníið, öll með innlenda framleiðslu.
Álafoss kynnir áklæði fyrir húsgagnaiðnað og Casa
kynnir erlendar nýjungar í húsgagnaframleiðslu.
Ráðgert er að afhenda viðurkenningu á Kjarvals-
stöðum þennan dag til hönnuðar sem að mati
sérstaklega skipaðrar verðlaunanefndar hefur sýnt
áhugaverðustu nýjungina þetta árið. MEO
nlocca-stóllinn er
hannaður af Pétri B.
Lútherssyni, en fram-
leiðandi er Steinar hf.
Stálhúsgögn. Grind
stólsins er ýmist
krómuð eða nælon-
húðuð, en bakið er úr
beyki, ýmist lituðu eða
ólituðu. Seta stólsins
er krossviður með
álímdum svampi,
klædd áklæði, leðri
eða leðurlíki.
A rco-stóllinn frá Stálhúsgögnum er hannaður af Svisslendingn-
um Paul Tuttle. Stóllinn er úr stáli og ieðri.
mocca-borðin eru einnig frá Stálhúsgögnum. Fæ-
turnir eru með krómuðum eða nælonhúðuðum
rörum, festum við á stálplötur við gólf og borð-
plötu. Platan er ýmist klædd harðplasti, Mnól-
eumdúk eða spónlögð. Hönnuður er Pétur B. Lút-
hersson.
ukápur úr Ma5m^Mff?Tfrá Axis
hf., sem hægt er að snúa. Hann
er úr Ijósum aski og hvítmálaður
fyrir bað eða einstaklingsherbergi.
Hönnuður hans er Pétur B. Lút-
hersson.
utóll úr formspenntum viði, seta og bak eru úr sérstöku teygju
efni frá Kristjáni Siggeirssyni. Hönnuður er Pétur B. Lúth
ersson, húsgagnaarkitekt.
dtóil í stíl við sófann frá Epal gerður af sömu hönnuðum og einnig
málaður af Tolla.
ramleiðandi þessa sófa er Epal hf. Hönnuðir eru Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðar-
son, en sófinn var síðan málaður af Þorláki „Tolla“ Kristinssyni.
Leikfimi
Teygjuæfingar fyrir háls, herðar og brjóstkassa
Daginn er tekið að lengja og vorhugur kominn í marga.
Því er um að gera fyrir þá sem ekki eru þegar á fullu- í
leikfimi að taka sig nú taki og gera æfingar annaðhvort
í vinnunni eða heima til að fá líkamann í lag fyrir sumarið.
Við munum af og til fram á sumar fá til liðs við okkur
leiðbeinendur til að kenna æfingar þeim sem ekki stunda
reglulega leikfimi með kennara. Að þessu sinni er það
Hafdís Árnadóttir í Kramhúsinu sem leiðbeinir með æfing-
ar fyrir háls, herðar og brjóstkassa. Hún segir að æfingarn-
ar séu ætlaðar byrjendum. Þær eru byggðar upp þannig
að allir ættu að geta gert þær eftir myndunum án þess
að hafa kennara á staðnum.
Hafdís bendir á að hjá óvönu fólki sé vöðvabólga algeng-
ur kvilli, þ.e. stífir vöðvar í öxlum, hálsi og baki og því
henti þessar æfingar ágætlega. Að lokum telur hún vert
að benda þeim á er stunda æfingar heima að synda líka
eða ganga rösklega.
Það er Ólöf Ingólfsdóttir sem gerir æfingarnar á mynd-
unum. grg
1. Sitjið á stól með beint bak og hallið höfði
á ská fram og leggið kjálkabein við viðbein.
Hendi er stutt á höfuðið en armurinn á að
vera slakur.
2. Hendin er sett undir stólsetu og síðan á
að halla sér til hliðar og slaka á hálsi. Sitja
á með beint bak. Öruggt er að gera æfinguna
í 20 til 30 sekúndur og hrista axlir vel á milli,
á undan og eftir æfingum.
3. Standið fyrir framan gluggasyllu eða hurð-
arkarm og seilist með hægri hendi í karm
eða syllu vel fyrir ofan axlarhæð. Stígið stórt
skref fram með hægri fót og beinið þunga á
brjóstvöðva. Gætið þess að fetta ekki bak.
4. Krjúpið og
togið mjaðma-
grindina aftur.
Seilist með
arma fram og
slakið á öxlum.
Forðist að setja
olnboga í gólf.
6. Seilist á ská
fram með hægri
arm og setjið
hægri fót eins
langt til vinstri
og hann kemst.
Slakið á axlarlið
og forðist að
missa olnboga í
gólf.
Þorkell
5. Krjúpið áfram en hafið nú olnboga beint út frá öxlum og látið
fingur vísa inn. Beinið þunga á brjóstvöðva og reynið að slaka vel
á milli herðablaðanna.