Morgunblaðið - 09.03.1989, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989
Ók á móti umferðinni á Miklubraut
Morgunblaðið/Júlíus
TVENNT slasaðist í hörðum árekstri þriggja bíla á Miklubraut
rétt vestan við Ártúnsbrekku á ellefta tímanum í gærkvöldi.
Árekstrinum olli ung kona, sjáanlega ölvuð að sögn lögreglu, sem
ók fólksbO sínum niður Artúnsbrekku og siðan vestur Miklubraut
á móti umferð á öfúgum vegarhelmingi. BíU konunnar rakst firam-
an á Bronco-jeppa á austurleið, sem kastaðist við höggið á Mazda-
bíl, sem ekið var i sömu átt. Bill konunnar sem slysinu olli valt
á hliðina eftir áreksturinn. Annað ft'amhjólið brotnaði undan jepp-
anum. Konan var flutt með sjúkrabU á slysadeild, en fékk að
fara þaðan að lokinni skoðun og blóðsýnistöku. Ökumaður Mazda-
bifreiðarinnar var fluttur á slysadeUd vegna áverka á handlegg.
íslenskt vinnsluskíp til Alaska
• •
Olvaðir græn-
lenskir sjó-
menn stálu bíl
TVEIR ölvaðir grænlenskir sjó-
menn stálu bU af Suðurgarði við
HafnarQarðarhöfn í gærmorg-
un. Ökuferð þeirra endaði í Kúa-
gerði þar sem bíllinn lenti utan
vegar. Mennina sakaði ekki og
bUlinn skemmdist lítið.
Að sögn rannsóknarlögreglu í
Hafnarfirði eru verulegar annir
samfara viðdvöl grænlenskra
rækjutogara í bænum. Mikið er
drukkið um borð í landlegum,
skemmdarverk hvers konar eru tíð
og eins sækir mikið af stúlkum, oft
ólögráða, í félagsskap Grænlend-
inganna og dveljast þær þar lang-
dvölum.
Y estmann-
eyingar án
raftnagns
V estmannaeyj um.
BETUR fór en á horfðist með
viðgerð á vararafstrengnum tU
Eyja. Bilunin reyndist vera i
jörðu í um hundrað metra §ar-
lægð frá rafstöðinni. Strengur-
inn var grafinn upp og reyndist
einn fasi hafa brunnið og var
puttastórt gat á strengnum. Við-
gerðarmenn komu með Heijólfi
frá Reykjavík f gær og hófst við-
gerð um kvöldmatarleytið. Var
búist við að henni yrði lokið fyr-
ir miðnætti.
Rafmagnsiaust varð í Eyjum um
miðjan dag á þriðjudag vegna þess-
arar bilunar. Vararafstöðvamar
gátu ekki sinnt allri orkuþörf bæjar-
ins og voru frystihúsin og fískverk-
unin látin sitja fyrir. Seint í fyrra-
kvöld var sett rafmagn á bæinn en
hann varð aftur rafmagnslaus um
átta í gærmorgun þegar frystihúsin
og fiskverkunin fóru í gang. Fór
rafmagnið síðan að tínast smám
saman á bæinn á ný með kvöldinu.
Grímur
T.iiii Karen val-
in Fordstúlka
LILLI Karen Wdowiak var í
gærkvöld valin Fordstúlka 1989
á íslandi.
Lilli Karen er 17 ára gömul og
vinnur í bakaríi í Gnoðarvogi. Hún
er fædd í Bandaríkjunum, en faðir
hennar er pólskur. Það var William
Ford sem valdi Lilli Karen úr hópi
tíu stúlkna og verður hún fulltrúi
íslands í keppninni Super Models
of the World, sem fram fer í Banda-
ríkjunum í ágúst.
ÍSLENSKA úthafeútgerðarfé-
lagið hf. hefúr gengið frá kaup-
um á 1200 tonna frystitogara frá
Grænlandi til að nýta veiðiheim-
ildir íslendinga við Alaska. Skip-
ið mun annast vinnslu á afla
bandariskra fiskibáta sem landa
í gærdag og fram á kvöld var
unnið við að veita vatninu burt frá
skólahúsinu, en þar var allt um-
flotið vatni. Jóhanna Lárusdóttir á
Brekku í Mjóafirði sagði mestu
mildi að íbúðin var mannlaus þegar
honum beint um borð og er ætl-
unin að skipið verði komið á
miðin í maí.
Að sögn Ragnars Halldórssonar
hjá íslenska úthafsútgerðarfélaginu
byggist vinnslan við Alaska á samn-
ingi Bandaríkjastjómar og ríkis-
flóðið féll. Hefja átti kennslu í skól-
anum eftir hádegi í gær, en frá því
fallið sökum leiðinda veðurs, að
sögn Jóhönnu. Ljóst er að ekki verð-
ur hægt að kenna í skólanum fyrst
um sinn, en Jóhanna sagði það
stjómar íslands frá árinu 1984 um
veiðiheimildir. Samningurinn átti
að renna út 1. júlí á þessu ári en
hefur verið framlengdur til 1. júlí
1991.
Ragnar segir að gerður hafí ver-
ið samningur við bandaríska fyrir-
ekki koma að sök þar sem bömin
væru fá og hægt að kenna þeim í
heimahúsum.
Um þijúleytið í gær mddi Borg-
areyrará sig af þvílíku afli að brúin
yfir ána lyftist upp og færðist úr
stað. Þrír bæir urðu við það vega-
sambandslausir, en fjölskylda á
bænum Kastala flutti sig um set,
þar sem talin var hætta á að flóð
gæti fallið úr gili ofan bæjarins.
í dag er von á matsmanni sem
meta á það tjón sem orðið hefur í
Mjóafirði.
tækið Associated Vessel Services
um að nýta þessar veiðiheimildir.
Ætlunin sé að bæta við öðru skipi
síðar til að vinna þann kvóta sem
samningurinn kveður á um, alls 30
þúsund tonn. Afurðimar verða
teknar við skipshlið af flutninga-
skipi og fluttar á markaði I Banda-
ríkjunum, Evrópu og Japan.
Beiðni um skráningu skipsins
undir íslenskum fána liggur nú fyr-
ir hjá siglingamálastjóra en sér-
staka undanþágu þarf frá lögum
til að skrá skipið þar sem það er
eldra en 11 ára.
Stysta
búnaðar-
þingínu
lokið
BÚNAÐARÞINGI lauk í gær-
kvöldi. Það stóð í 10 daga og
er líklega stysta reglulega bún-
aðarþing frá upphafi, að því er
fram kom í ræðu Hjartar E.
Þórarinssonar forseta búnaðar-
þings við lok þingsins. „Með
þessari hörku við sjálft sig vill
þingið leggja sitt af mörkum
við sparnað hjá Búnaðarfélagi
íslands," sagði hann.
43 mál vom lögð fyrir þingið
og voru þau afgreidd frá þinginu
með 32 þingsályktunum. A þing-
inu var meðal annars fjallað um
umfangsmikla lagabálka, svo sem
jarðræktarlög, endurskoðun bú-
fjárræktarlaga, skógræktarlög og
stjóm umhverfismála. Þijár álykt-
anir voru gerðar um skógræktar-
mál og fjallað ítarlega um búreikn-
inga, bókhaldsmál og skipulag
ieiðbeiningaþjónustunnar, hag-
stofnun landbúnaðarins og fleira.
Sjá einnig fréttir af búnaðar-
þingi á bls. 29.
©
INNLENT
Hið íslenska kennarafélag:
Atkvæðagreiðsla um verkfall
í þriðja skipti á þremur árum
EF VERKFALL verður samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu
félaga í Hinu íslenska kennarafélagi munu um tólf hundruð kenn-
arar, einkum $ framhaldsskólum landsins, leggja niður vinnu 6.
aprfl næstkomandi. Það sama gildir um margar aðrar stéttir
háskólamenntaðra manna, ef það verður einnig niðurstaða at-
kvæðagreiðslu f félögum þeirra.
Hörður Lárusson, deildarstjóri
framhaldsskóladeildar mennta-
málaráðuneytisins, segir að 15-16
þúsund nemendur séu á öllu fram-
haldsskólastiginu, þ.e. í mennta-,
fjölbrauta-, iðn- og tækniskólum.
Að meðtöldum nemendum í öld-
ungadeildum gæti þessa tala verið
eitthvað á átjánda þúsundið.
Kennsla í mennta- og flölbrauta-
skólum myndi leggjast niður í
verkfalli, auk þess sem einhver
röskun yrði á kennslu í efstu
bekkjum grunnskóla, en sumir
kennarar þar eru í HIK. í 9. bekk
grunnskólans eru samræmd próf
í apríl.
Hörður sagði að ef af verkfalli
yrði kæmi það á versta tíma, þar
sem próf hæfúst seinnihluta apríl-
mánaðar og miðað væri við að
skólum væri slitið í lok maí. Auð-
vitað vonuðu menn í lengstu lög
að ekki kæmi til verkfalls, en nið-
urstaða atkvæðagreiðslunnar yrði
að leiða það í Ijós. Aðspurður
hvað væri til ráða ef til verkfalls-
ins kæmi, sagði hann að sjálfsagt
yrði að leysa það eftir aðstæðum
í hveijum skóla.
Þetta er í þriðja skipti á þrem-
ur árum, sem HÍK hefur atkvæða-
greiðslu um verkfall. Félög opin-
berra starfsmanna fengu verk-
falls- og samningsrétt hvert um
sig með samningsréttarlögum op-
inberra starfsmanna, sem sam-
þykkt voru á Alþingi skömmu
fyrir jólaleyfi þess 1986. Mjög
mörg félög þeirra nýttu sér þenn-
an rétt í kjarasamningum um
vorið, þar á meðal kennarar í
HÍK, sem voru í hálfs mánaðar
verkfalli seinni hluta marsmánað-
ar. Eftir að verkfallið leystist í
byijun apríl, var víða tekin upp
kennsla á laugardögum og að
hluta til f páskafríi til þess að
hægt væri að komast yfír náms-
efnið fyrir vorpróf. Samið var til
tveggja ára, en kennarafélögin
höfðu ólíkt öðrum félögum opin-
berra starfsmanna möguleika til
uppsagnar á samningstímabilinu,
vegna ákvæðis um endurskoðun
á starfskjörum kennara. Samn-
ingum var sagt upp og í atkvæða-
greiðslu um verkfall var það
naumlega samþykkt með 464 at-
kvæðum gegn 462, en 60 seðlar
voru auðir. Félagsdómur úrskurð-
aði í framhaldi af því að verk-
fallið væri ólögmætt, þar sem
ekki hefði náðst meirihluti fyrir
boðun verkfallsins í atkvæða-
greiðslunni.
Mjóifiörður: • ‘
Flóð féll á skólann
- Brú færðist úr stað er Borgareyrará ruddi sig
UMTALSVERT tjón varð er krapastífla brast í læk ofán við skóla-
húsið Sólbrekku í Mjóafirði laust eftir hádegi í gær. Svo mikill
var kraftur flóðsins, sem á efitir fylgdi, að veggur á kennaraíbúð
I austurenda skólans gaf sig. Vatnsleiðsla í skólanum fór í sund-
ur og var þar allt á floti.