Morgunblaðið - 09.03.1989, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989
. 48
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Þesslr hrlngdu . .
Konráð Sverrisson hringdi:
Mig langar til að koma hér með
eina vísu sem er svona.
Kvöldið er að byrja,
bjórinn rennur vel,
en bara einn í viðbót granni.
Annars verð ég þunnur,
þunnur eins og skel,
en þessi gerir oss að manni.
Klútur tapaðist
Ljósgrænn klútur með rauðum
rósum týndist í Bíóborginni eða á
Snorrabraut sl. sunnudagskvöld.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 17176.
Til að verða hólpinn þarf
að frelsast
Jón Arnar Ingólfsson
hringdi:
Margt er rætt og ritað í blöð
um trúmál og eru þar bæði
leikmenn og lærðir á ferðinni. Ég
ætla að varpa ljósi á leyndardóma
guðsríkis. Spumingin er, hver
getur orðið hólpinn? Eins og
lærisveinar Krists spurðu hann að.
Til þess að vera hólpinn og
ganga inn í himnaríki þarf maður
að frelsast. Það er algjört skilyrði
fyrir því að vera skráður í lífsins
bók. Menn spyija: Hvemig get
ég frelsast?:
Ég mæti alltaf í kirkju á
sunnudögum og les guðs orð,
segja menn gjaman. Það er ekki
nóg, maður verður að lifa virku
trúarlífi og ganga á guðs vegum
allan sólarhringinn. Guð er góður.
Þó maður gleymi guði og gleymi
að biðja þá gleymir hann þér ekki.
Hann sér um ferðir okkar allra.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra
í bili en læt frá mér heyra seinna,
og þá fer ég nánar út í það frelsi
sem guð veitir. Góðar stundir.
Sódóma í Sjónvarpinu
Sigurlaug Tryggvadóttir
hringdi:
Þótt búast megi við því að
ráðamenn sjónvarpsins taki
ekkert tillit til orða minna, verð
ég að lýsa yfir vanþóknun á því
sem var borið fram fyrir þjóðina
á þeim vettvangi sl. mánudag í
þættinum Já.
Þvílíkt ógeð. Hverskonar
sódóma er þetta íslenska þjóðfélag
að verða. Vita menn ekki hvað
svona ómenning hefur í för með
sér, ekki einungis fyrir þá sem
ungir eru? Það er verið að draga
hina sönnu list ofan í svaðið og
gera hana að skrímsli.
Svo er það guðlastið, sem er
ein svartasta syndin sem
maðurinn getur drýgt. Skapari
himins og jarðar hlýtur að fara
að heíjast hand og taka í taumana
þegar hans tími er kominn.
Algjör smekkleysa
Gamall maður hringdi:
Mér fannst þátturinn um
Smekkleysu í sjónvarpinu á
mánudagskvöld vera til algjörrar
skammar. Sá sem hefur tekið
slíkan þátt inn í sjónvarpið er
ekki starfi sínu vaxinn. Það er
ekki hægt að bjóða fólki upp á
svona lagað.
Mælitækjum stolið
Skúli Guðnason hringdi:
Svartri tösku með sérhæfðum
mælitækjum var stolið úr bílnum
mínum við Glæsibæ, Álfheimum.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 681351 eða skili til
lögreglunnar.
Hver þekkir höfúndinn?
Vg.V. hringi:
Er ekki einhver sem kannast
við höfund þessarar vísu?
Lífið er gáta, leyst á margan hátt.
Að hlæja og gráta hefur skipst á þrátt.
Unaður, kæti, angur, sorg og þrá,
skiptir um sæti skugga bekkjum 1
Óskiljanlegt orð í
Staksteinum
Jón Stefánsson hringdi:
í Staksteinum í Morgunblaðinu
í morgun, 7. mars er ein
óskiljanleg setning: „Það er sum
sé eitt að kveða upp vinstri sljóm,
annað að ráða við
uppkvaðninginn."
Ég held að þama sé verið að
vísa í þjóðsögumar þó ég hafi
aldrei heyrt um „uppkvaðning"
og orðið er ekki að fínna í orðabók
Blöndals. Aftur á móti, þegar
verið var að vekja upp drauga,
gekk oft illa að kveða
uppvakninginn niður.
Víkverji skrifar
Víkverji hefur velt fyrir sér, hve
skammsýn þau sjónarmið
skattyfírvalda em að örva fólk ekki
til spamaðar í lífeyrissjóðum. Hér
fyrr á ámm var mjög örvandi að
greiða í lífeyrissjóð, því að iðgjöld
vom undanþegin tekjuskatti og
drógust frá þeim heildartekjum,
sem menn höfðu, þegar gert var
upp til skatts. Síðan kom svokölluð
10% frádráttarregla, sem í raun
afnam þessi fríðindi, að lífeyris-
greiðslur væm undanþegnar skatti.
Niðurstaðan varð sú, að fólk sá
sér ekki hag í því að greiða í lífeyr-
issjóð og fyrirsjáanlegt er að lífeyr-
issjóðir munu ekki standa undir
skyldum sínum í framtíðinni. Vænt-
anlega kemur það þá niður á ríkis-
sjóði, sem tryggja þarf, að allir búi
við mannsæmandi kjör í þjóðfélag-
inu og sífellt verður hlutfall lífeyris-
þega stærra miðað við vinnandi
hendur í þjóðfélaginu. Því verður í
raun sífellt erfiðara að ná þessu
takmarki.
í nýja skattkerfínu er frádrætti
vegna iðgjalda lífeyrissjóðanna gert
enn lægra undir höfði og á skatt-
framtali er ekki einu sinni reitur
fyrir lífeyrisiðgjaldagreiðslur.
Þannig ber allt að sama bmnni.
Skammtímasjónarmið ráða ríkjum
í stjómarathöfnum í kringum ríkis-
kassann.
xxx
egar hugað er að þessum ið-
gjaldagreiðslum, má jafnframt
benda á að ein af ástæðunum fyrir
því að núverandi húsnæðislánakerfi
er spmngið, er það að lán innan
þess kerfis hafa borið allt of lága
vexti, 3,5%. Það hefur t.d. verið
hagkvæmt fyrir fólk að taka hús-
næðislán með þessum kjömm, þótt
það þurfi þess ekki með. Ástæðan
er, að unnt hefur verið að lána
ríkinu peningana aftur og fá 7,2%
vexti fyrir, þ.e.a.s. vexti sem verð-
tryggð ríkisskuldabréf bera. Allir
sjá, að í þessu er engin glóra. Ríkis-
valdið býður fólki upp á sjálfvirka
peningavél, sem malar því gull og
lái hver sem vill fólki, sem notar
þetta tækifæri.
í þessu sambandi má einnig
minna á námslánin. Þau bera í raun
enn lægri vexti en lán húsnæðis-
málastjómar, enda hefur Víkveiji
fyrir satt, að margur nemandinn
taki námslán einungis til þess að
kaupa ríkisskuldabréf. Það er ekki
ónýtt að fá á námsámm tækifæri
til þess að setja í gang peningavél,
sem kannski fer langt í að tvöfalda
höfuðstól lánsins á 10 ámm. Verð-
trygging gengur svo upp gegn verð-
tryggingu og menn sitja uppi með
dágóðan sjóð að námi loknu.
Nú er ekki svo að skilja að allir
námsmenn hafi tækifæri til þess
að setja þessa sjálfvirku peningavél
í gang. Sumir em komnir með fjöl-
skyldu á framfæri og em kannski
ekki ofsælir af þeim lífeyri, sem
þeir hafa. En það hlýtur að vera
eitthvað bogið við þetta kerfi, þegar
það felur í sér möguleika, sem hér
hefur verið lýst.
XXX
Kunningi Víkveija benti á vand-
ræðalegan galla, sem er á
annars afbragðs góðum Tópastöfl-
um, sem Sælgætisverksmiðjan Nói
framleiðir og selur. Umbúðimar um
Tópasinn em svo illa límdar að öskj-
umar losna nær undantekningar-
laust, þegar þær em settar í vasa.
Víkveiji skorar á framleiðanda Tóp-
asins að fá framleiðanda askjanna
til þess að nota betra lím, svo að
Tópasinn fari ekki út um allt í vasa
þessa kunningja Víkveija.
KV ÖLDNÁMSKEIÐ í HUGARÞJÁLFUN
HUGEFLI
Bolholti 4
10. mars kl. 19.00.
Námskeiðið byggir á nýjustu
rannsóknum í dáleiðslu,
djúpslökun, tónlistarlækningum
og beitingu ímyndunaraflsins.
Með sjálfsdáleiðslu getur þú m.a.:
A Opnað aðgang að öflugustu hlut-
um undirmeðvitundarinnar.
A Náð djúpri slökun og sofnað á
nokkrum mínútum.
A Fyrirbyggt taugaspennu, kvíða
og áhyggjur.
A Hætt reykingum og ofáti.
A Auðveldað ákvarðanatöku og
úrlausn vandamála.
Námskeiðið verður haldið á hverju
föstudagSkvöldi í 4 vikur. Leiðb.
er Garðar Garðarsson NLP pract.
Skráning og nánari upplýsingar
fást hjá Nám-
skeiðahald,
SÍMI:
3 00 55
Sendum bækling
ef óskað er.
☆
Á
ÆSIR
NffiST
restaurant
S í M I 17 7 5 9
Síldarvagninn
+ B-matseðill
alla virka daga
VESTURGÖTU 10, 101 REYKJAVÍK