Morgunblaðið - 09.03.1989, Side 52
_jiglýsinga-
síminn er 2 24 80
*t$nn(ltifr!fr
SAGA CLASS
í heimi hraða og athafna
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
50% verð-
fall á lýsi
RÚMLEGA 50% verðfaU hefur
orðið á loðnulýsi á mörkuðum
erlendis £rá þvi sem það var
hæst í fyrra. Fyrir tonnið af
loðnulýsi fengust fyrir tveimur
vikum 250 dollarar og fyrir
prótíneininguna af loðnumjöli
fengust 9,20 dollarar. Verð á
loðnulýsi fór hins vegar hæst í
470 dollara fyrir tonnið í fyrra
og verð á loðnumjöli komst þá
í tæplega 10 dollara fyrir
prótíneininguna, að sögn Jóns
Reynis Magnússonar fram-
kvæmdastjóra Síldarverk-
smiðja ríkisins.
Jón Reynir sagði að loðnuafurð-
ir hefðu síðast verið seldar fyrir
tveimur til þremur vikum. Hann
sagði að allt að 90% af loðnulýsinu
hefði verið selt til Bretlands en
sáralitið hefði verið selt þangað
af lýsi á þessari vertíð. Hins vegar
hefði verið selt mikið af lýsi til
Noregs og meginlands Evrópu í
vetur og stór mjölsala til Póllands
hefði bjargað miklu.
Tíu piltar
stálu úr
stöðumælum
Óeinkennisklæddir varðmenn
gatnamálastjóra og lögreglunn-
ar stóðu 14 ára dreng að þvi að
skemma stöðumæla á Skóla-
vörðustíg á þriðjudagskvöld.
Yfírheyrslur yfír piltinum leiddu
til þess að upp komst um 10 pilta
á svipuðum aldri sem um nokkurt
skeið hafa gert sér sérstaka ferð í
miðbæinn að kvöldlagi til að bijóta
upp stöðumæla og reyna að koma
höndum yfír peninga sem þar er
að fínna.
Undanfamar vikur hefur
Reykjavíkurborg orðið fyrir hundr-
uð þúsunda króna tjóni vegna
skemmda á stöðumælum vegna
þessa en hins vegar hafa skemmd-
arvargamir haft lítið upp úr krafs-
inu enda eru mælamir tæmdir
reglulega og litla peninga í þeim
að fínna.
Morgunblaðið/Úlfar
Tveggja manna er saknað eftir sqjóflóð er féll á Óshlíðarveg í gær. Snjófióðin féllu úr gili milli
Húfii og Halds, en á Haldsnibbunni stendur krossinn sem reistur var þegar Óshliðarvegur var
vígður. Á myndinni má sjá björgunarsveitarmenn kemba í gegnum skriðuna en 70-80 manns tóku
þátt i leitinni. Leitarhundur kom siðdegis með þyrlu Landhelgisgæslunnar og kafarar frá ísafirði
og varðskipinu Tý leituðu á sjó auk báta frá ísafirði og Bolungarvik.
„Sá þá hverfa í kófið“
Tveggja manna saknað eftir snjóflóð
Bolungarvík og tsafirði
TVEGGJA manna er saknað eftir að snjófljóð féll á Óshliðarveg í
gærmorgun. Þriðji maðurinn, Jónmundur Kjartansson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn á fsafirði, slapp naumlega. Mennimir þrír voru þama
á ferð á tveimur bílum og höfðu bílstjórar beggja bílanna gengið
upp á skriðu er lokaði veginum til að kanna aðstæður er enn eitt
snjóflóð féll á veginn. Sagði Jónmundur að hann hefði séð til mann-
anna uppi á skriðunni en svo „sá ég þá hverfa i kófið“.
Veður var mjög slæmt í gær-
morgun en lagaðist þegar líða tók
á morguninn og var ágætis leitar-
veður allan seinni part dagsins.
I samtali við fréttaritara sagði
Jón Guðbjartsson, formaður Slysa-
vamasveitarinnar Emis á Bolung-
arvík, að sveitin hefði verið kölluð
út laust upp úr klukkan átta i
gærmorgun og um tuttugu mínút-
um síðar hefðu fyrstu mennimir
verið komnir á staðinn. Strax hefði
verið hafín grófleit í snjófíóðinu og
það síðan fínkembt. Fljótlega
fannst skófla í flæðarmálinu, sem
annar mannanna er saknað er, var
með, og var lögð áhersla á leit í
sjó eftir það.
Björgunarbátamir Daniel Sig-
mundsson frá ísafírði og Gisli
Hjalta frá Bolungarvík leituðu í
sjónum fram undan skriðusvæðinu,
auk tveggja slöngvubáta. Um hálf-
tvöleytið kom þyrla Landhelgis-
gæslunnar með leitarhund frá
Reykjavík og um klukkan Qögur
voru komnir á staðinn tveir kafarar
frá ísafirði. Skömmu seinna bætt-
ust við kafarar frá varðskipinu Tý.
Leitinni var hætt um klukkan
19 í gærkvöldi en áður en staður-
inn var yfírgefínn var net lagt fyr-
Jónmundur Kjartansson
ir vík sem þama er fram undan
snjóflóðasvæðinu. í dag verður leit-
að frekar á sjó og fjörur gengnar.
Sjá einnig blaðsíðu 21.
Fréttaritarar
Framnesið
strandaði
við Engey
TOGARINN Framnes ÍS strand-
aði á Engeyjarrifi um klukkan
21 í gærkvöldi, er hann var á
leið úr Reykjavíkurhöfh. Magni
reyndi að ná togaranum á flot
hálftíma síðar, en það tókst ekki,
og átti að gera aðra tilraun á
háflóði f morgun.
Að sögn hafnsögumanna var
ekki talin ástæða til að hafa vakt
við togarann í nótt, þar sem ekki
var álitið að um hættuástand væri
að ræða. Skipstjórinn á Framnesinu
vildi ekki ræða orsakir strandsins
er Morgunblaðið ræddi við hann
skömmu fyrir miðnætti.
Herjólfiir fékk
á sig brotsjó
Vestmannaeyjum
HERJÓLFUR fékk á sig brotsjó
er hann var að sigla út úr Þor-
lákshöfii síðdegis f gær. Kom
brotið á mitt skip og losnaði við
það einn gúmmíbjörgunarbátur
sem fór út með brotinu. Blés
björgunarbáturinn upp og fauk
upp í fjörn.
Jón Eyjólfsson, skipstjóri Heij-
ólfs, sagði í samtali við fréttaritara,
að innsiglingin í Þorlákshöfn hefði
versnað mjög upp á síðkastið.
Grunn brot væm langt austur fyrir
hafnarkjaftinn auk þess sem inn-
siglingin væri þröng og gijótgarð-
amir stórhættulegir. Sagði hann
að þetta gengi ekki til lengdar. Úr
þessum málum yrði að bæta áður
en slys hlytist af.
Grímur
Leit hefttr ekki
borið árangur
LEIT að skipstjóranum á m/b
Sæborgu, sem sökk á Breiðafirði
að kvöldi þriðjudags, bar ekki
árangur f gær. Leitað var úr lofti
meðan skilyrði leyfðu, varðskip,
bátar og skip frá Ólafsvfk fóru
um svæðið og björgunarsveitar-
menn gengu fjörur.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Fagnaðarfundir
Fagnaðarfundir urðu með skipbrotsmönnunum af Nönnu VE og
aðstandendum þeirra er Þórunn Sveinsdóttir VE kom með þá til
Eyja f gærmorgun. Á myndinni sjást foreldrar Leós skipstjóra á
Nönnu, Þóra Siguijónsdóttir og Óskar Matthfasson, fagna syni
sfnum. Það var Siguijón bróðir Leós sem bjargaði áhöfhinni.
Sjá nánar á bls. 20.
Forsætisráðherra um forsvarsmenn Arnarflugs:
Sýnistþeim getatekist
að komast yfir núllið
Fyrst o g fremst um erfíða greiðslustöðu að ræða
„ÞAÐ sem hefur breyst, að afloknum fiindi forsvarsmanna Arnarflugs
í dag með samgönguráðherra, er það að þeir hafa sýnt fram á að
þeir hafa útvegað meira fé en talið var að þeim tækist. Mér sýnist
þeim geta tekist að koma þessu yfir núllið,“ sagði Steingrfmur Her-
mannsson forsætisráðherra f samtali við Morgunblaðið f gærkvöldi og
bætti við að hann teldi að forsvarsmenn Arnarflugs væru reiðubúnir
að leggja ótrúlega Qármuni og eignir að veði til þess að tryggja áfram-
haldandi rekstur félagsins. „Mér sýnist þeir búnir að skrapa sig inn
að beini,“ sagði forsætisráðherra.
„Það er fyrst og fremst greiðslu-
staða Amarflugs sem er erfíð. Þá
vantar lán, en hafa léleg veð,“ sagði
Steingrímur. Hann kvað ríkisstjóm-
ina mundu ræða þann þátt málsins
í fyrramálið. Hann teldi vel koma til
greina að ríkisvaldið afskrifaði þær
150 milljónir króna sem það ætti hjá
Amarflugi og hætti þar með afskipt-
um af rekstri þess.
„Ég tel stöðu Amarflugs alls ekki
jafti neikvæða og rætt hefur verið
um. Samkvæmt upplýsingum endur-
skoðanda Amarflugs um endurmat
á flugvél félagsins hefur hún verið
vanmetin þannig að neikvæð staða
félagsins gæti verið um 250 milljón-
ir króna í stað þeirra 450 milljóna
króna sem greindi frá í bráðabirgða-
uppgjörinu," sagði forsætisráðherra.
Steingrímur kvað það enn vera
spumingu hversu mikið nýtt fyár-
magn félagið þyrfti til þess að renna
tryggum stoðum undir reksturinn og
koma í veg fyrir að erlendir lánar-
drottnar gætu gengið að félaginu.
Það yrði eins og áður segir til um-
ræðu á fundi ríkisstjómarinnar í
fyrramálið.