Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.03.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ i LAUGARDAGUR 111 MARZ M89 ^29 ÞINQBRÉF STEFÁN FRIÐBJARNARSON Skuldaskattar tíl umheímsíns ERLENDAR LÁNTÖKUR 1986,1987,1988 og 1989 (skv. lánsfjáráætlun og í raun) Skv. lánsfjáráætlun, í miljöröum króna.. .. uröu í raun 55% hærri, 12,0 7,5 1986 .. uröu f raun 50% haárri, 12,0 8,0 __________I 1987 .. veröa, 31,5 ef reiknaö er meö 50% hærri tölu .. uröu f raun u.þ.b. 80% hærri, 16,0 9,0 1988 1989 Spenna á innlendum lánamarkaði Viðskiptahallinn og erlendar skuldir eru hluti margumtalaðs efnahags- vanda. Líkur standa til að langtíma- skuldir þjóðarinnar geti skotizt upp í 107 milþ'arða króna í lok þessa árs. Það samsvarar nálægt kr. 1.700.000.- á hverja Qögurra manna fjölskyldu í landinu. Afborganir og vextir af þessum skuldum halda trúlega milli 15-20% af útflutningstekjum þjóðarinnar eftir utan landsteina, í höndum erlendra sparenda. Á sama tíma skreppur íslenzkur sparnaður saman. Ástæður þess sam- dráttar eru m.a. hallarekstur helztu atvinnugreina, hallarekstur ríkisbú- skaparins og ónógir hvatar til almenns sparnaðar hjá einstaklingum og heimil- um. I Á árinu 1986 stóðu lánsfjáráætlanir landsfeðra til 7,5 milljarða króna skulda- töku erlendis. Lántökur fóru hinsvegar í tæpa 12 milljarða, eða 55-60% umfram áætlun. Árið 1987 gerðu sömu áætlanir ráð fyrir 8 milljarða erlendri lántöku. Þær fóru hinsvegar í rúma 12 milljarða, eða 50% fram úr áætlun. Árið 1988 gera lánsfjáráætlanir ráð fyrir rúmlega 9 milljarða króna erlendum lántökum. Bráðbirgðatölur sýna hinsvegar rúmlega 16 milljarða lántökur. Frávik um 80%. Framangreindar tölur eru teknar úr nefndaráliti þingmanna Sjálfstæðisflokks og Samtaka um kvennalista í efri deild Alþingis um frumvarp til lánsfjárlaga 1989. Samkvæmt frumvarpinu verða er- lendar lántökur ársins 21 milljarður króna. Fari lántökur hinsvegar 50% fram úr áætlun, sem ekki er ólíklegt ef miðað er við reynslu næstliðinna þriggja ára, verða þær um 31,5 milljarðar króna. Allavega er ljóst að skuldir bætast á skuldir ofan. II Lánsfjáráætlun gerir og ráð fyrir því að ríkissjóður og aðrir opinberir aðilar taki 15,5 milljarða króna að láni innan- lands. Þar munar mest um skuldabréfa- kaup Byggingarsjóðs ríkisins og Bygging- arsjóðs verkamanna, sem áætluð eru lang- leiðina í 9 milljarða króna. Þá er gert ráð fyrir að selja spariskírteini ríkissjóðs fyrir 5,3 milljarða, en sala þeirra er mun dræm- ari en vonir stóðu til. Sitthvað bendir þar á ofan til þess að í frumvarpi til lánsfjárlaga og lánsfjárá- ætlun sé lánsfjárþörf vanmetin, jafnvel svo nemi milljörðum króna, ef önnur áform eiga að ganga eftir. Spennan á innlendum lánsíjármarkaði rénar vart í bráð. í nefnd- aráliti stjórnarandstöðunnar um þetta efni segir orðrétt: „Eins og hér hefur komið fram stefnir í mikla spennu á innlenda lánsijármarkað- inum, sem fyrst og fremst er tilkomin af óseðjandi fjárþörf ríkissjóðs og annarra opinberra aðila. Samtímis hafa útflutn- ingsatvinnuvegimir verið reknir með veru- legum halla, sem auðvitað kallar á aukna lánsfjárþörf/ Ekki bætir svo úr skák, að gmndvelli verðtryggingar hefur verið breytt, eignaskattar hafa verið hækkaðir og einstakir ráðherrar og ríkisstjómin í heild hafa lýst yfir að vaxtatekjur almenn- ings verði skattiagðar. Allt þetta hefur valdið umróti og óvissu og stuðlar þannig að hækkun vaxta." III Fréttir herma að spamaður íslenzka þjóðarbúsins hafí minnkað um 40% á tíu ámm, úr 24-25% í um 14% af vergri lands- framleiðslu. Samkvæmt þessu er spamað- ur nú um 35 milljarðar en hefði þurft að vera yfír 60 milljarðar til að halda sama hlutfalli. Á sama tíma hefur fjárfesting í landinu minnkað um nálægt 30%. Fram- hald á þessari þróun gerir það erfítt að spoma gegn viðskiptahalla sem og að styrkja kaupmátt í landinu. Innlendur peningaspamaður jókst um- talsvert um árabil með tilkomu verðtrygg- ingar og jákvæðra vaxta í stað nei- kvæðra. En innlendur spamaður af þessu tagi á undir högg að sækja. Stefna stjóm- valda í vaxta- og skattamálum hefur dreg- ið úr almennum spamacSarhvötum og leitt af sér óvissu, sem ýtir undir ótímabæra almenna eyðslu. Þessi þróun er meir en varhugaverð. Það á að vera keppikefli að búa innlendum peningaspamaði þann jarðveg, að hann geti mætt lánsijárþörf atvinnuveganna. Það er mjög mikilvægt, m.a. til að treysta efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinn- ar, að atvinnulíf hennar og ríkisbúskapur verði ekki háðari erlendu lánsfé (erlendum spamaði) en nú er. í þeim efnum stöndum við nálægt hættumörkum. Lántökur til fjárfestinga, sem skila kostnaði sínum fljótt og vel til baka, eru sjálfsagðar. Öðm máli gegnir um lán til að halda uppi eyðslu umfram tekjur. En , mergurinn málsins er að búa þann veg um hnúta að innlendur sparnaður, ekki sízt peningaspamaður, fái að vaxa úr grasi. Á annan háttum getum við ekki hamið skuldaskatta okkar við umheiminn. Þingmenn Sjálfstæðisflokks: Aukið eigið fé fyrirtækja með þátttöku almennings Sparnaður undirstaða hagvaxtar, bættra lífskjara og eftiahagslegs sjálfstæðis FRIÐRIK Sophusson, Matthias Bjarnason, Geir H. Haarde, Birgir ísl. Gunnarsson og Kristinn Pétursson, þingmenn Sjálfstæðisflokks, hafa lagt fi-am tillögu til þingsáiyktunar um að örva viðskipti á hluta- bréfamarkaði og tvö frumvörp til breytinga á lögum um frádrátt af skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar fólks í atvinnurekstri. Hlutabréfamarkaður legt þing.“ I greinargerð er lögð áherzla á Tillaga: mikilvægi spamaðar í landinu sem „Alþingi ályktar að fela ríkis- undirstöðu hagvaxtar, bættra stjóminni að gera tillögur um ráð- lífskjara og efnahagslegs sjálfstæð- stafanir til að örva viðskipti á hluta- is þjóðarinnar. Nokkuð hefur bréfamarkaði hér álandi. Tillögum- áunnizt í þessu efni. Hinsvegar ar verði tilbúnar fyrir næsta reglu- skortir enn mikilvæga stoð: hluta- Friðrik Sophusson: Sementsverksmiðjan verði hlutafélag Friðrik Sophusson (S/Rvk) hefiir iagt fram frumvarp til laga um stofhun hlutafélags um Sementsverksmiðju ríkisins. Fastráðnir starfsmenn verksmiðjunnar skulu hafa rétt til að starfa hjá hinu nýja hlutafélagi. Við stofiiun eru öll hlutabréf f hlutafélaginu eign ríkissjóðs. Verði hlutabréf ríkissjóðs boðin til sölu, öll eða að hluta, skal leita sam- þykkis Alþingis fyrir sölunni. Það sem breytist með hugsan- legri samþykkt fmmvarpsins er, samkvæmt greinargerð: 1) Ábyrgð ríkissjóðs takmarkast við hlutafjáreign. Fjárhagsleg ábyrgð eigenda vex. 2) Skattgreiðslur breytast, að- stöðugjald verður greitt í stað landsútsvars. 3) Stjóm verksmiðjunnar verður kjörinn á aðalfundi. 4) Fyrirtækið hefur enga sér- stöðu umfram önnur fyrirtæki. bréfamarkað sem atvinnufyrirtæk- in geti leitað til um nýtt eigið fé í stað þess að auka skuldir sínar. Skattalegur þrýstingur til flárfestingar I atvinnurekstri Fyrra frumvarp þingmannanna kveður á um hækkun skattfrádrátt- ar vegna fjárfestingar í atvinnu- rekstri, samanber lög nr. 9/1984. Frumvarpsgreinin hljóðar svo: „HámarksQárhæðir í 2. málslið 1. málsgreinar 2. greinar lag- anna . . . breytíst þannig að f stað kr. 45.900,- komi kr. 250.000,- og f stað kr. 91.800,- komi kr. 500.000,-.“ Fyrri frumvarpsgrein síðara frumvarpsins hljóðar svo: „Fjárhæð umfram frádráttar- mörk, sem lögð em í hlutafjáraukn- ingu f hlutafélagi eða lögð til hluta- fjárkaupa við stofnun hlutafélags, er heimilt að flytja og nýta á tveim- ur næstu ámm. Onýtt frádráttar- heimild tekur hækkunum með sama hætti og fjárhæðir skv. 2. gr.“ Síðari frumvarpsgrein: „Þegar um er að ræða útboð nýs hlutafjár í starfandi hlutafélagi og engar hömlur lagðar á viðskipti með hin nýju hlutabréf skal frádráttur skv. 10. gr. heimill þótt ekki sé fullnægt skilyrðum um lágmarks- fjárhæð hlutafjár og lágmarksfjölda hluthafa." Tilgangur þingmálanna er „að hvetja til aukinnar eiginfjármynd- unar fyrirtækja með þátttöku al- mennings". Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Jón Sigurðsson yfirmaður Flugeldhúss Flugleiða i Keflavík kynn- ir tiliögur sinar að matseðlinum í vélum félagsins i sumar. Á myndinni eru Sigurður Skagfiörð Sigurðsson þjónustustjóri, Hólmfriður Árnadóttir forstöðumaður hótel- og veitingadeildar Flugleiða, Ásdis Alexandersdóttir fulltrúi þjónustustjóra, Ragn- heiður Gunnarsdóttir aðstoðarþjónustustjóri og Jón Sigurðsson yfirmaður Flugeldhúss Flugleiða. Sumarmatseðill Flusf- leiða ákveðinn REKSTUR Flugeldhúss Flugleiða i Keflavík hefúr gengið vel og þar eru framleiddir á milli 4 og 5 þúsund matarskammtar á dag þegar mest hefiir verið á sumrin, en í vetur eru þar framleiddir á milli 800 og 900 matarskammtar. SumarmatseðUl Flugleiða hefiir verið kynntur og geta fárþegar valið i milli þriggja rétta i morgun-, hádegis- eða kvöldmat og sagði Jón Sigurðsson, yfir- maður Flugleiðaeldhússins, að auk þess yrðu skammtarnir stærri og meira úrval yrði á bökkunum. Þá voru kynntir nýir bakkar sem verða notaðir í nýju Boeing 737-400 vélum félagsins sem verða afhentar 20. aprfl. Flugeldhús Flugleiða f Keflavík er það nýjasta og fullkomnasta sinnar tegundar á Norðurlöndum og er það hannað efdr hugmynd- um Jóns Sigurðssonar og tveggja starfsmanna SAS í Kaupmanna- höfn, en arkitekt er Ingimar H. Ingimarsson. Framleiðslulínur eldhússins þykja ákaflega full- komnar og er allur matur fram- leiddur undir lægra hitastigi en 10 gráður. Talsvert hefur verið um að erlendir aðilar hafí komið hingað til lands að undanfömu til að kynna sér hönnun og rekstur eldhússins og nú er SAS-flugfé- lagið að byggja samskonar eldhús í Kaupmannahöfn. Framreiknaður kostnaður við Þyggingunu er 265 miHjónir, en hún er 4.700 fermetrar að stærð. BB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.