Morgunblaðið - 11.03.1989, Side 46

Morgunblaðið - 11.03.1989, Side 46
7346 MORGUNBLAÐIÐ JÞROTTJR LAUGARÍDAGnR 11. MARZ 1989; HANDKNATTLEIKUR Evrópubarátta Vals og FH ÍSLANDSMEISTARAR Vals og FH-ingar veröa heldur betur í sviðsljósinu á sunnudaginn - þeir leika þá í átta liða úrslitum f Evr- ópukeppninni. Valsmenn mæta Magdeburg frá A-Þýskalandi í Evrópukeppni meistaraliða og FH-ingar glfma við Krasnodar frá Sovétríkjunum ílHF-keppninni. Það er að duga eða drepast fyrir Valsmenn og FH-inga. Það þarf ekki að fara mörgum orð- um um að varast skal bjartsýni í leikjunum tveimur, en óneitanlega hef- ur orðið vart við þó nokkra bjartsýni í herbúðum Vals og FH. „Magdeburg var næst besti kosturinn,“ sagði einn leikmanna Vals og í fréttatilkynn- ingu FH-inga mátti sjá ummæli þjálf- ara austurríska liðsins PSK frá Vín, en það lék síðast gegn Krasnodar „Að sögn þjálfarans á FH góða möguleika gegn sovéska liðinu. Hann sá leik FH SigmundurÓ. Steinarsson skrifar * og Baia Mare á myndbandi og telur að hraður sóknarleikur FH-liðsins gefi þeim góða möguleika gegn Krasnod- ar.“ Að sjálfsögðu eiga leikmenn að stefna hátt, en það má aldrei falla nið- ur í þá gryfju að vanmeta andstæðing- inn. Bæði Magdeburg og Krasnodar eru geysilega öflug lið og bæði iiðin hafa tvo landsliðsmarkverði í herbúð- um sínu. Wieland Schmidt, sem oft hefur reynst íslendingum erfíður, og Gunar Schimrok leika í marki Magde- burg og þeir Andrej Lavrow og Igor Tschumak veija mark Krasnodar. í báðum liðunum eru stórir og stæði- legir leikmenn. Fjórir leikmenn Krasnodar eru yfir tveir metrar á hæð. Það verður gaman að sjá Valsmenn og FH-inga glíma við þessu sterku félagslið í 8-liða úrslitum Evrópu- keppninnar. Möguleikinn á að komast áfram er alltaf fyrir hendi, en til að það takmark náist verða leikmenn Vals og FH að gefa allt í leikina sem þeir eiga - mæta grimmir og ákveðn- ir til leiks. Morgunblaðiö/Bjami Héðinn Oiisson og Geir Sveinsson verða I eidlinunni með félögum sínum í Evrópukeppninni á morgun. GETRAUNIR 1 X 2 Tvöfaldur pottur Snilli getraunaspekinga lét á sér standa um síðustu helgi — •^enrrinn var með 12 rétta. Aðeins §órar raðir komu fram með 11 rétt- um og gaf hver 89.839 krónur í vinning, en um 840.000 krónur flytjast í pottinn í dag, sem verður því tvöfaldur. Sjónvarpsleikurinn er nr. 6 á getraunaseðlinum — Middlesbro og Liverpool. Stafán úr leik Sveinn Jónsson, formaður KR, vann Stefán Gunnlaugsson, for- mann knattspymudeildar KA, 6:4 í getraunaleik Morgunblaðsins. Sveinn heldur því áfram, en Stefán er úr leik. Bryndís Schram tekur við af honum. Leikir 11. mars 1 1. Arsenal - Nott. Forest 1 1 2. Charlton - Southampton 2 w 1 3. Derby - Tottenham 2 lllfc ' -zmatírH® 1 4. Everton - Sheffield Wed. X X 5. Luton - Millwall 2 Ife" &' ' íþfáL,, íjitá u / a - 2 6. Middlesbro - Liverpool X 1 7. Newcastle - Q.P.R. 2 -'n wmk 1 8. Norwich - Wimbledon X r X 9. West Ham - Coventry 2 1 10. Chelsea - Watford 1 x 11. Leeds - Ipswich 12. Oxford W.B.A. 2 SVEINIM 2 2 Sveinn Jónsson var aðeins með sex rétta síðast, en lét það ekki á sig fá. „Núna er ég pottþéttur með 12 rétta og vonast til að fá góðan vinning! Reynd- ar líst mér ekkert á leikina á seðlinum nema hvað öruggt er að Chelsea sigrar Watford og mínir menn í Newcastle fá þrjú stig gegn QPR. Liverpool á að vera nokkuð öruggt með sigur og sama má segja um Arsenal." BRYIMDIS Bryndís Schram hefur gert margt um dagana. „Ég hef heyrt pabba og bræður mína tala um þessi ensku lið, en ég fylgist ekki með ensku knattspym- unni. Samt veit ég að Arsenal er topplið, held með Tottenham gegn Derby og QPR sigrar Newcastle vegna þess að liðið hefur komið til Islands. Ég spái þeim liðum góðu gengi, sem ég kannast við, og bíð spennt eftir úrslitunum!“ GERVIHNATTASJÚNVARP GERVIHIUnAljTWRP FYRIR EINBYLISHUS Við leggjum áherslu á myndgæði og góðan hljóm. DnCrU móttökudiskar þola DvvCrl íslenska veðráttu! ■nmjpww móttakarar gera þér mSSSÍSs kleift að taka á móti 20 erlendum sjónvarpsstöðvum frá 4 gervihnöttum með því einu að styðja á hnapp. Kapaltækni hf. -eina fyrirtækið á íslandi sem sérhæfir sig í loftnets- og kapalkerfum. [Tratecl loftnetskerfi gera mörgum notendum '—Holland_I mögulegt að sameinast um sama diskinn Verið velkomin í nýja verslun okkar að Ármúla 4, þar sjáið þið og heyrið hvað okkar búnaður býður upp á. SÝNING I DAG MILLI KL. 9-16. y Kapaltækni hf. ÁRMÚLA 4, 108 REYKJAVlK. S(MI 680816. LYFJAMÁL Tíuþús- und doll- araríboði Hugh Burgess frá Edmonton í Kanada hefur heitið „dular- fulla manninum" 10.000 kanadísk- um dollurum ( um 430.000 ísl. kr.), ef hann gefur sig fram og mætir til yfírheyrslu hjá rannsóknamefnd- inni, sem kanadíska ríkisstjómin setti á laggimar eftir lyfjahneykslið í Seoul. Burgess er sannfærður um að Charlie Francis, þjálfari Bens Johnsons, hafí farið með rétt mál, er hann sagði eiðsvarinn að „dular- fullur rnaður" hefði hugsanlega náð að lauma stanozolol stera í drykk hlauparans í herberginu, þar sem lyfjaprófið fór fram. íþróttir helgarinnar Handknattlelkur: FH og Valur leika fyrri leiki sína í 8-liða úrslitum Evrópu- keppninnar í handknattleik á morgun. FH-ingar mœta sovéska liðinu Krasnodar í Evrópukeppni félagsliða kl. 17 í Hafnarfirði. Valsmenn leika gegn a-þýska lið- inu Magdeburg kl. 20 í Laugar- dalshöllinni. Einn leikur er í 1. deild karla á morgun. Stjaman og KA leika í Digranesi kl. 14. Á mánudaginn leika KR og Grótta í Laugardals- höll kl. 20. Tveir leikir eru í bikarkeppninni í dag. HK og ÍBV leika í Digra- nesi kl. 14 og kl. 15 Ieika í Vest- mannaeyjum B-lið ÍBV og ÍH. f 1. deild kvenna eru þrír leikir. Víkingur og Þór leika í Laugar- dalshöllinni í dag kl. 14 og ÍBV og Fram mætast I Eyjum kl. 13.30. Á morgun leika Stjaman og FH í Digranesi kl. 15.15. Körfuknattleikun Á morgun kl. 20 leika ÍBK og Valur í úrslitakepgninni í körfu- bolta í Keflavík. Á mánudaginn leika svo KR og Njarðvík í Haga- skólanum kl. 20. Flmleikar: íslandsmót FSÍ hefst f Laugar- dalshöll á morgun kl. 14 og verður keppt í skylduæfingum. Mótið heldur svo áfram næstu helgi. Blak: Þróttur Nes. og Víkingur leika í dag í kvennaflokki kl. 16 á Nes- kaupstað. Á morgun mætast svo Þróttur og ÍS t karlaflokki Haga- skólanum kl. 14.00 og kl. 15.15 ÍS og Breiðablik ( kvennaflokki. Loks leika KA og HK í karlaflokki á Akureyri kl. 20. Fijálsar íþróttlr Meistaramót öldunga innanhúss verður í dag, kl. 9.30, í Laugar- dalshöllinni og heldur áfram kl. 13.30 í Baldurshaga. Á morgun hefst svo keppni kl. 14.30 í Bald- urshaga. Meistaramót 14 ára og yngri fer fram um helgina. Það hefst kl. 10 í dag í íþróttahúsinu í Hafnarflrði og heldur áfram kl. 15.30 1 Baldurshaga. Á morgun heldur svo keppni áfram kl. 9.30 í Baldurshaga. Búið er að fresta Sejfosshlaupinu, sem átti að fara fram á morgun. Badmlnton: Opið meistaramót Reykjavíkur verður haldið um helgina í TBR- húsinu. Keppni hefst kl. 15.30 í dag og heldur áfram kl. 10 á morgun. Skföi: Á Dalvík verður keppt í stór- svigi fullorðinna og á Siglufirði í svigi og stórsvigi unglinga. Á Ólafsfirði verður keppt í norræn- um greinum, 15 km göngu fullorð- inna, 7,5 km göngu unglinga og stökki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.