Morgunblaðið - 29.03.1989, Page 24

Morgunblaðið - 29.03.1989, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1989 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Þarf sérstakar ástæð- tíl þess að stöðva slíkar reglubundnar æfingar Varnarliðið: Þúsund manna heræfing hérlendis næsta sumar RÁDGERT er »ð tftit lil hercf- lnr«r mrð þátttðku um 1000 manna liftufti frá Randa- Hkjunum hér á landi lurata aumar, að þH er argir f nýjaaU hefti bandaHaka vikurítaina Ariation Wetk 4 Spacr Trc- hnology I ritinu er iUrier 6t- tekt á vamaratftðinni á Keflavikurflurveili og hlut- verkl hennar, aetn Ulið er ðmeUnlejft lyrír varair AU- I bandariaka vikuritinu er eink- um rwU um hlutverk flugvéla tii vemdar landinu ojt til að fylgjaat með ferðúm kafbáta umhverfia það. Kemur fram, að fierri aovésk- ir kafbátar legKja nd loið alna um hftfln umhverfls Island en áður. Er meðal annara bent á, að kaf- bátarair hafa ml langdrairari eld- flaugar en eldri gerðir. l»á acjjir Erie A. MeVadon, floUforingi, yflrmaður varaariiðiina, I aamtali við ritið, að aovésku kafbátarnir aéu hljöðlátari nú en áður og þvf erfiðara að flnna þá en fyrr. bá kemur einnig fram, að ferðum aovéskra flugvéla hefur tekkað slðan 1986. Telur McVadon að hugsanlcga aéu Sovétmenn að átta sig á getu F-15 orrustuþotna vamariiðsins, aem komu hingað Ul lands 1985. Kaemi Ul áUka yrði 187. atftr- fylki ffttgönguliða I varaliði hcrs- ins sent hingað Ul lands. Ef viðvft- runartlmi yrði akammur yrði virkt stftrfylki hersins sent hingað akyndi og slðan myndi varaliðið lcysa það af hftlmi. Hér á lnndi eru engar birgðir fyrir stftrfylkið. Uðsmenn úr 187. stftrfyikinu hafa stundað Kfíngar hér á landi og er artlunin að 1000 menn úr þvf komi hingað Ul eflnga á na-sU sumri. Uðið notar ekki þung vopn við a’fingar hér. Stftrfylkið ra*ður yfir eigin flugvélum, bryndrekum og fallbyasum en æfir notkun þess búnaðar f Kanada. Frétt Morgunblaðsins frá 17. nóvember 1988 um fyrirhugaða æfíngu varaliðs bandaríska landhersins á sumri komanda. FYRIRHUGUÐ æfing 187. stórfylkis fótgönguliða í varaliði banda- riska landhersins á Islandi á sumri komandi kom til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun. „Það fer ekki saman að gera kröfu tíl þess að varnarliðið verði í stakk búið, ef á reynir, að veija, ekki aðeins ísland, heldur líf og limi íslenskra borgara, ef því er hins veg- ar meinað að framkvæma æfingar af þessu tagi. Til slíkra æfinga er efnt með reglubundnum hætti í öllum öðrum löndum Atlantshafs- bandalagsins, “ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanrikisráðherra í samtali við Morgunblaðið i gær. Hann sagði að fréttir þess efhis að heræfingar ættu að hefjast hér þann 17. júní næstkomandi væru úr lausu loflá gripnar. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra segir ekki koma til greina að æfíngin hefjist þennan dag, þjóðhátiðardag íslendinga og kveðst reyndar vona að ekki komi til slíkrar æfingar hér á landi. „Það þarf sérstakar ástæður til þess að stöðva reglubundnar æfing- ar af þessu tagi, fyrirvaralaust," sagði Jón Baldvin Hannibalsson. „Á hitt ber að leggja áherslu, að það er að sjálfsögðu á valdi utanríkisráð- herra að ákveða hvort þær verði. Á það verður hins vegar lagt faglegt mat, þegar allar upplýsingar liggja fyrir um fjölda, búnað og nákvæma framkvæmdaáætlun. Af hálfu vamarliðsins hefur verið tilkynnt um áform um hefðbundnar æfingar innan vamarsvæðisins á komandi sumri. Sú tilkynning var bókuð á fundi vamarmálanefndar 30. ágúst síðastliðinn, í utanríkisráð- herratíð Steingríms Hermannsson- ar,“ sagði utanríkisráðherra. Hann sagði þessa tilkynningu vera afar fáorða og þar kæmi ekkert fram um tímasetningu. Ástæðuna fyrir því að endanleg ákvörðun hefði ekki enn verið tekin, sagði hann vera þá að upplýsingar um umfang og fram- kvæmd fyrirhugaðra æfinga lægju ekki enn fyrir. Nú væri verið að taka saman ítarlega greinargerð um málið af hálfu vamarmálaskrifstofu og engin ákvörðun yrði tekin fyrr en sú greinargerð lægi fyrir. „Af fréttum hefur mátt skilja að hér væri um að ræða afhjúpun á hinum óttalega leyndardómi. Stað- reyndin er hins vegar sú, að lesend- ur Morgunblaðsins gátu fræðst um þetta á liðnu ári, vegna þess að þar var ítarlega um málið fjallað," sagði Jón Baldvin. „Æfingar varaliðsins hafa verið haldnar hér á landi tvisv- ar áður. Þær eiga rót sína að rekja til ákvörðunar frá árinu 1983, um að mynda og þjálfa sérstakt varalið, sem nota megi til að treysta vamir íslands á hættutímum. Hér er ekki um að ræða reglulega hermenn, heldur óbreytta borgara sem hafa sem sjálfboðaliðar tekið á sig þá kvöð að búa sig undir þetta hlut- verk.“ Utanríkisráðherra sagði að um þetta segði svo í skýrslu Steingríms Hermannsson, utanríkisráðherra til Alþingis fyrir árið 1987: „Ef til átaka drægi er ljóst að vamarliðið þyrfti aukinn liðsafla. Hersveit í varaliði bandaríska landhersins hef- ur verið þjálfuð og búin undir að koma til landsins á hættu- eða ófrið- artímum. Hluti hennar tók þátt í umfangsmiklum æfingum í Kanada í sumar og fylgdust fulltrúar Varna- málaskrifstofu með þeim æfingum. Til að slík þjálfun komi að fullu gagni er nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld hafi hönd í bagga og tryggi að allar vamaráætlanir séu í sem bestu samræmi við íslenska hagsmuni og staðhætti. Samræmis þarf að gæta milli almannavarnaá- ætlana okkar og skipulags lögreglu og landhelgisgæslu, og þessara varnaráætlana. Að því hefur verið unnið, en eðli málsins vegna verður ekki greint frekar frá því.“ Jón Baldvin sagði jafnframt: „Eins og fram kemur í þessum orð- um Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, er hér um hefðbundnar aðgerðir, sam- kvæmt skuldbindingum vamar- samningsins um öryggi og vamir á íslandi á hættutímum. Álitamál er hvort þessar æfíngar geti borið hei- tið hemaðaræfíngar. Að minnsta kosti er það tæplega, ef litið er til samanburðar á reglubundnar her- æfingar í öðrum löndum Atlants- hafsbandalagsins. Þannig má nefna sem dæmi heræfingu í Norður- Noregi árið 1988. Þar gafst fulltrú- um íslendinga kostur á að fylgjast með þeim æfingum, þar á meðal þáverandi formanni utanríkismála- nefndar, Eyjólfi Konráð Jónssyni." Utanríkisráðherra sagði að þær æfingar hefðu m.a. tekið til heils flugvélamóðurskips, og freigátuflota frá a.m.k. 9 Atlantshafsbandalag- slöndum. Þar hefði verið æfð innrás i Norður-Noreg og heilu héruðin verið undirlögð af „hermönnum, tól- um þeirra og tækjum." Hér væri einungis um það að ræða að gefa sjálfboðaliðum, sem ætlunin væri að grípa mætti til á hættutímum, kost á að kynnast aðstæðum innan varn- arsvæðisins á Keflanvíkurflugvelli. Ekki yrði um nokkurn flutning á nýjum vopnum að ræða, né þátttöku orustuþotna, utan varnarsvæðisins. Mikil áhersla yrði lögð á starfsemi björgunarþyrlna og flutningatækja. „Eg tel mjög vafasamt að halda svona heræfingu hér á landi og hún verður að sjálfsögðu ekki fram- kvæmd nema utanríkisráðherra samþykki hana,“ sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, „auk þess kemur alls ekki til greina að hún hefjist 17. júní, það er algjör- lega öruggt mál. Ég vona að það verði ekkert af þessari æfingu.“ Síldarvagninn + B-matseðill alla virka daga VESTURGÖTU 10, 101 REYKJAVÍK Afsláttur frá 25—50% í aðeins örfáa daga! Vegna flutninga. I lver hefur efni á að missa af rýmingarveislunni? VMMRM6ITI 'l/Uttarimetfjan'&wtttd/utÁaéiinH 25-50% AFSLATTUR 2 5 - 50 % AFSLATTUR OG SVO ALLT A FULLT VERÐ AFTUR Laugavegi 45 - sími 11388 MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.