Morgunblaðið - 14.04.1989, Síða 10
io
- k'ÓáddSÍÍAkílÉÍ íSSTUJDAGLlá- í 4^
HandknattleikslandslijMð er
góð landkynning fyrir Island
eftir Jón Hjaltalín
Magnússon
Afreksíþróttir
og landkynning
Árangur landsliðs okkar í hand-
knattleik hefur vakið mikla athygli
víða um heim undanfarin ár, enda
hefur landsliðið tekið þátt í öllum
alþjóðlegum stórmótum síðan á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
1984. Á þessum tíma hefur lands-
liðið leikið rúmlega tvö hundruð
landsleiki eða að meðaltali um fjöru-
tíu landsleiki á ári. Hefur verið sjón-
varpað frá flestum þessara leikja
víða um heim. Þá hafa erlendir
blaðamenn skrifað mikið um lands-
lið okkar og um leið um ísland. Það
hefur vakið athygli þeirra hvað ís-
lendingar hafa náð langt í hand-
knattleiksíþróttinni á undanfömum
áratugum og þá sérstaklega sein-
ustu árin. Það hefur vakið sérstaka
athygli þeirra, að jafn fámennri
þjóð eins og íslendingum hefur tek-
ist að skáka landsliðum stórþjóða á
Ólympíuleikum og í heimsmeistara-
keppni svo og öðrum alþjóðlegum
stórmótum. Láta þessir erlendu
blaðamenn óspart í ljós undrun sína
á þessu og segja, að engri jafn fá-
mennri þjóð hafi tekist að ná jafn
góðum árangri í alþjóðlegum íþrót-
takeppnum í flokkaíþróttum eins
og iandsliði okkar í handknattleik
hefur tekist síðustu áratugina og
þá sérstaklega á seinustu ámm.
Vekur þetta mikla athygli í hinum
stóra heimi íþrótta- og ólympíu-
hreyfingarinnar. Þessi áhugi er-
lendu blaðamannanna vekur um
leið mikinn áhuga þeirra á íslandi,
landi, þjóð, ferðamöguleikum,
menningu, íþróttum, lifnaðarhátt-
um, atvinnuháttum og útflutnings-
vömm. Vilja þeir gjaman fræðast
um þessi atriði til að geta frætt
lesendur sína um okkur og okkar
íþróttaáhuga og frammistöðu
landsliðsins í handknattleik.
Nýafstaðin heimsmeistarakeppni
í Frakklandi var með þátttöku sex-
tán þjóða, þar sem handknattleikur
er mjög vinsæl íþrótt. Þess skal
getið að handknattleikur er mjög
vinsæl íþrótt. Þess skal getið að
handknattleikur er núna leikinn í
um 130 löndum og hafa vinsældir
þessarar íþróttagreinar farið sífellt
vaxandi um allan heim, eftir að
handknattleikur varð ólympíugrein
1972. Úrslitaleiknum í heimsmeist-
arakeppninni var sjónvarpað um
alla Evrópu og mun án efa hafa
vakið marga til umhugsunar um
land okkar og þjóð, menningu, lifn-
aðarhætti, íþróttir og útflutnings-
vörur, eins og áður er getið.
Það er almennt álit að íþróttaaf-
rek á heimsmælikvarða veki mikla
athygli og séu góð landkynning
fyrir þjóð viðkomandi íþróttamanns
eða landsliðs.
Það hefur því verið eitt af mark-
miðum Handknattleikssambandsins
að eiga landslið í fremstu röð sem
nota má til jákvæðrar landkynning-
ar í samstarfi við Flugleiðir hf.,
Ferðamálaráð, Útflutningsráð og
aðra stuðningsaðila landsliðsins.
Gott dæmi um jákvætt samstarf
milli þessara aðila er vináttuleikur-
þessu mikilvæga samstarfi fjöl-
margra aðila.
Nýlega hefur Handknattleiks-
sambandið gengið til samstarfs við
aðra aðila sem vilja draga úr áfeng-
isnotkun hérlendis. Því það er öllum
Ijóst að árangur í íþróttum, já, á
hvaða sviði sem er, og notkun
áfengis og vímuefna fer ekki sam-
an. Þess vegna skora allir landsliðs-
menn í handknattleik á unglinga
að sneiða hjá reykingum og notkun
áfengis.
Handknattleikur er þjóðar-
íþrótt á íslandi
Mikill almennur áhugi er á hand-
knattleik á íslandi, ekki aðeins
meðal iðkenda heldur allrar þjóðar-
innar. Segja má að handknattleiks-
íþróttin hafí núna unnið sér sæti
íslenska handknattleikslandsliðið á verðlaunapalli í París.
inn sem fram fór á síðasta ári í
Hamborg milli íslands og Vestur-
Þýskalands. Á blaðamannafundi
eftir þann leik voru um fjörutíu
blaðamenn, auk þess var hluta af
leiknum sjónvarpað víða um Evr-
ópu.
Handknattleiksliðið hvetur
ungiinga til að sneiða
hjá reykingum, áfengi
og vímuefnuin
Unglingar vita að góður árangur
kemur ekki af sjálfu sér. Markviss
og mikil vinna í langan tíma, hvort
sem það er í íþróttum, námi eða
starfí skilar árangri. Unglingamir
vita einnig að góður árangur bygg-
ist á heilbrigðu lífemi og mataræði
og þeir vita að þeim ber að forðast
áfengi, vímuefni og reykingar til
að ná sem bestum árangri.
Landslið okkar í handknattleik
hefur tekið þátt í samstarfí við önn-
ur áhugasamtök um tóbaksvamir
og er ljóst að góður árangur er af
Kirkjur á landsbyggðinni
Fermingar á sunnudaginn
Ferming í Hrepphólakirkju,
Hrunamannahreppi, sunnudag-
inn 16. apríl, kl. 11.00. Prestur
sr. Halldór Reynisson.
Fermd verða:
Kristjana Skúladóttir,
Miðfelli 4, Hrun.
Margrét Jóhannsdóttir,
Dalbæ 1. Hrun.
Ferming í Hrunakirkju sunnu-
daginn 16. apríl, kl. 14.00. Prest-
ur sr. Halldór Reynisson.
Fermd verða:
Benedikt Óskar Ásgeirsson,
Kaldbak, Hrun.
Bjöm Hreiðar Bjömsson,
Garði, Hrun.
Daði Georgsson,
Jörfa, Hrun.
Elín Una Jónsdóttir,
Högnastöðum, Hrun.
Fjóla Dögg Þorvaldsdóttir,
Syðra-Seli, Hrun.
Guðrún Th. Guðmundsdóttir,
Reykjaflöt, Hrun.
Jón Þorsteinn Oddleifsson,
Haukholtum 2. Hrun.
Magnús Valur Sveinsson,
Efra-Langholti, Hrun.
Stefán Ari Guðmundsson,
Áslandi, Hrun.
Ferming í Stórólfshvolskirkju
sunnudaginn 16. apríl, kl. 14.00.
Prestur sr. Stefán Lárusson.
Fermd verða:
Magnús Ragnar Guðmundsson,
Efra Hvoli, Hvolhr.
Anna Hrund Helgadóttir,
Sólheimum, Hvolhr.
Harpa Rannveig Helgadóttir,
Sólheimum, Hvolhr.
Berglind Ósk Gunnarsdóttir,
Stóragerði 15. Hvolsvelli.
Elísabet María Jónsdóttir,
Bakkakoti, Rangárvallahr.
Kristín Magnea Halldórsdóttir,
Nýbýlavegi 21. Hvolsvelli.
Ferming í Kálfiioltskirkju í
Kirkjuhvolsprestakalli kl. 14.00.
Prestur sr. Auður Eir Vilþjálms-
dóttir.
Fermd verða:
Guðrún Lára Sveinsdóttir,
Lækjartúni.
ísleifur Jónasson,
Kálfholti.
Ragnheiður Traustadóttir,
Ásmundarstöðum.
sem vinsælasta þjóðaríþrótt okkar
íslendinga og er þá miðað við þann
almenna áhuga og þann fjölda fólks
um allt land og á öllum aldri sem
fylgist reglulega með handbolta-
leikjum í sjónvarpi. Það er stjómar-
mönnum HSÍ mikil ánægja að ræða
við þann fjölda fólks sem hringir í
okkur og lýsir yfír þeim mikla
áhuga sem það hefur núna á hand-
bolta og „hvað landslið okkar í
handknattleik veiti ótrúlega ánægju
í beinum sjónvarpssendingum“, eins
og sjötugur bóndi úr Mývatnssveit
tjáði undirrituðum í samtali nýlega.
Þessi bóndi hafði fengið heilablóð-
fall fyrir nokkrum árum og lamast,
en sem betur fer fengið nokkum
bata. Handbolti er hans uppáhalds
sjónvarpsefni.
Öflugtuiiglingastarfer
forsenda áfiramhaldandi
árangurs landsliðsins
í handknattleik
Unglingastarf _ handknattleiks-
félaganna og HSÍ hefur aldrei verið
meira en á seinustu ámm og hefur
HSÍ núna 16 ára, 18 ára og 20 ára
landslið pilta og stúlkna sem æfa
vel undir stjóm hæfra þjálfara og
taka þátt í alþjóðlegum mótum með
góðum árangri. Þá hefur HSÍ gert
mikið átak til að auka áhuga
stúlkna á íþróttum og lék landslið
kvenna til dæmis 27 landsleiki á
árinu 1988 og er það langmesti
fjöldi landsleikja sem kvennalands-
liðið hefur leikið frá upphafi, því á
tæpega 40 ámm hefur landslið
kvenna í handknattleik leikið aðeins
um 120 landsleiki. Þetta öfluga
unglingastarf íþróttafélaganna og
HSI er forsenda fyrir þeim árangri
sem landslið okkar hefur náð und-
anfarið. Það er markmið HSÍ að
leitast við að efla það eins og hægt
Jón Hjaltalín Magnússon
„Til að Qármagna
starfsemi allra okkar
landsliða og til að und-
irbúa landsliðið okkar
fyrir heimsmeistara-
keppnina í Tékkósió-
vakíu þarf HSÍ mikið
Qármagn. Þess vegna
leitar Handknattleiks-
sambandið eftir stuðn-
ingi allra þeirra sem
hafa áhuga á hand-
knattleik og vilja að
landslið okkar standi
sig vel í keppni við
landslið stórþjóða á
Ólympíuleikum, í
heimsmeistarakeppni
og öðrum alþjóðlegum
mótum.“
er miðað við fjárhagsstöðu sam-
bandsins. Árið 1995 mun ísland
halda A-heimsmeistarakeppni í
handknattleik. Það er að sjálfsögðu
mikilvægt og áhugavert fyrir þjóð-
ina að eiga þá sterkt og samstillt
landslið sem er okkur til sóma.
Grunnurinn að þessu landsliði hefur
þegar verið lagður með hinu öfluga
unglingastarfí HSÍ. En það þarf
mikið fjármagn til að láta 16 ára,
18 ára og 20 ára landslið æfa og
keppa bæði hér heima og erlendis
til að öðlast hæfni, getu og reynslu
til að geta verið meðal þeirra bestu
í íþróttagreininni. í þessum hópi eru
núna um eitt hundrað efnilegir leik-
menn. Úr þessum hópi unglinga-
landsliðanna, svo og úr hópi okkar
yngstu A-landsliðsmanna núna,
verður landsliðið 1995 valið.
Stefiit á Ólympíuleikana
í Barcelona 1992
Næsta stórverkefni landsliðsins
er þátttaka í A-heimsmeistara-
keppninni í Tékkóslóvakíu dagana
28. febrúar til 10. mars 1990. Þar
keppa landslið sextán bestu hand-
knattleiksþjóða heims. Keppni þessi
er mjög mikilvæg í sambandi við
áframhaldandi þátttökurétt í stór-
mótum. Átta eða níu efstu liðin í
keppninni í Tékkóslóvakíu 1990
vinna sér þátttökurétt í Ólympíu-
leikunum í Barcelona 1992, níu lið,
ef Spánn er í einu af átta efstu
sætunum. Þá fara einnig átta eða
níu efstu liðin beint í næstu
A-heimsmeistarakeppni í Svíþjóð
1993, níu lið, ef Svíþjóð er í einu
af átta sætunum. Það er því til
mikils að vinna fyrir landslið okkar
í Tékkóslóvakíu. Það er markmið
okkar að ná sem bestum árangri í
Tékkóslóvakíu og undirbúa lands-
liðið sem best fyrir þá keppni.
Stefnan hefur verið tekin á þátt-
töku bæði í Ólympíuleikunum 1992
í Barcelona og A-heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð 1993.
Styðjum landslið
á heimsmælikvarða
„Fjármagn er afl þeirra hluta er
hreyfa skal,“ sagði Jón Sigurðsson
forseti. Stjórn HSÍ veit, að allir
landsmenn vilja eiga kost á því að
sjá í beinni sjónvarpssendingu
landslið okkar keppa um eitt af
efstu sætunum í Tékkóslóvakíu
1990.
Við viljum einnig sjá landslið
okkar keppa á Ólympíuleikunum í
Barcelona 1992. Við viljum sjá
landslið okkar keppa við frændur
okkar Svía á Á-heimsmeistara-
keppninni í Svíþjóð 1993. Við viljum
eiga sterkt og samstillt landslið
árið 1995, þegar heimsmeistara-
keppnin fer fram hér á íslandi og
við vitum að til þess þarf að standa
vel að unglingalandsliðum okkar
núna. Við viljum að landslið okkar
sé góð landkynning fyrir Island,
land, þjóð, menningu, íþróttir, lifn-
aðarhætti, atvinnuhætti, ferðaþjón-
ustu og útflutningsvörur.
Við vitum að árangur landsliðs
okkar hefur mikil áhrif á að fá
unglinga til að sneiða hjá reyking-
um, áfengi og vímuefnum?
Við höfum mikla þekkingu og
hefð á sviði handknattleiksíþróttar-
innar. Við höfum góða þjálfara til
að æfa og stjóma okkar landsliðum.
Til að fjármagna starfsemi allra
okkar landsliða og til að undirbúa
landsliðið okkar fyrir heimsmeist-
arakeppnina í Tékkóslóvakíu, þá
þarf HSÍ mikið íjármagn. Þess
vegna leitar Handknattleikssam-
bandið eftir stuðningi allra þeirra
sem hafa áhuga á handknattleik
og vilja að landslið okkar standi sig
vel_ í keppni við landslið stórþjóða
á Ólympíuleikum, í heimsmeistara-
keppni og öðrum alþjóðlegum mót-
um.
Handknattleikssambandið vill
auðvelda öllum heimilum og fyrir-
tækjum að styðja við starfsemi
landsliða okkar með því að senda
þeim giróseðil. Sem þakklætisvott
fyrir veittan stuðning hefur verið
útbúið vandað plakat af gull-liðinu
okkar frá Frakklandi sem sent hef-
ur verið með gíróseðlinum. Það er
von stjómar HSÍ að sem flestir sjái
sér fært að styðja við landslið okk-
ar í handknattleik.
Handknattleiksíþróttin er okkar
þjóðaríþrótt. Við viljum vera í
fremstu röð. Það er markmið lands-
liðsins í handknattleik að gera
ávallt sitt besta. Að vera góð og
jákvæð landkynning fyrir ísland og
vera góð fyrirmynd íslensks æsku-
fólks. Stjóm HSI og landslið íslands
í handknattleik treysta á stuðning
þinn, lesandi góður.
Höfiindur er formaður Hand-
knattleikssambands íslands.
Ríkisspítalar:
Dag*vistargj öldin samræmd
STJÓRN ríkisspítalanna hefúr samþykkt að hækka gjöld á dagvistar-
stofiiunum spftalanna til samræmis við gjöld á dagvistarheimilum
Reykjavíkurborgar. Hækkunin á að taka gildi 1. júlf.
Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar
forstjóra ríkisspítalanna, greiða allir
starfsmenn spítalanna, hvort sem
þeir eru einstæðir eða í sambúð,
sama gjald og einstæðir foreldrar
greiða fyrir sín börn á dagheimilum
borgarinnar.
„Eg fínn að þessi ákvörðun veldur
óánægju meðal starfsfólks," sagði
Davíð, „en það eru tvær hliðar á
þessu máli. Nú komum við ekki öllum
þeim bömum, sem þess þurfa á dag-
heimilin, sem þýðir að einhverjir
koma ekki sínum bömum að, á með-
an aðrir hafa tiltölulega hagstæð
kjör fyrir sitt bam, sem er auðvitað
ósangjamt. Hugsanlega kæmust
fleiri að og verður um leið sanngjam-
ar ef gjaldið er samræmt gjöidum
dagheimila Reykjavíkurborgar.“
Gjald fyrir böm einstæðra foreldra
verður óbreytt.