Morgunblaðið - 19.04.1989, Síða 1
48 SIÐURB
88. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1989
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Ástandið í Líbanon:
Mitterrand reynir að
fá bardögum hætt
Beirút. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand, Frakklandsforseti, hefur í gær og fyrradag
átt samtal við Ieiðtoga Bandaríkjanna, Bretlands og Sovétríkjanna og
fleiri ríkja um ástandið í Líbanon og gert þá kröfti til leiðtoga ara-
baríkjanna að þeir beiti sér fyrir því að „geðveikinni í Líbanon", eins
og hann kallaði átökin þar, ljúki.
Mitterrand freistar þess að ná al-
þjóðlegri samstöðu um að binda enda
á átökin í Líbanon. Frá því í fyrra-
dag hefur hann átt símasamtal af
því tilefni við George Bush, Banda-
rílq'aforseta, Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, Míkhaíl
Gorbatsjov, Sovétleiðtoga, Hosni
Mubarak, forseta Egyptalands, og
Chadli Benjedid, forseta Alsírs. I
fyrradag fundaði hann með Hussein
Jórdaníukonungi í París og lagði að
honum að arabaríkin byndust sam-
tökum um að stöðva borgarastyrjöld-
ina.
Walesa og
Jaruzel-
ski heita
samstöðu
Varsjá. Reuter.
WOJCIECH Jaruzelski, hers-
höfðingi, og Lech Walesa, leið-
togi Samstöðu, hétu því í gær að
vinna saman að þjóðarsátt og
efnahagslegri endurreisn í Pól-
landi.
Jaruzelski og Walesa hafa verið
tákn stríðandi afla í Póllandi. Var
fundur þeirra hinn fyrsti frá því
Jaruzelski reyndi að uppræta Sam-
stöðu með herlögum fyrir hálfu átt-
unda ári. Hittust þeir í þinghúsinu
í Varsjá og ræddust við í 45 mínút-
ur. Með fundinum hafa fullar sætt-
ir tekizt milli Samstöðu og stjórn-
valda, en óháðu verkalýðsfélögin
hlutu starfsleyfi í fyrradag.
Leiðtogarnir tveir komu brosandi
af fundinum og sagði Walesa að
honum loknum að þeir hefðu rætt
um framtíð pólsku þjóðarinnar og
hvemig þeir gætu stuðlað að því
að hún yrði sem heillaríkust.
Mörg hundruð manns á flótta und-
an óöldinni í Beirút komust ekki
lengra en til hafnarinnar í bænum
Jounieh. Þar beið þeirra ferja sem
átti að sigla með fólkið til Kýpur en
skömmu fyrir brottför hófst mikil
eldflaugaskothríð á hafnarhverfið.
Rólegt var í Beirút í gær en í fyrri-
nótt rigndi sprengjum og eldflaugum
yfir borgina. Átta menn a.m.k. týndu
lífi í vesturhluta borgarinnar og tveir
í hverfi kristinna í austurhlutanum.
Frakkar hófu í gær að flytja særða
Líbani á sjúkrahús í Frakklandi.
Hátt í 70 særðir múslimar og ætt-
ingjar þeirra lögðu upp frá vestur-
hluta Beirút til borgarinnar Sídon
en þaðan átti að flytja þá yfir í
franskt sjúkraskip. fjöldi sjúkraliða
aðstoðaði hina slösuðu er þeir hröð-
uðu sér út úr sjúkrahúsi ameríska
háskólans út í einkabíla og sjúkra-
bíla. Sprengja féll á sjúkrahúsið á
mánudag og' nú finnst varla sú gata
í Beirút þar sem sprengjur hafa ekki
fallið.
Sendimaður frönsku ríkisstjórnar-
innar, Bernard Kouchner, sem hefur
reynt að semja við leiðtoga múslima
um brottflutning særðra borgara,
reyndi einnig að fá heimild fyrir því
að olíuskip fengi að losa farm sinn
í Beirút, en olíubirgðir eru á þrotum
í borginni.
Snjóþungur veturkveður
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
EINN snjóþyngsti vetur þessarar aldar kveður
í dag og á morgun gengur sumarið í garð. Snjó
hefiir víða tekið upp á láglendi en á hálendinu
er enn mikill snjór og vatnsföll í klakaböndum
eins og þessi mynd af Gullfossi ber með sér, en
hún var tekin nú í vikunni.
Námsmenn í Kína krefjast lýðræðisumbóta:
Átök við höfuðstöðvar
kommúnistaflokksins
Peking. Reuter, Daily Telegraph.
ÞÚSUNDIR kínverskra náms-
manna reyndu í gær að ráðast
til inngöngu í höfuðstöðvar
Kommúnistaflokks Kína í Pe-
king, en hermönnum tókst að
stöðva þá eftir mikil átök. Kröfð-
ust námsmennirnir lýðræðisum-
bóta og þess að fá að ræða við
Morðin í Katyn-skógi:
Sekt Sovét-
manna sieppt á
minnismerkinu
Varsjá. Reuter.
MORÐANNA á rúmlega 4.000 pólskum foringjum í
Katyn-skógi í stríðinu var. minnst við opinbera athöfh
við minnisvarða um hina myrtu í Varsjá í gær.
Áletrun á minnisvarðanum hefur verið breytt, en þrátt
fyrir yfirlýsingar pólskra yfirvalda um sekt Sovétmanna
var skuldinni ekki skellt á þá í nýju áletruninni. Þar stend-
ur nú: „Til minnis um foringjana sem voru myrtir í Kat-
yn.“ í eldri áletrun var nasistum kennt um morðin. Hinir
myrtu voru í hópi 15.000 foringja í pólska hernum, sem
Sovétmenn tóku til fanga í Katyn-skógi 1939. Jarðneskar
leifar þeirra fundust, en hinir 11.000 hurfu sporlaust.
Reuter
Þúsundir Pólveija komu í gær að minnisvarða
um foringjana, sem myrtir voru í Katyn-skógi.
Li Peng, forsætisráðherra Iands-
ins. Um 5.000 manns hrópuðu
hvatningarorð til námsmann-
anna þegar þeir fylgdust með
átökunum, sem eiga sér vart for-
dæmi í 40 ára valdatíð kommún-
istaflokksins.
Kínverskir námsmenn hafa efnt
til mótmæla undanfarna fjóra daga
í kjölfar andláts Hus Yaobangs,
fyrrum flokksleiðtoga, á laugardag.
Hafa þeir meðal annars krafist lýð-
ræðisumbóta og endurreisnar Hus,
sem þótti frjálslyndur í embættistíð
sinni, en varð að víkja fyrir
harðlínumönnum innan kommún-
istaflokksins árið 1987 eftir álíka
mótmæli námsmanna.
Námsmennirnir sungu Inter-
nasjónalinn er þeir reyndu að ráð-
ast til inngöngu í höfuðstöðvar
kommúnistaflokksins. „Niður með
skrifræðið. Niður með spillinguna.
Lengi lifi lýðræðið," hrópuðu þeir
meðal annars.
Hermönnunum tókst að loka inn-
ganginum að byggingunni en ekki
var vitað í gær hvort mannfall hefði
orðið. Hermennirnir munu ekki hafa
beitt skotvopnum. Sjónarvottar
sögðu að um 300 námsmenn hefðu
sest niður við innganginn eftir átök-
in, umkringdir þúsundum annarra,
sem annaðhvort hefðu staðið eða
setið á reiðhjólum. Námsmenn
sögðu að nokkrum hefði verið
hleypt inn til að ræða við embættis-
menn.
Kvöldið áður efndu námsmenn-
imir og stuðningsmenn þeirra til
mestu kröfugöngu í Kína síðan á
lokadögum menningarbyltingarinn-
ar árið 1976. Um 10.000 manns
komu þá saman á Torgi hins himn-
eska friðar í Peking.
Um hundrað námsmenn efndu
einnig til setuverkfalls við Alþýðu-
höllina, sem hýsir þing landsins.
Þeir lögðu fram kröfur í sjö liðum,
þar sem meðal annars var krafist
mál- og prentfrelsis, endurreisnar
Hus, að bann við kröfugöngum yrði
afnumið og að embættismenn yrðu
skyldaðir til að gera grein fyrir tekj-
um sínum og eignum. Þeir kröfðust
ennfremur afsagnar stjórnarinnar,
en féllu síðar frá þeirri kröfu þar
sem þeir.töldu hana óraunsæja.