Tíminn - 24.10.1965, Blaðsíða 1
TVÖFALT
EINANGRUNAR -
20ára reynsla
hérlendis
SIMI 114 00
EGGERT KRISTJANSSON «CO HF
242. tbl. — Sunnudagur 24. október 1965 — 49. árg.
24 SÍÐUR
OSRAM
i
Ljósaperur
Reglugerðin um umferðagjald á Reykjanesbraut komin:
TOLLURINN ER
40-300 KRÓNUR
KJ-ReykjavÁc, laugardag.
f dag barst Tímanum reglu-
gerð um vegatollinn á Kefla-
víkurveginum, og eins og hún
ber með sér þá er minnsta
gjald fjörutíu krónur, en það
mesta 300 krónur. Vegurinn
mun væntanlega verða opnað-
Ur til almennrar umferðar
klukkan tíu á þriðjudagsmorg-
uninn.
Hér á eftir fer reglugerðin
um vegatollinn og hluti af
greinargerð sem fylgdi reglu-
gerðinni, en greinargerðina er
ekki hægt að birta í heild núna
vegna rúmleysis, en verður
birt öll eftir helgina.
1. gr.: Af hverju ökutæki,
sem ekur um Reykjanesbraut,
fram hjá gjaldstöð nálægt
Straumi sunnan við Hafnar-
fjörð, skal greiða umferðar-'
gjald, miðað við aðra leið, sem
hér segir:
I. fl. Fólksbifreiðar undír
1100 kg. eigin þunga og sendi-
ferðabifreiðar undir 450 kg. að
burðarmagni 20,00 kr.
ELDEY
SOKKIN
KJ - Reykjavík, laugardag.
Þrátt fyrir miklar björgunarað-
gerðir sökk Eldey KE 37 í nótt
á sfldarmiðunum fyrir austan, en
allir skipverjar eru heilir á húfi.
Komu þeir með Brimi til Nes-
kaupstaðar um hádegisbilið í dag,
og fóru strax þaðan með flug-
vélinni Norðfirðingi til Reykja-
vikru.
Mikill viðbúnaður var á sildar-
miðunum til að freista þess að
bjarga bátnum, en allt kom fyrir
ekki. Allir bátarnir, sem voru á
miðunum, voru komnir í kring
um Eldey, sem maraði í hálfu
kafi, og með þrjá skipsmenn inn-
anborðs, sem gerðu allt sem í
þeirra valdi stóð. Munu þeir hafa
verið um borð í hinu hálfsokkna
skipi rúma fjóra tíma, en urðu
að yfirgefa það um klukkan tvö.
Fóru þeir þá yfir í Brimi, þar
sem hinir skipverjarnir voru, og
komu með honum til Neskaup-
staðar um hádegisbilið.
Rétt fyrir klukkan þrjú kom
Norðfirðingur með skipsbrotsmenn
ina af Eldey 12 að tölu til Reykja
víkur. Fréttamaður Tímans náði
talí af Pétri Sæmundssyni skip-
stjóra, og bað hann að segja frá
því hvað gerzt hafði.
— Við yfirgáfum Eldey í
gúmmíbát og vorum teknir um
borð í Brimil. Þegar við höfðum
verið þar um nokkra stund ákváð
um við þrír ég Henry Kristjáns
son stýrimaður og Valdimar
Framhald á blaðsíðu 22.
II. fl. Fólksbifreiðar yfir
1100 kr. eigin þunga, sendi-
ferðabifreiðar yfir 450 kr að
burðarmagni og vörubifreiðar
undir 1,5 tonn að burðarmagni
25,00 kr.
III. fl. Vörubifreiðar með
burðarmagn 1,5—5 tonn, al-
menningsbifreiðar fyrir 8—20
farþega 50,00 kr.
IV. fl. Vörubifreiðar með
yfir 5 tonna burðarmagn,
kranabifreiðar og almennings-
bifreiðar fyrir fleiri en 20 far-
þega 100,00 kr.
V. fl. Vörubifreiðar með yf-
ir 5 tonna burðarmagni, með
tengivagn og dráttarbifreiðar
með festivagn 150.00 kr.
Önnur ökutæki en bifreiðar
greiði:
Eigin þungi 1—3 tonn, sam
kv. II. fl. Eigin þungi 3—6
tonn, samkv. III. fl. Eigin
þungi yfir 6 tonn, samkv. IV.
fl.
2. gr.
Umferðagjald samkv. 1. gr.
skal innheimt af Vegagerð rík-
isins í gjaldstöð nálægt bæn-
um Straumi sunnan við Hafn-
arfjörð. Skal gjaldið innheimt
þar tvöfalt af öllum ökutækj-
um á suðurleið, en innheimtu
gjaldsins sleppt af öllum öku-
tækjum á norðurleið.
3. gr. Undanþegnar greiðslu
umferðargjalds eru eftirlitsbif
reiðar lögreglunnar, sjúkrabig-
reiðar og slökkvibifreiðar.
Heimlit er að veita afslátt
á umferðargjaldi, samkvæmt
nánari ákvörðun ráðherra, ef
keyptir eru 50 gjaldseðlar eða
fleiri í einu.
4. gr. Brot gegn reglugerð
þessari varða sektum allt að
100 þús. kr., nema þyngri hegn
ing liggi við að lögum.
5. gr.: Með bröt gegn reglu-
gérð þesSari skal farið að
hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi er sett sam-
kvæmt 95. gr. vegalaga nr. 71.
30. desember 1963, til að öðl-
ast þegar gildi og birtist til
iainnaui á blaðsiðu ZZ
SIF TÖK SINN
FYRSTA TÖGARA
MB-Reykjavík, laugardag.
Landhelgisgæzluflugvélin TF-
Sif tók í gærkvöldi Hull-togarann
St. Andronicus H-241 að veiðum
um tvær sjómílur innan fiskveiði-
lögsögutakmarkanna út af Bjarn-
arey. Flugvélin sveimaði yfir tog-
aranum, þar til varðskipið Óðinn
kom á vettvang og fór með tog-
arann til hafnar. Þetta er I fyrsta
skipti, sem SIF tekur togara að
landhelgisveiðum.
Landhelgisgæzluflugvélin Sif
fór í eftirlitsflug um hádegið í
gær og svipaðist áhöfnin um á
ýmsum stöðum við landið. Skip-
herra var Þröstur Sgtryggsson.
Um klukkan 18 i gærkvöldi var
flugvélin stödd út af Digranesi og
var þá komið myrkur. Sáu menn
á Sif þá í ratsjá sinni skip að
veiðum innan fiskveiðilögsögutak-
markanna út af Bjarnarey og er
þangað var komið var haft sam-
band við skipstjóra skipsins.
Reyndist þar vera Hull-togarinn
St. Andronicus og var skipstjór-
anum þá 'tilkynnt hverjir væru á
ferð og að hann væri innan fisk-
veiðilögsögutakmarkanna.
Togaraskipstjórinn virðist ann
að hvort ekki hafa gert sér grein
fyrir því að hann væri innan tak-
markanna, eða þá að hann hefur
ekki gert sér grein fyrir því að
um Landshelgisgæzluflugvélina
að ræða, því eftir að þeir höfðu
sagt til sín og tilkynnt honum um
að hann væri staðinn að ólögleg-
um veiðum, brá svo við að ekki
var nokkur leið að ná sambandi
við hann og hélt hann þegar á
fullri ferð til hafs.
Varðskipið Óðinn var fyrir Aust
fjörðum er þetta gerðist, og hélt
hann þegar af stað í átt til tog-
arans. Náði hann sambandi við
skipstjórann um klukkan 21 í
gærkvöldi og féllst skipstjórinn
þá á að stöðva skip sitt og hélt
til Seyðisfjarðar með varðskipinu.
Allan tímann, þar til hann sneri
við með varðskipinu, sveimaði
Sif yfir togaranum, til þess að
um óslitna eftirför væri að ræða.
Flugvélin hélt síðan til Egilsstaða
og tók benzín áður en hún fór
suður, enda hafði hún þá verið
nærri dægur á lofti stanzlaust.
Framhald á bls. 11.
Skýjaborg viS Grófarbryggjuna í gærmorgun
Var á reki í 2 sólarhringa mei bilui
loftskeytatæki og óskráia skipshöfn
MB—Reykjavík. taugardag.
Varðskip fann í nótt, eiginlega
fyrir hreina tilviljun, Iítinn bát
á reki úti á Faxaflóa. Var þar
um að ræða bátinn Skýjaborg,
RE-71. Hafði báturinn þá verið
á reki í tvo sólarhringa með biluð
loftskeytatæki án þess að útgerð
in í landi gerði neitt til þess að
reyna að hafa upp á bátnum, þótt
hann ætti að réttu lagi að vera
kominn að. Verður það að teljast
furðulegt kæruleysi. og það, sem
meira er: ENGINN virðist hafa
verið skráður á bátinn a.m.k. eng
inn þeirra, sem um borð voru, en
j það voru tveir karlmenn og ein
koina.
Nánari tildrög þessa voru þau,
' að í gærkvöldi var Landhelgis-
S gæzlan beðin um að svipast eft-
, ir trillubáti frá Hafnarfirði, sem
menn var farið að lengja eftir.
Er varðskipsmenn fóru að gá að
þessum báti, sögðu menn, sem
voru á báti á þessum slóðum, að
rauðu blysi hefði verið skotið upp
af Búðagrunni Um líkt leyti
var tilkynnt að trillubáturinn frá
Hafnarfirði væri kominn að, en
varðskipsmenn töldu rétt að at-
huga hitt málið nánar og um sama
leyti höfðu þeir samband við bát,
sem var þarna á sömu slóðum,
og höfðu bátsverjar þar einnig
séð blysið. Varðskipsmenn sigldu
sjðan þangað, sem blysið hafði
sézt, og hittu beint á bát, sem var
á reki. Var þar kominn báturinn
Skýjaborg, RE-71, sem fengið
hafði vjr í skrúfuna og rak
stjórnlaust. Varðskipið tók bátinn
í slef og sigldi með hann til
Reykjavíkur.
Enn er þó ekki nema hálfsögð
sagan. Furðulegur trassaskapur
virðist hafa ríkt um útgerð þessa
báts, en útgerðarmaðurinn er ein
hver fisksali í Reykjavjk, sem hef
ur bátinn á leigu. Loftskeytatæki
bátsins voru biluð, og þótt bátur-
inn hefði verið á reki í tvo sól-
arhringa, hafði enginn maður í
landi áhyggjur af honum, og
hvorki Slysavarnarfélaginu né
Landhelgisgæzlunni var kunnugt
um, að neitt væri athugavert við
ferðir bátsins, fyrr en varðskipið
fann hann, nánast af tilviljun,
Framhald á bls. 11.