Morgunblaðið - 10.05.1989, Blaðsíða 18
18
eseL IAfi. ,()f }liJ£>AOl)Mí7«31fí! MfHAJJflilUiWDM
‘""mÓRGUNBLAÐÍð’ mÍÐVIKUDÁgÚR 10. MAÍ 1989
Morgunblaðið/Þorkell
Þjónustuíbúðir aldraða
Framkvæmdum miðar vel við þjónustuíbúðir aldraða, heilsugæslu-
stöð og bifreiðageymslu, sem verið er að reysa á homi Vestur-
götu og Garðarstrætis, að sögn Davíðs Oddssonar borgarsljóra.
Búið er að selja 23 af 27 ibúðum í húsinu og er stefht að af-
hendingu þeirra í ágúst næstkomandi. Eins og sést á myndinni
er lang komið með að gleija gróðurskála á þeirri hlið hússins
er snýr frá götunni.
Opið bréf til bæjar-
stjórnar Kópavoffs
frá þremur fyrrverandi bæjarfiilltrúum
Við sem ritum nöfn okkar undir
þetta skjal eigum það sameiginlegt
að hafa setið í bæjarstjórn Kópa-
vogs á því kjörtímabili, sem lauk á
árinu 1974 og stóðum að því sam-
komulagi milli sveitarfélaganna
Kópavogs og Reykjavíkur, sem
fjallar aðallega um bæjarmörk,
skiptum á löndum og lagningu
Fossvogsbrautar, er veldur nú all
harðri deilu þessara aðila. Okkur
þykir að nú sé komið í slíkt óefni
hvað varðar samskipti þessara ná-
granna, að við svo búið megi ekki
lengur standa.
Hugmyndir um lagningu Foss-
vogsbrautar hafa tekið miklum
breytingum frá því hún kom fyrst
á dagskrá.
Þegar bæjarstjórn Kópavogs
samþykkti lagningu hennar fyrir
sitt leyti 1964 töluðu menn um
Fossvogsdalinn eins og hveija aðra
mýri, sem ekki væri svo illa fallin
til skógræktar, en laðaði ekki til
sín að öðru leyti. En nú er öldin
önnur. Eftir því sem árin líða eykst
skilningur á þörf borgarbúans til
útivistar og hreyfingar og nú virð-
ast menn mæna á Fossvogsdalinn
AEG WíriUbOB
AEG
AEG
STRAUJÁRN
DB 112
AEG
ÖRBYLGJUOFN
MC112 ‘
AEG
UPPÞVOTTAVÉL
FAVORIT 428
U-W
ypug msop.
AEG
PÚSSIKUBBUR
VS 130
AEG
HJÓLSÖG
HKS65A
’AÐúR__12*996*
RAFHLOÐUBOR-
VÉL
ABS13 RL
AEG
LIMGERÐIS-
KLIPPUR
HES 65
B _R Æ Ð U R N I R
ORMSSON HF
Lágmúli 9 E3 8760 128 Reykjavík
SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND
AFKOST
ENDING
GÆÐI
sem æskilegan griðastað íbúa
beggja sveitarfélaganna til þessara
nota. En hér þarf að fleiru að gæta,
þjóð sem á önnur eins ósköp af
bílum og við íslendingar þarf rúm-
gott vegakerfi, undan því verður
ekki vikist. Við skipulagsvinnu þarf
því að leitast við að samræma þessi
sjónarmið.
II.
Þegar við vorum að fjalla um
þessi mál 1973 þá gerðum við okk-
ur öll grein fyrir því að við vorum
að fjalla um sameiginleg mál þess-
ara tveggja sveitarfélaga, Kópa-
vogs og Reykjavíkur, þau áttu
þennan dal sameiginlega og að
hagsmunir íbúanna voru þeir sömu
hvoru megin við bæjarmörkin sem
þeir bjuggu. Á okkur, fulltrúum
þessa fólks, hvíldi sú skylda að leiða
málið til lykta á sem farsælastan
veg fyrir alla aðila.
Það var samdóma álit allra sem
að þessum málum unnu að gera
þyrfti víðtæka úttekt á umferða-
kerfi höfuðborgarsvæðisins og meta
síðan þörf Fossvogsbrautar út frá
niðurstöðum þeirrar könnunar.
Því miður hefur þessi könnun
ekki farið fram og er það kannske
að hiuta orsök þess vanda, sem
menn standa nú frammi fyrir. Það
er þó ekki næg afsökun fyrir því
jafnvægisleysi, sem ráðamenn
beggja sveitarfélaganna gera sig
seka um í dag.
Það skal tekið fram að í þessum
viðræðum fóru skoðanaskipti fram
í miklu bróðerni þó stundum væru
verulega skiptar skoðanir. Allir
gerðu sér ljóst að þessi tvö ná-
grannasveitarfélög gátu haft veru-
legra hagsmuna að gæta um sam-
Samið við lög-
reglumenn
KJARASAMNINGAR hafa tekist
við Landssamband lögreglu-
manna, en Landssambandið neit-
aði að skrifa undir samninga með
aðildarfélögum Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja á dög-
um vegna þess sem þeir töldu
vera vanefhdir ríkisins á fyrri
samningi.
Lögreglumenn afsöluðu sér verk-
fallsrétti gegnt ákveðnum reglum
um viðmiðanir um kaup og kjör.
Samningurinn sem nú hefur verið
gerður er samhljóða BSRB samn-
ingnum, auk þess sem settar hafa
verið skýrari reglur um hvernig
staðið skuli að framkvæmd þessara
viðmiðana. Viðmiðunarhópurinn er
sá sami og áður, félög BSRB,
BHMR, Kennarasamband íslands
og Samband bankamanna. Útreikn-
ingar skulu liggja fyrir tvisvar á
ári og ef svo er ekki hækka laun
lögreglumanna um 3%, sem síðan
verður leiðrétt þegar viðkomandi
útreikningar liggja fyrir.
Leiðrétting
LOK setningar og upphaf þeirr-
ar næstu féll því miður niður í
ávarpi Sigmundar Guðbjarna-
sonar í blaðinu í gær. — Réttur
er viðkomandi kafli þannig:
„Vænta má að um 50 þúsund
bílar færu um Fossvogsbraut á dag
og gæfu þeir frá sér 2.500 kg eða
2,5 tonn af kolmónoxíði á dag árið
um kring. Þótt bílafjöldinn væri
ekki nema 30 þúsund á dag, eins
og sérfræðingur Reykjavíkurborgar
áætlar, þá gæfu þeir frá sér 1,5
tonn af hreinu kolmónoxíði á dag
eða 1.200 rúmmetra."
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.