Morgunblaðið - 10.05.1989, Síða 28
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Iðnaðarmenn við vinnu í Hótel Norðurlandi. Gísli Jónsson og Guðrún
Erla Gunnarsdóttir fyigjast með.
Hótel Norðurland:
Bókanir fyrir sumar-
ið samkvæmt áætlun
»VIÐ SPÁUM góðu sumri og erum bara hress og kát,“ sögðu þau Gísli
Jónsson forstjórí Ferðaskrifstofu Akureyrar og Guðrún Erla Gunnars-
dóttir hótelstjóri Hótels Norðurlands. Framkvæmdir við endurnýjum
hótelsins ganga samkvæmt áætlun og eru nú um fimmtán iðnaðarmenn
að störfum, en ætlunin er að opna fyrir fyrstu gestina 1. júní næstkom-
andi.
Á Hótel Norðurlandi eru 28 her-
bergi, flest tveggja manna, og eru
18 herbergjanna með baði. Matsalur
hótelsins tekur á milli flörutíu og
fímmtíu manns í sæti, en veitinga-
reksturinn er leigður út
Þau Gísli og Guðrún sögðu bókan-
ir fyrir sumarið lofa góðu, jafnvel
þó seint hafi verið ákveðið að hefjast
handa um hótelreksturinn, og því
ekki hægt að markaðssetja það á
þann hátt sem æskilegast hefði ver-
ið. „En það horfir samt vel,“ sögðu
þau.
Guðrún Erla Gunnarsdóttir hótel-
stjóri er Reykvíkingur, „en verðandi
Akureyringur", eins og hún orðaði
það. Hún hefur stundað nám í ferða-
málafræðum í París undanfarin ár
og í fimm ár hefur hún unnið fyrir
Hótel Eddu. Síðasta vetur vann hún
á Holiday Inn í Reykjavík.
Ferðaskrifstofan Nonni:
Göngu-, rútu- og
hestaferðir í boði
Ferðaskrifstofan Nonni var nýlega opnuð á Akureyri, en á hennar
vegum er boðið upp á alla almenna ferðamannaþjónustu, s.s. farseðla
með áætiunarflugi innan- og utanlands, útvegun gistingar, flug og
bfl, farseðla með Norrænu, tungumálanámskeið erlendis og fleira.
Sólarlandaflug til Mallorka og
Júgóslavíu í tengslum við Ferðaskrif-
stofuna Atlantik er á meðal þess sem
boðið er upp á. Af innanlandsvett-
vangi má nefna skipulagðar rútu-
ferðir með leiðsögn um Norðurland
og gönguferðir í nágreinni Akur-
eyrar.
Þá verður farið í hestaferðir í
Fjörður og á Látraströnd og frá
Skagafirði um Kjöl og til Mývatns-
sveitar. Þá er einnig á döfinni að
halda reiðnámskeið fyrir byijendur
og á vegum ferðaskrifstofunnar er
hestaleiga.
í tengslum við Ferðaskrifstofuna
Nonna verður rekið sumarhótel í
Þelamerkurskóla. Þar verður hægt
að panta sérstakan júgóslavneskan
mat fyrir minni hópa.
Sumarbúöir kirkiunnar
við Vestmannsvatn, Aðaldal,
bjóða unga sem aldna velkomna til dvalar í sumar.
Fallegt umhverfi, fjölbreytt dagskrá, vant starfsfólk.
Innritun og upplýsingar í síma 96-24873
alla virka daga frá kl. 17-19.
Alfreð Jónsson flytur frá Grímsey
til Akureyrar:
Hef aldrei haft áhyggj-
ur af nokkrum hlut
„ÉG VISSI alltaf að ég myndi fara norður og niður og því fannst
mér upplagt að stytta mér leið,“ sagði Alfreð Jónsson í Grímsey
eftir þrjátíu og tveggja ára búsetu í eynni, en Alfreð og kona hans,
Ragnhildur Einarsdóttir, flytja í næsta mánuði til Akureyrar. „Þar
sem við ætlum að eiga rólega daga, en þó fellur mér ekki að sitja
lengi með hendur í skauti," bætti Alfreð við, en hann heldur upp
á sjötugsafmæli sitt þann 20. mai næstkomandi.
Alfreð fæddist í Siglufirði og þar
bjó hann allt til þess tíma er hann
flutti til Grímseyjar. í Siglufirði
stundaði Alfreð skipasmíðar. Ödd-
viti Grímseyinga var hann í tuttugu
og Qögur ár, en síðustu árin hefur
hann unnið við flugvöll eyjar-
skeggja. „Nei, þú mátt ekki titla
mig flugvallarstjóra, ég er það
stuttur maður að ég ber ekki slíka
titla."
Alfreð kvaðst hafa líkað vistin i
Grímsey með mestu ágætum, en
erfítt væri að svara hvað honum
hefði best líkað. „Ætli það sé ekki
best að vera svona langt frá þess-
ari svokölluðu menningu," sagði
hann og bætti við er hann var
minntur á að nú væri hann að
flytja í þessa sömu svokölluðu
menningu: „Það er allt í lagi núna,
þegar ég er á leiðinni að verða elli-
ær!“
Alfreð hefur verið fréttaritari
Morgunblaðsins í fjölmörg ár og
segir margt spennandi hafa komið
upp á. Minnisstæðasti atburðurinn
hafi þó verið er varðskipið Týr
skaut á breska togarann Everton
þar sem hann var að veiðum í land-
helgi íslendinga, rétt utan við
Grímsey. „Öll blöðin slógu því upp
að Everton væri að sökkva, en ég
neitaði. Styrmir var orðinn hálfillur
við mig útaf því, en það kom á
daginn að skipið var ekki að
sökkva. Og þá urðu menn ánægð-
ir.“
Eftir starfsama ævi flytur Alfreð
frá Grímsey og inn til Akureyrar,
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Alfreð Jónsson í Grímsey flytur
senn búferlum til Akureyrar,
en hann heldur upp á sjötugsaf-
mæli sitt þann 20. mai næst-
komandi.
þar sem hann ætlar að eiga rólega
og áhyggjulausa daga. „Ég hef
aldrei haft áhyggjur af nokkrum
hlut. Ég fann það snemma út að
ekkert þýðir að drattast með
áhyggjur. Ég læt hveijum degi
nægja sína þjáningu og það hefur
gefist mér vel.“
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r
Jónas Viðar Sveinsson við eitt
verka sinna.
Jónas Viðar
sýnir
Alþýðubankinn hf. og Menn-
ingarsamtök Norðlendinga,
MENOR, kynna myndlistar-
manninn Jónas Viðar Sveinsson.
Jónas fæddist á Akureyri árið
1962, hann lauk námi í Málunar-
deild Myndlistarskólans á Akureyri
árið 1987. Hann hefur haldið eina
einkasýningu, íGamlaLundi, 1989,
auk þess hefiir Jónas tekið þátt í
samsýningum svo sem Listahátíð
unga fólksins á Kjarvalsstöðum
1986, Opnun, samsýningu í
Glugganum gallerý á Akureyri
1987.
Á listkynningunni eru 6 verk öll
unnin í akrýl á striga á árunum
1987-1989. Listkynningin er í af-
greiðslusal Alþýðubankans á Akur-
eyri, Skipagötu 14, og er opin á
afgreiðslutíma bankans. Kynning-
unni lýkur 30. júní.
Of margir aka
ofhratt
EF'l'lR harðan vetur virðist sem
sumir ökumenn geti Htt hamið
sig við aksturinn, en frá því á
föstudag hafa 15 verið kærðir
fyrir of hraðan akstur á Akur-
eyri, þar af var einn á um 100
km hraða innanbæjar og annar
á 135 km hraða rétt utan bæjar-
markanna.
Felix Jósafatsson varðstjóri lög-
reglunnar á Akureyri segir að nú
væri lögð á það áhersla að ná nið-
ur hraðaakstri, en alltof margir
hafí verið kærðir undanfarið fyrir
of hraðan akstur.
Lögum samkvæmt eiga þeir bif-
reiðaeigendur sem nota nagladekk
undir bfla sína að hafa skipt yfir á
sumardekk, en Felix sagði Ákur-
eyrarlögregluna ekki munu hafa
afskipti af þeim ökumönnum sem
enn aka um á nagladekkjum, enda
hafi síðast í fyrradag snjóað í bæn-
um.
Tveir harðir
árekstrar
TVEIK harðir árekstrar urðu
með stuttu millibili á Akureyri
f gær og þurfti að fjarlægja bif-
reiðir af vettvangi með kranabíl.
Árekstramir urðu á tímabilinu
frá 14.00-14.30 í gærdag. Annar
varð á Óseyri, á gatnamótum Ós-
eyrar og Krossanesbrautar, en hinn
á mótum Glerárgötu og Gránufé-
lagsgötu. Engin meiðsl urðu á fólki,
en bifreiðimar eru illar famar og
þurfti aðstoð kranabfls við að fjar-
læga bflana af slysstað.
Innritun á
Hólavatn
Innritun í Sumarbúðimar á
Hólavatni stendur nú yfir, en
hún fer fram í félagsheimili
KFUM og KFUK í Sunnuhlíð
mánudaga og miðvikudaga frá
kl. 17.00 til 19.00.
Dvalargjald í sumarbúðunum er
kr. 9.400 fyrir sjö daga flokk, en
13.000 fyrir 10 tíu daga flokk. 10%
afsláttur er veittur fyrir systkini.
Utan skrifstofutíma er tekið á
móti pöntunum og veittar upplýs-
ingar hjá Hönnu Stefánsdóttur
Önnu Ingólfsdóttur og Björgvin
Jörgensen.
„ Við fímm í
norðri“
í tengslum við vinabæjaviku
sem haldinn verður í Álasundi í
Noregi í júní, verður efiit til
samnorrænnar samkeppni í ljós-
myndun og kvikmyndun.
Þessi samkeppni er opin fyrir
íbúa allra vinabæja Álasunds, þar
með Akureyringa. Viðfangsefni
samkeppninnar er „Við fimm í
nórðri". Myndir í samkeppnina
þurfa að berast til skrifstofu menn-
ingarfulltrúa Akureyrarbæjar í
síðasta lagi þann 10. maí næstkom-
andi.
Uppbygging
eða viðhald?
Morgunblaðinu hefur _ borist
eftirfarandi frá Skapta Áskels-
syni, einum stofnenda Siipp-
stöðvarinnar hf. á Akureyri og
forstjóra hennar frá stofhun,
árið 1952, til 1970:
„Stefán Reykjalín, stjómarfor-
maður Slippstöðvarinnar síðustu
17 ár eða svo, segir í Morgun-
blaðinu miðvikudaginn 3. maí um
þann tíma að gaman hafi verið „að
fylgjast með uppbyggingu stöðvar-
innar...“ Af orðum hans mætti
ráða að stöðin hafi verið byggð upp
að meira eða minna Ieyti síðustu
sautján ár, sem er ekki rétt. Mér
hefði fundist ráðlegra af Stefáni
að orða þetta þannig að gaman
hefði verið að fylgjast með viðhaldi
stöðvarinnar þennan tiltekna tíma.
Með þökk fyrir birtinguna."
Séð yfir athafnasvæði Slippstöðvarinnar árið 1970.