Morgunblaðið - 10.05.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLA0IJ) MIDVIKUDAGUR 10. MAÍ 1989.
29
Ráðstefna
um mengun
hafsins
Síðastliðinn mánudag áttu
sér stað umræður utan dag-
skrár í sameinuðu þingi um
mengun hafsins hér við land.
Friðrik Sophusson, varaform-
aður Sjálfstæðisflokksins,
vakti við það tækifæri athygli
á því, að fyrir tveimur árum
hefði Alþingi skorað á ríkis-
stjórn að eftia til ráðstefiiu um
þetta efiii en ekkert hefði kom-
ið fram af hálfii stjórnvalda
um undirbúning hennar.
í máli Friðriks kom fram, að
vorið 1987 hefðu sjálfstæðis-
mennirnir Gunnar G. Schram,
Pétur Sigurðsson og Eyjólfur
Konráð Jónsson lagt fram tillögu
til þingsályktunar um að efnt
yrði til ráðstefnu um mengun við
Island og annars staðar í Norð-
austur-Atlantshafi. Þessi tilíaga
hefði verið samþykkt og ríkis-
stjórninni falið að vinna að fram-
gangi málsins.
Friðrik sagði að ekkert hefði
komið fram af hálfu stjómvalda
um undirbúning þessarar ráð-
stefnu og hefði hann nú lagt fram
fyrirspum til Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra þar
að lútandi.
Húsbréfafrumvarpið:
Tillögur stjórnarandstöðn
þingmanna samþykktar
Annarri umræðu lokið í neðri deild
Annarri umræðu um húsbréfafrumvarp ríkisstjómarinnar lauk í
neðri deild Alþingis í gær. Við umræðuna voru samþykktar breyting-
artillögur frá Geir H. Haarde (S/Rvk) o.fl., þar sem felld vom brótt
ákvæði sem skerða áttu Jánsrétt ákveðinna hópa. Tveir stjórnar-
þingmenn, þeir Alexander Stefánsson (F/Vl) og Stefán Valgeirsson
(SJF/Ne), greiddu atkvæði með þessum breytingum á frumvarpinu.
Við umræðuna var felld tillaga frá Ólafi Þ. Þórðarsyni (F/Vf), þess
eftiis, að skylt yrði að leita heimildar Alþingis í lánsfjárlögum fyrir
heildampphæð útgefinna húsbréfa ár hvert.
í gær lauk annarri umræðu um
húsbréfafrumvarp ríkisstjórnarinn-
ar í neðri deild Alþingis. Nokkrar
breytingar voru gerðar á frum-
varpinu við umræðuna og riðluðust
fylkingar í deildinni þegar gengið
var til atkvæða um tillögur þar að
lútandi.
Skerðingarákvæði felld
brott úr fi-umvarpinu
Geir H. Haarde (S/Rvk), Eggert
Haukdal (S/Sl) og Ingi Bjöm Al-
bertsson (FH/Vl) lögðu til að felld
yrðu úr frumvarpinu skerðingar-
ákvæði, sem þeir töldu, að leitt
gætu til þess að ýmsir smáatvinnu-
rekendur misstu rétt til lána úr
húsnæðiskerfinu. Sagði Geir við
atkvæðagreiðsluna í gær að hann
teldi þessi ákvæði frumvarpsins
ekki koma húsbréfakerfinu við. Jón
Sæmundur Sigurjónsson (A/Nv)
sagði að í nánustu framtíð yrði
húsbréfakerfið aðeins lítill hluti
húsnæðiskerfisins. Nú væru biðlist-
ar hjá Húsnæðisstofnun svo langir,
að annaðhvort þyrfti að hækka
vexti á lánum eða samþykkja skerð-
ingarákvæði af þessu tagi.
Þessar breytingartillögur stjórn-
arandstöðuþingmannanna voru
samþykktar með atkvæðum þing-
manna Sjálfstæðisflokks, Kvenna-
lista og Fijálslyndra hægrimanna,
auk þess sem stjórnarþingmennirnir
Alexander Stefánsson (F/Vl) og
Stefán Valgeirsson (SJF/Ne)
greiddu-þeim atkvæði. Aðrir þing-
menn ríkisstjórnarflokkanna
greiddu atkvæði gegn tillögunum
ásamt Óla Þ. Guðbjartssyni (B/Sl),
en Borgaraflokksþingmennirnir
Benedikt Bogason og Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir voru ekki viðstödd
atkvæðagreiðsluna.
Breytingartillaga Ólafs Þ.
Þórðarsonar felld
Við umræður um frumvarpið
síðastliðið mánudagskvöld bar Ólaf-
ur Þ. Þórðarson (F/Vf) fram breyt-
ingartillögu við frumvarpið þar sem
gert var ráð fyrir að leita þyrfti
heimildar Alþingis í lánsfjárlögum
fyrir heildarupphæð útgefinna hús-
bréfa ár hvert. Taldi þingmaðurinn
þessa breytingu nauðsynlega til
þess að frumvarpið bryti ekki í
bága við stjórnarskrána. Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
lýsti því hins vegar yfir í umræðun-
um í fyrrinótt að hún teldi þessa
breytingartillögu óþarfa og var hún
Geir H. Haarde
felld við atkvæðagreiðsluna í gær.
Búist er við að þriðja umræða
um húsbréfafrumvarpið fari fram í
neðri deild í dag. Við þá umræðu
hyggjast þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins leggja til að málinu verði
Ólafiir Þ. Þórðarson
vísað til ríkisstjórnarinnar. Þrátt
fyrir andstöðu einstakra stjórnar-
þingmanna við frumvarpið bendir
allt til þess að það verði samþykkt
á þessu þingi, enda hyggst Kvenna-
listinn greiða fyrir framgangi þess.
Kaup Alþíngis á Hótel Borg:
„Dýr bráða-
birgðalausn“
- segir minnihluti flárveitinganefndar
Meirihluti fjárveitinganefndar (Sighvatur Björgvinsson, Margrét
Frímannsdóttir, Oli Þ. Guðbjartssson, Jón Sæmundur Sigurjónsson og
Olafiir Þ. Þórðarson) vill heimila forsetum Alþingis „að ganga til kaupa
á Hótel Borg eða öðru húsnæði í næsta nágrenni við Alþingishúsið,
ef hagkvæmara þykir, og láta gera nauðsynlegar lagfæringar á hús-
eigninni ef af kaupum verður“.
Minnihluti nefndarinnar (Pálmi
Jónsson, Alexander Stefánsson,
Málmfríður Sigurðardóttir og Egill
Jónsson) leggur hinsvegar til að for-
setum þingsins verði falið „að kanna
hvaða möguleikar eru til aukinnar
hagkvæmni í húsnæðismálum Al-
þingis og skila um það skýrslu til
formanna allra þingflokka á næsta
haustþingi“.
í skýrslunni komi fram: 1) mögu-
leikar á kaupum eða leigu á húsnæði
í grennd við þinghúsið, 2) áætlun
um kostnað í hveiju tilviki, 3) áætlun
um nýtingu húsnæðis, 4) hvað af
núverandi húsnæði Alþingis megi
láta af hendi og 5) áætlun um kostn-
að við breytingar á Alþingishúsinu
til að bæta starfsaðstöðu þingmanna.
í greinargerð minnihluta segir:
„Hugmyndin um að kaupa Hótel
Borg er vissulega ein af þeim leiðum
sem til greina koma ... Við, sem að
þessu nefndaráliti stöndum, erum þó
andvíg því að í þau kaup verði ráðist
nú og án frekari athugunar.“ Nefnd-
armenn tala um kaup á Borginni
„sem dýra bráðabirgðalausn. Þeir
benda og á aðra húsnæðismöguleika
við Vonarstræti, Pósthússtræti og
Austurstræti. Borgarráð Reykjavík-
ur hafi og lýst yfir áhyggjum sínum
yfir hugmyndum um að ieggja niður
hótelrekstur í miðborg Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fjöldi gesta kom til að skoða hina nýju skrifstofú verkalýðsfélag-
anna í A-Hún.
Verkalýðsfélögin í A-Húnavatnssýslu:
Ný skrifstofa opnuð
Blönduósi.
Verkalýðsfélag A-Hún. ásamt Iðnsveina- og Verslunarmannafélagi
A-Hún. opnuðu nýja skrifstofú í eigin húsnæði fyrir skömmu. Fjöldi
gesta kom að skoða skrifstofú félaganna á opnunardaginn.
Skrifstofa verkalýðsfélaganna er
til húsa á Þverbraut 1 eða Fróða-
húsinu eins og það daglega kallast.
Húsnæði það er hér um ræðir er
um 100 fermetrar og með tilkomu
þess stórbatnar öll aðstaða verka-
lýðsfélaganna. Mikið starf er fram-
undan hjá verkalýðsfélagi A-Hún.
við ráðningu starfsfólks vegna
framkvæmda við Blönduvirkjun í
sumar. Verkalýðsfélögin hafa ráðið
Valdísi Óskarsdóttur til að annast
daglegan rekstur hinnar nýju skrif-
stofu. Jón Sig.
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra:
Reynt að stöðva sam-
drátt í sölu kindakiöts
STEINGRÍMUR J. Sigfússon landbúnaðarráðherra segir að fyrir-
hugaðar séu ýmsar aðgerðir til þess að stöðva þann samdrátt sem
orðið hefur í sölu kindakjöts á innanlandsmarkaði, og tengist sumar
þeirra fyrirhuguðum ráðstöfúnum ríkissfjórnarinnar til þess að halda
niðri verðlagi. I skýrslu ríkisendurskoðunar um framkvæmd búvörulag-
anna segir að sala síðustu þriggja ára hafi orðið 2.500 tonnum minni
en gert var ráð fyrir, og hafi þessu verið mætt með því að auka út-
flutning umfram ákvæði búvörulaganna. Nemi sú aukning um 1.400
tonnum kindakjöts, en því sem eftir standi hafi verið mætt með upp-
kaupum og leigu á framleiðslurétti.
stæður er að stöðva þann samdrátt
sem orðið hefur í sölu kindakjöts
innanlands og gerir vandann þeim
mun erfiðari sem hann verður meiri,
e'n það er ljóst að hefðu upphaflegar
áætlanir um sölu kjötsins innanlands
staðist, þá væri um lítinn vanda að
ræða í dag.“
I skýrslu ríkisendurskoðunar kem-
ur fram að gera þurfi verulegt átak
í því að aðlaga sauðfjárframleiðsluna
að þörfum innanlandsneyslu og
minnka þutfi virkan framleiðslurétt
eins og hann er áætlaður á árinu
1992 um sem svarar til kindakjöts-
framleiðslu um 200 verðlagsbúa.
Steingrímur J. Sigfússon segir að
viðræður séu að hefjast við samtök
bænda um þau vandamál sem upp
hafa komið varðandi framkvæmd
búvörusamningsins, en ljóst sé að
haldi sá samdráttur áfram á sölu
kindakjöts innanlands sem þegar er
orðinn verði að grípa til enn frekari
samdráttar í framleiðslunni.
„Það er ljóst að það mun skapa
mikla erfiðieika haldi þessi þróun
áfram og til frekari fækkunar þurfi
að koma, en eitt af því sem ekki
hefur tekist sem skyldi varðandi
framkvæmd búvörusamningsins er
að byggja upp störf í staðinn fyrir
þau sem tapast hafa í hefðbundnum
búgreinum. Framleiðnisjóður var
ætlaður til þess, og til dæmis voru
miklar vonir bundnar við loðdýra-
rækt, sem síðan hefur lent í miklum
erfíðleikum og sogað til sín mjög
mikið fé úr sjóðnum sem er mikil
ógæfa, þar sem því verður þá ekki
ráðstafað í annað. Það sem ég tel
því vera nærtækast við ríkjandi að-
Heyskortur ger-
ir vart við sig
UNDANFARIÐ hefúr átt sér stað
nokkur verslun með hey á milli
svæða, og að sögn Jonasar Jóns-
sonar búnaðarmálastjóra er víða
viss uggur í mönnum ef tíðarfar
batnar ekki á landinu. Hann sagði
að farið væri að bera á heyskorti
á vissum svæðum.
Jónas sagði að algengt væri að
Búnaðarfélag íslands hefði milli-
göngu með heymiðlun, en vegna
verkfalls ráðunauta hjá BÍ hefði það
ekki átt sér stað nú.