Morgunblaðið - 10.05.1989, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR ÍO. MAÍ Í989
45
Stykkishólmur:
Hátíðarhöld á degi aldraðra
^ Stykkishólmi.
Á DEGI aldraðra var efnt tíl samfagnaðar í Stykkishólmi. Var ‘
hann haldinn í dvalarheimilinu, þar sem margir eldri borgarar í
Stykkishólmi voru mættir.
Þessir hringdu ...
Góð grein um EB
J.M. hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góða grein
sem birtist í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 4. maí og er eftir
Norðmanninn Kristen Nygaard.
Þessi grein er gott framlag í
umræðuna um Evrópubandalagið
en hún hefur verið allt of lítil hér
á landi. Þó t.d. Morgunblaðið hafí
birt margar greinar og fréttaskýr-
ingar sem tengjast Evrópubanda-
laginu virðist það ekki hafa kom-
ið af stað miklum umræðum í
þjóðfélaginu og ég helda að al-
menningur geri sér ekki grein
fyrir þreirri þróun sem nú á sér
stað í Evrópu. Þýðing Evrópu-
bandalagsins verður sífellt þyngri
á metunum, jafnt fyrir þjóðir sem
eru innan þess og þjóðir er kjósa
að vera fyrir utan. Margt sem
Nygaard skrifar um Noreg í grein
sinni á einnig við um ísland. Ég
vona að Morgunblaðið birti fleiri
greinar um þetta efni því það er
áríðandi að almenningur fylgist
með þeirri þróun sem á sér stað
í Evrópu með auknum áhrifum
Evrópubandalagsins."
Hugtök á aðalfundum
Fundamaður hringdi:
„Þúsundir landsmanna fara á
aðalfundi fyrirtækja og stofnana
á hveiju ári og eiga að ræða um
ársreikninga. En margir, og ég
held allt of margir, hafa ekki inn-
sýn í öll þau hugtök sem stjóm-
endur nota við skýringar og sem
fram koma í reikningum. T.d.
hvað er veltufjárhlutfall? Eigið fé?
Skuldbreyting? Matsreikngur o.s.
frv. Og enginn kann við að spyija
um þýðingu þessara orða. Ég held
að það væri verðugt verkefni fyr-
ir fjármálaráðuneytið eða áhugas-
ama útgefendur að gefa út hand-
bók með hugtökum og almennum
skýringum á ársreiknigum með
uppfærsludæmum. “
Skyggni
Ljósblátt skyggni af regnhlífar-
kerru tapaðist föstudag 28. apríl
á homi Þorragötu og Reykjavík-
urvegar í Skeijafírði eða fyrir fyr-
ir utan Miðleiti 3. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 17548.
BMX hjól
Svart BMX reiðhjól með gulum
sætum og dekkjum hvarf fyrir
þrem vikum síðan. Ef einhver
hefur fundið það er sá hinn sami
beðinn að hringja í síma 611531.
Erfðagripur
Nokkuð stór, gömul gyllt
víravirkisnæla tapaðist sl. mið-
vikudag í Þingholtunum eða í
Miðbænum. Finnandi vinsamleg-
ast hringi í síma 12379.
Bamahjól
Lítið nýlegt bamahjól fannst í
Neðra-Breiðholti fyrir skömmu.
Upplýsingar í síma 74053.
Aldraðir og bærinn sáu um fagn-
aðinn. Hófst hann með helgistund
sem sóknarpresturinn Gísli H. Kol-
beins annaðist. Þá söng kirkjukór-
leg kaffidrykkja og'rabbað saman
undir borðum. Þótti stundin takast
mjög vel og allir sem tóku þátt í
henni bæði ánægðir og þakklátir.
— Arni
inn nokkur lög, síðan var sameigin-
FO
ISL AN D
Aðalfundur
*
Form Islond verður haldinn á
Hallveigarstíg 1, fimmtudaginn 11. maí
kl. 16.45.
Að lolrnum aðalfundarstörfum kl. 17.30
mun Ástþór Ragnarsson, iðnhönnuður,
flytja erindi um alþjóðlega starfsemi
hönnuða.
Allir átiugamenn um hönnun velkomnir.
I
tilefni af formlegri opnun
Bernhöftstorfu bjóðum við
15 % afslátt af öllum kaffi
og matarveitingum í dag
Endurheimt hins fagra máls
Restaurant
Til Velvakanda.
Til þess að endurheimta fagurt
og þróttmikið tungutak, þarf að
beina huga til réttrar áttar. í Morg-
unbiaðinu 1. mars var greinin Mál-
rækt. Þar mátti sjá þessa athyglis-
verðu setningu: „Aðeins guðirnir
tala fullkomið mál og þá án
orða.“
Skemmtilegt var að sjá hér talað
um guði í sambandi við fagurt
málfar. í fyrsta lagi er hér fullyrt,
að guðir séu til, í öðru lagi að guð-
ir hafi fullkomið málfar og í þriðja
lagi að þeir tali íslenskt mál, því
höfundur er einmitt að ræða um
íslensku og vemdun hennar og fegr-
un. Hér er verið á réttri skilnings-
leið, því vitneskja um guði og fegr-
un tungumáls mun fara saman.
Höfundi greinarinnar, Ólafí M.
Jóhannessyni, ber þannig saman
við skoðanir dr. Helga Pjeturss, sem
áleit íslenskuna vera frá guðum
komna með nokkrum hætti, og
væri því skyld máli guðanna. Hann
áleit þessa guði vera íbúa annars
hnattar, á fjarlægu geimsvæði, og
hefðu forverar Islendinga öðlast
þetta fullkomna og fagra mál, nor-
rænuna (undanfara íslenskunnar)
vegna náins sambands, fjarsam-
bands, við þessa guðlegu þjóð ann-
ars hnattar, sem þeir kölluðu Æsi.
Hefðum við raunar ekki aðeins hlot-
ið tungumál þeirra í nokkrum mæli,
heldur einnig ýmsa aðra góða kosti
svo sem líkamlega hreysti og mann-
vit meira en af var að segja meðal
annarra þjóða eða annarra fólkætta
á þeim tíma. Og þessum góðu eigin-
ieikum héldum við íslendingar, uns
við lögðum niður þetta nauðsynlega
guðasamband, en tókum upp annað
framandi, sem aldrei varð okkur
eins nátengt og hið fyrra hafði ver-
ið.
Höfundur Málræktar-greinarinn-
ar virðist álíta, samkvæmt framan-
greindri tilvitnun í ritgerð hans, að
guðirnir tali án orða. Hér hygg ég,
að ekki sé rétt á málum haldið.
Mál manna er ekki mál án orða,
og það hlýtur einnig að gilda um
mál guðanna. Mál þeirra hlýtur að
byggjast á orðum, annað væri ekki
rökrétt að minni hyggju.
Til þess nú að fegra og full-
komna mál okkar, íslenskuna, þá
má alveg víst telja, að aðeins eitt
væri óbrigðult og árangursríkt, en
það væri að leita aftur bættra líf-
og vitsambanda við hinar guðlegu
verur, þær sem fyrrum áttu sinn
mikla þátt í að lyfta þjóðmenningu
okkar á það stig, að ekki var of-
mælt, að hér á íslandi hafí þá verið
vaxtarbroddur mannkynsins. Þvi
stigi mætti aftur ná, ef nægur vilji
nógu margra væri fyrir hendi, því
nú má vita, hvemig að skuli fara
og hvers með þarf til þess, að slíkt
samband megi aftur eflast.
Ingvar Agnarsson
Bernhöftstorfu, sími 14430
KALT VAX
NÚTÍMA HÁREYÐING
Ekkert sull, engin fyrirhöf n,
aðeins eitt handtak.
Útsölustaðir: Topptískan, Aðalstræti 9 - Hygea, Austurstræti 16 - Stella, Bankastræti 3 -
Hygea, Laugavegi 35 - Brá, Laugavegi 72 - Ingólfsapótek, Kringlunni - Breiðholtsapótek, Mjódd -
Nana, Völvufelli og Hólagarði - Keflavíkurapótek - Kaupf. Skagfirðinga -
Kaupf. Eyfirðinga - Húsavíkurapótek - Vestmannaeyjaapótek - Vörusalan, Akureyri.
Tvaer stærðir:
1) Stærri gerð fyrir t.d.
fótleggi.
2) Minni gerð fyrir t.d. andlit
eða bikinilínu.
Kalt vax fjarlægir óæskileg
líkamshár. Eitt handtak og öll
hárin hverfa. Allt sem til þarf
er tilbúið á einum renningi.
Ekkert sull, engin fyrirhöfn,
aðeins eitt handtak.