Morgunblaðið - 13.05.1989, Blaðsíða 41
080! ÍAM e; HUOACUIADUAJ UKiAJilUDOHOI,
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1989
0*
41
Guðspjall dagsins:
Jóh. 14.:
Hver sem elskar mig.
GRENSÁSKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 á
hvítasunnudag. Guðmundur
Gíslason syngur einsöng. Sr.
Halldór Gröndal annast messuna.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Kvöldmessa kl. 20.30. Ný tónlist.
Þriðjudag: Biblíulestur aldraðra kl.
14. Kaffiveitingar. Fimmtudag:
Samkoma kl. 20.30. UFMH.
Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Hvítasunnudag:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Mótettukór Hallgrímskirkju
frumflytur 96. Davíðssálm, kórverk
eftir stjórnanda sinn, Hörð
Áskelsson. Annan hvítasunnudag:
Messa kl. 11. Sr. Sigurður
Pálsson. Jóhanna Möller sópran
syngur í messunni. Kl. 17
vortónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju. Stjórnandi Hörður
Áskelsson. Þriðjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum. Miðvikudag:
Opið hús fyrir aldraða kl. 14.30.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hvítasunnudag:
Hátíðarmessa kl. 11. Flutt verður
Missa „Non sine quare" eftir
Jóhann Caspar Kerll.
Einsöngvarar: Sigríður Gröndal,
Jóhanna V. Þórhallsdóttir,
Sigursveinn D. Magnússon,
Halldór Vilhelmsson. Sembal:
Violetta Smidova. Kór og
Kammersveit Háteigskirkju.
Annan hvítasunnudag: Messa kl.
11. Sr. Amgrímur Jónsson.
Tónleikar Kammersveitar
Háteigskirkju kl. 17. Flutt verður
tónlist eftir J.S. Bach, F. Carulli og
W.A. Mozart. Einleikari með
Kammersveitinni: Símon ívarsson,
gítar. Sembal og stjórn: Orthull
Prunner.
HJALLAPRESTAKALL í Kópavogi:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 i
messuheimili Hjallasóknar,
Digranesskóla. Kór Hjallasóknar
syngur. Organisti David Knowles.
Sr Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Hátíðarguðsþjónusta á
hvítasunnudag í Kópavogskirkju kl.
14.00. Nk. þriðjudagskvöld verður
samvera samstarfshópsins um
Sorg og sorgarviðbrögð i
safnaðarheimilinu Borgum kl.
20-22. Allir velkomnir. Sr. Árni
Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups.
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Garðar
Cortes og kór Langholtskirkju
flytja hátíðarsöngva sr. Bjarna
Þorsteinssonar. Prestur sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Annar hvítasunnudagur: í
Dómkirkjunni kl. 11, verður
Þórhallur Heimisson guðfræðingur
vígður til afleysingarþjónustu fyrir
Sigurð Hauk Guðjónsson í ársleyfi
hans. Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugardag: Guðsþjónusta í Hátúni
10b, 9. hæð, kl. 11.
Hvítasunnudag: Hátíðamessa kl.
11. Altarisganga. Kaffi á könnunni
eftir messu. Vegna viðgerðar á
kirkjunni verður kirkjan lokuð frá
16. maí. Safnaðarfólki er bent á
messugjörðir í Áskirkju.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11 á hvítasunnudag. Sr. Ólafur
Jóhannsson. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11 á annan hvítasunnudag. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Þriðjudag og
fimmtudag: Opið hús fyrir aldraða.
SEUAKiRKJA: Guðsþjónusta í
Seljahlíð hvítasunnudag kl. 11
árdegis. Guðsþjónusta í kirkjunni
kl. 14. Valgeir Ástráðsson
prédikar. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Trompetleikur
Guðmundur Hafsteinsson.
Sóknarprestqr.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 á
hvítasunnudag. Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Aðalsafnaðarfundur verður í
kjallara kirkjunnar
miðvikudagskvöldið 17. maí kl.
20.30.
KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Organisti
Jónas Þórir. Sr. Þórsteinn
Raqnarsson.
HVITASUNNUKIRKJA Filadelfía:
Hvítasunnudag almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðurmaður Garðar
Ragnarsson. Annan
hvítasunnudag: Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30.
Lágmessa kl. 14. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18 nema laugardag,
þá kl. 14.1 þessum mánuði er lesin
Róskransbæn fyrir lágmessuna kl.
18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Hámessa kl. 11. Rúmhelga daga
lágmessa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Hátíðarsamkoma hvítasunnudag
kl. 20.30 í umsjá Marit Níelsdóttur
og Marianne Spor. Annan
hvítasunnudag kl. 20.30
hvítasunnufagnaður. Major Njal
Djuurhus frá Noregi talar.
Veitingar bornar fram að lokinni
samkomu.
NÝJA Postulakirkjan: Messa
Háaleitisbraut 58 kl. 11
hvítasunnudag.
MOSFELLSKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
BESSAST AÐAKIRKJ A:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 14.
Álftaneskórinn syngur undir stjórn
John Speight. Organisti Þorvaldur
Björnsson. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Hátíðarmessa
í kirkjunni kl. 11. Fermd verður
Ásthildur Helga Bragadóttir,
Suðurvangi 14.
Hátíðarguðsþjónusta á Hrafnistu
kl. 13.30. Kór Víðistaðakirkju
syngur. Organisti Kristín
Jóhannesdóttir. Sóknarprestur.
H AFN ARFJ ARÐARKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 14. Organisti
Helgi Bragason. Sr. Þórhildur
Ólafs.
FRIKIRKJAN Hafnarfirði:
Guðsþjónusta kl. 11. Séra
Þórhildur Ólafs predikar og þjónar
rir altari. Organisti Smári
lafsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KÁLFATJARNARKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Organisti
Frank Herlufsen. Sr. Gunnlaugur
Garðarsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11. Kór
kirkjunnar syngur. Organisti Örn
Falkner. Ath. breyttan messutíma.
Sóknarprestur.
KALÞOLSKA kapellan Keflavík,
Hafnargötu 71: Messa kl. 16
sunnudaga.
GRINDAVÍKURKIRKJA:
Hátíðarmessa kl. 14. Skírð verða
þrjú börn. Bænasamkomur alla
þriðjudaga kl. 20.30. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
KIRKJUVOGSKIRKJA:
Hátíðarmessa kl. 11. Sr. Örn
Bárður Jónsson.
ÚTSKÁLAKIRKJA:
Hvítasunnuguðsþjónusta kl. 11.
Organisti Jónína Guðmundsdóttir.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
HVALSNESKIRKJA:
Hvítasunnuguðsþjónusta kl. 14.
Barn verður borið til skírnar.
Organisti Frank Herlufsen.
HVERAGERÐISPRESTAKALL:
Hvítasunnudag messa í
Þorlákskirkju. Ferming kl. 11.
Strandarkirkja: Messa
hvítasunnudag kl. 14. Heilsuhælið
NLFÍ, Hveragerði: Messa annan
hvítasunnudag kl. 11.
Kotstrandarkirkja: Messa annan
hvítasunnudag kl. 14. Ferming. Sr.
Tómas Guðmundsson.
ÞINGVALLAKIRKJA:
Guðsþjónusta hvítasunnudag kl.
14. Organisti Einar Sigurðsson.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 14. Organisti
kirkjunnar leikur á orgelið frá kl.
13.30. Annan hvítasunnudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.30.
Beðið fyrir sjúkrum. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn
Jónsson.
BORGARPRESTAKALL:
Hátíðarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11 í
Borgarneskirkju.
Fermingarguðsþjónusta í
Borgarkirkju kl. 13.30. Fermdir
verða: Unnsteinn Elíasson,
Ferjubakka, og Kjartan Arnar
Hauksson, Lækjarkoti. Messa í
Akrakirkju kl. 16. Annan
hvítasunnudag: Messa í
Álftaneskirkju kl. 14. Messað á
dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi
kl. 16.30. Sóknarprestur.
Florida:
Ný bók um háskólanám í Bandaríkjunum
KONA sem tengd er íslandi, Kathleen Russo Magnússon, eiginkona
Geirs Magnússonar, fyrrum forsljóra hjá Iceland Seafood í Banda-
ríkjunum, hefiir nýlega gefið út handbók um háskólanám í Banda-
ríkjunum. Bókin er fyrst og fremst skrifuð fyrir bandarískt náms-
fólk og foreldra þeirra, en gæti að sjálfsögðu komið að góðum not-
um fyrir íslendinga sem hugsa til háskólanáms í Bandaríkjunum.
í blaðinu The Patriot-Úews ,sem upplýsingaskrifstofu ráðgjafa um
gefið er út í Harrisburg í Pennsyl-
vaníu, er farið lofsamlegum orðum
um framtak höfundarins og í við-
tali við hann kemur fram, að bókin
er skrifuð eftir að Kathleen Magn-
usson hafði fengið allar fáanlegum
upplýsingar varðandi háskólanám
og námsefni í sjálfboðaliðastarfi á
háskólanám. Upphaflega sóttist
hún eftir því sjálfboðastarfi til að
fá sem gleggstar upplýsingar um
háskólanám fyrir sín eigin böm, en
að þeim fengnum, varð henni ljóst
að mikil þörf var á hagnýtum upp-
lýsingum um þessi mál fyrir alla
sem hugsa til framhaldsnáms og
því afréð hún bókaskrifm.
í bókinni sem heitir: How to
Aþply toCollege Guideer m.a. fjall-
að um hvernig eigi að senda inn
umsóknir um nám í háskóla, hvem-
ig eigi að sækja um námsstyrki,
hvemig eigi að velja sér aðalnáms-
grein, hvernig eigi að velja háskóla
og upplýsingar gefnar um sumar-
námskeið.
Bókin kostar 7.95 dollara og er
hægt að fá hana með því að skrifa
til höfundar, en heimilisfang hennar
er: 3045 Lisbum Road, Mechanics-
burg 17055, USA.
JÁRIMSAGIR
fyrir prófíla, rör, vinkla,
flatjárn og massíft stál.
Einfasa 220V 10A.
Þvermál skurðarskífu
355 mm.
Snúningshraði
3500 sn/mín.
Skurðarþvermál 110 mm.
Þyngd 17,2kg.
£d
j
G. J. FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63 - Reykjavlk
Slmi 18560
Adgangseyrir í lcvöld
er eitt stórt núll
Opió frá kl. 21.00-23.30
Endum góðo hvítasunnuhelgi
í Hollywood
ó annan í hvítasunnu.
Opið mánudagskvöld frá kl. 22-01
Aldurstakmark 20 ár.
H0LUW00D
Anna Vilhjálms og
Hilmar Sverrisson
leika fyrir gesti
Ölvers frá kl. 21.00
í kvöld og á
mánudagskvöld.
Opið frá kl. 11.30-15.00
og 18.00-24.00.
Ókeypis aðgangur.
Lokað á hvítasunnudag.
T
________Hefst kl. 13.30_____
Aðalvinninqur að verðmæti
__________100 þús. kr._____
Heildarverðmæti vinninqa um
__________300 þús. kr._____
TEMPLARAHOLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 20010