Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
113. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Spenna í samskiptum Breta og Sovétmanna;
Moskvu, London. Reuter.
GENNADIJ Gerasíraov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins,
skýrði frá því í gær að stjórnvöld eystra hefðu afráðið að skylda bresku
ríkisstjórnina til að kalla heim 170 breska rikisborgara sem starfa í
Sovétrílgunum. Á sunnudag fengu 11 Bretar í Moskvu, þrir fréttamenn
og átta sendiráðsstarfsmenn, tveggja vikna frest til að koma sér úr
landi og sagði Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, í gær
að þessi ákvörðun sýndi að breytingar þær sem átt hefðu sér stað í
Sovétríkjunum væru ekki jafn djúpstæðar og margir teldu ástæðu til
að ætla.
Gerasímov sagði á blaðamanna-
fundi í Moskvu í gær að þess yrði
krafist að breskir ríkisborgarar í
Sovétríkjunum yrðu kallaðir heim
þannig að þar ríkti jöfnuður með
ríkjunum að þessu leyti.
Á sunnudag ákváðu stjórnvöld í
Sovétríkjunum að vísa 11 Bretum
úr landi fyrir njósnir. Sama dag var
skýrt frá því að stjórnvöld í Bret-
tandi hefðu á föstudag vísað jafn-
mörgum sovéskum sendiráðsstarfs-
mönnum og blaðamönnum úr landi.
Margaret Thatcher sagði í viðtali
Gengi dollars
hækkar enn
Washington, Lundúnum. Reuter.
Roman Popadiuk, talsmaður
Bandaríkjaforseta, sagði í gær að
hækkun dollars gagnvart öðrum
gjaldmiðlum að undanförnu væri
áhyggjuefhi. I gær fengust tvö
vestur-þýsk mörk fyrir hvem doll-
ar og hafði gengi hans ekki verið
hærra í 29 mánuði.
Popadiuk sagði að bandarísk
stjórnvöld myndu beita sér enn frek-
ar fyrir því að samkomulagi sjö
helstu iðnríkja heims um samræm-
ingu í gjaldeyrismálum yrði fylgt
eftir í kjölfar hækkunarinnar.
Um miðjan dag í gær fengust
2,0110 vestur-þýsk mörk fyrir hvem
dollar í Lundúnum og 142,50 japönsk
jen. í byrjun þessa árs kostaði dollar-
inn hins vegar 1,7 mörk og 123 jen.
Hjá Seðlabanka íslands var gengi
dollars í gær skráð 56,67 krónur en
var 55,87 kr. á föstudag.
við breska útvarpið BBC í gær að
ákvörðun Sovétstjórnarinnar hefði
valdið sér vonbrigðum. „Hún sýnir
að ef til vill hafa ekki átt sér stað
jafnróttækar breytingar í Sovétríkj-
unum og margir hafa látið í veðri
vaka.“ Sir Geoffrey Howe, utanríkis-
ráðherra Bretlands, sagði að koma
þyrfti í veg fyrir umsvif sovésku
leyniþjónustunnar í Bretlandi sem
hann kvað hafa farið vaxandi.
Gennadíj Gerasímov sagði í Moskvu
í gær að bresk stjórnvöld hefðu ekki
lagt fram nein gögn máli sínu til
stuðnings og kvaðst telja að brottvís-
un Sovétmannanna kæmi til með að
skaða samskipti ríkjanna.
Sjá einnig „Sovétmenn reknir
frá Bretlandi... á bls. 23.
Reuter
Kínverskir námsmenn bera málverk af Li Peng forsætisráðherra Kína í einkennisbúningi þýskra nas
ista um götur Peking á sunnudag.
Kínverskir hermenn í viðbragðsstöðu í úthverfum Peking:
Harðvítug valdabarátta
innan flokksforystunnar
Peking. Reuter, The Daily Telegraph.
FULLVÍST er talið að mótmæli
kínverskra háskólanema og stuðn-
ingsmanna þeirra hafi hleypt af
stað harðvítugri valdabaráttu inn-
an kínverska kommúnistaflokks-
ins. Orðrómur var á kreiki um
helgina þess efiiis að harðlínu-
menn innan fiokksforystunnar,
þeir Deng Xiaoping, hinn eiginlegi
leiðtogi fiokksins, og Li Peng for-
sætisráðherra hefðu verið ofiir-
liðni bomir og hraktir frá völdum
en í gær benti fátt til þess að frétt-
ir þessar ættu við rök að styðjast.
Erlendir fréttaritarar í Peking
segja að háskólanemar og stuðn-
ingsmenn þeirra hafi í raun tekið
völdin í miðborginni. í gærkvöldi
að íslenskum tíma kom til átaka
í einu úthverfa Peking-borgar og
særðist flöldi námsmanna er her-
menn börðu á þeim með kylfiim,
beltum og múrsteinum.
Tugþúsundir manna héldu til á
Torgi hins himneska friðar í gær en
þar hafa námsmenn haldið uppi and-
ófi undanfama tíu daga til að leggja
áherslu á kröfur sínar um aukið lýð-
ræði og frelsi í landinu. Þrátt fyrir
hótanir yfirvalda hefur hernum ekki
verið beitt gegn mótmælendum á
Torgi hins himneska friðar en hins
vegar létu hermenn til skarar skríða
Skammdræg kjarnavopn í Evrópu:
Kohl ítrekar afstöðu
ríkisstjómar sinnar
Bonn. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Helmuts Kohls, kanslara Vestur-Þýskalands, telur að í
málamiðlunartillögu Bandarikjamanna í deilu ríkjanna um endurnýjun
skammdrægra kjarnavopna í Vestur-Evrópu felist ekki nægileg trygg-
ing fyrir því að hafhar verði viðræður um fækkun þess háttar vopna
í álfunni. Heimildarmenn innan vestur-þýsku ríkissljórnarinnar sögðu
í gær að Kohl kanslari hefði enn á ný hvatt til slíkra viðræðna í bréfi
er hann sendi George Bush Bandaríkjaforseta.
um fækkun þess háttar vopna.
í tillögunni segir einnig að árang-
ur í Vínarviðræðum austurs og vest-
urs um samdrátt í hinum hefðbundna
herafla í Evrópu sé skilyrði fyrir því
að unnt verði að ræða frekari fækk-
un kjarnorkuvopna í álfunni. Heim-
ildarmenn Jfeuter-fréttastofunnar
sögðu að Vestur-Þjóðveijar gætu
ekki sætt sig við að viðræðum um
fækkun skammdrægra kjarnorku-
vopna yrði slegið á frest með þessum
hætti. Kohl kanslari sagði í gær að
áfram yrði leitað sátta i deilu þess-
Vestur-þýska ríkisstjórnin ræddi
tillögu Bandaríkjamanna á fundi á
sunnudag og sögðu vestur-þýskir
embættismenn þá að unnt yrði að
ná sáttum á grundvelli hennar. I til-
lögunni er gert ráð fyrir því að
ákvörðun um uppsetningu nýrra
skammdrægra kjarnorkueldflauga í
stað þeirra sem fyrir eru í Vestur-
Þýskalandi verði frestað fram til árs-
ins 1992. í stað þessa vilja Banda-
ríkjamenn að Vestur-Þjóðveijar falli
frá þeirri kröfu sinni að hafnar verði
sem fyrst viðræður við Sovétmenn
Reuter
Mitterrand
George Bush átti um helgina viðræður við Francois
Frakklandsforseta í Washington. Mitterrand hefur lýst yfir stuðningi
við sjónarmið Bandaríkjamanna í deilu þeirra og Vestur-Þjóðveija
um endurnýjun skammdrægra kjarnorkuvopna í Vestur-Evrópu. Á
myndinni heilsar Frakklandsforseti Michael Dukakis sem beið lægri
hlut fyrir Bush i forsetakosningunum í Bandaríkjunum á síðasta ári.
ari fyrir fund leiðtoga aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
sem fram fer í Brussel í Belgíu síðar
í þessum mánuði.
í úthverfí borgarinnar í gærkvöldi.
Herinn hefur verið í viðbragðsstöðu
í úthverfum Peking-borgar frá því á
laugardag og hafa háskólanemar og
stuðningsmenn þeirra komið í veg
fyrir hveija tilraun hermanna til að
færa sig nær miðborginni. Á laugar-
dag og sunnudag komu umbóta-
sinnar upp götuvígjum í nágrenni
Torgs hins himneska friðar þegar
þær fréttir bárust að Li Peng forsæt-
isráðherra hefði fyriskipað hemum
að dreifa mannfjöldanum. Götuvígin
voru mörg hver fjarlægð í gær og
sögðu erlendir fréttaritarar að um-
bótasinnar hefðu miðborg Peking í
raun á valdi sínu en að spenna færi
engu að síður minnkandi í borginni.
Erlendir sendimenn í Kína' sögðu
að harðvítug valdabarátta færi nú
fram á bak við tjöldin. Einn þeirra
kvaðst hafa áreiðanlegar heimildir
fyrir því að Zhao Ziyang flokksleið-
togi hefði mætt aftur til starfa í
höfuðstöðvum flokksins í gær. Ekk-
ert hafði til hans spurst frá því á
laugardag og voru námsmenn, sem
telja hann til umbótasinna, teknir að
krefjast þess að hann yrði hafinn til
valda á ný. Þykir líklegt að Zhao og
Li Peng forsætisráðherra sem talinn
er til harðlínumanna beijist nú um
völdin. Um helgina var orðrómur á
kreiki um að Zhao hefði þegar borið
sigur úr býtum og að Li Peng og
Deng Xiaoping, sem fram til þessa
hefur verið talinn valdamesti maður
landsins, hefðu hrökklast frá en
fréttir frá Peking í gær þóttu ekki
benda til þess að innbyrðis baráttu
valdamanna væri lokið.
Sjá nánar um upplausnar-
ástandið í Kina á bls. 21.
Hyggjast vísa 170
Bretum úr landi