Morgunblaðið - 24.05.1989, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAI 1989
-f
S-U3
.. .mikið ævintýri.
TM Reg. U.S. Pat Off. —ali rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Ég skil mætavel reiði þína.
Ég er líka giftur ...
410
Hver er starfsvettvangur-
inn?
HÖGNI HREKKVISI
Hugleiðing um
trúarbrögð
Til Velvakanda.
Uxar (tvíeyki) undir oki ganga
alltaf sama hringinn. Frjáls gull-
fiskur syndir venjubundinn innan-
máls fiskabúrshring, nýfijáls í nátt-
úrulegri tjörn. Trúar- og skoðana-
lega bregðast menn snautlega við,
sé ýtt lítillega við hefðbundna „Bab-
els tuminum þeirra“. Lögmál sam-
skipta manna hverjir við aðra og
lífríki náttúru og viðurlögin við
brotum, ath. versin Matt. 11-24,
16-4, 21-13, 7-6 og 7, Lúk. 20-47.
Ayamarar reistu höfuðborg sína
Tiahuanaco á kostarýru landi vegna
hæðar þess yfir sjávarmál. Svo
mjög mátu þeir það mikils að vera
sem næst fjallalöndunum, sólinni
og himnaríkinu.
Mörgum hefur fundist gerð pýra-
mída (Ahram) hafa verið tímafrekt
fávíslegt athæfi, sérstaklega af
fólki er fátt virðir annað en eigin
græðgi. Lífsbjargarmöguleikar
réðu búsetu fýrmm. Stundum full-
nægðu hæðir nágrennis ekki trúar-
brögðunum og þá var bara að búa
fjöllin til.
Huaman (wa’man) merkir jöfn-
um höndum klettinn og sálina sem
í honum býr. Sasja huaman þýðir
því eiginlega Valshamar á góðri
íslensku, er það nafn gijóthleðsl-
unnar ofan við Cuzco borg. Illmögu-
legt væri að endurgera mannvirki
með nútíma tækni nema á mjög
löngum tíma. Hvemig framstæðir
handverksmenn með bronsmeitla,
tréfleyga og tréhnalla fóra framhjá
lögmálum um þyngd og hörku
steina má láta fomfræðingum eftir
að þrátta um. Sé stíft horft á mynd-
spólu virðist augljóst eftir ummeriq'-
um að hleðslan er úr efni er var
með brauðdeigs eiginleika, þvi víða
sjást förin eftir ámóta verkfæri og
bakarar nota til að hluta sundur
deig, eða mjólkurbúsmenn smjör
eftir að það kemur úr strokknum.
Það er list að gjöra hús að gamalli
íslenskri fyrirmynd með árefti, reið-
ingi, sniddu og móhnausum, en orð-
laust meiriháttar, ef mannvirkið
býður gjöreyðingaijarðskjálftum
byrginn öld eftir öld, og tilgangur-
inn með fyrirhöfninni aðeins einn
sólinni til dýrðar.
Fádæma var barnaskapur fólks
fyrri tíðar að því skyldi detta í hug,
að ef laða skyldi sál látins leiðtoga
til baka á hátíðarstundu, væri væn-
legast til árangurs að láta hinn
látna eiga óumbreytanlegan gisti-
stað með kærastu munum úr jarðlífi
og líkinu líka smurðu, þurrkuðu eða
í sífrera hárra ijalla.
Toppur minningar gististaðar var
reglulega lagaður og vísaði til him-
ins ef um Faraó var að ræða, en
Inca þjóð notaðist á sama hátt við
síhvíta ijallatindana. Virðist hvíti
Macchu Picchu (Gamlamanns
tindur). Borg sem stendur uppi
á fjalli fær ekki dulist (Matteus
5-14).
liturinn hafa haft mikið að segja
fyrst Egyptarnir lögðu á sig að
húða pýramídana með krítarsteini,
sem flestir ættu að vita hvaða lit
hefur og hvemig slíkt mannvirki
tekur sig út séð langt að í sólskini
sem mánaljósi.
Nútímamenn vita allt um trúar-
brögð, hvort sem þau byggja á til-
vist Guðs eða höfnun hans, er því
fávíslegt að minnast á hindurvitni
tveggja þjóða hvor á sinni heims-
helftinni, sem létu sér detta í hug
að himnaríkið væri „snertispöl" of-
an við hvítu toppana og leiðin þang-
að væri vörðuð litabylgjum og und-
urfögram þjóðlögum þjóðanna
tveggja.
Bjarni Valdimarsson
Tveimur BMX hjólum stolið
Til Velvakanda.
Aðfaranótt laugardagsins 13.
maí var tveimur BMX-drengjahjól-
um stolið frá hjólageymslu í Rjúpu-
felli. Hjólin era 20 tommu, annað
svart með gulum dekkjum hitt gyllt
með svörtum dekkjum. Bæði hjólin
era ný og eru það bræður sem eiga
hjólin. Hjólana er sárt saknað af
eígendum sínum og bið ég alla þá
sem geta gefið upplýsingar um hjól-
in að hafa samband við okkur. Einn-
ig biðjum við foreldra að vera vak-
andi yfir hvort böm þeirra hafi
þessi hjól undir höndum. Einnig
mætti mætti koma hér fram að á
fimm áram era farin fjögur hjól og
ein barnakerra frá sömu bömum.
Mig langar einnig að segja frá
því hvernig lögreglan okkar brást
við því þegar ég leitaði til hennar
á laugardaginn hin sama . Byijað
var á að hringja í aðalstöðina til
að tilkynna um innbrotið og þjóf-
anðinn og var því svarað til að
kæran þyrfti að vera skrifleg. Var
því farið þangað strax en mér þá
vísað þaðan á lögreglustöðina í
Árbæ þar sem hún ætti að þjóna
Breiðholti. En þegar til Árbæjarlög-
reglunnar var komið var mér sagt
að svona stuld væri ekki hægt að
tilkynna fyrr en að viku liðinni,
enda tjónið ekki tilfinnanlegt að
þeirra mati þó svo að um hreint
innbrot og þjófnað væri að ræða,
sem harðast bitnar á saklausum
börnunum. Ég spyr því hvenær er
hægt að treysta á liðsinni lögreglu
og hvað þarf mikið til að hún hafi
áhuga á málinu? Þeir sem sem vita
um hjólin era beðinir að hafa sam-
band í síma 79796 og við heitum
góðum fundarlaunum.
Margrét Harðardóttir
Yíkverji skrifar
Eins og svo oft áður varð
Víkveiji næsta undrandi þegar
hann hlustaði á þátt í útvarpinu um
merkustu atburði síðustu viku. Það
sem undran vakti vora stöðugar
umræður um ávirðingar Banda-
ríkjanna og Bandaríkjamanna bæði
vegna ræðu fyrram yfirmanns
varnarliðsins og síðan þegar tekið
var til við að bera verktöku fyrir
bandaríska varnarliðið hér á landi
við það sem nú er að gerast í Pa-
nama. Sannaði það enn einu sinni
fyrir Víkveija, að í hugum margra
íslendinga er hið illa í heiminum
ekki annað en Bandaríkin og það
sem bandarískt er. Svonefndir her-
stöðvaandstæðingar era í heilögu
stríði við Bandaríkin hvort heldur
hér á landi eða annars staðar.
Á sama tíma og heimsögulegir
atburðir era að gerast í Kína bæði
með heimsókn Gorbatsjovs þangað
og vegna mótmæla námsmanna
gegn valdastéttinni snerast umræð-
urnar að mestu um annað. Undir
lokin sagði þó talsmaður byltingar-
afla hér á landi sem jafnan hefur
verið málsvari alræðis kommúnista,
að í Kína væri það að gerast sem
hann og félagar hans hefðu helst
viljað. Skyldi að því koma hér á
landi, að félagar í Æskulýðsfylking-
unni gengju um götur borga og
bæja með Frelsisstyttuna sem tákn
sitt?
Þátturinn leystist síðan upp í
almennar umræður um það,
að þeir sem segðu að kommúnism-
inn og sósíalisminn væra að líða
undir lok vissu ekki um hvað þeir
væru að tala. Hvort þeir væra al-
mennt á móti völdum alþýðunnar?
Spurningin um afstöðuna til al-
þýðunnar vakti aðra hjá Víkveija,
hvort fyrirspyijandinn vissi ekki,
að þau ríki, þar sem fólkið er nú
að rísa upp gegn spilltum vald-
höfum, hafa einmitt flest ef ekki
öll kennt sig við alþýðuna með ein-
um eða öðrum hætti. Þetta hefur
lengi verið eitt af öfugmælum sög-
unnar. En nú á sem sé að reyna
að kveða menn í kútinn, þegar þeir
benda á þá staðreynd að kommún-
isminn er að líða undir lok, með því
að þeir séu á móti alþýðuvöldum!
Fátt er brýnna í umræðum um
þjóðmál, hvort heldur innlend eða
erlend, en að menn geri sér glögga
grein fyrir þeim hugtökum sem
þeir nota. Vegna misnotkunar
kommúnista era orðin alþýðuvöld
eða alþýðulýðveldi markleysa á
íslensku og hið sama má segja til
dæmis segja um orðið þjóðfrelsi.
Yíkveiji er þeirrar skoðunar, að
það sé vegna skoðana eins og
þeirra sem vinstrisinnarnir í um-
ræddum útvarpsþætti héldu á loft,
sem umræður um ýmsa meginþætti
stjómmála era næsta geldar meðal
okkar. Það er svo grannt á fordóm-
unum bæði í garð skoðana og jafn-
vel heilla þjóða, að þær skyggja á
allt annað og gera mönnum ókleift
að ræða saman á vitrænan hátt.
Og spyija má: era það ekki orðnir
með öllu úreltir starfshættir hjá
þeim sem stjóma þáttum hjá ríkis-
fjölmiðlum að vera alltaf að leita
eftir andstæðum skoðunum á þess-
um stöðnuðu forsendum?