Morgunblaðið - 25.05.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1989
störf eftir 7 ára framhaldsnám ca.
900.000,00 í árslaun fyrir kennslu-
skylduna hjá framhaldsskólakennara
með 10 ára kennslureynslu. Eru
þetta svo slæm laun miðað við annað
í þessu þjóðfélagi? Ég ætla ekki að
leggja beinan dóm á það, en segja
ykkur þess í stað frá atviki sem ég
var vitni að í síðustu viku í einum
framhaldsskóla. Þar sátu nemendur,
sem voru kennaralausir þann tímann
vegna verkfalls, og voru að reikna
út viðveruskyldu kennarans í skólan-
um á bak við þessi laun. Niðurstaða
nemanna var þessi; 27 kennslustund-
ir á viku á 40 mínútur hver klst. í
32 vikur (próf innifalin), eða 576
klst. á ári. En hér er ekki öll sagan
sögð, því í sömu andrá bar að kenn-
ara sem ekki var í verkfalli, og sá
spurði að því hvað þeir væru að
reikna. Nemarnir svöruðú greiðlega,
en þá sagði kennarinn að þetta væri
ekki rétt, þar sem viðkomandi kenn-
ari væri kominn með 10 stunda
kennsluaflátt vegna aldurs, eða
kennsluskyldan komin niður í 17
kennslustundir á viku.
Til samanburðar er ekki úr vegi
að líta á eitt dæmi af fijálsa markað-
inum. Tökum til dæmis verkstjóra í
vélsmiðju sem sér um viðhald skips-
véla. Menntunarkröfur: Vélvijki og
fjórða stigs próf frá Vélskóla íslands
og ca. 5 ára starfsreynsla að loknu
námi. Samtals 7 ára framhaldsnám
og starfsreynsla að auki. Efir 10 ára
starf hjá sama fyrirtæki eru samn-
ingslaun þessa verkstjóra fyrir dag-
vinnu kr. 75.000 á mánuði, eða kr.
900.000,00 á ári, en vinnuskyldan
að baki þeim 1.800 klst. í fyrirtæk-
inu.
Vissulega er þessi samanburður
ekki að öllu leyti réttlátur, þar sem
kennarinn þarf að undirbúa sig fyrir
kennsluna, en ekki er laust við, að
það læðist að manni sá grunur, að
við útreikning á kennslu- og vinnu-
skyldu kennara sé beitt aðferðum,
sem ekki þola mikið ljós, eða auki
hróður þeirra sem að standa. Það
skal tekið fram, að ég þekki ekki
það stjómunarstarf, hvort sem það
er kennsla, verkstjórn eða fram-
kvæmdastjóm, þar sem stjórnandinn
þarf ekki að taka svo og svo mikið
af vinnunni með sér heim, án þe_ss
að sérstakar greiðslur komi fyrir. (Ég
hef gegnt öllum þessum störfum.)
Launa- og starfskjarasamanburður
er alltaf erfiður og varasamur, og
þá sérstaklega þegar maður þekkir
ekki til fullnustu bakgmnn viðkom-
andi ákvæða, og framangreind dæmi
eru eflaust brennd marki þekkingar-
skorts. Mér þætti fengur í að sjá
þessi mál skýrð á hlutlausan hátt,
og að það mætti verða til þess að
skrif og umræða um launamál kæm-
ist á örlítið hærra plan, en að vera
innantómt slagorðagjálfur með hags-
munapoti, sem byggt er á ímynduð-
um og/eða sundurslitnum viðmiðun-
um sem einungs eru fram settar til
að skara eld að sinni könnu á kostn-
að annarra.
Getum við bætt kjör
allra landsmanna?
Mitt svar er já, sem betur fer. En
til þess þurfum við að einbeita okkur
að aukinni verðmætasköpun og horf-
ast í augu við þær staðreyndir, sem
við blasa á hveijum tíma. Lítum á
nokkrar tölulegar staðreyndir fyrir
tímabilið 1983 til 1987 um fjölgun
starfa í framleiðslugreinum annars-
vegar og þjónustugreinum hinsveg-
ar. í framleiðslugreinum í landbún-
aði, fiskveiðum, fiskvinnslu, bygg-
ingariðnaði og öðrum iðnaði íjölgaði
störfum úr 52.012 í 52.500 eða um
482 störf. Aukning um 0,9%. í
Tölvuháskóli VÍ
OPIÐ HÚS
íTölvuháskóla Verzlunarskóla íslands
í Ofanleiti 1
í dag, fimmtudaginn 25. maí,
frá klukkan 15-18.
Kynnt verður starfsemi skólans,
verkefni nemenda,
hugbúnaður og vélbúnaður.
Allir velkomnir
Kr. 985,— fermetrinn
Njóttu sumarsins sem best og fáðu
þér grasteppi sem endist ár eftir ár.
Tilvalið á svalirnar, veröndina,
leikvöllinn, gufubaðið, sundlaugar-
bakkann, og hvar sem þérdettur í hug.
Teppaland • Dúkaland t
Grensásvegi 13, sími 83577, 105 Rvk. *
JI(i J M í l í 6ttí 9ÍÍIJU9 '»(• i í
21
þjónstugreinum, opinberri þjónustu,
verslun, veitingum, peningastofnun-
um og annarri þjónustu fjölgaði
störfum úr 62.906 í 72.156, eða um
9.250 störf. Aukning 14,7%. Ef litið
er á skiptingu nema á framhalds-
skólastigi á milli framleiðslugreina
' og þjónustugreina fyrir sömu ár, þá
kemur í ljós að hlutur framleiðslu-
greina hefur fallið úr 27% í 25%, en
hlutur þjónustugreina hefur vaxið
að sama skapi úr 73% í 75%. Þessar
tölur benda því miður ekki til þess,
að lífskjör batni alveg á næstunni,
en þær ættu að geta varað okkur
við. Það ætti einnig að vera aug-
Ijóst, að ástandið batnar ekki við það
að troða skóinn niður af náunganum
eða kenna embætti fjármálaráðherra
um versnandi lífskjör.
Til að bæta lífskjörin þurfum við
að stórauka framleiðsluverðmætin
með aukinni framleiðslu, aukinni
framleiðni og síðast en ekki síst með
aukinni verðmætasköpun á einingu.
En til þess að svo megi verða, þá
þurfum við að hlúa að framleiðsluein-
ingunum og sinna bráðri fræðsluþörf
þeirra og gera starfsmönnum og
greinunum í heild sinni kleift að til-
einka sér nýtækni og breytt vinnu-
brögð tengd örtölvubyltingunni, svo
og gæðastýringar og gildi hágæða-
vöru á markaðssetningu svo nokkuð
sé nefnt.
Að lokum
Við skulum hafa það hugfast;
— að hróp og köll og innantóm
slagorð byggja ekkert upp,
— að virðing Alþingis eykst ekki
með því, að atyrða þingmenn og ráð-
herra,
— að enginn verður maður að
meiri við að skýla sér á bak við lítil-
magnann,
— að réttlæti fæst ekki með sjálf-
helguðum völdum, eða með því að
troða á rétti einstaklingsins,
— að það eina sem raunverulega
getur bætt laun, án skerðingar ann-'
arsstaðar er aukin verðmætasköpun.
Og að síðustu iangar mig til að
biðja Morgunblaðið að kanna hvort
ekki sé hægt að fá endurbirta ca.
20 ára gamla grein, sem hét „Að
finna upp ánægjuna". Ég hygg, að
hún sé þjóðinni jafn holl nú og hún
var þá.__________________________
Höfundur er fyrrverandi íram-
kvæmdastjóri ogkennari.
Einstakt
Ústaverk
Þann 18. maí sl. voru 100 ár liðin frá fæðingu Gunnars Gunnarssonar skálds.
Þann 28. maí nk. er 75 ára fæðingarafmæli sonar hans
Gunnars Gunnarssonar listmálara, sem lést langt fyrir aldur fram.
HELGAFELL
Hér er um vandaða og fallega útgáfu að
ræða. Ljóðin eru birt á dönsku,
skrautrituð af skáldinu. Helgi
Hálfdanarson hefur snúið ljóðunum á
íslensku af alkunnri snilld. í bókinni eru
44 vatnslitamyndir eftir son skáldsins
Gunnar Gunnarsson listmálara, sem
túlka anda ljóðanna.
Sonnettusveigur er einstakt listaverk
þar sem saman fléttast dýrt kveðinn
ástaróður og fogur myndlist þannig að
úr verður hrífandi heild.
Bókaútgáfan Vaka-Helgafell minnist
þessara tímamóta með stórglæsilegri
útgáfu á einu merkasta listaverki
skáldsins, ljóðafiokknum Sonnettusveig.
Hér er um að ræða frumútgáfu verksins,
en ljóðaflokkinn orti Gunnar á dönsku til
unnustu sinnar og síðar eiginkonu,
Franziscu Jörgensen. Ljóðunum valdi
skáldið eittvandasamasta ljóðform sem
um getur, sonnettur fléttaðar saman
með einstökum hætti þannig að lokalína
hverrar sonnettu verður upphafslína
þeirrar næstu. Síðasta sonnettan er
síðan sett saman úr upphafslínum allra
hinna í réttri röð.
J Í0