Morgunblaðið - 26.05.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.05.1989, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C 116.tbl. 77. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Heimildir erlendra sendimanna í Kína; Sij órnmálaráðið snýst gegn Zhao Peking. Reuter. VESTRÆNIR stjórnarerindrekar sögðust í gærkvöldi hafa heimildir fyrir því að stjórnmálaráð Kína hefði komið saman og sakað Zhao Ziyang, formann kommúnistaflokks Kina, og þijá aðra umbótasinn- aða ráðamenn um að my«da valdaklíku i andstöðu við flokkinn. Þessar fregnir virðast staðfesta að harðlínumenn í kommúnista- flokknum hafi nú undirtökin. Li Peng, forsætisráðherra Kína, birtist brosandi í sjónvarpi í gær og sagði kínversku sfjórnina „stöðuga“. Þetta var í fyrsta skipti sem háttsettur kínverskur leiðtogi kemur fram frá því herlög voru sett á laugardag. Um það bil 100.000 manns voru samankomnir á Torgi hins him- neska friðar í Peking í gær og kröfðust afsagnar Li Pengs. Voru margir æfir vegna fréttar sem lesin var í kínverska útvarpinu í fyrra- dag. Þar sagði að námsmenn væru gagnbyltingarsinnar. Um það bil 300 fulltrúar námsmanna sem verið hafa í fararbroddi undanfarnar fimm vikur ræddu hvert framhald Páfí messar í Þrándheimi: 7 biskupar sitja heima Ósló. Reuter. SJÖ af ellefii lúterskum biskup- um í Noregi hafa haftiað því að vera viðstaddir guðsþjónustu Jó- hannesar Páls páfa í næstu viku. Páfi kemur til Noregs 1. júní þar sem heimsókn hans til Norður- landa hefst. Frá Noregi heldur páfi til íslands. Að sögn starfsmanna lútersku kirkjunnar í Noregi hafa sex bisk- upanna sagst vera uppteknir 2. júní þegar páfi messar í Þrándheimi. Sá sjöundi, Per Lönning, sakar páfa um að hafa torveldað sameiningar- viðleitni kristinna manna og mætir ekki af þeim sökum. Fjórir norskir biskupar hafa þekkst boðið um að vera viðstaddir messu páfa. Einn þeirra, Kristen Kyrre Krerper, sagð- ist í gær vera þeirrar skoðunar að starfsbræður sínir ættu að koma til messunnar. skyldi vera á aðgerðum en þegar síðast fréttist höfðú þeir ekki kom- ist að niðurstöðu. í gær skipuðu stjórnvöld lögreglu og embættismönnum utan höfuð- borgarinnar að koma í veg fyrir að fleiri námsmenn kæmu til höfuð- borgarinnar. Flestum ber saman um að harðlínumenn hafi nú tögl og hagldir innan kommúnista- flokksins en ekki eru nema nokkrir dagar síðan umbótasinnum var spáð sigri í valdabaráttunni. Þess varð vart í gær að embættismenn, sem undanfarið hafa talað ftjálslega um atburðina í Kína við fréttamenn, voru þöglir. Óstaðfestar fregnir segja að Deng Xiaoping og Li Peng hafi sett saman lista með 100 nöfn- um manna sem til standi að fang- elsa. Umbótasinnar binda þó vonir við að hin öfluga lýðræðishreyfing verndi þá gegn slíkum hreinsunum. Aðrir spáðu því í gær að Deng myndi aflétta herlögum til að koma í veg fyrir að hersveitir hliðholiar Zhao Ziyang réðust inn í Peking. Reuter Mótmæli pólskra stúdenta Stúdentar í Háskólanum í Varsjá, þar sem þessi mynd var tek- in, og víðar i Póllandi hafa efnt til setuverkfalls vegna þess að dómstóll í landinu hafiiaði lögleiðingu námsmannasamtakanna NZS. Það var hluti af samkomulagi verkalýðsfélagsins Samstöðu við stjórnvöld, sem gert var fyrir skemmstu, að NZS yrði lög- leitt en yfirvöld bera því við að námsmennimir haldi í þann rétt að mega eftia til verkfalla og því sé ekki hægt að lögleiða samtök þeirra. Færeyjar: Stjórnin völt í sessi Kaupmannahöfh. Frá N.J. Bruun, frétta- ritara Morgnnblaðsins. SEINT á miðvikudagskvöld vom feereyskir þingmenn sendir heim af aukafundi Lögþingsins er í ljós kom að stjórnarflokkamir fjórir gátu ekki komið sér saman um umfangsmiklar aðgerðir í skatta- og tollamálum. Sljóm Jogvans Sundsteins úr Fólkaflokknum hugðist leggja fram tillögur sínar í Lögþinginu en Sjálfstýriflokk- urinn og Kristilegi þjóðarflokk- urinn neituðu að samþykkja nýj- ar álögur á skattgreiðendur; sá fyrmefndi vill skera niður opin- ber útgjöld. Fjórði stjórnarfiokkurinn, Þjóð- veldisflokkurinn, sem ræður emb- ætti fjármálaráðherra, tekur ekki lengur þátt í viðræðum stjómar- flokkanna. Ætlun stjómvalda er að afla 150-200 milljóna d.kr. (1.100- 1.500 milljóna ísl.kr.) í ríkissjóð og skal veija fénu til að styrkja hráefn- issjóð sjávarútvegsins sem sagður er í miklum kröggum. Hækkun tekjuskatts er ein af tekjuöflunar- leiðum stjórnarinnar. Stjórnin er nú að vinna að tiilög- um um róttækar breytingar á skipu- lagi atvinnugreinarinnar, m.a. verði fiskverð látið fylgja breytingum á markaðsverði í meiri mæli en áður. Jafnframt ákveði stjórnvöld verð- bætur sem hráefnissjóðurinn hefur greitt til að tryggja sjómönnum og útgerðarmönnum lágmarksverð á ýmsum fisktegundum. Fulltrúaþing Sovétríkjanna kýs Gorbatsjov í embætti forseta: Flokkshollur meirihluti leyfír ekki mótframboð Sovétieiðtoginn verst fimlega harðri gagnrýni Moskvu. Reuter og Daily Telegraph. Fulltrúaþing Sovétríkjanna valdi Míkhaíl S. Gorbatsjov, aðal- ritara sovéska kommúnistaflokks- ins, í nýtt embætti forseta í gær eins og búist hafði verið við. Hinni nýju vegsemd fylgja mun meiri Sprengingin í orrustuskipinu Iowa: Athygli beinist að ástar- sambandi tveggja sjóliða Washington. Reuter. Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC heldur því fram að opinber rannsóknarnefnd telji mögulegt að ástarsamband tveggja sjóliða hafi átt þátt í sprengingunni í orrustuskipinu Iowa i síðasta mánuði. 47 manns létu lífið er fallbyssuturn sprakk í loft upp. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið hefur hvorki viljað neita né játa fréttinni en segir ljóst að glæp- samlegt athæfi komi þarna við sögu og sprengingin sé ekki af völdum gallaðs púðurs eins og talið var. NBC segir að hugsanlegt sé tal- ið að Clayton Hartwig, 24 ára gam- all fallbyssuliði er var eitt fórnar- lambanna, hafi framið sjálfsvíg eða verið myrtur. Hann er sagður hafa átt í ástarsambandi við mann úr áhöfninni en snurða hafi hlaupið á þráðinn fyrir hálfu ári þegar elsk- huginn kvæntist. Ættingjar Hart- wigs segja hann hafa tekið það mjög nærri sér. Elskhuginn var eini erfingi 100 þúsund Banda- ríkjadala (5,7 milljóna ísl.kr.) líftryggingar Hartwigs en neitar öllum sakargiftum. völd en forseti Sovétríkjanna hef- ur haft hingað til en því embætti heftir Gorbatsjov einmitt gegnt. Gorbatsjov hlaut stuðning 2.123 þingmanna í leynilegri kosningu en 87 voru á móti. Komið höfðu fram tillögur um tvo aðra fram- bjóðendur. Margir stungu upp á Borís Jeltsín, fyrrverandi flokks- formanni í Moskvu og áköfum umbótasinna, en hann gaf ekki kost á sér. Það gerði Alexander Obelenskíj, 46 ára gamall verk- fræðingur frá Múrmansk, hins vegar en þingið hafhaði framboði hans í atkvæðagreiðslu með 1.415 atkvæðum gegn 689. Þykir sú nið- urstaða gefa nokkra hugmynd um styrkleikahlutföll róttækra um- bótasinna og flokkshollra þing- manna. Andrei Sakharov, eðlisfræðingur og einn kunnasti andófsmaður í Sov- étríkjunum, hélt fyrstu þingræðuna eftir að formlegri setningu var lokið og krafðist þess að fulltrúaþingið fengi aukin völd. Hugmynd stjórn- valda er sú að þingið kjósi;500 manna Æðsta ráð úr sínum hópi til að ann- ast löggjöf. Þinghaldið einkenndist af opin- skárri umræðu áður en gengið var til kosninga um nýjan forseta og mátti Gorbatsjov sitja undir þungu ámæli. „Getur það talist rétt að beita hernum til að refsa eigin þjóð?“ spurði þingkona frá Eistlandi. „Er það rétt að þér hafi verið reist sveita- setur á Krímskaga?" spurði annar þingmaður frá Leníngrad og sá þriðji líkti leiðtoganum við Napóleon „sem tók of mikið mark á viðhlæjendum og eiginkonu sinni“. Margir við- staddra tóku andköf þegar slíkar og þvílíkar athugsemdir komu fram sem kostað hefðu menn fangabúðavist fyrir nokkrum árum. Eftir tveggja stunda heitar umræður þar sem margir höfðu snúist Gorbatsjov til varnar tók hann sjálfur til máls og viðurkenndi að við framkvæmd um- bótastefnunnar hefðu mörg mistök verið gerð sem koma hefði mátt í veg fyrir. Síðan bætti hann því við að það sem væri að gerast í þingsaln- um sýndi að perestrojka sækti í sig veðrið og hlaut drynjandi lófatak að launum. Sjá „Róttækir . . “ á bls. 20,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.