Morgunblaðið - 26.05.1989, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989
,
Morgunblaðið/Júlíus
Þjóðviljinn;
Alþýðubandalagið
tryggir fé til áfram-
haldandi reksturs
AÐALFUNDUR Útgáfufélags Þjóðviljans var haldinn á miðvikudags-
kvöld og var samþykkt að fara eftir tillögum nefiidar sem fjailaði
um endurskipulagningu á rekstri Þjóðviljans. Tillögurnar fela m.a.
í sér að Alþýðubandalagið tryggir blaðinu ákveðið fjármagn til áfram-
haldandi reksturs.
Að sögn Siguijóns Péturssonar
formanns nefndarinnar hefur fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalagsins
samþykkt að tryggja Þjóðviljanum
ákveðið flármagn á næstu árum.
Nefndin gerir ráð fyrir töluverðum
samdrætti í mannafla blaðsins en
starfsmönnum þess hefur verið sagt
upp frá og með 1. júlí. Stefnt er '
að því að draga úr útgjöldum og
jafnframt er gert ráð fyrir að óhjá-
kvæmilega verði einhver samdrátt-
ur í áskriftar- og auglýsingatelcjum.
Telur nefndin að með þessum að-
gerðum eigi endar samt sem áður
að geta náð saman. Miðað er við
að blaðið verði áfram af svipaðri
stærð og nú.
Ný stjóm var einróma kosin á
aðalfundinum. í henni eiga sæti
Hrafn Magnússon, Helgi Guð-
mundsson, Ottar Proppé, Olga Guð-
rún Árnadóttir, Steingrímur J. Sig-
fússon, Guðni Jóhannesson, Guðrún
Hallgrímsdóttir, Þórnnn Sigurðar-
dóttir og Sigurður Á. Friðþjófsson
auk fulltrúa frá Prentsmiðju Þjóð-
viljans og Miðgarði hf., sem á hús-
næði Þjóðviljans við Síðumúla.
Fyrsti fundur stjómarinnar verð-
ur um helgina og mun hún þá skipta
með sér verkum. Að sögn Hrafns
Magnússonar stjórnarmanns verður
fyrsta verkefni stjómarinnar að
fjalla um ráðningu ritstjóra, en
ráðningarsamningur þeirra Marðar
Ámasonar og Silju Aðalsteinsdóttur
rennur út um næstu mánaðamót.
Árni Bergmann mun áfram gegna
stöðu ritstjóra.
3 'k árs fang-
elsi fyrir
hnífstungu
HÆSTIRÉTTUR hefur stað-
fest 3 'k árs fangelsisdóm
Sakadóms Reykjavíkur yfir
33 ára gamalli konu, Sólrúnu
Elídóttur, sem í apríl í fyrra
stakk mann í kviðarhol með
hnífi.
Maðurinn komst ekki undir
læknishendur fyrr en að liðnum
sólárhring og var hann þá í
lífshættu. Sólrún gerði litlar
sem engar tilraunir til að koma
honum undir læknishendur.
í staðfestum niðurstöðum
sakadóms segir að gegn neitun
konunnar þyki ekki sannað að
hún hafi ætlað að svipta mann-
inn lífi. Hæstiréttur telur var-
hugavert að álykta að hún hafi
hlotið að sjá það fyrir að bani
gæti hlotist af atlögunni og er
konunni refsað samkvæmt 2.
mgr. 218. greinar almennra
hegningarlaga.
Til frádráttar refsingunni
kemur gæsluvarðhald óslitið
frá 30. ágúst 1988 og þar áður
frá 2. maí til 1. júní sama ár.
H æstaréttardómaramir
Guðrún Erlendsdóttir, Benedikt
Blöndal, Haraldur Henrysson
og Hrafn Bragason dæmdu
málið, ásamt Amljóti Bjöms-
syni settum hæstaréttardóm-
ara.
INNLENT
Fyrstu laxarnir komnir í verslanir
Kílóverðið heldur lægra en í fyrra
FYRSTU laxarnir hafa veiðst í netalagnir í Hvítá í Borgarfirði.
Ólafiir Davíðsson á Hvítárvöllum fékk tvo laxa í fyrrakvöld og
svo þann þriðja i gærmorgun. Þetta voru 8 til 10 punda laxar.
Áin hefiir verið mjög vatnsmikil og mórauð og netamenn litið
getað athaftiað sig. Þannig höfðu Feijukotsmenn, sem jafiian eru
aflasælir, ekkert veitt er hringt var í Borgarfjörðinn undir kvöld
í gær og höfðu bæði þeir og Olafur á Hvítárvöllum aðeins getað
Iagt brot af þeim netum sem venja er að leggja.
Pétur Pétursson, kaupmaður í
Kjötbúri Péturs á Laugaveginum,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að kílóverðið væri nú 795 krónur
sem væri heldur lægra heldur en
í fyrra. Hann hefur á boðstólum
fyrstu laxana að þessu sinni, ekki
úr Hvítá að vísu, frá Rauðanesi,
sem hefur sjávarlögn skammt fyr-
ir utan-Borgarnes. Nokkrir laxar
hafa veiðst á þeim slóðum, einnig
8 til 10 punda fiskar.
Stangaveiði hefst í fyrstu ánum
1. júní næstkomandi. Eru það
Þverá og Norðurá í Borgarfirði
og svo Laxá á Ásum í Húna-
þingi. Ekki eru ámar árennilegar
sem stendur, kaldar og gruggug-
ar. Stór hluti efra svæðis Þverár,
í svokallaðri Kjarrá, var til dæmis
enn á ísi fyrir fáum dögum. Þar
dregst opnun vegna þess að slóðin
með ánni er ófær.
F org’angnr ríkissjóðs við
gjaldþrotaskipti afiiuminn
RÍKISSJÓÐUR hefur ekki lengur forgang umfram veðkröfur við
skipti þrotabúa, þegar um er að ræða ógreidda staðgreiðsluskatta
eða væntanlegan virðisaukaskatt, sem fyrirtæki eða einstaklingur
hefur skuldað. í skattalögum voru ákvæði um að þessar skattakröf-
ur hefðu forgang og var það óréttmætt og stangaðist á við önnur
lög að mati Sólveigar Pétursdóttur, varaþingmanns Sjálfstæðis-
flokks, og fleiri þingmanna sem fluttu ftmmvarp sem samþykkt var
sem lög frá Alþingi i vor.
í lögum um staðgreiðslu og um
virðisaukaskatt, voru ákvæði þess
efnis að þessi tilteknu gjöld ættu
að standa framar í skuldaröð við
gjaldþrotaskipti en til dæmis sölu-
skattur samkvæmt söluskattslögum
og opinber gjöld hætti eldri skatta-
laga.
Lagabreytingin miðar að því,
annars vegar að virðisaukaskattur-
inn fari á sama stað í skuldaröð,
sem almenn krafa í þrotabúið, og
söluskatturinn er á í dag og hins
vegar að þeir staðgreiðsluskattar
sem launagreiðandi hefur haldið
eftir af launum launþega og ekki
skilað, væru á sama stað í skulda-
röð og sams konar kröfur voru áður
en staðgreiðslulögin tóku gildi.
í umræðum við framlagningu
frumvarpsins sagði Sólveig Péturs-
dóttir meðal annars þetta:
„ ... verður engan veginn séð að
hægt sé að réttlæta það að kröfu-
hafar missi alfarið sinn rétt vegna
þess að skattheimtumenn hafi ekki
staðið sig í stykkinu við inn-
heimtu."
Sólveig tók dæmi af manni sem
keypti bifreið með tryggingabréfi
sem þinglýst væri á 1. veðrétti í
bílnum. Við gjaldþrot kaupanda
kæmi í ljós að hann hefði ekki stað-
ið skil á staðgreiðslufé í atvinnu-
rekstri sínum. Þarna gætu inn-
heimtumenn komið og tekið bílinn
þar sem hann teldist eign búsins
og seljandinn fengi ekki krónu fyr-
ir bílinn. Veðréttur kæmi á eftir og
tryggingabréf yrðu þar með verð-
minni pappírar, jafnvel verðlausir
með öllu, þótt skattaskuldir lántak-
andans hafí orðið til eftir að til láns-
ins var stofnað.
Evrópubandalagið:
Islenskt kjöt ekki flutt
Páfa ekið um á
sérbúnum Volvo
JÓHANNES Páll H. páfi mun notast við sérbúnar Volvo-bifreiðar
meðan á dvöl hans á íslandi stendur að sögn Böðvars Bragason-
ar lögreglustjóra. Fjórir bílar koma. Þeir eru af gerðinni Volvo
Limousine og væntanlegir til landsins 1. júní. Að heimsókninni
lokinni munu bOamir fluttir aftur úr landi. Páfi kemur hingað
til lands 3. júní.
inn fi*á 1. janúar 1988
_ Brussel. £rá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÍSLENSKT Igöt heftir ekki verið
flutt mn tO ríkja Evrópubanda-
lagsins frá 1. janúar 1988 vegna
þess að ekkert sláturhús á ís-
landi uppfyllir heilbrigðiskröfur
EB. í eftirlitsferð árið 1986 gerði
skoðunarmaður bandalagsins
nokkrar alvarlegar athugasemd-
ir við hreinlæti og aðbúnað í
islenskum sláturhúsum.
Vegna sérstakra aðstæðna á ís-
landi, þ.e. árstíðarbundinnar slátr-
unar, ákvað heilbrigðisnefnd
bandalagsins að veita lengri fremst
til úrbóta en tíðkast, eða eitt ár.
Skoðunarmaður kom hingað að
nýju síðastliðið haust og kom þá í
ljós, að sögn embættismanna
bandalagsins, að ekkert umtalsvert
hafði verið gert til að uppfylla kröf-
urnar. í stað þess að svipta slátur-
húsin innflutningsleyfínu strax,
eins og reglur mæltu fyrir um, var
ákveðið að leyfa innflutning fram
til 1. janúar 1988. Þá voru húsin
tekin út af lista EB yfir viðurkennd
sláturhús. Að sögn embættismanna
í heilbrigðiseftirliti bandalagsins er
ekkert því til fyrirstöðu að end-
umýja innflutningsvottorðin fyrir
næstu sláturtíð, verði umbeðnar
lagfæringar gerðar.
Eins og Morgunblaðið skýrði frá
í gær, uppfyllir íslenskt kjöt ekki
heldur skilyrði reglna EB um eftir-
lit með banni við notkun hormóna
við kjötframleiðslu, sem öðlast gildi
1. júní næstkomandi. Um það atriði
sögðu heilbrigðiseftirlitsmenn EB
að nauðsynlegt yrði að sýna fram
á að virku eftirliti á því sviði væri
haldið uppi. Núverandi fyrirkomu-
lag og yfirlýsingar um eftirlit
nægðu ekki.
Sjá viðtal við landbúnaðarráð-
herra á miðopnu.
Böðvar segir að umsvif við ör-
yggisgæslu verði svipuð og þegar
um opinbera heimsókn þjóðhöfð-
ingja er að ræða og ekki er útilok- .
að að leitað verði út fyrir raðir
Iögreglunnar um aðstoð við ör-
yggisgæsluna. Heildarkostnaður
öryggisgæslu er áætlaður 4,8
milljónir og sagði Böðvar að allt
kapp yrði lagt á að halda þessa
kostnaðaráætlun.
Engum útlendingum hefur ver-
ið vísað frá landinu vegna fyrir-
hugaðrar komu páfans, sam-
kvæmt upplýsingum Árna Sigur-
jónssonar hjá útlendingaeftirlit-
inu, enda komi óæskilegt fólk yfir-
leitt ekki fyrr en á síðustu stundu.
í fylgdarliði páfans eru 30 manns
og búist er við rúmlega 50 erlend-
um fréttamönnum. Ennþá er hins
vegar óljóst hversu margir aðrir
gestir koma til landsins í tengslum
við heimsóknina.
Verklegum framkvæmdum á
vegum Reykjavíkurborgar miðar
vel áfram á Landakotstúni. Eftir
helgina verður reistur þar 9 metra
hár kross úr stáli og eik sem veg-
ur um 4 tonn. Krossinn er smíðað-
ur í Póllandi og mun í framtíðinni
standa í landi Úlfljótsvatns í
Grafningi þar sem skátar reka
sumarbúðir. Þar er honum ætlað-
ur staður á felli ofan við kirkjuna.
Krossinn verður fluttur í heilu
lagi austur á Úlfljótsvatn á vö-
rubíl og síðan upp á fellið með
þyrlu.