Morgunblaðið - 10.06.1989, Síða 34

Morgunblaðið - 10.06.1989, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. 'JÚNÍ 1989 Minning: Helga Þórarins- dóttir, Grindavík Fædd 6. júlí 1903 Dáin 27. maí 1989 Laugardaginn 27. maí síðastlið- inn andaðist að Hrafnistu í Hafnar- firði amma mín, Helga Þórarins- dóttir frá Bræðratungu í Grindavík. Hún var á 86. aldursári er hún lést. Undangengin tvö til þijú ár hafði hún átt við veikindi að stríða og dvaldi síðustu æviár sín á hjúkr- unardeild Hrafnistu. Fyrir hönd aðstandenda færi ég hjúkrunarfólki þar kærar þakkir fyrir umönnun hennar í erfiðum veikindum sam- fara háum aldri. Helga var fædd í Gerðiskoti í Flóa þann 6. júlí árið 1903. Hún var dóttir hjónanna Þórarins Snorrasonar og konu hans, Gíslínu Ingibjargar Helgadóttur. Ung að aldri missti hún móður sína og ólst upp eftir það hjá föður sínum og síðar stjúpu, Ragnhildi Jónsdóttur, á Bjamastöðum í Selvogi. Þau systkinin á Bjamastöðum vom 12 talsins. Albræður ömmu minnar vom þeir Snorri bóndi í Vogsósum í Selvogi og Geir organisti í Keflavík, nú báðir látnir. Hálfsystk- ini ömmu á lífi em: Ingibjörg og Þorgeir búsett í Grindavík og Val- gerður og Hörður búsett í Hafnar- firði en látin em: Kristín, Jón, Óskar, Ragnar og Sigurður. Amma varð frá unga aldri að sjá sér farborða á eigin spýtur. Fljót- lega eftir fermingu réðst hún í vist til Reykjavíkur og var hjá sama fólkinu í sjö vetur en á summm var hún vinnukona í sveit. Ung að ámm eignaðist hún dreng, Albert Egilsson, en varð að láta hann frá sér, slík vom kjörin þá. Albert var alinn upp hjá hjónun- um Guðrúnu Þórðardóttur og Sig- urði Jónssyni frá Ertu í Selvogi. Upphaflega ætlaði amma að taka drenginn til sín aftur er rættist úr fyrir henni en þegar til kom féll hún frá því. Hún mat það svo að það væri drengnum og góðum fóst- urforeldmm fyrir bestu, en þung- bær var henni þessi ákvörðun. Al- bert varð síðar sjómaður en lést af slysfömm langt um aldur fram. Hann var kvæntur Sigríði Georgs- dóttur. Árið 1926 gengu í hjónaband amma mín og afi, Ólafur Jónsson frá Hraunkoti í Grindavík. Þeim varð átta bama auðið og lifa þau öll. Þau em: Þórarinn skipstjóri í Grindavík, kona hans er Guðveig Sigurðardóttir; Hulda Sigríður sjúkraliði, maður hennar er Jónas Hallgrímssonar; Hafsteinn húsa- smíðameistari, kona hans Ásta Sæmundsdóttir; Jóna húsmóðir í Keflavík, maður hennar er Arnbjörn Ólafsson; Guðmundur verkstjóri í Keflavík, kona hans er Jane Ölafs- dóttir; Ólöf húsmóðir, nú búsett í Kópavogi, gift Jóhanni Ólafssyni; Helgi sjómaður í Grindavík, kvænt- ur Vilborgu Guðjónsdóttur og Sig- urður sjómaður í Grindavík, kona hans er Bára Sigurðardóttir. Börn, bamaböm og bamabamaböm em nú rúmlega eitt hundrað talsins. Afkomendurnir komu saman í Festi í Grindavík þegar amma varð átt- ræð árið 1983, henni til mikillar gleði. Búskap hófu þau amma og afí í Hraunkoti en reistu sér heimili árið 1943 að Bræðratungu í Grindavík. Má nærri geta að oft hefur verið þröngt í búi hjá þeim hjónum með þennan stóra bamahóp og ekki á vísan að róa með atvinnu og tekjur á þeim ámm. Afí minn var það sem kallað var þurrabúðarmaður, sótti sjóinn á vetrum en hafði engar gras- nytjar handa skepnum svo að yfir sumarið varð hann að yfirgefa heimilið og barnahópinn og gerast kaupamaður í sveit. Reyndi þá mjög á ömmu mína og oft mun lífsbarátt- an hafa gengið nærri henni en hún lét samt ekki bugast. Hún var að upplagi lífsglöð og félagslynd. Á yngri ámm starfaði hun mikið með Kvenfélagi Grindavíkur en líklega hafa hennar mestu ánægjustundir verið með kirkjukór Grindavíkur en þar söng hún ámm saman. Þótt afi syngi ekki með kórnum sóttu þau ætíð kirkju saman og meðal kórfé- laga áttu þau góðar stundir og eign- uðust sína bestu vini. Ólafur, afi minn, lést árið 1954 eftir þungbær veikindi. Sigurður, yngsti sonur þeirra, var þá á fjórða ári. Amma min var mikil trúkona, ekki efaðist hún um að fundum þeirra afa ætti eftir að bera saman á ný. Þegar afi minn lést hóf amma að vinna utan heimilis við ýmis störf. Hún vann í mötuneyti en mest í fiskvinnu og í fiski vann hún fram að sjötugu. Heimili átti hún síðustu árin í Grindavík að Sóltúni. Það hús reisti hún með Ólöfu dótt- ur sinni og tengdasyni, var því eðli- lega náin. samgangur með þeim mæðgum um langt skeið eða allt þar til hún fluttist að Hrafnistu í Hafnarfirði árið 1977. Amma átti góða daga að Hrafn- istu fyrstu ár sín þar, eða á meðan hún hélt sæmilegri heilsu. Segja má að hún hafi notið lífsins. Hún + Elsku litli drengurinn okkar og bróðir, BJARMAR SMÁRI ELÍASSON, Hjallalundi 6, sem lést af slysförum þann 5. júni verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, þriðjudaginn 13. júní kl. 13.30. Bjarnheiður Ragnarsdóttir, Ólafur Ingi Hermannsson, Stefán Hafstein Gunnarsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför GÍSLÁ JÓNS HJALTASONAR, Bolungarvík. Aðstandendur. + Þökkum vinarhug og samúð við andlát og útför bróður okkar og mágs, HALLDÓRS ODDS ÁRNASONAR fyrrverandi skipstjóra, frá Sóleyjartungu, Akranesi, Halldóra Árnadóttir, Einar Árnason, Halldóra Gunnarsdóttir, Vigdi's Árnadóttir Shook, Ralph D. Shook. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát oa út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Patreksfirði. Álf hildur Jóhannsdóttir, Hjördís Jóhannsdóttir, Guðmundur Jóhannsson, Magnús Jóhannsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁRMANNS JÓHANNSSONAR, Frakkastig 26B. Jakobfna Jóhannesdóttir, Jóhann Ármannsson, Patricia Ármannsson, Erna Ármannsdóttir Roy, James Roy, Anna Linda Robinson, Magnús Sigurgeirsson, Edward Novicelli, Ármann D. Ármannsson, Kiersten Ármannsson. Minning: Sigríður Kjartans- dóttir frá Völlum Fædd 7. janúar 1913 Dáin2.júni 1989 í dag verður til moldar borin frá Kotstrandarkirkju Sigríður Kjart- ansdóttir fyrrum húsfreyja á Völl- um í Ölfusi. Sigríður fæddist á Völlum, og þar bjó hún lengst af; fyrst í foreldrahúsum hjá foreldrum sínum, þeim Gíslínu Gísladóttur og Kjartani Markússyni, og síðar ásamt manni sínum, Bimi Jónas- syni frá Reykjafirði í Arnarfirði. Bjuggu þau Björn og Sigríður lengst af félagsbúi með bróður Sigríðar, Sigurgísla Kjartanssyni, sem var ókvæntur. Þau Sigríður og Björn áttu þijú börn: Gíslínu, búsett í Reykjavík, gift Ingvari Christiansen; Kjartan bónda á Völlum, kvæntur Sigríði Sigurðardóttur og Jónas rafverk- taka í Mosfellsbæ, sem kvæntur er Ásdísi Frímannsdóttur. Að auki ólu þau Björn og Sigríður að nokkm upp elstu dóttur Gíslinu, Sigríði Pálsdóttur. Þegar ég hugsa til baka til þeirra ára, sem ég var að alast upp á Öxnalæk í Ólfusi, man ég að oft fannst mér sem umhverfið markað- ist af þremur mikilvægum stöðum, sem yfirgnæfðu allt annað. Þessir hornsteinar æskuára minna ásamt sjálfu heimili foreldra minna á Óxnalæk vom nágrannabæirnir þrír: Vellir, Vorsabær og Stóri- Saurbær. Á Stóra-Saurbæ bjó Jó- hanna Siguijónsdóttir með fjórum sonum sínum, Saurbæjarbræðmm. Á Vorsabæ em svo Júdith og Ög- mundur Jónsson, og á Völlum þau Sigríður og Björn, Sigurgísli og móðir þeirra háöldmð, Gíslína Kjartansdóttir. Allt þetta fólk bar með sér það besta, sem fyrirfinnst meðal íslensks sveitafólks, þess fólks sem mér finnst enn í dag vera hinn eini og sanni „íslenski aðall“ hvað sem líður borgmenningu og breyttum lífsháttum. Allt þetta fólk var stolt af uppruna sínum og stöðu, þó án alls stærilætis. Þetta fólk var heilsteypt og sannir vinir vina sinna, jafnt á erfiðum tímum sem á gleði- stundum. Fæst af þessu fólki gerði víðreist, en var þó víðsýnna en flest fólk, sem ég hefi síðar kynnst. Heimilið á Völlum var annálað myndarheimili, og gestrisni Sigríð- ar var við bmgðið. Engan þekkti ég, sem komst upp með að koma að Völlum og fara þaðan aftur, án þess að þiggja góðgjörðir. Kæmi það fyrir, að við krakkamir á Öxna- læk væmm send áríðandi erinda, til dæmis á háslætti, þá var blátt bann lagt við því að við tefðum leng- ur en þörf var á. Sigga á Völlum lét það hins vegar ekkert á sig fá, og oft man ég eftir að hafa fengið mjólkurglas og heita flatbrauðs- sneið út á hlað, þegar ekki var tími til að dvelja. Þær stundir em mér þó miklu minnisstæðari, þegar ég kom að Völlum og hafði nægan tíma til að hitta vin minn og leikfélaga; yngsta soninn, Jónas. Það var vel tekið á móti öllum á Völlum, og venjulega á þann hátt að börnin fengu nægan tíma til sinna leikja, en um leið var börnum tekið af mikilli alúð og gestrisni eins og öðram gestum, þar var ekki farið í manngreinarálit eftir aldri. Hinu man ég einnig vel eftir, að það var betra að vera vel undirbúinn, þegar sest var til borðs niðri í eldhúsi, þar sem eldur logaði í gamalli eldavél. Þar var ætlast til að komumaður kynni skil á öllu sem snerti búskap- inn heima, svo sem það er varðaði tilhleypingar, sauðburð og fleira sem efst var á baugi á hverri árstíð. Um þessi mál spurðu þau gjörla á Völlum, einkum Sigurgísli, Gíslína gamla og Sigríður. Ekki var það gert af forvitni eða hnýsni um ann- arra hagi, heldur frekar til að kanna hve athugull hinn ungi gestur væri, og eins held ég vegna þess að börn- um jafnt sem fullorðnum átti að skiljast um hyað lífsbaráttan sner- ist. Hjá okkur snerist hún um bú- skap og hann var því aðalumræðu- efnið. Því fór þó fjarri að alvaran væri alltaf í fyrirrúmi á Völlum. Þar fór til útlanda með eldri borgumm á Suðurnesjum og hún tók þátt í blómlegu félagslífi vistmanna á Hrafnistu. Þar eignaðist hún góða vinkonu, Dagbjörgu Sæmundsdótt- ur frá Siglufirðí, sem nú er iatin fyrir nokkmm ámm. Allt þetta kunni hún vel að meta og var þakk- lát fyrir að fá að njóta. Helga amma mín var gæfukona þrátt fýrir margvíslegt andstreymi í lífinu. Hún kom öllum börnum sínum til manns og uppskar þakk- læti og virðingu þeirra. Börn henn- ar hafa látið sér annt um að hún mætti eiga notalega elli og það hefur verið henni til gleði að vita af hinum mikla fjölda afkomenda. Eftir að hún kom á elliheimilið dvaldi hún ætíð á jólum og öðmm hátíðum á heimili Ólafar dóttur sinnar. Fyrir það skulu henni færð- ar þakkir. Áð leiðarlokum vil ég þakka ömmu minni samfýlgdina og óska þess að henni verði að trú sinni. Guðrún Jonasdóttir í dag, 10. júní, fer fram frá Grindavíkurkirkju útför Helgu Þór- arinsdóttur frá Bræðratungu í Grindavík. Mig langar til að minn- ast hennar með fáeinum orðum. Þegar ég' rifja upp í huganum, þá sé ég fyrir mér dugmikla og skapheita konu, sem kaus athöfn frekar en andvaraleysi eða lódillu- hátt eins og hún sjálf kaus að nefna það, þegar henni fannst áhugaleys- is gæta við vinnu. Hún var í eðli sínu mjög dugleg kona og þurfti líka oft að vaka og vinna því bama- hópurinn var stór. Halda þurfí vel utanum hlutina vom haldnar fleiri og stærri veislur en gerðist í nágrenninu, bæði árleg jólaboð og eins fagnaðir tengdir afmælum og öðrum merkisatburð- um. Vallafólkið var alla tíð afar samhent, en auðvitað mæddi allur gestagangur og heimilishald fyrst og fremst á Sigríði húsfreyju. Þar var hvergi slegið slöku við, þótt oft væri annríkið mikið og vinnudagur- inn langur. Eftir að Björn á Völlum og Sig- urgísli bróðir Sigríðar voru báðir látnir, tóku þau við búinu, Kjartan og Sigríður kona hans. Þar er allt heimilishald enn með myndarbrag, en Sigríður fluttist hins vegar til Reykjavíkur. Ekki þó til að setjast í helgan stein, heldur tók hún við starfi í menntamálaráðuneytinu, þar sem hún hafði umsjórí með kaffistofu allt til þess er hún veikt- ist fyrir skömmu. Þar hefur Sigga á Völlum vafalaust verið á réttri hillu ekki síður en á Völlum, og ekki efast ég um að í ráðuneytinu hafi hún þjónað fólki til borðs með þeirri alúð og gestrisni, sem henni var runnin í merg og bein. Þegar Sigga á Völlum er öll fínnst mér sem ákveðnum þætti sé lokið; ekki aðeins jarðvist hennar hér á meðal okkar, heldur finnst mér sem Ölfusið sjálft verði aldrei samt aftur. Eldra fólkið á Völlum er nú allt horfið yfir móðuna miklu, og með því er horfinn hluti þess gamla íslands, sem ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast. Þar var stórfjölskyldan hornsteinn- inn og allt stóð á traustum gmnni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.