Morgunblaðið - 14.06.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1989
27
Meat Loaf — enn og aftur
Líklega er mörgum enn f
fersku minni síðasta heimsókn
bandaríska tónlistarmannsins
Meat Loaf, í það minnsta þeim
fjögur eða fimm þúsund sem
sáu hann f Reiðhöllinni. Þeir
eiga líklega eftir að gleðjast, því
hann er væntanlegur hingað á
ný og heldur tónleika í Laugar-
dalshöll 16. júní.
Meat Loaf er nú á ferð um
Bandaríkin og hefur fyllt alla þá
tónleikastaði sem hann hefur
leikið á. Plata hans, Bat Out of
Hell, selst enn allvel, þó liðin séu
nærfellt tólf ár frá því platan kom
út. Þá plötu gerði Meat Loaf með
lagasmiðnum og útsetjarandum
Jim Steinman, en eftir að Bat
kom út slitnaði uppúr samstarfi
þeirra. Meat Loaf hefur sent frá
sér nokkrar plötur síðan sem
ekki hafa selst nema miðlungi
vel, en hann hefur einnig lagt
fyrir sig kvikmynda- og sviðsleik
með góðum árangri. Nú fyrir
skemmstu var hann einmitt að
leika í söngleik og hitti þar fyrir
Jim Steinman. Svo vel fór á með
þeim að þeir hafa nú hafið vinnu
við LP-plötu, sem væntanleg er
á þessu ári.
Rokksíðan náði tali af Meat
Loaf í St. Louis, en þar hélt hann
tónleika fyrir fullu húsi kvöldið
áður. í stuttu spjalli áður en við-
talið hófst sagði hann það í
óspurðum fréttum að tónleikarn-
ir í St. Louis hafi fleytt Bat Out
of Hell í efsta sæti LP-sölulista
þar í borg í síðustu viku og væri
það ekki í fyrsta sinn sem slíkt
gerðist.
Hvernig leggst það í þig að
vera að koma aftur til íslands?
Mér fannst verulega gaman í
síðustu íslandsför og hún er mér
eftirminnileg fyrir margt. Áheyr-
endur voru margir og mjög góð-
ir. Það eina sem bjátaði á var
að við vorum ekki með okkar eig-
in hljómflutningsbúnað, en að
þessu sinni komum við með allt
með okkur og það verður því enn
betra. Því miður gerum við stutt-
Morgunblaðið/Sverrir
Meat Loaf í Reiðhöllinni í októ-
ber 1987.
an stans, því við þurfum að halda
heim á leið daginn eftir.
Mig langar að biðja þig um að
koma þeim boðum til íslenskra
áheyrenda að ég sé þakklátur
fyrir það að fá tækifæri til að
spila þar aftur.
Nú ert þú enn að ieika lög af
plötunni BatOut of Hell á tónleik-
um; ertu ekkert farinn að lýjast?
Atls ekki. Lögin á Bat Out of
Hell eru ekki lög sem slá í gegn
og gleymast svo. Platan er enn
að seljast um heim allan og fólk
þreytist ekki á að hlusta á hana
því hún er löngu orðin klassísk.
Það er ekki hægt annað en hafa
gaman af að syngja lög á við þau
sem eru á plötunni. Það breytir
því engu hvort platan var gefin
út fyrir tólf árum, í gær eða hvort
hún verður gefin út á morgun.
Nú ert þú aftur farinn að vinna
með Jim Steinman. Hvernig
gengur það?
Það gengur mjög vel, eins vel
og við Bat Out of Hell. Það er
afar gott að vinna með Jim, en
plötunni miðar seint því ég hef
verið á tónleikaferðalagi síðan í
febrúar sl.
Leikaraferilinn tekur alltaf
meira af tíma þínum. Finnst þér
skemmtilegra að leika á sviði en
koma fram á tónleikum?
Nei, ég geri ekki upp á milli
leiklistarinnar og tónlistarinnar.
Ég er að sönnu ekki að leika
sviðsleik á tónleikum, en í mörg-
um laganna eru atriði sem segja
má að séu leikin. Þetta hjálpast
að, því því meiri reynslu sem þú
hefur í leiklistinni eða í að koma
fram á tónleikum; því betri verður
þú.
Viðtal: Árni Matthíasson
Norræna nefndin um
málefni fatlaðra:
Viðamikil
starfsemi
Norræna ne£ndin um málefni
fatlaðra hélt ráðstefhu hérlendis
fyrir skömmu, þar sem starfsem-
in var kynnt. Nefndin starfar á
vegum norrænu ráðherranefnd-
arinnar, þ. e. a. s. ríkisstjórna
Islands, Finnlands, Noregs, Dan-
merkur og Svíþjóðar.
Fram koma að starfsemi nefnd-
arinnar er viðamikil. Þar er unnið
að margvíslegri könnun varðandi
fötlun jafnhliða upplýsingastarf-
semi bæði til fatlaðra og ófatlaðra. -
Það er til dæmis rekinn norrænn
skóli í Dronninglund á Norður Jótl-
andi. Er skólinn fyrir alla starfs-
hópa sem vinna með daufblindum
og þjónustumiðstöð málefna dauf-
blindra á Norðurlöndum.
Af öðrum verkefnum nefndarinn-
ar má nefna, að samvinna er um
ýmis málefni sérhópa fatlaðra svo
sem fámennra hópa sem þjást af
fágætum sjúkdómum. Þá er sam-
vinna um þróun, prófun og kynn-
ingu á hjálpartækjum fyrir fatlaða.
Er þar miðað að því að bæta fram-
boðið í hveiju landi. Þróun tölvu-
stýrðra hjálpartækja er inni í þeirri
mynd.
RDAfll #'
LAUGAVEGI 47 S. 17575
* Bómullarpeysur
+ Bolir
* Skyrtur
* Gallaskyrtur
* „CUSTER“
franskar topp gallabuxur
* Khakibuxur í úrvali
o.fl. o.fl