Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 20

Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 20
% b -MÚEJ^jÍÍbÚÆ) l meimningárstrauMaíí W^Mdmwmpmd HRINGFERÐ ÍSLENDINGA UM ÍSLAND 22. JÚLÍ Skoðaðu ísland í skemmtilegri tíu daga hringferð. Brottför frá Reykjavík 22. júlí. Stansað er á fallegum útsýnisstöðum, þekkt náttúrufyrirbæri og sögustaðir skoðaðir. Ferðin er þægileg og sérlega fróðleg. Þessi ferð kostar 59.500 kr. og innifalinn er morgunverður, kvöldverður og gisting í tveggja manna herbergi á Reykjum í Hrútafirði, Siglufirði, Akureyri, Laugum, Eiðum, Hornafirði, Kirkjubæjar- klaustri og Skógum. Leiðsögumaður er: Guðmundur Guðbrandsson. Pantaðu sæti strax í dag. Visa og Euro greiðslukjör. Ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt. vfb FERDASKRIFSTOFA ISLANDS Skógarhlíð 18 101 Reykjavík sími 91-25855 BICBCEG Home Aóalhlutverk: Dom Ameche, Steve Guttenberg, Wilford Brimley, Barret Oliver. Framleíóandí: R. Zanuck/D. Brown Leikstjóri: Daniel Petrie Sýid kl. 5 - 7.05 - 9.05 - 11.15 DÆGURTÓNLIST Y/ v/rt er raptónlistf Nútíma bíbop RAPTÓNLIST hefur alla jafna notið lítíllar virðingar með þeirra sem telja sig hafa vit á tónlist. Gagnrýnendur hafa fundið tónlistinni flest til foráttu og talið hana einhæfan hrærigraut rytma og tómlegra texta sem ekki henti tíl annars en dansæfínga. Hún er þó búin að vinna sér sess sem lifandi og sjálfstætt tjáningarform sívaxandi hluta blakkra Bandaríkjamanna. Eitt dæmi um stöðu raptónlistar í dag er að Max Roach, einn virtastijasstónlistarmaður seinni tíma, hefúr hafið samstarf við rapskáldið Fab Five Freddy. Roach segir raptón- list sprottna úr sama jarðvegi og bíbopið, sem gjörbreyttí ásjónu jassins á fimmta og sjötta áratugnum. Raptónlist er í eðli sínu samsett úr ótal bútum og stefjum sem höfundurinn hrærir saman með þéttum rytmagrunni og oftar en ekki nýtir hann sér tölvutækni við • •aBaaaagg að fá að láni lag- búta eða hljóð hjá öðrum tónlistar- mönnum, hvítum jafnt sem litum. Við það beitir hann tækni sem felst í því að tón- bútur sem laga- smiðnum líst á er eftir Áma Matthíosson leikinn inn á tölvu og þar sniðinn til eftir þörfum. Þessi tækni kallast „sampling“, en íslenskt orð yfir það gæti verið bútun. Þetta atferli er reyndar afar umdeilt í rokk/popp- heiminum í dag og menn eru ekki á eitt sáttir um höfundarréttinn á t.a.m. einu orði sem tekið er af plötu og breytt í undirleik, eða þegar karateöskrum Bruce Lee úr bíó- mynd er breytt í hljóð í trommu- heila. Textinn í raplagi minnir á calypsóspuna sem byggir á alda- gamalli svartri hagyrðingahefð. í Karabíahafi hefur tíðkast síðan seint á nítjándu öld að söngvari spann viðstöðulaust vísur með end- arími úr setningum eða orðum sem áheyrendur kölluðu til hans. Rap- skáld semja rytmíska texta sem hafa oft sem útgangspunkt setning- arhluta, vörumerki eða slanguryrði. Oft eru textamir óttaleg þvæla sjálfbirgingslegs monts og kvenfyr- irlitningar eins og gengur, en jafn- oft fela þeir í sér ýmislegt sem snýr að lífi litra Bandaríkjamanna og segja má að í raptextum megi finna merki aukinnar sjálfsvitundar bandarískra blökkumanna sem oft snýst upp í að verða stríðsyfirlýs- ing. Gott dæmi um það er Public Enemy, sem berst af alefli gegn ofurvaldi hvítra að hætti H. Rap Brown og telur rétt að beita hörðu til að ná fram þjóðfélagsbreyting- um. Annað sjónarmið birtist í text- um Lakims Shabazz, sem er í minni- hlutasöfnuði blakkra múslíma, svo- nefndra Five Percenters. Fyrir stutttu sendi hann frá sér fyrirtaks plötu, Pure Righteousness, þar sem hann beitir orðsins brandi til að eggja lita landsmenn sína til að berjast gegn kúguninni með orðum en ekki ofbeldi. Þær sveitir eru og til sem fara enn aðrar leiðir, s.s. De La Soul, sem sendi frá sér fyrir stuttu plötuna 3 Feet High and Rising. Sú plata blæs nýju lífi í raptónlistina og sannar að hún á enn mikla vaxtarmöguleika. De La Soul bregður fyrir sig mörgum helstu táknmyndum hippatímans á umslagi plötu sinnaf, friðarmerkj- DJASS/7>Átf dönsku útgáfufyrirtœki að hasla sér vóll hér á landif SteepleChase að nýju til Islands EITT af athyglisverðustu útgáfufyrirtækjum djassins er hið danska SteepleChase. Eigandi þess er Nils Winther og hefur hann gefið út um 300 skifúr á síðustu 17 árum. SteepleChase-skífúmar hafa lengi verið ófáanlegar á íslandi en nú heftir Skífan hafið innflutning á þeim og fást um 40 títlar hér. Eg spurði Nils eitt sinn hvers vegna hann hefði farið út í plötuútgáfu. „Á námsárum mínum, ég var að læra norrænu, fékk ég leyfi til að hljóðrita á gamla Montmar- tre. Ég hafði fiktað við þetta í fjögur ár þegar Jackie McLean eftir Vernharð heyrði upptÖku Linnet nieð kvartetti sínum hjá mér. Af hveiju ge- furðu þetta ekki út. Þetta er stórfínt, sagði hann. Ég gaf út plötu með Jackie McLean. Síðan kom dúóplata með Niels-Henning og Kenny Drew sem varð metsöluplata. Smám saman varð þetta svo viðamikið að ég varð að hætta öðrum störf- um.“ Þá vildi ég fá að vita hvernig salan gengi. „Það er öruggur markaður fyrir þann djass se_m ég gef út en ekki mjög stór. Ég sel aðeins 5 prósent af plötunum mínum í Danmörku, mest sel ég í Japan. Ég fór ekki út í þetta til að græða peninga, en fyrirtækið ber sig.“ Að lokum spurði ég Nils hve lengi hann væri að hljóðrita djassplötu. „Það er misjafnt. Duke Jord- an er 3 'til 6 tíma að hljóðrita plötu. Niels-Henning minnst 2 daga en Walt Dickerson 1 tíma. Það tók 4 daga að hljóðrita plötu Dexters Gordon, More than you know, þar sem hann leikur með stórsveit undir stjórn Palle Mik- kelborgs og Lee Konitz og Red Mitchell voru stanslaust að í 26 tíma en þeir hljóðrituðu dúóplötu sína: I Concentrate on You.“ Nú eru margar SteepleC- hase-skífurnar komnar á geisla- diska og stundum bætt við lög-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.