Morgunblaðið - 25.06.1989, Síða 20
% b
-MÚEJ^jÍÍbÚÆ) l meimningárstrauMaíí W^Mdmwmpmd
HRINGFERÐ ÍSLENDINGA
UM ÍSLAND 22. JÚLÍ
Skoðaðu ísland í skemmtilegri tíu daga hringferð.
Brottför frá Reykjavík 22. júlí. Stansað er á fallegum
útsýnisstöðum, þekkt náttúrufyrirbæri og sögustaðir
skoðaðir. Ferðin er þægileg og sérlega fróðleg.
Þessi ferð kostar 59.500 kr. og innifalinn er
morgunverður, kvöldverður og gisting í tveggja
manna herbergi á Reykjum í Hrútafirði, Siglufirði,
Akureyri, Laugum, Eiðum, Hornafirði, Kirkjubæjar-
klaustri og Skógum.
Leiðsögumaður er: Guðmundur Guðbrandsson.
Pantaðu sæti strax í dag. Visa og Euro greiðslukjör.
Ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt.
vfb
FERDASKRIFSTOFA ISLANDS
Skógarhlíð 18 101 Reykjavík sími 91-25855
BICBCEG
Home
Aóalhlutverk: Dom Ameche, Steve Guttenberg,
Wilford Brimley, Barret Oliver.
Framleíóandí: R. Zanuck/D. Brown
Leikstjóri: Daniel Petrie
Sýid kl. 5 - 7.05 - 9.05 - 11.15
DÆGURTÓNLIST Y/ v/rt er
raptónlistf
Nútíma bíbop
RAPTÓNLIST hefur alla jafna notið lítíllar virðingar með þeirra sem
telja sig hafa vit á tónlist. Gagnrýnendur hafa fundið tónlistinni flest
til foráttu og talið hana einhæfan hrærigraut rytma og tómlegra
texta sem ekki henti tíl annars en dansæfínga. Hún er þó búin að
vinna sér sess sem lifandi og sjálfstætt tjáningarform sívaxandi hluta
blakkra Bandaríkjamanna. Eitt dæmi um stöðu raptónlistar í dag
er að Max Roach, einn virtastijasstónlistarmaður seinni tíma, hefúr
hafið samstarf við rapskáldið Fab Five Freddy. Roach segir raptón-
list sprottna úr sama jarðvegi og bíbopið, sem gjörbreyttí ásjónu
jassins á fimmta og sjötta áratugnum.
Raptónlist er í eðli sínu samsett
úr ótal bútum og stefjum sem
höfundurinn hrærir saman með
þéttum rytmagrunni og oftar en
ekki nýtir hann sér tölvutækni við •
•aBaaaagg að fá að láni lag-
búta eða hljóð hjá
öðrum tónlistar-
mönnum, hvítum
jafnt sem litum.
Við það beitir
hann tækni sem
felst í því að tón-
bútur sem laga-
smiðnum líst á er
eftir Áma
Matthíosson
leikinn inn á tölvu og þar sniðinn
til eftir þörfum. Þessi tækni kallast
„sampling“, en íslenskt orð yfir það
gæti verið bútun. Þetta atferli er
reyndar afar umdeilt í rokk/popp-
heiminum í dag og menn eru ekki
á eitt sáttir um höfundarréttinn á
t.a.m. einu orði sem tekið er af plötu
og breytt í undirleik, eða þegar
karateöskrum Bruce Lee úr bíó-
mynd er breytt í hljóð í trommu-
heila.
Textinn í raplagi minnir á
calypsóspuna sem byggir á alda-
gamalli svartri hagyrðingahefð. í
Karabíahafi hefur tíðkast síðan
seint á nítjándu öld að söngvari
spann viðstöðulaust vísur með end-
arími úr setningum eða orðum sem
áheyrendur kölluðu til hans. Rap-
skáld semja rytmíska texta sem
hafa oft sem útgangspunkt setning-
arhluta, vörumerki eða slanguryrði.
Oft eru textamir óttaleg þvæla
sjálfbirgingslegs monts og kvenfyr-
irlitningar eins og gengur, en jafn-
oft fela þeir í sér ýmislegt sem snýr
að lífi litra Bandaríkjamanna og
segja má að í raptextum megi finna
merki aukinnar sjálfsvitundar
bandarískra blökkumanna sem oft
snýst upp í að verða stríðsyfirlýs-
ing. Gott dæmi um það er Public
Enemy, sem berst af alefli gegn
ofurvaldi hvítra að hætti H. Rap
Brown og telur rétt að beita hörðu
til að ná fram þjóðfélagsbreyting-
um. Annað sjónarmið birtist í text-
um Lakims Shabazz, sem er í minni-
hlutasöfnuði blakkra múslíma, svo-
nefndra Five Percenters. Fyrir
stutttu sendi hann frá sér fyrirtaks
plötu, Pure Righteousness, þar sem
hann beitir orðsins brandi til að
eggja lita landsmenn sína til að
berjast gegn kúguninni með orðum
en ekki ofbeldi. Þær sveitir eru og
til sem fara enn aðrar leiðir, s.s.
De La Soul, sem sendi frá sér fyrir
stuttu plötuna 3 Feet High and
Rising. Sú plata blæs nýju lífi í
raptónlistina og sannar að hún á
enn mikla vaxtarmöguleika. De La
Soul bregður fyrir sig mörgum
helstu táknmyndum hippatímans á
umslagi plötu sinnaf, friðarmerkj-
DJASS/7>Átf dönsku útgáfufyrirtœki að
hasla sér vóll hér á landif
SteepleChase að
nýju til Islands
EITT af athyglisverðustu útgáfufyrirtækjum djassins er hið danska
SteepleChase. Eigandi þess er Nils Winther og hefur hann gefið út
um 300 skifúr á síðustu 17 árum. SteepleChase-skífúmar hafa lengi
verið ófáanlegar á íslandi en nú heftir Skífan hafið innflutning á
þeim og fást um 40 títlar hér.
Eg spurði Nils eitt sinn hvers
vegna hann hefði farið út í
plötuútgáfu.
„Á námsárum mínum, ég var
að læra norrænu, fékk ég leyfi
til að hljóðrita á
gamla Montmar-
tre. Ég hafði
fiktað við þetta í
fjögur ár þegar
Jackie McLean
eftir Vernharð heyrði upptÖku
Linnet nieð kvartetti
sínum hjá mér.
Af hveiju ge-
furðu þetta ekki út. Þetta er
stórfínt, sagði hann. Ég gaf út
plötu með Jackie McLean. Síðan
kom dúóplata með
Niels-Henning og Kenny Drew
sem varð metsöluplata. Smám
saman varð þetta svo viðamikið
að ég varð að hætta öðrum störf-
um.“
Þá vildi ég fá að vita hvernig
salan gengi.
„Það er öruggur markaður
fyrir þann djass se_m ég gef út
en ekki mjög stór. Ég sel aðeins
5 prósent af plötunum mínum í
Danmörku, mest sel ég í Japan.
Ég fór ekki út í þetta til að
græða peninga, en fyrirtækið
ber sig.“
Að lokum spurði ég Nils hve
lengi hann væri að hljóðrita
djassplötu.
„Það er misjafnt. Duke Jord-
an er 3 'til 6 tíma að hljóðrita
plötu. Niels-Henning minnst 2
daga en Walt Dickerson 1 tíma.
Það tók 4 daga að hljóðrita plötu
Dexters Gordon, More than you
know, þar sem hann leikur með
stórsveit undir stjórn Palle Mik-
kelborgs og Lee Konitz og Red
Mitchell voru stanslaust að í 26
tíma en þeir hljóðrituðu dúóplötu
sína: I Concentrate on You.“
Nú eru margar SteepleC-
hase-skífurnar komnar á geisla-
diska og stundum bætt við lög-