Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 29

Morgunblaðið - 25.06.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIÍIÐI SUNNÚDAGUR 25. JÚNÍ 1989 e 29 ' Kassabílar ásamt smiðum og ökumönnum. Morgunblaðið/Ragnheiður Sigurjón Halldórsson ásamt Heiðrúnu og Sindra. Farsæll SH 30 fékk viðurkenn- ingu Siglingamálastofhunar sem snyrtilegasti báturinn við Breiða- §örð. Þetta er bæði lifandi starf og hressandi vinna, sögðu þær Linda og Jóhanna. spurt og svarað Kona í Reykjavík QPIIDT einkvers staðar hægt drUHI að £á gert foglegan að línsmuni á kvamaðist úr brún gamals postu- linsstjaka sem ég á og er það gam- all erfðagripur. við postu- hátt? Það Sæmundur Sigurðsson hefur verkstæði að Feijuvogi 15 þar sem hann gerir við leirmuni og málar þá. Hann tekur einnig að sér að gera upp gömul húsgögn og kistur. HJ. Reykjavík QPIIDT ^ð undanfömu hefiir verið ðTUHI rætt um endurvinnslu öl- dósa og las ég í DV að aðeins væri tekið við sléttum dósum en ekki beygluðum. Er þetta rétt? Verður tekið við öllum öldósum og einnig undan tegundum sem ekki em flutt- ar inn? Eiríkur Hannesson, formaður stjómar Endurvinnslunnar. Qllin Endurvinnslan tekurvið öllum UlHH dósum, bæði beygluðum og óbeygluðum. Tekið verður við öllum áldósum, eins þótt viðkomandi tegund sé ekki flutt inn. Einnig verða teknar plastflöskur undan öli og er gjaldið hið sama fyrir þær og áldósimar, þ.e. 5 krónur. Umburðarlyndi Til Velvakanda. A Eg vil þakka Hope Knútsson fyr- ir góða grein sem birtist í Morg- unblaðinu fyrir skömmu. Þó ég að- hyllist ekki nein trúarbrögð hef ég tamið mér að virða skoðanir og trúar- brögð fólks enda er trúfrelsi hér á landi samkvæmt lögum. Margvíslegir trúarhópar finnast hér á landi og það er eðlilegt því ekki eru allir steyptir í sama mót, sem betur fer. Við verð- urm að temja okkur umburðariyndi gagnvart skoðunum annarra því þetta verður alltaf svona. Það má líka margt læra af þeim sem ekki hafa sömu skoðánir og maður sjálfur og eins má leiða hugann að því hvort nokkur einn situr uppi með allan sannleikann. Ekkert gott hlýst af einstrengingshætti í þessum málum, það sýnir mannkynssagan okkur. Páll i Að lifa trúna til fullnustu Til Víkverja. akka góð orð Víkveija í blað- inu hinn 21. júní síðastliðinn um ferminguna. Frá sjónarmiði kristinnar trúar er sú spurning auðvitað nokkuð glæfraleg, hvort kristnir menn vilji að börn þeirra fari á mis við kristni (sbr. ungbarnaskírn og fermingar- fræðsla). í augum kristinna manna getur varla orkað tvímælis, hvort menn eigi að velja tómleika eða innihald, merkingu eða meiningarleysi, ljós eða myrkur, himin eða hel, líf eða dauða. Kristnitöku fylgir ábyrgð. Þar sem kristni festir rætur í mannfé- lagi, verður hún hið nýjasta af öllu nýju, umbyltingarafl manns og heims. í því samhengi, sem kristnin býr við á Norðurlöndum og víðar nú á dögum, getur því verið ögn vara- samt að nota orðið arfleifð um kristni. Það orð hljómar, með leyfi að segja, dálítið eins og minnismerki, gamalt og ef til vill úrelt, sem við kjósum samt að sýna ræktarsemi að ákveðnu marki. Hálfvolg umgengni við kristna trú er kannski verri en engin og tjáði Kristur þau sannindi með því að hvetja ríka unglinginn til þess að láta af hendi allt, sem hann átti. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Vissulega getur orðið arf- leifð þó einnig búið yfir öðrum tón- um. En hvíli áhersla á orðinu arf- leifð, notuðu um kristnina, uggir mig að það minni um of á þá skrumskælingu kristinnar trúar, sem fólgin er í vara-játningu, án þess hugur fylgi máli, kirkju- og hátíðasiðum, sem ná ekki til hjarta mannsins, trúarlegum siðavenjum, sem megna þó ekki að umbreyta manneskjunni og veröld hennar. Sá, sem tekur við Kristi í skírn og fermingu, er óneitanlega að lýsa því yfir, að hann ætli að taka áhættuna af því að vera öðruvísi alveg inn úr, „hegða sér eigi eftir öld þessari," (Róm. 12:2). Önnur og ný sýn á mann og heim leysir hina viðteknu af h'ólmi. Einn þvílíkur maður er upphafið; tveir megna mikið; tólf slíkir breyttu heiminum forðum, svo að hann hefur ekki orðið samur síðan. Hvatning Jóhannesar Páls ann- ars, páfa, til íslenskrar æsku var í samræmi við það erindi, sem kirkjan hefur jafnan boðað. Því fylgir alvara að samsinna þessari hvatningu og taka hana til sín. Frammi fyrir henni finnum við þó til smæðar okkar, sjáum að jafn- aði annmarka á því að „tileinka okkur trúna og lifa hana til fulln- ustu“, eins og páfi komst að orði. Lúther benti réttilega á, að því takmarki „að lifa trúna til fulln- ustu“ næðum við ekki í þessu lífí, og því væri okkur af góðum Guði gefin réttlæting af trúnni einni saman. Sr. Gunnar Björnsson Afturrúðugrindur ú stórlækkuðu verði. Mikið úrval. Sími 62 22 62. STAÐRÍYND! stórkekkað verð á takmörkuðu magni... ...um er aö ræöa heitt mál því með sérstökum samningi yið GRAM verksmiðjunar í Danmörku bjóðum við nú þrjár gerðir GRAM kæliskápa (sjá hér að neðan) á einstaklega hagstæðu verði. Gram býður 11 gerðir kæliskápa, með eða án frystis. Einnig 9 gerðir af frystiskápum og frystikistum. 180 Itr. kælir + 70 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm H: 126,5-135,0 cm (stillanleg) 285 Itr. kælir + 70 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm H: 166,5-175,0 cm (stillanleg) 198 Itr. kælir + 146 Itr. frystir B: 59,5 cm D: 62,1 cm _ H: 166,5-175,0 cm (stillanleg) verð áður 47.200 verð áður verð áður 59.010 65.030 nú aðeins 42.109 (stgr. 39.995) nú aðeitis nti aðeins (stgr. 49.999) (stgr. 55.993) GÓÐIR SKILMÁLAR, TRAUST ÞJÓNUSTA 3JA ÁRA ÁBYRÐ >FOnix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.