Morgunblaðið - 12.07.1989, Side 33

Morgunblaðið - 12.07.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JULI 1989 33 ignina um skyndilegt lát Ger- h'ds Olsen sém kom á óvart. Gerhard, eða Genni eins og hann ir oftast kallaður, fæddist í eykjavík þann 16. janúar 1922. oreldrar hans voru hjónin Ingiríð- * Lýðsdóttir ættuð af Suðurlandi r Jentofte Olsen, beykir, ættaður á Tromsö í Noregi. Voru börn íirra átta, fjórar dætur og fjórir mir, og eru nú sex eftirlifandi, en igríður, elsta systirin, lést fyrir lmörgum árum. Gerhard ólst upp að Þormóðs- öðurn við Skeijafjörð þar sem for- drar hans höfðu komið sér upp [yndarheimili með sinn stóra arnahóp og kölluðu Túnsberg. tarfaði Jentdete Olsen lengst af já útgerðarfélaginu Alliance sem afði bækistöðvar við Þormóðs- ,aði, og fór Genni ungur að starfa íeð föður sínum og bræðrum en ilsen var kjarnakarl sem kenndi onum sínum handtökin enda hafa ynir hans allir reynst dugandi íenn. Hugur Genna hneigðist að tækni- törfum eins og bræðra hans sem llir hafa helgað fluginu krafta sína. 'ann 1. maí 1944 réðst hann til .oftleiða sem vélgæslumaður og ar því einn af fyrstu starfsmönnum ess félags, en Kristinn bróðir hans ar einn af þre.m fyrstu flugmönn- m þess, síðar komu einnig til starfa já Loftleiðum yngri bræður hans )laf og Alfreð. Eftir nokkura ára starf við flug- élaviðgerðir öðlaðist Genni flug- irkjaréttindi og nokkru síðar flug- élstjóraréttindi og starfaði sem líkur á millilandaflugvélum Loft- siða og síðar Flugleiða þar til hann ét af störfum vegna aldurs í janúar 1. eftir meira en 44 ára starf. Jafn- ramt var hann eftirlits- og þjálfun- u'flugvélstjóri um árabil og reynd- st farsæll í því sem og öðrum störf- im. Hinn 17. nóvember 1944 kvænt- st Genni eftirlifandi konu sinni, luldu Sæmundsdóttur, og reyndist >að honum mikið gæfuspor. Var íeimili þeirra fyrst að Þormóðsstöð- im og síðar þar skammt frá við ^ynghaga en fyrir nokkrum árum >yggðu þau sér einbýlishús við 5eiðakvísl í Árbæjarhverfi og hugð- íst eiga þar rólegt ævikvöld er callið kom svo skyndilega. Genni >g Hulda eignuðust ljóra syni en >eir eru Reynir flugafgreiðslumað- ir, Ingi flugstjóri, Gunnar flug- itöðvarstjóri, allir starfandi hjá Flugleiðum, og Snorri lögfræðingur í Ijármálaráðuneytinu, og hafa þeir allir stofnað sín eigin heimili. Gerhard Olsen var ekki hávær maður en traustur og fastur fyrir þegar á reyndi og hinn besti félagi og vinur. Fyrir langt samstarf ■ á leiðum loftsins sem annars staðar vil ég votta honum virðingu mína og þakklæti fyrir samfylgdina. Jóhannes Markússon Kveðja frá Flugvirkjafélaginu Félagsstarf okkar í Flugvirkjafé- laginu eins og í öðrum stéttarfélög- um, beinist að því að standa vörð um hagsmuni félaganna, fá bætta vinnuaðstöðu og tryggja lífsafkom- una, bæði meðan verið er í starfi og ekki síður þegar starfsævi lýk- ur. Okkur brá því þegar við spurð- um lát félaga okkar Gerhards 01- sen, sem lauk langri og farsælli starfsævi sem flugvirki og flugvél- stjóri í janúar síðastliðnum. Allt benti þó til þess að hann ætti eftir að njóta lífsins og sinna áhugamál- utn sínum um langa framtíð. Gerhard fæddist 16. janúar 1922, annar í röðinni af börnum sæmdar- hjónanna Ingiríðar Lýðsdóttur frá Hjallanesi í Landsveit og Jentofts Gerhards Hagelund Olsen, ættuð- um frá Noregi. Gerhard ólst upp hjá foreldrum sínum á Þormóðs- stöðum við Skeijafjörð sem er í nágrenni Reykjavíkurflugvallar. Hann réðst til starfa hjá Loftleiðum 1. maí 1944 aðeins nokkrum dögum eftir stofnun þess fyrirtækis og starfaði óslitið hjá því og síðar Flug- leiðum til 15. janúar sl. Fyrstu árin starfaði Gerhard sem viðgerðar- maður og aðstoðarflugmaður á Stinson-vél Loftleiða þegar hún var við síldarleit frá Miklavatni í Fljót- um. Veturinn 1947 starfrækti Hall- dór Siguijónsson kvöldskóla í flug- virkjun og sótti Gerhard þann skóla ásamt nokkrum öðrum flugvirkja- nemum. Árið 1948 fór hann, ásamt Halldóri læriföður sínum til fram- haldsnáms í Bandaríkjunum til framleiðenda flughreyfla og loft- skrúfa, þ.e. Pratt & Withney og Hamilton Standard, en á næstu árum unnu flugvirkjar Loftleiða ekki aðeins við viðhald og endurnýj- un flugvélaskrokkanna, heldur líka hreyfla og loftskrúfa. Þegar Loft- leiðir tóku í notkun Catalínuflugvél- ar gerðist Gerhard flugvélstjóri á þeim og síðar flugvélstjóri á DC-4, DC-6B, RR-400, DC-8 og DC-10. Lengst af starfaði hann einnig sem eftirlitsflugvélstjóri á þeim flugvél- um sem hann starfaði við. Gerhard var einn af stofnfélögum Flugvirkjafélagsins 21. janúar 1947 og öðlaðist meistararéttindi í flug- virkjun þegar það starf var fellt undir iðnlöggjöf 1952. Þegar við flugvirkjai' lítum til baka og minnumst Gerhards, kemur strax fram í hugann hve hann var góður og traustur félagi og hæfur starfsmaðui' sem jafnan vann verk sín af virðingu og samviskusemi. Alla starfsævi sína átti hann við hamingju og einstaklega góða heilsu að búa. Við minnumst þess ekki að hann hafi fellt niður vinnu einn einasta dag af heilsufars- ástæðum og mun slíkt vera eins- dæmi. Að leiðarlokum þökkum við Guði, sem gefur okkur lífið og dauðann, fyrir að hafa átt samleið með góðum dreng og biðjum um stuðning og styrk til handa eftirlifandi eigin- konu og öðrum ástvinum hans. O.Á.P. Elskulegur tengdafaðir, Gerhard Olsen, er látinn langt fyrir aldur fram. Einmitt nú, þegar hann var nýhættur að fljúgá og gat farið að vera heima í ró og næði, en þar vildi hann helst vera, kom kallið sem enginn getur skorast undan. Við sem eftir stöndum verðum að sætta okkur við það, hversu erfitt sem það er. En við getum reynt að nota þann styrk sem hann bjó sjálfur yfir og hefur án efa sent okkur á þessum erfiða tíma. Minning hans er best heiðruð með því að sýna stillingu og láta ekki bugast. Nú þegar Gerhard Olsen hefur kvatt er sorgin og söknuðurinn mikill, en sárust er sorgin fyrir tengdamóður okkar, sem sér á eftir góðum eiginmanni, sem var henni allt í öllu. Hún, synirnir og fjölskyld- ur þeirra áttu hug hans allan. Það fer því ekki hjá því að þeir sem hafa átt mikið hljóta að missa mik- ið. En minningin um góðan, traust- an og tryggan eiginmann, föður, tengdaföður og afa mun áfram lifa og ylja um ókomin ár. Hans mann- kostir og eiginleikar lifa áfram í sonum hans, sem allir líkjast hon- um, hver á sinn hátt. Genni, eins og hann var alltaf kallaður, var á margan hátt sér- stakur maður. Hann var orðvar, hugsunarsamur og traustur sem bjarg. Reglusemi var honum í blóð borin, einnig það að standa við það sem hann sagði, allt var það sem stafur á bók. Það sem hann átti að sjá um þurfti að vera í lagi og aldrei hætti hann við hálfnað verk. Tilfinningar sínar bar hann ekki á torg og var lítið fyrir að láta hæla sér. Þess vegna er ekki við hæfi að hér sé skrifuð löng hól- grein um hann, enda þótt það sé hægt, því einlæga aðdáun og virð- ingu okkar átti hann svo sannar- lega. í dag þegar við kveðjum góðan tengdaföður er okkur efst í huga þakklæti til hans. Þakklæti fyrir allt sem hann var allri ljölskyld- unni. Við erum ekki búnar að átta okkur á, að hann kemur ekki aft- ur, en eitt er víst, að oft eigum við eftir að hugsa til hans, þegar við verðum hjálparþurfi. Það hefur myndast stórt skarð í fjölskylduna og það verður ekki fyllt. Enginn getur komið í stað Genna. Það er sagt að tíminn lækni öll sár, en við vitum að hann læknar ekki, heldur deyfir og mildar. Með virðingu og þökk kveðjum við þennan sterka, trausta og trygga mann, sem aldrei sýndi okk- ur neitt nema góðvild og umhyggju. Megi Guð blessa minningu hans og styrkja Huldu tengdamóður okk- ar og syni þeirra í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Fyrir hönd tengdadætra, Ólafía Árnadóttir. Excel á Macintosh Skemmtilegt og fræðandi 4 daga námskeið um þetta öfluga forrit hefst á mánudag. Tími 16-19. Töflureiknir, gagnagrunnur og viðskiptagrafík. Tölvu- og verkfræölþjónustan Grensásvegi 16 • Stmi 68 80 90 Greiöslukortaþjónusta og sanngjarnt sumarverö Fyrir Manex meóferó Eftir Manex meóferð „Ég hafði verið með blettaskalla um nokk- urra mánaða skeið. Læknisferðir höfðu lítinn árangur borið og örlítill hárvöxtur var farinn að koma aftur. En MANEX vökvinn jók mjög hárvöxtinn. Á tveimur mánuðum eru fjórir blettir að heita má horfnir, en tveir eru að byrja að lagast. Þó hef ég ekki notað MANEX nógu reglu- lega, ekki nema 1-2 í viku.“ Marta S. Gísladóttir, Oddabraut 4, 815 Þorlákshöfn. FLASA Lilja Bragadóttir: „Ég var orðin verulega áhyggjufull út af hár- losinu. Ég hafði reynt, ýmis efni án árangurs, þar til ég byrjaði að nota MANEX hárvökv- ann. Hann kom í veg fyrir hárlosið og betr- umbætti hárið." PERMANEHT Jóhannes S. Jóhannesson: „Ég hafði í gegnum ár- in reynt allt til að losna við flösuna en ekkert dugði. Ég hélt ég yrði bara að sætta mig við þetta. En nú veit ég betur. MANEXvökvinn virkilega virkar." EXEM Slíkar umsagnir berast okkur daglega. Hefur Uú reynt MANEX hárvökvann tyrir kitt hár? Helldsölubirgðir: Fæst á flestum rakaia- og hársnyrtistofum og í nokkrum apátekam. ambrosia JMBOOS- 0G HEILDVERSLUN Sími 91-680630. Arnhildur Magnúsdóttir: „Hár mitt hefur verið ómeðfærilegt og tekið illa permanenti. MANEX vökvinn gjör- breytti hári mínu. Nú get ég haft perman- ent-krullurnar án þess að þurfa að vesenast í því með krullujárni o.fl." Tómas Friðjónsson: „[ fjölda ára hef ég barist við mjög slæmt exem í hársverði. Ég hafði reynt ýmis smyrsl o.fl. án teljanlegs ár- angurs. Með einni flösku af MANEX hár- vökvanum tókst mér hins vegar að hreinsa í burt allt exem og í dag sést ekki vottur af því hjá mér.“ MÁLAÐU BETUR MEÐ VITRETEXl Utan- og innan- hússplastmálning VITRETEX er vatnsþynnanleg innan-og utanhúss plastmálning. Veðrunarþol er mikið og viðloðun óhreininda lítil. VITRETEX er mjög létt I vinnslu, gefur jafna og góða filmu og er auðveld í málun. VITRETEX hindrar ekki eðlilega rakaútgufun úr steinsteyþu. VITRETEX fæst í 1 Itc, 4 Itr. og 10 Itr. umbúðum. -Slippfélaglð■ Málningarverksmiðja1 Dugguvogi 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.