Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989 mmm Viltu færa íbúðarlánið yfir á nafii sonar míns. HÖGNI HREKKVÍSI 2,5 milljarðar krona '■ yggingar 696 íbúða ... ... rlkiftin* ákvað á fúndi sínum i (tær a.1 STJÓRN FSSSJSsSgSSS'íS 7 urði E. Guðmundftftym, * * u Annars vegar er um að r*ða 396 (búðir aem veitt verður lán Ul úr i Bytcginganýóði verkamanna. Par af 1 eru 226 i verkamannabústððum, 61 Lpr leiguibúð og 110 eru félagalcgar IL aupleigu ibúðir. Fram að áramótum » a til útborgunar 197 milljðnir óna vegna byggingar verka- tnnabústaða. 50 miHjönir til bygg- ' ir leigulbúða og 111 milljðnir til og 325 miHjðnum krðna til félap- legra kaupleiguíbúða og snemmaárs 1991 26 milljðnum samU s til v»- bóur. 1 heildina tekið eru þetta 900 milljðnir til verkamannabÚ8taða24t milljónir til leiguibuða og 440 milj- *£ ui i««.i.i~ eða samuls 1.584 milljðmr krðna. Þá verða veitt lán til byggingar eða kaupa 300 Ibúða úr Byggingar- áætlunum Húsnæðisstofnunar, og 384 miHjðnum á næsU án^þanniK að samUls verður um að rseða 576 milljðnir króna. H,ns'í*pr5r “í" að neða 156 öldrunaribuðir. 79 millj- ðnum verður veitt til þeirra i haust 202 á nsesU án og 13 milljónum I ársbyrjun 1991. Samtals verður veitt til þessara Ibúðabygginga úr Bygg- ingasiMi rikisins 870 miljjðnum krðna, aö mati HúsnæðissUfnunar. SamUls nema lánveitingar ur báðum ajððunum I haust til þessara, 696 Ibúða 629 miHjónum króna, tamkvæmt áæUunum Húsnæðis- stofnunar, á næsU án 1.786 rnilljón- um króna og 39 milljónum króna I býlishúsum. Hún leggur nyög miklrl áherslu á að framkvæmdaað>la| gangi úr skugga um hvort ekki »■ hægt að noU þetU fé kaupa ibúðir á almennum markaí| i lióst er að ! ýmsum byggðarloi ■ i standa Ibúðir j-mist auðar e^ eru mjög erfiðar I sölu,- sagði Si.1 urður E. Guömundsson I samtali'» Morgunblaðið eftir fundinn I g*>I Okkur finnst eðlilegt og rett L látið veröi á það reyna hvort ej aé unnt að fá þær Ibuðir keyp« áður en ákvarðanir verða teknar J nýbyggingar. Að öðru leyti ■ mestu um ákvarðamr Husnf J stjómar að mæU þörfmm fynr 1" Þessir hringdu . . Er ekki þörf á að endurskoða reglurnar? Einn húsnæðislaus hringdi: „Ég sótti um íbúð í verkamanna- bústað á sínum tíma en fyrir skömmu var mér tilkynnt að ekki væri hægt að hjálpa mér að svo stöddu. Skilst mér að stór hluti þeirra sem um sækja fái ekki úr- lausn. Þetta fólk á yfirleitt ekki um neitt annað að velja en leigumarkað- inn því það ræður ekki við að kaupa á frjálsum markaði. Ég verð að við- urkenna að ég er sár út í þetta kerfi. Þarna eru of skörp skil að mínu mati. Annað hvort fá menn íbúðir upp í hendurnar á vildarkjör- um eða þeir fá hreint ekki neitt. Væri ekki réttara að kjörin væru ef til vill ekki alvega svona góð og fólk væri látið borga meira? Þannig gætu fleiri fengið úrlausn. Fyrir nokkru birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem segir að ákveðið hafi verið að veija 2,5 milljörðum króna tii byggingar íbúða á félagslegum grundvelli á næstu átján mánuðum. Þetta er mikið fé. Er ekki þörf á að endur- skoða reglurnar fyrir úthlutun þess- ara íbúða?“ Páfagaukur Grænn og gulur páfagaukur flaug út um glugga við Lokastíg fyrir skömmu. Vinsamlegast hring- ið í síma 15431 ef hann hefur ein- hvers staðar komið fram. Hjól Rautt kvenhjól af tegundinni Tun turi, með hvítum hnakk var tekið við Fjölnirsveg fyrir skömmu. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar það er niður komið eru vinsam- legast beðnir að hringja í síma 14236. Um dýr og menn Kæri Velvakandi. Sumu fólki virðist illa við öll dýr en sérstaklega hunda og ketti, og vill ekki vita af þeim í nágrenni við sig. Telur það sig verða fyrir marg- háttuðum óþægindum af þeim eins og kom fram í umræðunni um hundahaldið á sínum tíma. Ég vil meina að það sé þroskandi, jafnt .fyrir börn sem fullorðna, að læra að umgangast dýr og sjálfur hefði ég ekki viljað fara á mis við það serri barn. Því er nú einu sinni svo varið að við mennirnir verðum hveijum öðr- um til miklu meiri vandræða en dýr- in sem alltaf verða að lúta í lægra haldi. Fyrir skömmu var verið að tala um það í Velvakanda að of margir kettir væru hér í borginni og sagt að það kæmi niður á fugl- alífinu. Mér sýnist fuglalífið fjöl- skrúðugt hér í borginni þrátt fyrir kettina. Eitrun í görðum er smáfugl- unum hættulegri en allir kettir landsins samanlagt. Hvernig væri að hætta að eitra? Dýravinur Gullhálsmen Gullhálsmen tapaðist á föstudag, líklega við Miklagarð við Sund eða þar í grennd. Á menið er greypt bænin Faðir vor og er þess sárt saknað af eigandanum. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 79398. /HcMrœ/ct Þegar íslenskum verslunum eru gefin erlend nöfn er um leið verið að fjölga slettum í íslensku og skapa þeim fótfestu þar. Er það það sem Víkverji skrifar Víkvetji var að hlusta á tónlist í morgunútvarpi rásar 1 á föstudaginn og hrökk við, er hann heyrði kynni segja frá því, að Bandaríkjaher hefði komið þann dag, 7. júlí, fyrir 48 árum, Iofað að fara eftir að hernaðarátökum lauk, en eins og við öllum vitum var þessi samningur framlengdur sagði þulan í lokin. Víkveiji skyldi þessi orð á þann veg, að Bandríkja- menn hefðu ekki staðið við fyrir- heitið frá 1941 og haldið áfram að hafa hér herafla eftir að stríðinu lauk, þvert ofan í það, og hann væri hérna enn þá. Hvað sem þessp einstaka atviki líður hefur Víkverji þá skoðun, að það sé leiðigjarnt að hlusta á upp- rifjun á gömlum atburðum í símskeytastíl á morgnana, þegar kveikt er á útvarpi til að heyra ljúfa tónlist. Hér er um smekksatriði að ræða og auðvitað má deila um það. Hitt er alvarlegra ef þeir sem standa fyrir slíkri uppriijun eru svo illa að sér, að þeir fara beinlínis rangt með eins og kynnirinn að morgni 7. júlí. Bandaríkjaher fór héðan af landi brott 8. apríl 1947 og stóð þar með við samninginn frá 1941. Síðan var samið við Bandaríkjamenn að nýju 1951 og á grundvelli þess varnar- samnings kom varnarliðið hingað í maí 1951. xxx eir sem hafa áhuga á að rann- saka íjölmiðlaframgöngu stjórnmálamanna og áhrif hennar ættu að líta á viðtölin þrjú sem birt- ust við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra í blöðunum 30. júní og 1. júlí. í þessum viðtölum, sem voru í Þjóðviljanum, Alþýðu- blaðinu og hér í Morgunblaðinu ræddi ráðherrann jafnt utanríkis- sem innaríkismál og útlistaði skoð- anir sínar rækilega. Eftir helgina beindist athyglin þó einungis að einu atriði: Hvernig ráðherrann ætlaði að haga framtíð- arstörfum sínum í utanríkisráðu- neytinu. Hvort hann ætlaði að ráða sér staðgengil, aðstoðarmann eða jafnvel skipta um embætti við Jón Sigurðsson flokksbróður sinn. Allt annað sem ráðherrann sagði var gleymt og grafið, þetta stóð eitt eftirog þótt undarlegt megi.virðast eftir umræður um málið í eina viku, finnst líklega mörgum að ekki hafi verið tekið af skarið um hve lengi Jón Baldvin ætlar að sitja í utanrík- isráðuneytinu né hvernig hann ætl- ar að standa að embættisfærslu sinni þar. Það stendur óbreytt sem hann sagði í Morgunblaðsviðtalinu þegar hann ræddi um staðgengilinn, að næstu sex mánuði telur hann sig hafa svo mikið að gera við að sinna EFTA, að íslensk stjórnmál og stjórnarstörf hljóti að víkja eða sitja á hakanum. xxx Víkveiji telur þetta rannsóknar- efni vegna þess, að utanríkis- ráðherra hefur áreiðanlega átt von á því, að athygli manna beindist að allt öðru eftir þessa viðtalasyrpu heldur en framtíð hans sem ráð- herra. Er ekki að efa, að hann hef- ur litið þannig á, að hann væri að styrkja stöðu sína með því að ræða jafn ítarlega við ijölmiðla og raun bar vitni. Þegar upp er staðið blas- ir við, ,að hið gagnstæða gerðist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.