Morgunblaðið - 14.07.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Ný farþegaþyrla bætist
í flugflota landsmanna
Umboðsaðili býður björgunarþyrlu til leigu
NÝ farþegaþyrla bættíst í flugflota íslendinga í gær er Þyrluþjónust-
an hf. tók þyrlu af gerðinni Bell 206 Long Ranger formlega í notk-
un. Siguijón Ásbjörnsson, umboðsaðili Bell Helicopter Textron á
íslandi, afhentí hinum nýju eigendum þyrluna við athöfh á Hótel
Loftleiðum. Við sama tækifæri sagði Sigurjón að flest benti tíl þess
að íslendingum gæfist kostur á að reyna 20 manna björgunarþyrlu
í haust en þá mun þyrla af gerðinni Bell 214 Super Transport verða
hér á landi í a.m.k. 2 vikur.
Þyrluþjónustan hf. var stofnuð á
síðasta ári. Eigandi hennar er Hall-
dór Hreinsson flugmaður. Hin nýja
þyrla ber 7 farþega og hefur þriggja
og hálfrar klukkustundar flugþol.
Hún er búin öllum helstu þægindum
og flugleiðsögutækjum, m.a. til
blindflugs. Þyrlunni má breyta til
sjúkraflutninga þar sem sjúkrabör-
ur eru til taks í farangurslest. Að
sögn Siguijóns Ásbjörnssonar er
þessi þyrlutegund hagkvæm í
rekstri og hentar vel til fjölbreyttra
verkefna. Fullhlaðin ber hún eitt
tonn. Alls hafa verið framleiddar
yfir 7 þúsund Bell 206 Long Rang-
er þyrlur.
Þyrla Flugþjónustunnar hf. var
keypt lítið notuð frá Frakklandi.
Hún hefur 850 flugtíma að baki.
Halldór Hreinsson eigandi fyrirtæk-
isins lauk námi við Rangers þyrlu-
skólann í Kanada fyrr á þessu ári.
Hann og flugrekstrarstjóri Þyrlu-
þjónustunnar hf., Jón Pálsson, hafa
einnig lokið sérstöku viðhaldsnám-
skeiði á vegum framleiðanda þyrl-
unnar í Texas í Bandarílq'unum.
Fram kom í máli Siguijóns Ás-
bjömssonar að allar líkur bentu til
þess að í september í haust myndi
Bell Helicopter Textron gefa íslend-
ingum kost á að reyna hér í a.m.k.
2 vikur fullkomna 20 manna úthafs-
björgunarþyrlu af gerðinni Bell 214
Super Transport. Þyrlur af þessari
gerð haf verið í rekstri um árabil
á vegum Norðmanna og Englend-
inga við flutninga og björgunár-
störf á Norðursjó. Til greina kemur
að leigja Landhelgisgæslunni þyrl-
una um nokkurra mánaða skeið.
Að sögn Gunnars Bergsteinsson-
ar, forstjóra Landhelgisgæslunnar,
hefur ekki verið rætt hvort ástæða
sé til að leigja björgunarþyrluna
enda ekki ljóst hvort það verði
hægt. „Okkur hefur boðist að reyna
þyrluna í hálfan mánuð og í fram-
haldi af því að taka hana á leigu
um einhvem tíma,“ sagði Gunnar.
„Að sjálfsögðu ber Landhelgis-
gæslunni að kynna sér þær vélar
sem em á markaðnum en endanleg
ákvörðun um leigu á þyrlunni er í
höndum stjómvalda," bætti Gunnar
við.
VEÐURHORFUR í DAG, 14. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Vestan gola eða kaldi viðast hvar á landinu. Skýj-
að eða þokuslæðingur við vesturströndina en annars var bjartviðri
um mestallt land. Hiti var víða á bilinu 14-20 stig inn til landsins
en heldur svalara við sjóinn.
SPÁ: Vestan- eða norðvestanátt, dálítil súld á Suðvesturlandi í
fyrramálið, en þurrt síðdegis. ( öðrum iandshlutum verður bjart
veöur víðast hvar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Hæg vestiæg átt. Bjart
veður víða um land þó líklega skýjað öðru hverju og ef til vill lítils
háttar súld við suðvestur- og vesturströndina. Sums staöar nætur-
þoka við norðurströndina. Hlýtt veður um allt land, hlýjast á Aust-
ur- og Suðausturlandi.
TÁKN:
■Q - Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
■\ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r / r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
El
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
\j
oo
4
K
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veöur Akureyrí 15 léttskýjað Reykjavlk 11 þokumáða
Bergen 13 skúr
Helsinki 20 skýjað
Kaupmannah. 15 skúr
Narssarssuaq 10 rigning
Nuuk 6 alskýjað
Osló 14 rigning
Stokkhólmur 20 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 18 hálfskýjað
Barcelona 27 mistur
Berlin 20 skýjað
Chicago 19 skýjað
Feneyjar 27 léttskýjað
Frankfurt 22 hálfskýjað
Qlasgow 17 hálfskýjað
Hamborg 17 skúr
Las Palmas 25 þokumóða
London 23 léttskýjað
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 20 léttskýjað
Madrid 30 heiðskírt
Malaga 28 heiðskírt
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 20 skýjað
New York 21 alskýjað
Orlando 24 léttskýjað
Paris 23 léttskýjaö
Róm 27 skýjað
Vín 25 skýjað
Washington 23 skúr
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Einar Falur
Hin nýja farþegaþyrla Þyrluþjónustunnar hf. er af gerðinni Bell 206
Long Ranger.
Bandarískt fyrirtæki
gerir tilboð í umfram-
birgðir af lambakjöti
BANDARÍSKUR aðili hefur gert landbúnaðarráðuneytínu tílboð um
að kaupa allar umframbirgðir lambakjöts í landinu, sem nú eru um
3 þúsund tonn, á 28.50 kr. kílóið. Að sögn Jóhanns Guðmundssonar,
deildarstjóra hjá landbúnaðarráðuneytinu, verður tilboðinu svarað
fljótlega, en hann sagði það verð sem í boði væri greinilega vera allt
of lágt.
„Geymslukostnaður á umfram-
birgðunum er vissulega hár, en ef
ríkið ætlar að flytja út þessi þijú
þúsund tonn þyrfti að greiða um
450 krónur með hvetju kílói. Til
þess þyrfti því um 1.350 milljónir
króna, sem yrði að taka að láni,
og vaxtakostnaður af því yrði
líklega svipaður og geymslukostn-
aðurinn er. Það verð sem banda-
ríski aðilinn býður er auk þess fyr-
ir neðan allar hellur, en það er um
sjötti hluti af því verði sem fengist
hefur fyrir kjöt sem flutt hefur ver-
ið út til Norðurlandanna. Það hefur
þó engin endanleg ákvörðun verið
tekin um hvemig þessu tilboði verð-
ur svarað, en það verður væntan-
lega gert fljótlega," sagði Jóhann.
Pétur Björnsson hjá ísberg í Hull:
Brestir í samtaka-
mætti verkfallsmanna
víða í enskum liöfimm
„EINHUGUR verkfallsmanna í
breskum höfnum er ekki eins
mikill og talið var fyrirfram, og
brestír eru víða að myndast í
verkfall þeirra," sagði Pétur
Björnsson hjá ísberg í Hull í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Pét-
ur sagðist ekki búast við að verk-
fallið myndi valda verulegum
truflunum á útflutningi íslensks
físks, og sagði gámaútflutning
vera kominn í nánast eðlilegt
horf.
„Reyndar er nokkuð meiri kostn-
aður við gámaútflutninga nú en við
eðlilegar aðstæður, þar sem kostn-
aður af flutningi á landi frá upp-
skipunarhöfn bætist við venjulegan
kostnað. Hins vegar efa ég að verk-
fallið setji flutninga okkar úr skorð-
um á einhvern hátt,“ sagði Pétur
ennfremur.
Nokkur fjöldi hafna í Bretlandi
er undanþeginn verkfallinu, og taldi
Pétur það vera helstu skýringu þess
að samtakamáttur verkfallsmanna
reyndist ekki jafn mikill og búist
var við.
Borgarráð:
Lóðarúthlutun
í Lækjargötu
BORGARRÁÐ liefur samþykkt
að veita Hinu íslenska bók-
menntafélagi lóðina við Lækjar-
götu 4.
Áður hafði félagið fengið vilyrði
fyrir lóðinni og er þegar búið að
hanna hús, sem þar verður væntan-
lega reist.
Þrír Islendingar
á svæðamót í skák
t
FJÓRTÁN skákmenn, þar af þrír íslendingar, taka þátt í svæðamótí
Norðurlanda sem hefst í næstu viku í Finnlandi. í kvennaflokki er
átta keppendur, þar af einn frá íslandi.
Níu stórmeistarar eru meðal
keppenda og er mótið í 11. flokki
FIDE. Þátttakendurinir eru: Helgi
Ólafsson, Jón L. Árnason og Mar-
geir Pétursson frá íslandi. Bent
Larsen, Curt Hansen og Erik Mort-
ensen frá Danmörku, Harry
Schússler, Tom Wedberg og Lars
Karlsson frá Svíþjóð, Simen Agde-
stein, Jonathan Tisdall, og Berge
Östenstaad frá Noregi, og Heikki
Westerinnen og Jouni Yijölá frá
Finnlandi.
í kvennaflokki keppir Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir fyrir íslands
hönd.
Mótið hefst 19. júlí. Tveir efstu
menn mótsins komast áfram á milli-
svæðamót. Jóhann Hjartarson hef-
ur þegar öðlast þátttökurétt á það
mót.