Morgunblaðið - 14.07.1989, Qupperneq 7
Heildsala og smásala:
Olíufélagið hf
SUÐURLAWDSBRAUT 18
SfMI 681100
, , Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Ur verslun Alfasteins á Borgarfírði eystri.
Borgarfjörður eystri:
Hráefiiið sótt 1 íjömna
^ Egiisstöðum.
Á BORGARFIRÐI eystri héfur um átta ára skeið verið starfrækt
steiniðjan Álfasteinn sem sérhæfir sig í framleiðslu minjagripa
úr borgfirskum steinum. Hráeftiið í framleiðsluna er að lang-
stærstum hluta sótt í Qörur Borgarfjarðar en einnig fæst mikið
af steinum úr fjöllununi umhverfis. í fyrirtækinu er einnig starf-
rækt fágætt steinasafti og koma árlega um 5.000 manns að skoða
saftiið og sérstæða náttúrufegurð Borgarfjarðar.
Álfasteinn hefur allt frá stofn- fyrirtækisins.
un verið í stöðugum vexti og er
fyrir löngu búinn að sprengja utan
af sér húsnæðið. Hjá fyrirtækinu
starfa um 10 manns að staðaldri
og gegnir það því þýðingarmiklu
hlutverki í atvinnulífi þessa 220
manna byggðarlags.
Að sögn Helga Arngrímssonar,
framkvæmdastjóra Álfasteins,
eru um 80% hráefnisins sem fyrir-
tækið notar fengið úr fjörum
Borgarfjarðar. Slíkir steinar
henta vel í framleiðslu allskonar
minjagripa og viðurkenningar-
platta. Eru þeir þá sagaðir niður,
slípaðir og sandblásnar á þá
myndir og letur. Þessir sérpönt-
uðu gripir eru stór hluti fram-
leiðslunnar og njóta mikiila vin-
sælda sem tækifærisgjafir og við-
urkenningar allskonar. Inn á milli
gefst svo tækifæri til að framleiða
vörur á lager og til sölu í verslun
Auk framleiðslu á sérpöntuðum
gripum framleiðir Álfasteinn
margskonar skrautmuni úr fjöl-
breyttum steintegundum auk
skartgripa sem þá eru prýddir
borgfirskum jaspís, hrafntinnu
eða öðrum eðalsteinum. Nýjasta
framleiðslan hjá Álfasteini eru
legsteinar og segir Helgi þá fram-
leiðslu hafa farið vel af stað og
lofa góðu.
Á Borgarfirði rekur fyrirtækið
verslun með framleiðsluvörur
sínar sem opin er alla daga vik-
unnar yfir sumarið. Þar innandyra
er mjög sérstætt steinasafn. í því
eru margir fágætir steinar og
steingervingar. Nýtur þetta safn
mikilla vinsaelda ferðamanna því
undanfarin tvö sumur hafa komið
þar yfir 5.000 ferðamenn hvort
sumar.
- Björn
MORGiUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ. 19.89
Nýju AX/onder rafhlöðurnar,
Green Power, eru algerlega
kvikasilfurslausar. Þær eru því hlaðnar
„hreinni" orku og valda engri
umhverfismengun. Þess vegna má að
skaðlausu henda þeim að notkun lokinni.
Lífrænt efni hefur nú komið í stað
kvikasilfurs.
Green Power rafhlöðurnar eru lekafríar og
endast lengur en venjulegar rafhlöður.
Stuðlum að hreinu umhverfi - notum
Green Power rafhlöður.
HÚSBYGGJENDUR * VERKTAKAR * HÓNNUDIR
NÝJUNG A ÍSLENSKUM BYGGINGAMARKAÐI
Er ætlað til húðunar á steypufleti til verndunar, holufyllingar og jöfnunar
á áferð.
SEMKÍS S100
SEMKÍS P100
VATNSFÆLIN STEYPUHÚÐ
ALKALÍÞOLIN PLASTÞEYTA
sércteypani =.c
KALMANSVELLIR 3 AKRANESI
® 93-13355
SEMKÍS SIOO
SEMKÍS S100
Er ákjósanleg á undirstöður húsa (sökkla), einkum þar sem hætta er á
að steypan sé nokkuð vatnsdræg. Efnið er auðvelt að hræra út og með
réttu magni af vökva gefur það velling, sem er þjáll að bera á. Efnið fest-
ist vel við hreinan steypuflöt og gefur sterkt og þétt yfirborð.
Er árangur langs þróunarstarfs
Er prófað af opinberum rannsóknastofnunum
Er framleitt undir ströngu gæðaeftirliti
Er merk íslensk nýjung, þróuð og framleidd fyrir íslenskar aðstæður
GERIÐ VERÐ- OG GÆÐASAMANBURÐ
HEILDSÖLUDREYFING:
Sementsverksmiðja ríkisins
Afgreiðsla Sævarhöfða S 91-83400
Afgreiðsla Akranesi S 93-11555
Fæst í öllum helstu
byggingavöruverslunum
ÍSLENSKA JARNBLENDIFELAGIÐ HF.
SEMENTSVERKSMIÐJA RIKISINS
SEMKÍS S100