Morgunblaðið - 19.07.1989, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
10. Hús
í dag er það umfjöllun um 10.
húsið. Lykilorð eru þjóðfélags-
hlutverk, starf, markmið,
stefna, yfirvald og kerfi. Það
er skylt Steingeit og Satúrn-
usi. 10. hús og Miðhiminn er
eitt og hið sama, eða öllu held-
ur markar Miðhiminn byijun
10. húss.
Þjóðfélagshlutverk
Þegar leit okkar í 9. húsi er
""^lokið höfum við í höndunum
hugmynd sem við tökum til
við að útfæra. í 10. húsi kom-
um við okkur fyrir í þjóðfélag-
inu og reynum að ná árangri.
Það er því táknrænt fyrir þjóð-
félagshlutverk okkar, starf og
stöðu innan þjóðfélagsins. I
þessu húsi öðlumst við upp-
skeru vinnu okkar. Það,
hvernig tókst til við persónu-
lega mótun og félagslega að-
lögun í fyrri húsunum, ákvarð-
ar hver staða okkar verður.
Plánetur og merki í 10. húsi
segja því til um þáð á hvað
við stefnum en vísa einnig á
þá orku sem við mætum þegar
við erum komin út í þjóðfélag-
ið sem fullgildir einstaklingar.
Kerfi
í þjóðarkorti er 10. húsið tákn-
rænt fyrir kerfið, þ.e. embætt-
isvaldið og stofnanir þjóðfé-
lagsins. í korti einstaklingsins
vísa plánetur og merki þar til
viðhorfa okkar til kerfa þjóð-
félagsins en einnig til þess
kerfis sem er á vinnustað
o.þ.h. í 10. húsi erum við ekki
stödd heima hjá okkur heldur
úti í þjóðfélaginu. Sól þar get-
ur táknað það að vilja hafa
“~áhrif innan samfélagsins og
vera áberandi eða virkur þátt-
takandi. Maður sem hefur Sól
í 10. húsi finnur sjálfan sig í
vinnu, markmiðum og ytri at-
höfnum. Hann getur einnig
sagt: „Ég er kerfið", eða „ég
.vil ekki hafa neitt kerfi yfir
mér“. „Ég vil ráða í mínu eig-
in þjóðfélagi". Sól i þessu húsi
getur því verið táknræn fyrir
valdamann, fyrir þann sem
sækir í völd eða frægð, eða
þann sem vill vera fijáls og
sterkur innan síns bæjarfé-
lags. Ef erfið pláneta er í hús-
inu getum við yfirfært orku
hennar á umhverfið og kennt
því um ef illa gengur. „Helvít-
is þjóðfélagið, ég hata emb-
^ ættismenn og kerfiskalla"
o.s.frv.
Starfogfrœgð
Plánetur og merki í 10. húsi
eru sterkari en aðrir þættir,
eða eru a.m.k. oft meira áber-
andi en annað í kortinu.
Rísan'di merki og Miðhiminn
mynda saman framkomu okk-
ar en munurinn er sá að
Rísandinn er persónuleg fram-
koma, en Miðhiminn er óper-
sónuleg framkoma, eða fram-
koma okkar úti í þjóðfélaginu.
Það má kannski orða það svo
að við sýnum Rísandi merki í
návígi en Miðhiminn í sjón-
varpi eða útvarpi. Miðhiminn
■^og 10. hús er gjaman það sem
við emm þekkt fyrir að gera
eða starfa við.
Pláneturí 10. húsi
Tungl í 10. húsi getur táknað
það að sækjast eftir starfi sem
veitir öryggi, og hefur með
undirstöðuþætti að gera, t.d.
heimilishald, uppeldi, kennslu,
matartilbúning og störf tengd
fataiðnaði, eða það að fæða,
klæða, hýsa og ala upp. Tungl-
ið getur einnig tengst frægð
eða því að vera töluvert í aug-
um fjöldans. Merkúr á Mið-
himin skapar þörf fyrir að tala,
tjá sig, skrifa, halda ræður eða
vinna við störf sem tengjast
hugsun og miðlun. Venus á
Miðhimni getur skapað lista-
mann, fegrunarsérfræðing
eða félagsfræðing og Mars
íþrótta- eða athafnamann.
Neptúnus veit oft á óvissu í
sambandi við þjóðfélagshlut-
verkið eða vinnu við listir og
hjálparstörf og áhuga á and-
legum málum.
GARPUR
FKAB/ERT18LAÐAMEMNIHNIR.
ELTA B/eei ADAAA OS GARP
OG ÉG þARTAÐ KOAAAST
AFTVR T7L BENÚR.IU
STUTTU SEINIKIA ...
APAA1, ÞAE> VAR. KOAVKIN
Tl'/A/ TIL AE> PÚ SÝND/R Þ‘G.
í SÝN/NG/N ER 8VRJU£> -
S ÞÚ TRÚ/R. EKK/ HVER.JV
GRETTIR
LJÓSKA
UJWEN YOU 6ET TO THE
MEETIN6,5PEAK UPÍ PON T
BE AFRAIP TO RUFFLE A
FEU) FEATHER5
Talaðu þegar þú kemur á
fundinn.
Varð einhver fyrri til, eða
hvað?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Andstæðingarnir em komnir
í geim, hvergi.smeykir, makker
hefur sagt og þú átt KG965 í
trompi. A að dobla eða passa
eins og héri?
Vestur gefur; NS á hættu. Norður
% + D982 ▼ - ♦ ÁD1072
Vestur + D954 Austur
♦ ÁG64 llllll ^ ^
VÁD87 ¥ 10432
♦ 854 ♦ KG
+ 86 * ÁKG1073 Suður ♦ K1073 ¥ KG965 ♦ 963 + 2
Spilið kom upp í 3. umferð
Evrópumótsins í Turku. Samn-
ingurinn var «á sami í flestum
leikjum, 4 hjörtu í AV, ýmist
dobluð eða ódobluð. Þeir sagn-
hafar sem spiluðu geimið
ódoblað áttu aldrei möguleika,
því þeir fóru beint af augum í
trompið og toppuðu laufið. Hinir
stóðu betur að vígi.
í leik íslands og Hollands út-
tektardoblaði Vaiur Sigurðsson
opnun vesturs á einu hjarta.
Þegar andstæðingamir vom
komnir upp í 4 hjörtu nokkmm
sögnum síðar doblaði Jónas P.
Erlingsson, vongóður um góða
tölu. Útspilið var spaði, sem
vestur drap á ás og svínaði strax
laufgosa. Jónas trompaði laufás-
inn, sem kom næst og spilaði
tígli upp á ás norðurs. Áfram
kom tígull, en sagnhafi hafði
völdin í spilinu, notaði lauf blinds
sem þvingun á suður, sem fékk
aðeins einn slag í viðbót á tromp.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Skáklíf í Frakklandi stendur í
miklum blóma um þessar mundir
og í deildakeppninni þar tefla
margir aðkeyptir stórmeistarar.
Tveir slíkir tefldu þessa stuttu
skák í vor:
Hvítt: Pinter (Ungveijalandi, tefl-
ir fyrir Montpellier),
Svart: Flear (Englandi, teflir fyr-
ir Metz), drottningarbragð, 1. d4
- Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 - d5,
4. Rc3 - dxc4, 5. e3 - a6, 6. a4
- c5, 7. Bxc4 - Rc6, 8. 0-0 -
Be7, 9. Re5!? - cxd4, 10. Rxc6 -
bxc6, 11. exd4 - a5, 12. Df3 -
Rd5, 13. Re4 - Ba6, 14. b3 -
0-0, 15. Hdl - Rb6, 16. Bxa6 -
Hxa6, 17. Bd2 - Rd5, 18. Hael
- Db6, 19. Bg5 - Ba3?!, 20. Hc4
- Hb8, 21. Hd3 - Rb4? (Svartur
hefur skilið kóngsvænginn eftir
varnarlausan, enda stóð ekki á
refsingunni:)
22. Rffi+! og svartur gafst upp,
því eftir 22. - gxf6, 23. Bh6 er
hann óveijandi mát.