Morgunblaðið - 19.07.1989, Síða 41

Morgunblaðið - 19.07.1989, Síða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1989 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS iur i/WMi na hd. tnf 'U LI Skemmdarverk Til Velvakanda. Vinur minn einn lagði á sig langa ferð til að gróðursetja lítið tré á leiði ættingja. Hann hefur síðan farið fleiri ferðir til að fylgj- ast með og hlúa að þessari plöntu. Hann er nú nýlega kominn úr einni slíkri ferð. Mikil var undrun hans, svo ekki sé meira sagt, því ein- hver hafði lagst svo lágt að saga þetta litla tré í sundur niður við rót. Stöðvum fólks- flóttann Kæri Velvakandi. Illa er nú komið fyrir þjóðinni og er nú komið í sama farið og fyrir rúmum áratug að fólk er tek- ið að flýja land vegna versnandi lífskjara hér. Flestir eru sammála um að þessi vandi er heimatilbúinn og stafar fyrst og fremst af slæmri stjórn. Stjórnin sem nú situr er líklega sú óvinsælasta um áraraðir og er nú svo komið að fáir mæla henni bót. Það versta er að núverandi stjórn virðist ekki hafa önnur ráð en að auka lántökur erlendis. Það ætti þó hver maður að sjá að ekki er neinn vandi leystur með því að auka á skuldabaggann því þessi lán verð- ur að sjálfsögðu að greiða. Furðu- legt er hversu mikið lánstraust þjóð- in hefur og dettur manni stundum í hug að það mætti vera minna. Og það er ekki bjart framundan. Atvinnuleysi hefur verið mikið hér í sumar en samkvæmt efnahagsspám má búast við að það aukist um allan helming og verði verulegt í haust. Stjómarherrarnir virðast alveg ráðlausir og aðhafast ekkert til lausnar þessum vanda og þó það sé ljóst að stjórnin nýtur ekki stuðnings nema lítils minni- hluta kjósenda virðist þess engin von að hún fari frá. Heppilegra væri að ganga til kosninga fyrr en seinna, því við verðum að fá stjórn sem getur og vill takast á við vand- ann. Það verður að stöðva fólks- flóttann út landinu og skapa grund- völl fyrir traustum efnahag að nýju. Guðmundur Ólafsson undir Ingólfsfjalli urðum við vitni að heldur leiðinlegu háttarlagi. Brún Mazdabifreið ók á undan okkur og kastaði fólkið stöðugt rusli út um gluggana. Ég hélt að fólk væri hætt þessum óvana en það er greinilega misskilningur.“ Slæða Marglit slðeða tapaðist í Foss- vogskirkjugarði eða á leið þaðan niður á Skarphéðinsgötu. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Sigríði í síma 27222. Kettlingur Um þriggja mánuða gamall kettlingur, svartur og hvítur, er í óskilum að Egilsgötu 28. Eigandi hans er beðinn að hringja í síma 10591 sem fyrst. Sólargleraugu Sólargleraugu með svartri um- gerð og í hulstri töpuðust við Litlu kaffístofuna sl. laugardag. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 74569 eða 82099. Góður sjón- varpsþáttur Til Velvakanda. Þátturinn Fólkið í landinu sem sýndur var í sjónvarpinu 8. júlí var mjög góður. Þar var spjallað við Gísla Konráðsson, bóndasoninn sem fór í útgerð. Væri ekki hægt að endursýna þennan þátt? Margir hafa eflaust misst af honum. A.S. Þessir hringdu . . Er ekki þörf á eftirliti? Guðmundur hringdi: „Krakkar hafa gaman af að renna fyrir físki á bryggjum og er þetta orðið vinsælt sport hjá yngstu kynslóðinni á bryggjunum við Reykjavíkurhöfn, sérstaklega við Ægirsgarð. Oft eru margir krakkar þarna að veiða eða fylgj- ast með veiðunum og eru þeir á ýmsum aldri. Þama er óneitan- lega nokkur slysahætta og tel ég þörf á að meira eftirlit sé haft með þessu.“ Slæm umgengni Sigrún hringdi: „Við vomm á leið heim í síðdeg- is á sunnudag og er við ókum Víkverji skrifar Nýlega hringdi athugull borgari í Víkveija og vakti máls á því, að sér þætti lögreglustjórinn í Reykjavík eða embætti hans ekki taka það nógu föstum tökum, þegar fyrirtæki brytu í bága við reglur um að nöfn þeirra væru íslensk. Taldi hann að þetta aðsgæsluleysi og tregða til að fara eftir ábending- um borgaranna væri til marks um slóðaskap, sem væri orðinn alltof áberandi í þjóðfélaginu. Fengjust yfírvöldin ekki til þess að gegna skyldum sínum af ótta við að þau kynnu að lenda í tímabundnum úti- stöðum væri töluverð hætta á ferð- um. Um leið og tekið yrði á þessum málum og menn áttuðu sig á því að reglum skyldi fylgt fram myndi ástandið verða fljótt að breytast. Þessi borgari ræddi um fleira en heiti á fyrirtækjum og benti Víkveija til dæmis á það sem hann taldi augljós brot bjórframleiðenda á banni við auglýsingum á áfengu öli, svo sem í ferðamannabækling- um og jafnvel á íþróttavöllum. Af- staða yfirvalda til brota af þessu tagi væri svipuð og til fyrirtækja- heitanna, þau settu kíkinn fyrir blinda augað. Víkveiji vill taka undir þessar ábendingar. Ástæðulaust er fyrir yfírvöldin að setja reglur sem þau sjá síðan ekki um að sé framfylgt. Kæruleysi af því tagi gerir aðeins illt verra. XXX Annar borgari hringdi í Víkveija vegna skrifa í dálki þessum þriðjudaginn í síðustu viku, þegar amast var við því að Tæland, Tæ- van og Kúvæt væri ritað með þeim hætti, sem hér er gert. Taldi hann með öllu ástæðulaust að finna að þessum rithætti, sem hefur sést í erlendum fréttum Morgunblaðsins á undanförnum mánuðum, þótt hann hafí ekki verið samræmdur, enn sem komið er að minnsta kosti, meðal annars vegna þess að þeir sem um erlend málefni skrifa í blað- ið eru ekki á einu máli um þetta efni. Meðal annars er sá sem ritar Víkveija í dag á öndverðum meiði við þann, sem ritaði um þetta þriðju- daginn 11. júlí. Má segja að um þetta gildi svipað og um bókstafinn z hér á síðum blaðsins, en eins og sjá má nota þeir hann, sem vilja halda í gamla tímann. í bók Árna Böðvarssonar Málfar í fjölmiðlum segir: „Loks er þess að geta að heiti þjóðhöfðingja sem erfa ríki eru íslenskuð, t.d. Jóhann Karl Spánarkonungur, Baldvin Belgíukonungur. Sama gildir um páfa nöfn: Jóhannes Páll páfi.“ Þessi regla gildir hér í Morgun- blaðinu og með vísan til hennar sjá menn hvers vegna ekki er talað um Jóhannes F. Kennedy, fyrrum Bandaríkjaforseta, eða Georg Bush. Bandaríska forsetaembættið geng- ur ekki að erfðum. xxx Enginn skyldi halda að það sé auðvelt verk að reyna að sam- ræma rithátt í blaði á stærð við Morgunblaðið. Þannig hefur til dæmis oftar en einu sinni verið vakið máls á því hér á þessum stað og að sjálfsögðu í samtölum á rit- stjórn blaðsins og við prófarkales- ara, að ætlunin sé að kalla Efna- hagsbandalag Evrópu Evrópu- bandalagið á síðum blaðsins, þar sem það sé í samræmi við ákvörðun bandalagsins sjálfs um heiti sitt. Glöggir lesendur geta séð að oft eru óskir um þetta hafðar að engu. Með morgunkaffinu Það er ekki pláss fyrir vörumerkið á nýjustu bik- ini-sundfotununi... 617 I1 I ’ 1 ’ POLLUX Stóla? Maður getur ekki vænst að fá allt! HÖGNI HREKKVÍSI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.