Morgunblaðið - 03.08.1989, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
174. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 3. AGUST 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Forsætisráðherrakjör 1 Póllandi:
Leiðtogar kommún-
ista hótuðu þingrofi
Varsjá. Reuter.
LEIÐTOGUM pólska kommúnistaflokksins tókst í gærmorgnn að af-
stýra stjórnarkreppu með því að fá flesta þingmenn bændaflokksins
til þess að styðja Czeslaw Kiszczak, hershöfðingja og fyrrum innanrikis-
ráðherra, í starf forsætisráðherrá. Mun hann leggja fram ráðherralista
og steihuskrá innan hálfs mánaðar.
Heimildir úr pólska þinginu herma
að , leiðtogar kommúnistaflokksins
hafi knúið bændaflokkinn til hlýðni
með hótunum um þingrof. Jafnframt
hafi fjölda þingmanna kommúnista-
flokksins er lögðust gegn kjöri Kiszc-
zaks verið hótað brottvikningu úr
flokknum.
Eru oblátur
varasamar?
Boston. Reuter.
ENSKIR læknar hafa komist að
því að oblátur geta gert hinum
guðhræddu grikk, að því er fram
kemur í grein í læknaritinu New
England Journal of Medicine.
Hafa þeir komist að því að í þeim
eru efiii sem valdið geta þrálátum
meltingarsjúkdómi er einkennist
af niðurgangi og megnin.
Læknarnir halda því fram að við
oblátugerð sé oftast notað hveiti sem
innihaldi glúten og glíadin sem eru
seig, límkennd og óuppleysanleg
prótín. Geta þau valdið meltingar-
truflunum er leiða til steinsmugu,
megrunar, vindgangs og maga-
verkja.
Til munu einnig glútenlausar ob-
látur en læknar við sjúkrahús í Sal-
ford í Englandi segja þær samt inni-
halda nægilega mikið glíadín til þess
að valda börnum og mjög guðræknu
fólki alvarlegum meltingartruflun-
um.
Kaþólska kirkjan hefur ekki sam-
þykkt notkun glútenlausrar oblátu.
Af þeim sökum ráðleggja ensku
læknarnir fólki sem annt er um heils-
una að sleppa oblátunni við altaris-
göngu eða taka aðeins lítið brot.
í fyrradag lögðust a.m.k. 13 þing-
menn kommúnistaflokksins og aliir
60 þingmenn bændaflokksins gegn
kjöri Kiszczaks. Naut hann því ekki
stuðnings meirihluta þingmanna og
var kjöri óvænt frestað. í kosningum
í gær hlaut hann atkvæði 237 þing-
manna. Tíu voru ijarverandi en allir
þingmenn Samstöðu, 173 talsins,
greiddu atkvæði gegn honum. Kiszc-
zak er 63 ára. Það kom í hans hlut
sem innanríkisráðherra að fram-
fylgja herlögum, sem gripið var til
1981 til þess að bæla niður starfsemi
Samstöðu, óháðu verkalýðsfélag-
anna.
Eftir kosningu Kiszczaks var sam-
þykkt tillaga Samstöðu um skipan
sérstakrar þingnefndar til að gera
úttekt á stjórn efnahagsmála í tíð
Mieczyslaws Rakowskis, fyrrum for-
sætisráðherra, og meta hvort ástæða
væri til að lögsækja hann fyrir
óstjórn og óðaverðbólgu. Rakowski
var kjörinn leiðtogi kommúnista-
flokksins sl. laugardag.
Reuter
Aðskilnaðarstefnu mótmæltí Suður-Afríku
Átta hundruð suður-afrískir blökkumenn héldu í gær
inn á lóð sjúkrahúss sem ætlað er hvítum eingöngu
og var þetta fyrsti liður mótmælaviku gegn aðskilnað-
arstefnu stjórnvalda. Tugum manna var- hleypt inn
og veitt aðhlynning þar sem þeir voru sannanlega
sjúkir, að sögn talsmanns sjúkrahússins. Lögreglu-
menn fylgdust með atburðunum en höfðust ekki að,
hins vegar varaði Adriaan Vlok dómsmálaráðherra
andófsmenn við í ræðu sem hann hélt í gær og sagði
að yrði ekki gætt stillingar gæti komið til upplausnar
og blóðsúthellinga. Kosið verður í næsta mánuði til
þings landsins en blökkumenn hafa ekki atkvæðisrétt.
26 bandarísk h^rskip
til Líbanons og Irans
Washiiig^oii og Moskvu. Daily Telegraph.
BANDARÍKIN hófii í gær að
styrkja flota sinn í Miðjarðarhafs-
botni og við íransstrendur til
inuna, en útlit er fyrir að George
Bush Bandaríkjaforseti eigi fárra
annarra kosta völ en að beita flot-
anum ef hryðjuverkamenn Hiz-
bollah (Flokks guðs) í Líbanon
myrða annan bandarískan gísl í
dag klukkan 15.00, eins og þeir
hafa hótað. Bush ítrekaði á fúndi
í Hvíta húsinu í gærkvöldi, að allra
ráða yrði leitað til þess að finna
friðsamlega lausn á málinu. Hann
kvaðst hafa nýlokið simtali við
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, auk fjölda ann-
arra leiðtoga heimsins. „Við höf-
Skógareldar í Miðjarðarhafslöndum:
Fólk flýr á haf út
Marseille. Reuter.
MORG hundruð skelfíngu lostnir ferðamenn og þorpsbúar í Suð-
ur-Frakklandi flýðu skógarelda aðfaranótt miðvikudags með því
að synda á haf út eða klifra uni borð í fískibáta. Björgunarsveit-
ir sögðu að á annað þúsund manns hefði verið dregið upp úr sjón-
um, margt af þvi með reykeitrun og kiætt sundfótum einum.
Eldar geisa víðar við Miðjarðarhaf. Á Korsíku brunnu tveir ítal-
skir ferðamenn til bana í bíl sinum á mánúdag og á þriðjudag
fórust a.m.k. þrír í eldum á Sardiníu.
Marseille-búar berjast við eldana
borgarinnar.
Reuter
sem nálgast norðurhverfí hafiiar-
Eldarnir í Frakklandi eru þeir
skæðustu í tuttugu ár. „Þetta var
verra en í hryllingsmynd,“ sagði
breskur ferðamaður. „Við gátum
ekki flúið í neina átt en að lokum
var okkur bjargað úr sjónum. í
fjarska sáum við hótelið okkar
brenna." Sjónarvottur sagði að
reynt hefði verið að vernda hóst-
andi kornabörn með því að sveipa
þau rennvotum handklæðum.
Eldarnir hafa undanfarna þrjá
daga eytt um 25 þúsund hektara
gróðurlendi í Suður-Frakklandi
og á Korsíku. Meira en 3.000
slökkviliðsmenn og hermenn börð-
ust við eldana aðfaranótt miðviku-
dags og kvörtuðu margir undan
lélegum tækjum. Jörð er víða
skraufþurr eftir margra mánaða
þurrka og svo hratt breiddust eld-
arnir út við Marseille að fjölda
fólks gafst ekki einu sinni ráðrúm
til að taka með sér dýrmætustu
eigur sínar.
Bastía á Korsíku, næst-stærsta
borg eyjarinnar, einangraðist á
þriðjudag er eldveggir umluktu
hana en í gær sögðu embættis-
menn þar að tekist hefði að hefta
eldinn.
um fengið fullvissu eftir fúllvissu
um að hjálp þeirra standi til boða,“
sagði forsetinn.
Bush, sem meðal annars hefur
snúið sér til írans, Sovétríkjanna,
Sýrlands, Saudi-Arabíu og Páfa-
garðs, kvaðst hafa reynt allar Ieiðir
til þess að reyna að bjarga lífi Jos-
ephs Cicippios — þess gísls, sem
Hizboliah hótar að myrða í dag —
en án árangurs. Forsetinn sagði
fréttirnar af hengingu bandaríska
undirofurstans Williams Higgins,
sem var gísl hryðjuverkamanna Hiz-
bollah í Líbanon, hafa fengið mjög
á sig, en bætti við að stjórn sín ætti
ekki síst við mikinn vanda að etja í
þessu máli vegna upplýsingaskorts
og óstaðfestra gróusagna. „Það eru
hreint ekki öll spilin komin á borðið
hvað upplýsingar áhrærir og það er.
afskapiega erfitt að fá upplýsingar,
sem hægt er að byggja ákvörðun á,
þegar maður á í höggi við svona
hugleysingja og illmenni.“
Flotastyrkur þeirra herskipa, sem
nú sigla hraðbyri til Miðausturlanda
er mikill. I Miðjarðarhafi bíður flug-
móðurskipið Coral Sea átekta ásamt
tólf fylgiskipum. Þar af eru þtjú land-
gönguskip, en um borð í þeim eru
skriðdrekar, þyrlur og um 2.400
landgönguliðar. Orrustuskipið Iowa
og flaggskip 6. flotans — eldflauga-
skipið Belknap — bætast í hópinn á
næstu dögum. Flugmóðurskipið
America lagði í gær upp frá Singa-
pore ásamt 10 fylgiskipum inn á
Norður-Arabíuflóa, en þaðan er
hægðarleikur að gera árásir á íran.
Sjá frétt á síðu 24: „Israelar og
Bandaríkjamenn snúa ... “