Morgunblaðið - 31.08.1989, Blaðsíða 2
C8ÖI T8U0A .18 flUDAaUTMMIM QlG/wfyKUOÍIOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1989
Smíðar á stærri
fiskiskipum þarf
að banna um tíma
- segir Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSÍ
„ÞAÐ þarf að banna mönnum um
um þó nokkurn tíma að smíða
stærri fiskiskip en þau sem fyrir
eru,“ sagði Einar Oddur Krist-
jánsson, formaður Vinnuveit-
endasambands Islands, í samtali
við Morgunblaðið. Hann sagði að
fiskiskipaflotinn væri of stór mið-
að við hvað eðlilegt og skynsam-
legt, væri að taka úr fiskistofhun-
um. „Flotinn er alltaf að stækka
Þrír meiddust
er rúta rann
50-100 metra
niður brekku
Höfn í Hornafirði
AMERÍSK kona, írskur pilt-
ur og bílstjóri hjá Austurleið
slösuðust er rúta bilaði á leið
niður frá Skálafellsjökli laust
eftir klukkan tvö í gærdag.
Bilun olli því að bílstjórinn
kom bilnum ekki i gír og
rann hann um 50-100 metra
niður brattan vegarslóða áð-
ur en náðist að stöðva hann
rétt utan vegar. Bílstjórinn
gat haldið bilnum á réttum
kili allan tímann en fólkið
slasaðist er það kastaðist til
í bílnum.
Tíu manna hópur innlendra
og erlendra ferðamanna var að
koma úr útsýnisferð á jöklinum
er slysið varð. Björgunarsveit
og læknar á Höfn voru strax
kölluð út og er ljóst var að tveir
farþegar voru illa slasaðir var
þyrla Landhelgisgæslunnar
send á staðinn. Hún fór af slys-
stað klukkan hálf sex með er-
lendu ferðamennina til
Reykjavíkur en bílstjórinn, sem
meiddist á bijósti og handlegg,
var fluttur til Hafnar. Konan
mun hafa meiðst illa á baki 'og
fótbrotnað en pilturinn var
meiddur á baki. Áðrir farþegar
urðu ekki fyrir teljandi meiðsl-
um. Vegaslóðinn upp að Skála-
fellsjökli er víða brattur og erf-
iður yfirferðar og fara hann
einungis bílar með drif á fjórum
hjólum.
- JGG
vegna þess að í gangi eru reglur
sem leyfa mönnum að stækka
hann og það er ekki nokkur leið
að komast hjá því að breyta þess-
um reglum, því miður,“ sagði
Einar Oddur.
„Það er hins vegar enginn að
tala um að banna að halda skipum
við og endurnýja þau,“ sagði Einar
Oddur. Hann sagði að stækkun
fiskiskipaflotans væri hrein íjar-
stæða, hvort heldur sem um stór
eða smá skip væri að ræða. „Fiskur-
inn er jafn dauður hvort sem það
eru stór eða smá skip sem veiða
hann,“ sagði Einar Oddur.
„Það væri mjög æskilegt að kom-
ast út úr kvótanum en það eru
draumar einir að halda að tímar
frjálsrar sóknar séu skammt undan
þegar við erum búnir að vera að
stækka flotann endalaust. Aðalat-
riðið er að við fjarlægjumst ekki
það markmið að flotinn sé nýttur
miðað við afkastagetu. Við höfum
hins vegar verið að íjarlægjast þetta
markmið og erum enn að fjarlægj-
ast það,“ sagði Einar Oddur.
Hann sagði að menn hefðu vitað
á síðasta áratug að flotinn væri of
stór og þá hefðu utvegsmenn kom-
ið með þá tillögu sameiginlega að
stofna úreldingarsjóð fiskiskipa.
„Þetta var bara allt eyðilagt fyrir
okkur af pólitískum sjónarmiðum
manna _sem þóttust ekki . skilja
þetta. Útgerðarmenn, sem heild,
hafa alltaf getað séð það að halda
þarf flotanum í þokkalegu samræmi
við það sem hægt er að veiða.“
Morgunbladið/Rúnar Þor
Þessi sjón blasti við íbúum Kópaskers eftir að fiskeldiskerin
brustu.
Tjón Arlax yfir
10 milljónir kr.
LJÓST er að tjón það, sem Árlax hf. á Kópaskeri varð fyrir er tvö
fískeldisker brustu, er nokkuð yfir 10 milljónir króna. Guðmundur
Björnsson stöðvarsljóri Árlax segir að verðmæti laxins sjálfs, sem
í kerunum var, sé tæpar 10 milljónir en siðan bætist annað eigna-
tjón þar við.
I gærdag var unnið við að
hreinsa upp laxinn sem rann úr
kerunum og er því verki að mestu
lokið. Annað hreinsunarstarf mun
bíða þess að rannsókn á orsökum
þessa óhapps ljúki.
Aðspurður um hvort orsakir
óhappsins væru kunnar sagði Guð-
mundur svo ekki vera. Hann taldi
hinsvegar að kerbrúnin á öðru ker-
inu hefði gefið sig fyrst, kannski
farið einn bolti í henni, og við það
hafi kerið rifnað snögglega. Vatns-
elgurinn úr því gróf síðan undan
undirstöðum hins kersins sem
brast.
Guðmundur telur að starfsemi
Árlax muni halda áfram, þrátt fyr-
ir þetta áfall. „Ég á ekki von á að
við gefumst upp fyrr en í fulla
hnefana," segir hann.
Stækkun ríkis-
stjórnarinnar:
Svar við til-
boðinu lík-
legt í dag
LÍKLEGT þykir að borgara-
flokksmenn svari tilboði ríkis-
stjórnarinnar um stjórnarþátt-
töku í dag. Af samtölum við borg-
araflokksmenn í gærkvöldi má
dæma að sennilegast sé að það
verði jákvætt og flokkurinn fari
inn í ríkisstjórnina.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gerði Júlíus Sólnes, for-
maður Borgaraflokksins, í gær
kröfu um að borgaraflokksmenn
fengju samgönguráðuneytið í stað
umhverfismálaráðuneytis, sem til-
boð ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyr-
ir að borgaraflokksmaður taki við
um áramót. Fram að því á hann
að verða ráðherra án ráðuneytis.
Júlíus vildi þess í stað fá bæði dóms-
málaráðuneyti og samgönguráðu-
neyti í hlut borgaraflokksmanna,
strax við inngöngu þeirra í ríkis-
stjórn. Þeirri kröfu mun hafa verið
fálega tekið af stjórnarliðum. Morg-
unblaðið hefur heimildir fyrir því
að á þingflokksfundi Alþýðubanda-
lagsins hafi niðurstaðan orðið sú í
gær að ekki kæmi til greina að láta
samgönguráðuneytið af hendi.
Sennilega mun það ekki hafa áhrif
á endanlega ákvörðun borgara-
flokksmanna hvort þeir fá sam-
gönguráðuneytið.
Þá hafa borgaraflokksmenn vilj-
að lækka skatt á matvæli enn meira
en tillögur ríkisstjórnarinnar gera
ráð fyrir. Samkvæmt heimildum
blaðsins er sú krafa ekki útrædd.
Þingflokkur Borgaraflokksins
fundaði í gær, og þrír þingmenn
flokksins héldu fund með forystu-
mönnum stjórnarinnar. Þingflokk-
urinn hittist aftur fyrir hádegi í dag.
Olafur G. Einarsson segir ráðherra án ráðuneytis ólöglegan:
Þarf bráðabirgðalög til að
Vinnuslys í
Stykkishólmi
ekki sé um lögbrot að ræða
VINNUSLYS varð í trésmiðjunni
Einingu í Stykkishólmi á mið-
vikudag.
Maður sem var að vinna þar við
svokallaða bútasög missti aðra
höndina undir sagarblaðið. Tveir
fingur mannsins sködduðust illa við
þetta óhapp og var hann fluttur
suður til Reykjavíkur í aðgerð.
Líðan hans mun eftir atvikum góð.
segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra
ÓLAFUR G. Einarsson, þing-
flokksformaður sjálfstæðismanna,
segir að verði það úr að Borgara-
flokkurinn fari inn í ríkisstjórn,
þá sé það lögbrot að skipa ráð-
herra án ráðuneytis og fela honum
mótun atvinnustefnu og uppstokk-
un stjórnarráðsins, eins og talað
er um í tilboði ríkisstjórnarinnar
til borgaraflokksmanna. Ólafúr
segir að Sjálfstæðismenn muni
ekki láta slíkt óátalið. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
segir að miðað við núgildandi lög
sé slík ráðherraskipun lögbrot,
þannig að það þurfi að setja bráða-
birgðalög til þess að hún verði
lögleg.
Námslán hækka um 10,3%
STJÓRN Lánasjóðs íslenskra námsmanna samþykkti í gær að hækka
framfærslugrunn námslána um 10,3% þann 1. september næstkom-
andi, í samræmi við tilmæli frá menntamálaráðherra. 5,3% hækkun
á sér stað vegna breyttra verðlagsforsenda en 5% vegna samkomu-
lags ráðherrans við námsmenn frá síðasta vetri. Hækkunin fyrsta
september leiðir til þess, að framfærsla námsmanns í leiguhúsnæði
verður 44.346 þúsund krónur á mánuði í stað 40.197 króna.
í síðustu viku lýsti meirihluti um 5,3% vegna verðlagsbreytinga.
stjórnar LÍN því yfir, að námslán
yrðu ekki hækkuð þann 1. septem-
ber nema um það bærust bein fyrir-
mæli frá menntamálaráðherra,
Svavari Gestssyni, þar sem fyrirsjá-
anlegt væri, að framlag til sjóðsins
á fjárlögum þessa árs nægði ekki.
Á þriðjudaginn sendi menntamála-
ráðherra sjóðsstjórninni bréf, þar
sem sagt er að hækka eigi lánin
og 5% vegna sérstakrar ákvörðunar
ráðherra.
Á fundi sjóðsstjórnarinnar í gær
var þessi hækkun staðfest en jafn-
framt ítrekaði hún að fjárþörf LÍN
umfram fjárlög yrði að minnsta
kosti 250 til 300 milljónir króna í
árslok. Þar af væru 143 milljónir
vegna sérstakra ákvarðana ráð-
herra en að öðru leyti mætti rekja
viðbótarfjárþörfina til verðlags- og
gengisbreytinga umfram forsendur
fjárlaga.
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagðist Sigurbjöm Magnússon,
stjórnarformaður, fagna því að ráð-
herra hefði gert grein fyrir þessari
ákvörðun sinni með formlegum
hætti. Eðlilegast væri að ráðherra,
sem væri æðsti yfirmaður stofnun-
arinnar, tæki ákvörðun af þessu
tagi.
„Þetta er virðingarleysi fyrir lög-
unum og meiri subbuskapur á ferð-
inni en ég hef lengi séð, að þeir fái
ráðherra án ráðuneytis og honum
verði falin einhver viðfangsefni, sem
heyra undir aðra ráðherra," sagði
Ólafur G. Einarsson á blaðamanna-
fundi sjálfstæðismanna í gær. „Ég
leyfi mér að fullyrða það að þetta
er hreint lögbrot og hefur engum
dottið í hug að gera þetta áður.“
Ólafur sagði að óheimilt væri að
færa einhver viðfangsefni milli ráð-
herra, þar sem verkefnaskipting ráð-
herra væri ákveðin í lögum, en ekki
með einhverri samþykkt í ríkisstjórn.
„Það er ekki gert ráð fyrir því í lög-
um að menn séu ráðherrar í ríkisráði
nema þeir fari með ákveðið ráðu-
neyti,“ sagði hann. Ólafur sagðist
hafa leitað álits annarra lögfræðinga
á þessu, og væru þeir á sömu skoðun.
ar það, en stjórnarráðslögin gera
ekki ráð fyrir þessu. Það verður því
að gerast með bráðabirgðalögum,
sem heimila að setja ráðherra tíma-
bundið í sérverkefni. Það verður að
setja. bráðabirgðalög til að þetta sé
ekki lögbrot. Það væri lögbrot ef við
gerðum þetta án þess að breyta lög-
Steingrímur sagði að ráðherranum
ráðuneytislausa yrðu falin verkefni,
sem heyrðu undir forsætisráðherra.
„Ég yrði mjög ánægður ef ég fengi
dugmikinn mann til að vinna í þessu
með mér,“ sagði hann.
Jónas Fr. Jónsson, formaður
Stúdentaráðs Háskóla íslands,
sagðist fagna ákvörðun stjórnar
LÍN og sagði þetta árangurinn af
samstöðu námsmanna í lánamálum.
„I þessu svokallaða tilboði kallaði
ég þetta nú ekki ráðherra án ráðu-
neytis heldur ráðherra með sérstök
verkefni og tvö af mikilvægari verk-
efnum, sem þarf að leysa fyrir ára-
mótin, það er að segja stefnuna í
atvinnumálum og uppstokkun stjórn-
arráðsins," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra. „Ég hef
látið lögfræðinga skoða þetta og það
er ekkert í stjórnarskránni sem bann-
Þorsteinn Pálsson; formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Olafur G. Einars-
son, voru á einu máli um það að sjálf-
stæðismenn myndu ekki láta það
óátalið, ef það yrði úr að fela ráðu-
neytislausum ráðherra málaflokka
annarra ráðherra. Ólafur sagðist
ekki trúa því að óreyndu að stjórnar-
þingmenn létu þetta lögbrot yfir sig
ganga. Spurningu blaðamanns um
það hvort til greina kæmi að kæra
þetta mál fyrir landsdómi, ef úr yrði,
svaraði Ólafur með því að þetta yrði
kannski fyrsta verkefni landsdóms.
Einnig væru til lög um ráðherra-
ábyrgð. Landsdómur er samkvæmt
stjórnarskrá ætlaður til að íjalla um
brot ráðherra í embætti, en hefur
aldrei verið kallaður saman frá lýð-
veldisstofnun.
I
I