Morgunblaðið - 15.09.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 15.09.1989, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989 Herferð til styrktar fórnarlömbum umferðarslysa: Vestmannaeyjar: Garðyrkju- félagið veitir viður- kenningar Vestmannaeyjum, GARÐYRKJUFÉLAG Vest- mannaeyja hefur á undanfornum árum veitt viðurkenningar fyrir fallegustu garða sumarsins, í Eyjum. Fyrir skömmu valdi Garðyrkjufélagið fallegustu garðana og heiðraði eigendur þeirra. Að þessu sinni hlutu Sigmar Georgsson og Edda Angantýsdóttir, Smáragötu 18 og Ásta Sigurðar- dóttir og Hreinn Gunnarsson, Ása- vegi 7, viðurkenningarnar fyrir garðana við hús sín, sem þóttu ein- staklega fallegir. Grímur. Lögreglan leitar vitna LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir að þeir, sem urðu vitni að því þegar eldri maður slasaðist á mótum Bolholts og Skipholts þann 6. september, gefí sig fram. Það var klukkan 3.10 áðfara- nótt miðvikudagsins 6. september sem lögreglan fékk tilkynningu um að maður lægi í blóði sínu á mótum Bolholts og Skipholts. Maðurinn, sem er 72-ára, reyndist vera handleggsbrotinn og með höfuðáverka og hefur legið á spítala síðan. Talið er að hann hafi slasast á tímabilinu frá mið- nætti og til klukkan 3. Þeir, sem gefið geta nánari upplýsingar um málið, eru beðnir um að hafa sam- band við Slysarannsóknadeild lög- reglunnar í Reykjavík. Til nánari glöggvunar skal tekið fram, að maðurinn sem slasaðist var klædd- ur í brúnleitan stakk, gráar buxur og strigaskó. Hjónin Edda Angantýsdóttir og Sigmar Georgsson í garði sínnum að Smáragötu 18. Morgunuiaöiö/sigurgeir Jonasson Ásta Sigurðardóttir í garði sínum að Ásavegi 7. Fiiiginn veit hver er næstur — segir Ragnheiður Davíðsdóttir frá áhugahópi um bætta umferðarmenningu EFTIR hörmulegt umferðarslys fyrir rúmu ári þar sem ölvaður maður á stolnum bíl var valdur að dauða ungrar stúlku voru sett á stofh óformleg samtök áhugafólks um bætta umferðarmenningu. Hópurinn stóð fyrir ýmiskonar áróðri, „Akstur er dauðans alvara“ var ein yfirskriftin sem bar þess vitni að tími var kominn til að kveða sterkar að orði um afleiðingar umferðarslysa og ekki fóru sláandi auglýsingar í fjölmiðlum framhjá landsmönnum. Þær konur sem eiga veg og vanda af þessari herferð eru að stórum hluta leikar- ar og fjölmiðlafólk. Nú er verið að hleypa af stokkunum herferð til að styðja fórnarlömb umferðarslysa til þess að koma sér upp viðun- andi húsnæði. Tekið er við framlögum í síma 680000 frá föstudegi en hápunktur söfnunarinnar er þriggja tíma bein sjónvarpsútsend- ing frá Stöð 2 n.k. sunnudagskvöld sem hefst kl. 21 frá Hótel íslandi. Ragnhildur Davíðsdóttir blaða- maður er einn aðstandenda hóps- ins, sem er að hrinda þessari her- ferð af stað. „Áhugahópur um bætta umferðarmenningu eru óformleg samtök hins almenna borgara" sagði Ragnheiður í spjalli við blaðamann Morgunblaðsins. „Stóru verkefnin hafa verið að gangast fyrir áróðri í öllum fjöl- miðlum og í fyrra var útifundur á Lækjartorgi sem heppnaðist mjög vel. Okkar styrkur felst í því að margar okkar starfa, eða hafa starfað við fjölmiðla og við höfum því kannski betri aðstöðu til þess að koma þessum áróðri á fram- færi. Við höfum mætt miklum vel- vilja og fólk hefur sýnt þessu fram- taki mikinn áhuga. Fjölmargir, bæði aðstandendur þeirra sem lent hafa í slysum og aðrir, höfðu sam- band við okkur í auglýstum símatíma. Einnig margir skóla- krakkar sem hafa skrifað ritgerð um umferðarmenningu. Ymis fél- agasamtök hafa beðið okkur að koma á fundi og ráðstefnur, en við erum allar mjög uppteknar við störf“. Hluti af vinnutíma þeirra hefur farið í vinnu fyrir þennan hóp sem ' er um tíu manna kjarni og koma þær saman reglulega heima hjá hver annarri til þess að fundá. Sagði Ragnheiður að vinnuveitend- ur hefðu sýnt þessu máli fullan skilning og starfa tvær úr hópnum á Stöð 2 þaðan sem send verður út þriggja tíma dagskrá á sunnu- dagskvöld. Ýmsum aðilum sem tengjast umferðarmálum verður boðið að ganga í salinn og margir landsfrægir listamenn koma fram endurgjaldslaust. Upprunaleg hug- mynd hjá áhugahóp um bætta umferðarmenningu var að hafa skemmtunina eingöngu í áróður- skyni. Síðan var ákveðið að styrkja SEM hópinn, en það eru samtök endurhæfðra mænuskaddaðra. Söfnunarféð rennur í húsbygging- arsjóð fatlaðra en um 70% þeirra í SEM hópnum hafa fatlast af völd- um umferðarslysa. Sagði Ragnheiður að aðeins ein íbúð á landinu væri sérhönnuð með þarfir fatlaðra í huga og hefði Grensásdeild Borgarspítalans ráð- stöfunarrétt yfir henni. Þó nokkrir úr SEM hópnum eru búsettir í Hátúni 12 og flestir búa við þröng- an kost. „Auðvitað vill þetta fólk lifa eins og við hin þótt það sé bundið við hjólastól, því stór hluti þeirra getur búið eðlilega ef það er aðstaða við hæfi. Fatlað fólk vill ekki láta flokka sig sem sérhóp í þjóðfélaginu, heldur vill það sam- lagast því. En þó margir séu í fullu starfi hefur fatlað fólk ekki sömu möguleikana á að vinna yfirvinnu. I þessu þjóðfélagi hefur enginn efni á því að kaupa sér íbúð á frjáls- um markaði nema að vinna tvöfalt. Við fórum af stað með þessa skemmtun til þess að vekja at- Morgunblaðið/Þorkell Ragnheiður Davíðsdóttir og Þorleifur Kristmundsson. hygli á hörmungum umferðarslysa um leið og við hjálpum fólki sem lent hafa í þeim. Þetta framtak hefði aldrei verið mögulegt nema fyrir velvilja þeirra sem lagt hafa okkur lið með framlagi sínu. Marg- ir þekktustu skemmtikraftar lands- ins gefa vinnu sína og það eru fjöl- margir styrktaraðilar um allt land. Langstærsti styrktaraðilinn sem gerir okkur og Stöð 2 Jietta kleift er Vátryggingafélag Islands. Af öllum útgjöldum hjá tryggingarfé- lögunum eru um 50% þeirra vegna umferðarslysa." í SEM hópnum eru 40 — 50 ein- staklingar á aldrinum 16 til 30 ára og hafa þau lagt á sig ómælda vinnu fyrir þetta átak. „Það kom mér á óvart hve margir af þessum krökkum, sem eru jafnvel lamaðir frá brjósti, hafa getað verið á þeyt- ingi með okkur. Þau hafa sýnt ótrú- iega þrautseigju. Húsnæðisvanda þeirra þarf að leysa, það er þeim meira en hugsjonamál. Þetta fólk hefur fengið góða heilbrigðisþjón- ustu, þá bestu sem völ er á og það er von okkar að þjóðfélagið komi til móts við þetta framtak. Fatlaðir geta ekki kastað sér í húsnæðis- slaginn á sama hátt og þeir sem hafa óskert þrek. Allir geta lent í slysi og enginn veit hver er næst- ur. Ef allir ækju um göturnar með það í huga að þeir gætu hugsan- lega orðið næsta fórnarlamb yrðu ekki öl! þessi slys. Það er afskap- lega dýrkeypt reynsla að þurfa að reka sig á til þess að vakna til vit- undar um hörmungar umferðar- slysa“ sagði Ragnheiður að lokum. Maður lærir að lifa á ný FÓRNARLÖMB umferðarslysa verða æ fleiri. Margir hljóta varan- leg örkuml, af eigin gáleysi, eða annarra, og eru bundnir við hjólastól alla ævi. Enginn veit fyrr en peynt hefur. Þorleifúr Kristmundsson er einn þeirra sem lifað hefúr við lömun í tólf ár og eins og öllum sem slíkt hafa reynt er slysið honum minnis- stætt. Þorleifúr segir frá reynslu sinni, en hann er einn af fulltrú- um SEM liópsins sem áhugamenn um bætta umferðarmenningu styrkja með framtaki sínu. „Þetta var 20. ágúst árið 1977. Bílvelta á Snæfjallaströnd við ísa- fjarðardjúp. Tveir sluppu, en ég var í drápssætinu, ekki með belti. Ég lamaðist á sjötta og sjöunda hálslið og mænuskaddaðist, lam- aðist upp að viðbeini. Læknirinn kom til mín eftir slysið og sagði við mig að ég yrði bundinn við hjólastól alla ævi. Ég trúði því ekki. Þetta var mikil lífsreynsla. Áður var ég á sjónum. Ég faldi mig á bak við brennivínsflösku fyrstu tvö árin á eftir. Margir fela sig á bakvið eitthvað. í rauninni var ég að reyna að ná í lífið sem ég lifði áður. Það kdm fyrir að ég var á pöddufyll- erí í fimm sólarhringa og eitt sinn vaknaði ég á sjúkrahúsi með leg- usár. Maður verður alveg ósjálf- bjarga, þarf að læra að lifa upp á nýtt. Læra annað mynstur. Bara það að klæða sig tekur hálf- an til einn klukkutíma á hveijum morgni. Eftir að ég kom á Sjálfsbjörg árið 1980 hætti ég drykkjurugli. Þar hitti ég konuna mína sem var st-arfsstúlka þar. Fljótlega fórum við að stefna að því að búa saman og búum nú í Hjaltabakka. Árið 1981 kom saman kjarni fólks og við ætluðum ekki að beijast fyrir neinu sérstöku þá, einungis að styrkja hvert annað. Seinna var sett á stofn starfsþjálfun fyrir fatlaða. Þar voru kennd sex fög, meðal annars tölvufræðsla. Þetta er mjög góður skóli. Okkur er þarna gert fært að komast aftur út á vinnumarkaðinn. Ég hafði verið lamaður í átta ár og enga vinnu fengið. Eftir að ég lauk námi leið ekki nema einn og hálf- ur mánuður og ég var kominn í starf. Nú vinn ég allan daginn, pikka á tölvuborð með sérstöku priki. Mér finnst mikið hafa breyst síðastliðin ár í samskiptum fatl- aðra og ófatlaðra, það er miklu meiri skilningur, til dæmis hjá vinnuveitendum. Þetta stefnir allt í rétta átt.“ Þorleifur er ekki sá eini sem hefur sitthváð út á aksturslag Islendinga að setja. „Það er ein- kennandi fyrir íslenska ökumenn þetta tillitsleysi í umferðinni. Ég keyri bíl í dag og sýni öðrum ökumönnum tillitssemi. Það hef ég lært. En um leið og ég gef öðrum bílstjórum tækifæri, hleypi t.d. bíl fram fyrir mig á götunni, þá flauta allir í kringum mann. Það eru allir að frekjast áfram. Þetta aksturslag er til skammar". Þorleifur sagði góð samskipti vera milli félaga í SEM hópnum og væru fundir alltáf einu sinni í mánuði, þar sem málefni af ýmsu tagi væru tekin fyrir. „Nú eru það húspæðismálin sem þarf að leysa. Sumir búa svo þröngt að þeir geta ekki einu sinni boðið heim gestum. Ég er heppinn, því ég bý við ágætar aðstæður. En það eru margir sem þurfa aðstöðu við hæfi og það vantar aiveg sér- hannaðar íbúðir“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.