Morgunblaðið - 16.09.1989, Page 1

Morgunblaðið - 16.09.1989, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK 210. tbl. 77.árg.____________________________________LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989___________________________________Prentsmiðja Morgxinblaðsins Reuter Beðið fyrir Móður Teresu SYSTURNAR í trúboðsstöð Móður Teresu í Kalkútta á Indlandi tóku í gær til við að fasta og biðja fyrir konunni, sem hefur helgað allt sitt líf því einu að lina þjáningar meðbræðra sinna, en hún er nú alvarlega veik. Móðir Teresa er 79 ára að aldri og lifandi dýrlingur í augum margra. I 40 ár hefúr hún starfað meðal þeirra, sem bágast eiga í Kalkúttaborg, og var sæmd friðarverðlaunum Nóbels fyrir störf sín árið 1979. Bandaríkin: Óvæntur bati í efiiahagslífínu Washington, London. Reuter. Viðskiptahallinn i Bandaríkjun- um var minni í júlí en hann liefur verið um fímm ára skeið og enn kulna eldarnir undir verðbólgu- kötlunum. í Bretlandi er verð- bólgan líka á niðurleið og hefúr lækkað annan mánuðinn í röð. Vegna þessara tíðinda hækkaði gengi dollarans verulega og komst hann vel yfir tvö vestur-þýsk mörk. Á fjármálamörkuðunum hefur fréttunum um minni viðskiptahalla í Bandaríkjunum verið vel tekið en hann minnkaði um 5,3% frá í júní og var 7,58 milljarðar dollara. Þá lækkaði einnig heildsöluverð í ágúst- mánuði um 0,4% og sýnir það, að farið er að draga úr verðbólguþrýst- ingnum. Hefur heildsöluverð þá lækkað í þtjá mánuði samfellt. Hag- fræðingar telja, að vegna þessa kunni Seðiabankinn að slaka eitthvað á vaxtatakinu. - Búist hafði verið við, að viðskipta- hallinn yxi í júlí frá fyrra ntánuði en innflutningur dróst meira saman eri spáð hafði verið. Munaði mestu um minni eftirspurn eftir fjárfesting- arvöru, búnaði og efnum til iðnaðar. Stjórnarmyndunarviðræður norsku borgaraflokkanna: Afstaðan til Evrópubanda- lagsins getur skipt sköpum í Bretlandi minnkaði verðbólga í ágúst annan mánuð í röð og svarar nú til 7,3% á ári. Nigel Lawson §ár- málaráðherra sagði, að aðgerðir sínar og stjórnvalda væru farnar að bera árangur, en tók fram, að vextir yrðu háir enn um sinn. Verðbólga var ekki nema um 3% í Bretlandi á öndverðu síðasta ári en fór þá á mikinn skrið og er enn með því mesta, sem gerist í iðnríkjunum. Ottast margir, að launakröfur starfs- manna í bílaiðnaði geti hleypt henni upp aftur, en þeir fara fram á 10% kauphækkun. Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. Á MÁNUDAG ætla fulltrúar Hægriflokksins, Kristilega þjóðarflokks- ins og Miðflokksins að reyna að fá úr því skorið hvort þeir geta orðið ásáttir um nýja, borgaralega stjórn í Noregi. Spurningarnar, sem þeir verða að svara, eru þessar: Hvernig á minnka atvinnuleys- ið, hve mikið á að lækka skattana, hvernig á að taka á umhverfismál- unum og — síðast en ekki síst — hver á afstaða Norðmanna að vera til Evrópubandalagsins. Fyrir kosningar gerðu miðflokks- menn það lýðum ljóst, að þeir sett- ust ekki í neina stjórn, sem vildi aðild að EB, og þetta mál verður vafalaust erfiðasta úrlausnarefnið í viðræðum flokksformannanna, þeirra Jans P. Syse, Kjells Magne Bondeviks og Johans J. Jakobsens. Bondevik, formaður Kristilega þjóðarflokksins, sem líklega yrði utanríkisráðherra í borgaralegri stjórn, er sáttasemjarinn í viðræð- Holland: Yantrúuð lögregla Amsterdam. Reuter. HOLLENSKA lögreglan á nú í stökustu vandræðum með skil- rikjalausan Kínveija, sem stendur á því fastar en fótunum, að hann hafi sofúað í lestarvagni heima í Kína og vitað það næst af sér, að hann var kominn til Hollands. Kínveijinn er nú á bak við lás og slá í Leidenborg énda á lögregl- an bágt með að trúa sögunni. „Við getum alls ekki skiiið hvern- ig hægt er að fara peninga- og pappíralaus um Kína, Sovétríkin, Pólland, Austur- og Vestur- Þýskaland og Holiand og það án þess að bregða blundi eða vekja athygli landamæravarða," sagði Dick Graveland, talsmaður lög- reglunnar. Kínveijinn heldur fast við sög- una sína, að hann hafi sofið af sér 8.000 km lestarferð, og breyt- ir engu þótt lögreglan hafi fengið upplýsingar um, að hann , hafi komið til Hollands í febrúar síðastliðnum og þá með skipi. unum. Nýtur hann æ meiri virðingar . i norskum stjórn- málum og er haft á orði, að geti hann ekki brúað bilið milli Hægri- flokksins og Miðflokksins, sé Bondevik það á einskis manns færi. Flokksformennirnir buðust til að segja sigurvegara kosninganna, Carl I. Hagen, leiðtoga Framfara- flokksins, frá gangi viðræðnanna en hann kvaðst ekkert vilja af þeim vita þar sem hans eigin flokkur fengi ekki að vera með. Hagen er líka þegar farinn að hefna sín á Hægriflokknum og hefur tilkynnt, að framfaraflokksmennirnir ætli að styðja frambjóðanda Verkamanna- flokksins í embætti þingforseta. Þeim starfa gegndi hægrimaðurinn Jo Benkow á síðasta þingi. Eru þrír ráðherrar í Verkamannaflokks- stjórninni taldir líklegastir í emb- ættið, Sissel Rönbeck umhverfis- málaráðherra, Bjarne Mörk Eidem sjávarútvegsráðherra og Tove Strand Gerhardsen félagsmálaráð- herra. Búist er við, að viðræður borg- araflokkanna standi í viku og þann tíma að minnsta kosti mun Gro Ilarlem Brundtland sitja áfram við stjórnvölinn-. „í landinu verður að vera ríkisstjórn," segir Gro og þeir eru raunar ófáir, sem búast við, að hún muni stjórna áfram þegar borg- araflokkarnir hafa komist að raun um, að það er fleira, sem sundrar þeim en sameinar. Austur-Þýskaland: 14.000 flýðu á flórum dögum Zíirich. Frá Öimu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgnnblaðsins. RUMLEGA þrjár milljónir Aust- ur-Þjóðverja hafa yfirgefið föður- land sitt síðan Þýska alþýðulýð- veldið var stofnað fyrir fjörut.íu árum. Vestur-þýsk stjórnvöld reikna með að 80.000 manns flytj- ist löglega til Sambandslýðveldis- ins í ár en óvíst er hversu flótta- mennirnir verða margir. Tæplega 14.000 Austur-Þjóðveijar hafa flú- ið um Ungveijaland síðan það opnaði landamærin til vesturs að- faranótt mánudags. Mestur var fólksstraumurinn, 331.000 manns, vestur yfir landa- mærin árið 1953 þegar Berlínarupp- reisnin var gerð. Árið 1956, þegar Ungveijar risu upp gegn Sovétmönn- um, fluttust 275.000 Þjóðveijar vest- ur og þeim fjölgaði stöðugt þangað til Berlínarmúrinn var reistur 13. ágúst 1961 til að stöðva fólksflutn- ingana. Síðan hafa 600.000 manns flutt vestur yfir landamærin, þar af hafa 250.000 flúið land.en hinir hafa fengið ieyfi .yfirvalda tii að fara á brott. Ekki fyrir loffthrædda I Bandaríkjunum - tvH heitaþeirjárna- menn, ofurhugarn- ir, sem reisa burð- arvirkin í háhýsun- um vestur þar, og þarf ekki að taka ' X \ fram, að svíma- Y Wm gjarnir menn og lofthræddir sækj- ■Æ > ■ xWfjE-T ast lítt eftir þessum starfa. Járnkarl- arnir á myndinni eru að reisa hús á Broadway í New fh! f York og þegar þeir voru komnir nógu rnlmi ’ illfimmi I - H : • hátt upp, í 225 metra hæð yfir jörðu, settu þeir ••‘niLlBsi f /1 upp þjóðfánann að góðum og gömlurn sið. Reuter

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.