Morgunblaðið - 16.09.1989, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 16.09.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989 19 Dmitri Alexeev. Dmitri Alex- eev hjá Tón- listarfélaginu RÚSSNESKI píanósnillingurinn Dmitri Alexeev mun heíja vetrar- starf Tónlistarfélagsins með tón- leikum í íslensku óperunni nk. mánudag, 18. sept. kl. 20.30. Heimsókn Alexeevs til Islands árið 1987 og tónleikar hans þá með Sinfóníuhljómsveit íslands og íyrir Tónlistarfélagið eru öllum ógley- manlegir sem heyrðu. A tóiileik- unum á mánudagskvöld leikur hann Sónötu í a-moll K.310 eftir Mozart, Camival eftir Schumann og Sónötu í h-moll op. 58 eftir Ghopin. Á vegum Tónlistarfélagsins verða haldnir 6 tónleikar í vetur. Auk tón- leikanna á mánudag mun finnska sópransöngkonan Margareta Haver- inen syngja, laugardaginn 4. nóvem- ber, lög eftir Brahms, Liszt, Duparc og Tshaikovsky' við undirleik Colin Hansen. Þriðjudaginn 9. janúar mun Paul Zukofsky ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur flytja í fyrsta sinn hér á landi verk eftir Morton Feld- man er nefnist „For John Cage“. Sunnudaginn 28. janúar munu Einar Jóhannsson og Philip Jenkins leika verk fyrir klarinett og píanó og mánudaginn 12. rhars kemur mez- zósópransöngkonan Rannveig Bragadóttir heim og hún mun þá halda tónleika ásamt Jónasi Ingi- mundarsyni. Síðustu tónleikarnir í vetur verða 24. mars, en þá mun finnski sellóleikarinn Arto Noras leika, ásamt Gísla Magnússyni, verk eftir Schubert, Schumann, Brahms og Paganini. Allir tónleikarnir verða haldnir í íslensku óperunni nema tónleikar Paul Zukofsky sem verða í Langholtskirkju. Miðar á einstaka tónleika verða að venju seldir við innganginn. Námsstefna um illa með- ferð á börn- um hérlendis Deild heilsugæsluhjúkrunar- fræðinga og deild barnahjúkr- unarfræðinga hafa ákveðið að efna til tveggja daga námsstefhu 21. og 22. september næstkomandi um illa meðferð á börnum, en í fréttatilkynningu frá Hjúkruna- rfélagi íslands segir að bæði and- leg og líkamleg misþyrming barna á Islandi sé útbreiddara og alvar- legra vandamál heldur en margan gruni og með námsstcfnunni vilji hjúkrunarfræðingar opna umræð- una um málefnið. Aðalfyrirlesarar á námsstefnunni verða Norðmennirnir dr. Karen Kil- len Heap félagsráðgjafi og Per Skjælaen yfirlæknir. Hafa þau bæði starfað mikið með misþyrmdum börnum og unglingum. 14 Islending- ar munu einnig halda erindi og gera grein fyrir því s hver staða þessara mála er hén á landi. I hópnum eru m.a. heilsugæsluhjúkrunarfræðing- ar, barnahjúkrunarfræðingar, barna- geðlæknar, félagsráðgjafar og emb- ættismenn úr dómskerfinu. Náms- stefnan er fyrst og fremst ætluð hjúkrunarfræðingum sem starfa á barnadeildum, heilsugæslustöðvum, sængurkvennadeildum og slysadeild- um. Öðrum heilbrigðisstéttum er einnig boðin þátttaka, einnig kennur- um og fóstrum. Námsstefnan hefst .í ráðstefnusal ríkisins Borgartúni 6 klukkan 8.30 að morgni. Norðurlönd: Sjónvarpsstöðvar sýna Næturgöngu ALLAR ríkissjónvai-psstöðvarnar á Norðurlöndum, að hmm dönsku undanskilinni, hafa ákveðið að taka til sýninga leikrit Svövu Jakobs- dóttur, Næturgöngu, en það var frumsýnt í íslenska ríkissjónvarpinu um hvítasunnuna. Danska ríkissjónvarpið íhugar einnig að sýna verkið. í Næturgöngu lýsir höfundurinn kjörum vinnuhjúa hér á landi á fyrri öldum og allt fram á þá tuttugustu. Er verkið að nokkru byggt á sann- sögulegum atburðum, sem áttu sér stað á árum fyrri heimstyrjaldarinn- ar. Segir þar frá vinnukonunni Guðnýju, uppreisn hennar gegn ríkjandi viðhorfum og ástarsam- bandi hennar og vinnumannsins á bænum. Vinnukonan er leikin af Eddu Heiðrúnu Backman, vinnu- maðurinn af Þór Túliníus og með önnur hlutverk fara þau Helga Bachmann og Helgi Skúlason. Leik- stjóri var Stefán Baldursson, Ómar Magnússon og Páll Reynisson önn- uðust kvikmyndun og Agnar Gú- stafsson hljóðsetningu.- Edda Heiðrún Backman og Þór Túlíníus í hlutverkum sínum í sjón- varpsleikritinu Næturgöngu eftir Svövu Jakobsdóttur. Á nýju Shellstödinni við Bústaðaveg eiga viðskiptavinir Skeljungs von á góðu! Góðri aðstöðu, góðu vöruvali og góðri þjónustu. Við treystum á að þið kunnið vel að meta nýju Shellstöðina við nýja Bústaðaveginn í Öskjuhlíð. Stöðin neðanviðBústaðaveg-viðSkógarhlíð-verðurstarfrækt áfram. ■ x , ■: o * - 2 Á báðum stöðum verður þjónusta hér eftir sem hingað til eins og sæmir á Shellstöð. Alltaf til reibu á réttum stað SHELLSTÖÐIN VIÐ BÚSTAÐAVEG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.