Morgunblaðið - 16.09.1989, Side 26

Morgunblaðið - 16.09.1989, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989 Morgunblaðið/Rúnar Þór Krakkarnir í fyrsta bekk í Laugalandsskóla í Öngulstaðahreppi voru að koma úr sundi, en kennsla hófst. í skólanum á miðvikudag. Á myndinni eru frá vinstri Auðrún, Rósa, Eva, Kristján, Hallgrímur og Iris á öðru borðinu og á hinu Bóas, Viðar, Tómas og Sindri. Aftast stendur Garðar Karlsson skólastjóri. Við komum fljúgandi Við lyftum okkur til flugs frá Reykjavíkurflugvelli og hefj- um sérstakt kynningarátak utan borgar á starfseminni og ferðum þeim sem við höfum að bjóða. Við komum á Dornier-vélinni okkar sem jafnframt verður til sýnis að utan og innan á meðan á hverri heimsókn stendur. Við komum í heimsókn ! 1 p a \j\i p Hótel KEA 17. september Kl. 14:00-17:30 Vctraráætlun okkar Við ætlum að kynna fyrir- tækið, vetraráætlun okkar, borgirnar sem við fljúgum til og ferðamöguleika út frá þeim. Auk sölufólks verða á staðnum tveir flugmenn og ein flugfreyja sem ætla að kynna störf sín. I'rúin f llamborg Sú ágæta frú verður með f för og mun hefja upp raust sína og syngja fyrir við- stadda og eflaust gera eitthvað fleira óvænt og skemmtilegt. Henni til að- stoðar verður stúlka afyngri kynslóðinni. Spnhe ARNARFLUG Lágmúla 7, sími 84477 Ferðatilboð - ferðagetraun Við gerum ykkur líka sér- stakt ferðatilboð sehn gildir aðeins þann dag sem kynn- ingin stendur. Þar að auki efnum við einnig til ferða- getraunar á öllum sjö stöðunum með farmiðum til Amsterdam í vinning. Skólar í Eyjafírði byrjaðir: Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Laugalandsskóla SKÓLAR í Eyjafirði hófúst á miðvikudag, en kennsla hefúr ekki áður hafist svo snemma. Ástæða þess að skólarnir hefjast fyrr nú en að jafn- aði er m.a. sú að ekki þótti ástæða til að þjappa skólastarfinu eins mikið saman og gert hefúr verið og einnig var Tónlistarskóli Eyjafjarö- ar stofúaður á síðasta ári og er kennt í öllum skólunum, þannig að samræming er nú á upphafi og skólalokum. Við Laugalandsskóla í Öngul- staðahreppi hefur verið unnið ötul- 'lega í sumar til að bæta aðbúnað nemenda og kennara, en þó er tals- vert verk eftir þar til framkvæmdum verður lokið. í skólanum er 67 börn frá forskóla og upp í 6. bekk og hefur hópurinn sem stundar nám við skólann farið vaxandi á undanförn- um árum. Garðar Karlsson skóla- stjóri sagði að kennt væri í þremur bekkjardeildum, en reynt væri að hafa forskólann sér og eins síðasta bekkinn. „Það er nokkrum erfiðleik- um bundið að hafa fyrirkomulagið með þessum hætti, sérstaklega þegar kennara hefur vantað við skólann," sagði Garðar. í vetur eru allar kenn- arastöður mannaðar réttindakennur- um. Skólinn er-til húsa í gamla hús- mæðraskólanum að Laugalandi. Hreppurinn keypti húsnæðið árið 1983 og var þá ein eiginleg skóla- Jónas Viðar sýn- ir í Safnahúsinu Jónas Viðar Sveinsson opnar málverkasýningu í Safnahúsinu á Sauðárkróki í dag, laugardag, kl. 14.00. Jónas er Akureyringur, fæddur árið 1962. Hann útskrifaðist úr mál- unardeiid Myndlistarskólans á Akur- eyri 1987. Þetta er önnur einkasýn- ing Jónasar. Á sýningunni verða akrílmálverk, öll ný af nálinni. Sýning Jónasar stendur til sunnu- dagsins 24. september og er opin alla virka daga milli 16 og 22 og frá 14-20 um helgar. stofa sem unnt var að nota til kennsl- unnar, en að öðru leyti var einungis um að ræða heimavistarherbergi fyriverandi námsmeyja húsmæðra- skójans. Árið 1984 var hafist handa um breytingar á miðhæð'skólans og var hún endurgerð jafnframtþví sem nýr stigagangur var gerður. Ári síðar var farið í þriðju og efstu hæð skólans og sett upp myndarleg aðstaða til mynd- og handmennta ásamt lítilli stofu þar sem fyrsta bekk er nú kennt. Á árunum 1986-7 var hlé gert á byggingarframkvæmdum, en áhersla lögð á húsgagnakaup fyrir skólann. Þráðurinn var svo tekinn upp á síðasta ári, en þá voru þrengsli orðin mikil og því var skólastofa stækkuð með því að bijóta niður vegg. „Það lá fyrir síðasta vor að gera þyrfti mikið átak varðandi endurbæt- ur, en þá var komin upp sú staða að skolplögnin reyndist ónýt. Allt var rifið niður og bijóta þurfti upp gólf- ið. Bæði hita- og skólplagnir voru endurnýjaðar og skipt var um jarð- veg. Þá var einnig sett upp nýtt loft og ný lýsing og loks voru settar upp nýjar innréttingar og ný tæki keypt í eldhús. Tvær nýjar snyrtingar voru gerðar og nú er unnið við smíðastof- una og ætti hún að vera tilbúin eftir hálfan mánuð,“ sagði Garðar. Fram- kvæmdirnar segir hann kostnaðars- amar fyrir hreppinn, en áætlað er að þær nemi um átta milljónum króna. Margt er þó ógert og nefndi Garðar m.a. verkefni við stjórnunar- álmu og ýmislegt útivið, en þar má nefna gerð stétta og leikaðstöðu fyr- ir börnin. Sæborg hf. Opna bómismarkað í iðn- görðum við Fjölnisgötu SÆBORG hf., sem rekur Matvörumarkaðinn á Akureyri, hefúr sótt uni leyfí til að setja upp bónusverslun í húsnæði við Fjölnisgötu, þar sem áður voru iðngarðar. Bygginganeftid hefúr veitt timabundið starfsleyfi fyrir slíkri verslun, en leyfið er bundið því að verslunin fari ekki inn á svið hverfisverslana. un í anda bónusverslana sem starf- andi eru í Reykjavík. „Við stefndum að því að opna verslunina 1. október næstkomandi, en það er útséð um að sá draumur rætist," sagði Hrafn. Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar sagði að málið hefði ekki komið til umræðu á fundi bæjar- ráðs á fimmtudag og væri því óaf- greitt. Hann sagði að í raun væri ekkert sem stöðvaði framkvæmdina sem slíka, en menn hefðu rætt um hvort starfsemi af þessu tagi ætti heima á skipulögðu iðnaðarsvæði. „Það er fyrst og fremst staðsetning- in sem vefst fyrir mönnum," sagði Sigurður, en nýlega var veitt starfs- leyfi fyrir hverfaverslun skammt frá þeim stað þar sem fyrirhugað er að opna bónusmarkaðinn. Þá sagði hann einnig að skilyrði bygginga- nefndar fyrir leyfisveitingunni - að verslunin fari ekki inn á svið hverfa- verslunar — væri hægt að túlka á marga vegu. Hrafn Magnússon hjá Sæborgu segir að félagið hafi viljað kaupa um 380 fermetra húsnæði í fyrrverandi iðngörðum við Fjölnisgötu á Akur- eyri. Þar væri ætlunin að opna versl- Sólveig Eggertz í Gamla Lundi Málverkasýningu Sólveigar Pét- ursdóttur Eggertz lýkur á morgun, sunnudag. Sýningin verður opin um helgina, frá kl. 14.00-22.00. Sólveig fæddist í Reykjavík árið 1925. Hún stundaði listnám í Reykjavík á árunum 1943-45 og í London 1946-47. Síðan aftur í Reykjavík 1949-50. Sólveig hefur haldið fjölda sýn- inga, bæði hér á Iandi og erlendis, má þar nefna Kaupmannahöfn, Lon- don, Hannover, Seattle, Stavanger og Baden-Baden. Einnig liefur hún verið með sýningar á veitingahúsinu Gullna Hananum frá 1986. Akureyrarvöllur kl. 14.00 í dag. ÞÓR # ÍA® VÖR? BATASMIOJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.