Morgunblaðið - 16.09.1989, Side 29

Morgunblaðið - 16.09.1989, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989 29 Sækjast sér um líkir eftirÁsu Ketilsdóttur Vegna umræðna um málefni Reykjanesskóla vil ég að eftirfar- andi komi fram. í ij'ölda ára höfum við notið starfa Skarphéðins Ólafssonar og konu hans Sigríðar Skarphéðinsdóttur. Börn okkar hafa mætt þar hlýhug og vináttu sem þau hafa endurgold- ið á sama hátt sem von er — færi vel ef margir skólastjórar ættu jafn virka vináttu nemenda sinna. Það kom því yfir okkur eins og köld gusa þegar fréttist að mennta- málaráðherra ætlaði að víkja Skarphéðni úr starfi og það í byijun skólaárs. Ég, ásamt fleiri foreldr- um, fór til Reykjavíkur — í fylgd Skarphéðins og Halls Karlssonar nýráðins kennara. — Við ræddum þar við menntamálaráðherra Svav- ar Gestsson, — ráðuneytisstjóra Sigurð Helgason og fræðslustjóra Vestflarða, Pétur Bjarnason. Við fórum fram á að breytt yrði um stefnu í málefnum Reykjanesskóla og Skarphéðinn Ólafsson yrði áfram skólastjóri eins og Sigurður Helga- son ráðuneytisstjóri sagði okkur í vor að við mættum treysta. Við lögðum líka til að skipt yrði um skólanefndarformann. Við vitum að þessi umboðsmaður menntmálaráð- herra hefur með verkum sínum unnið að því að skólinn verði lagður niður og þar með stuðlað að eyð- ingu byggða við Djúp. Við þessa „Hann sýnir að hann metur meira skóla- nefiidarformanninn en vilja og hag foreldra og barna — öfiigt við þá stefnu sem hann sagðist fylgja í máleftium Öldu- selsskólans.“ iðju hefur hann notið stuðnings fyrrverandi bryta, Heiðars Guð- brandsssonar. Ráðherra hreytti ónotum í okkur útskagafólk fyrir að koma á sinn fund og neitaði að verða við erindi okkar. Hann sýnir að hann metur meira skólanefndar- formanninn en vilja og hag foreldra og barna — öfugt við þá stefnu sem hann sagðist fylgja í málefnum Ölduselsskólans. Ég tel mjög miður að Pétur Bjarnason fræðslustjóri Vestijarða skuli aldrei hafa beitt sér gegn rakalausum og tilefnislausum árás- um Jóns Guðjónssonar á Skarphéð- in Ólafsson. Fræðslustjóri Vest- íjarða hefur með framkomu sinni brugðist Reykjanesskóla og lagt byggðaeyðingaröflum lið — í stað þess að styðja þolendur þessa máls sem eru börn héraðsins og foreldrar þeirra. hann tekur ekki í árina með þeim sem minna mega sín, á hærri stöðum. Við vitum ekki hvað við tekur. Vilji þessara ráðamanna menntamála hér er að leggja skólann niður. Það er búið að flæma úr starfi góðan og gegnan mann sem átti traust og vináttu héraðsbúa ef und- an er skilinn hluti skólanefndar undir forystu skólanefndarfor- manns sem starfar í umboði ráð- herra. Á fundi barnaskólanefnarinnar þann 11. mars 1988, lýsti sú skóla- nefnd fyllsta trausti á Skarphéðin Ólafsson. Ekki verður auðfundinn skólastjóri sem þekkir jafnvel að- stæður við Djúp, heimilin og fólkið og á vináttu þess og traust — eins og ljóst varð með undirskriftum héraðsbúa þegar árásir Jóns Guð- jónssonar bytjuðu. Vel væri ef margir skólastjórar hefðu undir höndum jafn almenna traustyfirlýs- ingu og Skarphéðinn Ólafsson fékk þá frá fólkinu í héraðinu og starfs- mönnum skólans. Höfundur býrað Laugalandi við ísafjarðardjúp, erforeldri og áhugamaður uni velferð Reykjanesskóla. Morgunblaðið/Rúnar Þór Gústaf Bollason heldur sína fyrstu einkasýningu í Listasafiii ASÍ. Gústaf Bolla- son sýnir í Listasafiii ASÍ GÚSTAF Bollason opnar mál- verkasýningu í Listasafni ASÍ sunnudaginn 17. september kl. 16.00 og verður hún opin til kl. 20.00. Sýningin stendur til 1. október næstkomandi og verður opin dag- lega frá kl. J.4.00-20.00. Gústaf fæddist 6. október árið 1966. Hann útskrifaðist frá Mynd- lista- og handíðaskólanum síðastlið- ið vor. Sýningin í Listasafni ASÍ er fyrsta einkasýning Gústafs, en hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum áður. Á sýningunni verða aðallega olíumálverk, flest unnin á þessu ári eða því síðasta. Söngriám- skeið Agústu Ágústsdóttur í VETUR mun söngskóli Ágústu Ágústsdóttur starfa með breyttu sniði. Kennslan fer fi’am í formi námskeiða, þrjá eftirmiðdaga í senn frá klukkan 17 til 21. Síðasta dag hvers námskeiðs verður kennslan opin og gefst fólki þá kostur á að fylgjast með kennsl- unni samkvæmt nánara umtali. Þá verður stefnt að því að halda tón- leika í lok hverrar annar, en hver önn samanstendur af þremur nám- skeiðum. Fyrirmyndin að þessu formi kennslunnar er sótt til Alþjóðlega tónlistarnámskeiðsins í Weimar í Austur-Þýskalandi og kennslan byggð á söngtækni prófessors frú Hanne Lore Kuhse í Berlín. Pianóundirleikur stendur þátt- takendum til boða. Fyrsta nám- skeiðið verður í Laugarnesskólan- utn í Reykjavík, dagana 19.-21. september nk. frá klukkan 17 til 21. (FrcttatiIkynniIlg•) Oskum Gúnumvinnustofunni hf. til hamingju med kröftuga endurreisn fyrirtækisins eftir stórbruna og eyðileggingu þann 4. janúar sl. VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF Gúmmívinnustofan hf. hafði tryggt eignir sínar með brunatryggingu á húseign og lausafjármunum ásamt rekstrarstöðvunartryggingu. Þessar vátryggingar gerðu fyrirtækinu m.a. kleift að standa að endurbyggingunni með þessum myndarlega hætti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.