Morgunblaðið - 16.09.1989, Page 34

Morgunblaðið - 16.09.1989, Page 34
■MOK(jU,Nl&ApiÐ LAUGARDAGUR, 16,- SEPTEMBER 1989 fclk í fréttum IÐJUSEMI Oddvitinn að mála Fréttaritari Morgunblaðsins lagið vill að settir verði á allar rakst á Ingunni St. Svavars- bryggjur. „Það verður að spara“ dóttur, oddvita Presthólahrepps, á sagði Ingunn „og ég greip í þetta Kópaskeri í málningai-vinnu. Odd- þvi það var ekkert meira aðkall- vitinn var að mála svokallaða andi á skrifstofunni." bryggjustiga sem slysavarnafé- — Silli Liz með kærastanum sínum Larry Fortensky. LIZ TAYLOR Nýbúin að læra að aka bíl Elizabeth Taylor sem er 57 ára gömul er nýbúin að læra að aka bíl. Leikkonan sem hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul hefur alla tíð haft glæsibifreið og bílstjóra til að aka sér hvert sem hún þurfti að fara. Hún ákvað þó að læra sjálf að aka bíl, bara sér til skemmtunar. Námið gekk mjög vel og Liz náði prófinu í fyrstu tilraun. Hún mun fljótlega koma fram sem gestur í tveimur þáttum af Dallas og fyrir það viðvik fær leikkonan litlar 24 milljónir. vB ELDHUS OG BAÐ breytir um svip ið höfwn opnað nýjan og glæsilegan sýningarsal að Funahöfða 19 Þar er lögð áhersla á gæða innréttingar til heimilisins, góða hönnun, nýstárlegt útlit og persónulega þjónustu. Það er spennandi að heimsækja okkur. Sjáumst! Oddviti Presthólahrepps að mála bryggjustiga. Morgunblaðið/Silli Funahöfða 19, sími 685680 POPP Simon Le Bon bráðum pabbi I ítið hefur heyrst frá söngvar- l—anum Simon Le Bon á þessu ári en hann átti hug og hjörtu margra ungra meyja á meðan hann var í hljómsveitinni Duran Duran. Simon er nú að verða pabbi í fyrsta sinn en konan hans Yasmin á von á sér einhvern næstu daga. Þessi mynd var tekin af þeim þegar þau brugðu sér í bíó um daginn. HJONABAND Enn ástfangin eftir átta ár Algengt er að hjónabönd banda- rískra leikara endist af ein- hveijum ástæðum mun skemur en hjá fólki í öðrum starfsgreinum. En sjónvarpsleikarinn Joe Spano hefur verið giftur konu sinni Joan í átta ár og þau segjast enn vera jafn ást- fangin og þau voru þegar þau kynnt- ust fyrst. Margir kannast við Spano úr sjónvarpsþáttunum Hill Street Blues sem sýndir voru í Ríkissjón- varpinu fyrir nokkrum árum en eru núna á Stöð 2. Spano hefur í mörg ár farið þar með hlutverk Henrys Goldblumés lögreglufulltrúa. Joan, kona hans, hefur haldið sig frá sviðsljósinu og reynt að varðveita einkalíf þeirra en hjónin leyfðu þó að þessi mynd væri tekin af þeim á heimili þeirra nú í sumar. Þau eiga mörg sameiginleg áhugamál, eins og garðyrkju og þau hafa gaman af því að ferðast og borða góðan mat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.