Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGÁftb'ÁÖ’UR ifi. SEITEMBKR 1989 + KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Pétur Pétursson með á ný GUÐNI KJARTANSSON, lands- liðsþjálfari, gerði sex breyting- ar á síðasta landsliðshóp fyrir leikinn gegn Tyrkjum í undan- keppni HM á Laugardalsvelli á miðvikudag. B I jarm Sigurðsson, sem var meiddur, er ísland tapaði 3:0 fyrir Austur-Þjóðvetjum, tekur sæti Friðriks Friðrikssonar í markinu. Ólafur Gottskálksson var valinn í hópinn í fyrsta sinn, en hann hefur staðið sig vel í markinu með U-21 landsliðinu og Guðmundur 'Hreið- arsson dettur út. Ólafur Þórðarson var í banni í síðasta leik, en skiptir við Sævar Jónsson, sem tekur út leikbann. Pétur Pétursson tekur stöðu Guðmundar Torfasonar, sem verður í banni. Þorvaldur Örlygsson kemur inn fyrir Gunnar Oddsson og Sigurður Jónsson fyrir Ómar Torfason. Eftirtaldir leikmenn voru valdir í 16 manna hópinn (landsleikjafjöldi í sviga): Síðasti stórleikur sumarsins VAllR - á Hlíðarenda í dag kl. 14.00. KR m SJOVA ALMENNAR The/unofL gæðagler MONDOITALIA ’90 fótboltar Bjami Sigurðsson, Val (30) ÍÁ (0) Guðni Bergsson Tottenham (29) Ólafur Þórðarson KR (35) KR (9) Viðar Þorkelsson Þorvaldur Örlygsson, Fram (25) KA (8) Iþróttir helgarinnar Knattspyrna Laugardagur kl. 14 1. deild Valur- KR..............Valsvelli ÍBK-KA...........Keflavíkurvelli FH - Fylkir...........Kaplakrika Fram - Víkingur..Laugardalsvelli Þór - ÍA..........Akureyrarvelli 2. deild Selfoss - Víðir.....Selfossvelli Völsungur - Tindastóll ...Húsavíkurvelli Stjarnan - ÍR.......Stjörnuvelli Einheiji - Leiftur.VopnaQarðarvelli UBK - ÍBV..........Kópavogsvelli 3. deild KS - Grindavík..SigluQarðarvelli Hálfmaraþon Meistaramót íslands í hálfmaraþon- hlaupi fer fram við Skútustaði í Mý- vatnssveit í dag og hefst kl. 14. Á sama stað verður einnig keppt í sjö km skemmtiskokki. Golf Þriðja Aloha-golfmótið fer fram á sunnudaginn hjá Golfklúbbi Keili í Hafnarfirði. Ræst verður út kl. 8. 2.DEILD STJARNAN 17 13 1 3 40: 16 40 ÍBV 17 12 0 5 47: 29 36 VÍÐIR 17 11 2 4 28: 20 35 SELFOSS 17 9 1 7 22: 25 28 BREIÐABUK 17 6 4 7 35: 30 22 ÍR 17 5 5 7 22: 26 20 TINDASTÓLL17 5 2 10 31: 28 17 LEIFTUR 17 4 5 8 13: 18 17 VÖLSUNGUR17 4 2 11 23: 40 14 EINHERJI 17 4 2 11 20: 49 14 Kópavoqsvöllur r 2. deild Breiðablik - ÍBV Vestmannaeyjum í dag kl. 14:00 BVKI AUK/SlA klOd11-1S7 KNATTSPYRNA / 1. DEILD Hörður Helgason: „SPENNAN er geysileg. Stóri dagurinn sem allir knatt- spyrnuunnendur hafa beöið svo lengi eftir er runninn upp. Þeir sem koma ekki á völlinn, verða vafalaust límdir við sjón- varps- og útvarpstæki sín og fylgjast með beinum útsend- ingum fá leikjunum fimm í loka- umferðinni, en þeir hafa allir þýðingu í sambandi við topp- og botnbaráttu," sagði þjálfar- inn góðkunni, Hörður Helga- son, sem hefur mikla reynslu að vera með lið sín í meistara- baráttu. Morgunblaðið fékk Hörð til að velta vöngum yfir möguleikunum í stöðunni. FH-ingar standa óneitanlega best að vígi,“ sagði Hörður. „Þeir eiga þó fyrir höndum mikinn bar- áttuleik, enda mikið í húfi. Pressan er mikil á leikmönnum FH og einn- ig Fylkismönnum, sem eiga mögu- leika á að bjarga sér frá falli. Þeir mæta því eins og grenjandi ljón í Hafnarfjörð. Fylkir verður þvi ekki auðveld bráð fyrir FH. Fylkisliðið er gott og vel leikandi. Það er ekkert öruggt í knatt- spyrnunni og það er einmitt það sem gerir hana svo skemmtilega. Ég held þó að FH-liðið nái að klára dæmið_ og verði fyrsta liðið til að verða íslandsmeistari eftir að hafa leikið í 2. deild árið á undan. Með liðinu leik margir reyndir leikmenn, eins og Halldór Halldórsson, Ólafur Jóhannesson, Pálmi Jónsson, Guð- mundur Valur Sigurðsson og Birgir Skúlason. KA-liðið er einnig inni í mynd- inni, en róðurinn verður þungur eins og hjá FH. Það er slæmt fyrir KA að leika án Þorvalds Örlygssonar í Keflavík, en Þorvaldur hefur verið lykilmaður í liðinu í sumar. KA- liðið er þó meira heldur en Þorvald- ur, það hefur góðan markvörð, sterka vörn og leikmenn sem geta skorað mörk. KA-Iiðið, sem er með mikla reynslu - liðið hefur verið nær óbreytt frá 1984, er sterkara heldur en Keflavík og ætti því að fagna sigri í leiknum, en þó er það ekki sjálfgefinn. Keflvíkingar eru erfíðir heim að sækja og þeir ætla sér örugglega að sleppa við fall,“ sagði Hörður Helgason um leikina í Hafnarfirði og Keflavík. Þegar Hörður var spurður um möguleika KR og Fram, sagði hann: „Ef svo fer að bæði FH og KA tapi, þá eiga Reykjavíkurfélögin STAÐAN FH 17 9 5 3 25: 14 32 KA 17 8 7 2 27: 15 31 KR 17 8 5 4 28: 21 29 FRAM 17 9 2 6 21: 16 29 ÍA 17 8 2 7 18: 18 26 VALUR 17 7 4 6 20: 15 25 VÍKINGUR 17 4 5 8 24: 30 17 ÍBK 17 3 6 8 18: 27 15 ÞÓR 17 3 6 8 18: 29 15 FYLKIR 17 4 2 11 16: 30 14 GOLF / ELDRI KYLFINGAR Landsliðid kepp- ir í Dússeldorf Landslið eldri kylfinga heldur í dag til Dússeldorf í V-Þýska- landi. Það eru tólf landsliðsmenn eldri kylfinga, sem taka þátt í ár- legri sveitakeppni Evrópusambands senjóra. Sveitirnar eru tvær; önnur keppir án forgjafar og þar mega menn hafa mest 14 í forgjöf, en í hinni sveitinni, sem keppir einungis með forgjöf, mega keppendur hafa 20. A-sveitin keppir á Hubbelrath- golfvellinum hjá Dússeldorf. B- sveitin mun hinsvegar keppa á velli skammt frá, sem heyrir til golf- klúbbi í borginni Essen. Hvort- tveggja eru skógarvellir. Keppnin hefst 20. sept. og tekur þijá daga. Samanlagður árangur íjögurra bestu í hvorri sveit er látinn telja. Landsliðið skipa eftirtaldir kylf- ingar og er þeim skipað í röð eftir árangri í viðmiðunarmótunum í sumar: A-lið: Karl Hólm, Golfkl. Keili, Knútur Bjömsson, Keili, Gísli Sigurðsson, Keili, Pétur Antonsson, Golfkl. Grindavíkur, Jóhann Bene- diktsson, Golfkl. Suðumesja, Þorbjöm Kjærbo, Golfkl. Suðurnesja. B-lið: Alfreð Viktorsson, Golfkl. Akraness, Ásgeir Nikulásson, Nesklúbbi, Sverrir Einars- son, Nesklúbbi, Sveinbjöm Jónsson, Golfkl. Keili, Albert Þorkelsson, Golfkl. Borgarness, Ingólfur Bárðarson, Golfkl. Selfoss. I tengslum við íslandsmót í flokki eldri kylfinga var kjörin ný stjórn í LEK, Landssamtökum eldri kylf- inga. Sverrir Einarsson lét af for- mennsku og kjörinn var í staðinn Hörður Guðmundsson úr Keflavík, sem verið hefur formaður Golf- klúbbs Suðurnesja í 15 ár þar til nú. Hörður verður jafnframt farar- stjóri til Dússeldorf og situr for- mannafund þar, enda er nú ákveðið að sveitakeppni Evrópusambands senjóra fari fram á íslandi sumarið 1991. Ekkert öruggt Hörður Helgason, þjálfarinn góð- kunni. Undir hans stjórn unnu Skaga-. menn bæði deild og bikar tvö ár í röð - 1983 og 1984. möguleika, en þó veika. Þau verða bæði að vinna og helst stórt til að bæta_ markatölu sina í keppni við FH. Ég hef trú á að FH vinni samt mótið, ef þessi staða kemur upp. Framarar eru líklegri heldur en KR til að vinna stórt. Þeir hafa sýnt góða leiki þegar mikið hefur legið við, en dottið niður þess á milli. Víkingar eru í fallbaráttu og verða erfiðir. Leikir Vals og KR hafa alltaf verið jafnir og ég hef ekki trú á að þar verði breyting á í þessari viðureign. Ef FH tápar, en KA gerir í jafn- tefli í Keflavík, kemur svipuð staða upp. KA er með betri markatölu en KR og Fram. Meistaratitilinn færi þá til KA, sagði Hörður. H"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.