Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.09.1989, Blaðsíða 44
DAGURIDYFLINNI KL. 14.03 RÁS I l ÚTVARPID i Efstir á blaði FLUGLEIDIR LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Seiðaleiðangur Hafrannsóknar: Uppskera íslöku meðallagi Morgunblaðið/Rúnar Þór BÆNDUR við Eyjafjörð eru almennt bytjaðir að taka upp kartöflur. Sumir hafa þó ekki enn ræst vélarn- ar vegna þess hve heyskapur er seint á ferðinni. Bændur eru sammála um að uppskeran í ár verði í slöku meðallagi. Að Gröf í Öngulstaðahreppi voru þau Ingólfur, Gunnbjörn, Pálmi Reyr, Þorsteinn og Ingólfur að taka upp kartöflur í mildu haustveðri. Klak þorsksins hefiir brugðist Fjórða árið í röð sem viðkoma bregst VIÐKOMA þorskstofnsins bregst, fjórða árið í röð, ef marka má árangur af árlegum seiðaleiðangri hafrannsóknaskipanna Bjarna Sæmundssonar og Árna Friðrikssonar sem komu úr leiðangrinum 2. og 8. þessa mánaðar. Samkvæmt hcimildum Morgunblaðsins sýna rannsóknir leiðangursins að ekki er von til að 1989 árgangur- inn styrki þorskstofhinn og eru þess fádæmi að viðkoman hafí brugðist svo mörg ár í röð. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra var ekki reiðubúinn til að tjá sig um þessar niðurstöður Ieiðangursins, þar sem hann hafði ekki fengið neinar ákveðnar niður- stöður til skoðunar. „En ég hef haft af því fregnir að það sé ekk- ert sérstakt útlit að því er varðar 1989 árganginn. Ef það reynist rétt, þá er það nánast einsdæmi að við fáum svo marga, fjóra lé- lega árganga í röð,“ sagði Halldór i samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Verkfall mjólkurfræðinga hefst á þriðjudag: tonna samdrátt í þorskveiðum á næsta ári, meðal annars vegna lé- legrar viðkomu stofnsins undan- farin ár. Stofnunin leggur til að leyft verði að veiða 250 þúsund tonn á næsta ári, en búist er við að aflinn í ár verði 320 til 340 þúsund tonn. Endanlegar niðurstöður leiðang- ursins verða kynntar í næstu viku. Fljótlega farið að hella niður mjólk í Flóabúinu Mjólkurfræðingar hafa ekki unnið yfirvinnu undanfarna viku Mjólkurfræðingar hafa ekki unnið yfirvinnu undanfarna viku, þrátt fyrir að boðað yfirvinnubann þeirra hafi ekki hafist fyrr en í gær og því er gert ráð fyrir að fljótlega eftir að verkfall þeirra hefst á þriðjudag í Mjólkurbúi Flóamanna þurfi að hella þar niður mjólk. Þar hafa þeir boðað verkfall á þriðjudag og miðvikudag og í Mjólkur- stöðinni í Reykjavík á fimmtudag og fóstudag. Síðasta fundi aðila lauk á íjórða tímanum aðfararnótt fimmtudagsins og hefúr ríkissátta- semjari ekki boðað aftur til fúndar, en gert er ráð fyrir honum á mánudag eða þriðjudag. Hafrannsóknaskipin héldu í leið- angurinn fyrri hluta ágústmánað- ar. Bjarni Sæmundsson rannsakaði seiðaslóðir á Vestíjarða- og Norð- urmiðum, en Árni Friðriksson fór suður og austur um land. Athugað var ástand ýmissa fiskistofna, en ekki hafa fengist fregnir af við- komu annarra tegunda en þorsks- ins. Leiðangursstjórar voru Jytte E. Magnússon og Viðar Helgason. Hafrannsóknastofnun kynnti fyrr í sumar tillögur um 90 þúsund Hugrún Linda í 2. sæti HUGRÚN Linda Guðmundsdóttir, fegurðardrottning íslands, varð í 2. sæti í Fegurðarsamkeppni Norð- urlanda, sem fram fór í Turku í Finnlandi í gærkvöldi. Fegurðar- drottning Svíþjóðar sigraði en finnska stúlkan varð í 3. sæti. Vinnuveitendur mátu launakröf- ur mjólkurfræðinga í upphafi samn- ingaviðræðna um síðustu mánaða- mót til 30% launahækkunar fyrir sex mánaða langan samning. Síðan hafa kröfurnar eitthvað lækkað, að sögn Ólafs Hjálmarssonar, hag- fræðings hjá Vinnuveitendasam- bandi Islands, en ennþá ber mikið í milli. Búið er að komast að sam- komulagi um aðra liði en beinar launakröfur, þar sem um er að ræða kröfur um stjórnunarálag og starfsaldurshækkanir. Vinnuveit- endur telja sig bundna af ASI- samkomulaginu og þeir hafi teygt sig eins langt og þeir geti. Þeir vilja samning til áramóta, en samningur Alþýðusambandsins gildir einnig til þess tíma. Vihelm Andersen, framkvæmda- stjóri íjármálasviðs Mjólkurstöðv- arinnar, sagði að í framtíðinni yrðu vinnveitendur tilbúnir með verk- bann í svona tilvikum. Það væri óþolandi að búa við aðgerðir mjólk- urfræðinga sem breyttust frá degi til dags, eins og verið hefði undan- farið. Þá væri betra að hafa hreinar línur og verkfall, því ómögulegt væri að skipuleggja rekstur fyrir- tækisins við þessar aðstæður. Af 220 starfsmönnum mjólkurstöðvar- innar, auk 30 starfsmanna í brauð- gerð, eru um 10 mjólkurfræðingar, en þeir hafa afgerandi áhrif á rekst- urinn, að sögn Vilhelms. „Svona vinnubrögð eins og hér eru höfð í frammi núna eru algjörlega óþol- andi og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að það verði beitt eðlilegum aðferðum og farið í verkfall. Meðan þetta gengur fyrir sig svona virðast menn ékki ræða saman í alvöru. Þetta kemur svo mismunandi niður á einstaka rekstrareiningum í iðnaðinum," sagði Vilhelm. Hann tók sem dæmi að ætlunin væri að pakka og keyra út mjólk í dag, en tvívegis hefði þurft að breyta ákvörðun þar að lútandi, þar sem óljóst var hvort mjólkurfræð- ingar myndu vinna. Þannig hefði þurft að tvíboða fólk til vinnu og láta verslanir fyrst vita að mjólk yrði keyrð út. Síðan að hún yrði ekki keyrð út og að lokum aftur að einhver mjólk yrði keyrð út í þær verslanir sem hefðu opið. Kristján Larsen, formaður Mjólk- urfræðingafélagsins, vildi ekki út- lista hveijar sérkröfur mjólkurfræð- inga væru, en sagði að þær væru bæði mjólkurfræðingum og vinnu- veitendum þeirra til hagsbóta. Rúmlega 100 manns eru i félagar í Mjólkurfræðingafélaginu. Þeir boðuðu síðast til aðgerða í mars 1986, en á fyrsta degi verkfalls batt ríkisvaldið enda á það með bráðabirgðalögum. Mjólkurfræð- inganám er í flestum tilvikum fjög- ur ár, þar af tvö í skóla. Villi Magg var sleginn Byggðasjóði Suðureyri. Sýslumaðurinn á ísafirði, Pétur Kr. Hafstein, boðaði til uppboðs á eignum Bylgjunnar hf. á Suður- eyri í gær. Kúfiskveiðiskipið Villi Magg var slegið Byggðasjóði á 19 milljónir og hús Bylgjunnar Landsbankanum fyr- ir 12 milljónir króna. Uppboðið fór fram í húsi Bylgjunnar á Suðureyri og var margt um manninn á staðn- um. Einnig voru boðnir upp lausafj- ármunir eins og t.d. tölva, prentari, húsgögn og verkfæri. Þetta var þriðja og síðasta uppboð á eignum Bylgjunnar og annað uppboð á Villa Magg og síðasta. Þess má geta að allar vélar og vinnslulína hafa verið tekin út úr uppboðinu að ósk Mjölnis hf. frá'Bolungarvík. Þrotabústjóri var Skarphéðinn Þórisson og sýslumaður Pétur Kr. Hafstein en með honum var aðalfull- trúi sýslumanns, Björn Jóhannsson. Róbert Bíræfínn bílþjófhaður upplýstur: Tókst ekki að koma bíl með stolinni vél 1 gegnum skoðun ÞRÍR menn á þrítugsaldri hafa játað að hafa stolið BMW-bíl af bílasölu í Reykjavík fyrir nokkrum vikum, hirt úr honum vél, gírkassa og flest annað nýtilegt og komið fyrir í öðrum bíl af sömu gerð. Upp komst um mennina þegar einn þeirra reyndi á fimmtudag að koma hinum endurbætta bíl sínum í gegmun skoð- un. Starfsmaður Bifreiðaskoðunar íslands sá á vélarnúmeri bílsins að þar væri komin vélin úr þeim sem stolið var. í framhaldi af því voru menn- irnir handteknir og færðir til yfir- heyrslu hjá RLR þar sem þeir ját- uðu á sig verknaðinn. Þeir eru nú lausir úr haldi. Eigandi bilaða bílsins hafði farið á bílasölu og fengið þar lánaðan lykil að hinum í því skyni að reynsluaka honum. Síðan skilaði hann röngum Iykli án þess að sölumenn bílasölunnar veittu því athygli. Næstu nótt kom maðurinn á bílasöluna, ók bílnum á brott og að iðnaðarhúsnæði við Ártúnshöfða þar sem hann og félagar hans hirtu það sem þá vantaði úr bílnum. Síðan skildu þeir flakið eftir fyrir utan bifreiða- verkstæði í grenndinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.