Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 1
96 SIÐUR B/C
Morgunblaðið/Rax
Borgarstjóri naut leiðsagnar Errós þegar hann skoðaði málverk úr gjöfinni í málverkageymslum Kjarvalsstaða. Myndin á milli þeirra heitir Ljárinn (151x227 m) frá árinu 1956.
Erró gefiir Reykjavíkurborg
um tvö þúsund listaverk
VIÐ opnun sýningar á málverkum eftir Erró á Kjarvalsstöðum, til-
kynnti Davíð Oddsson borgarstjóri, að listamaðurinn hefði gefið
Reykjavíkurborg safn listaverka efltir sig. Spanna verkin, sem eru
um tvö þúsund talsins, nánast allan feril listamannsins, allt firá æsku-
árum til mynda síðustu ára.
Meðal verka er Erró gefur eru
232 olíumálverk, 406 vatns-
litamyndir og þekjulitmyndir, 146
grafíkmyndir, 1200 teikningar, 95
samklippur auk þess skissubækur,
dagbækur, bréfasafn, ljósmyndir,
plaköt, greinar og bækur. í ræðu
borgarstjóra í gær kom fram að
safnið væri fullkomnasta safn eftir
einn listamann hér á landi. „Fyrstu
vet'kin gerði hann 10 ára gamall
og síðan rekja þau sig í gegnum
árin, gegnum tíðina, gegnum stefn-
urnar, gegnum hveija syrpu verka
hans, en hinar frægu syrpur eru
nú orðnar 42 talsins og þtjú mál-
verk að meðaltali úr hverri syrpu
fylgja gjöfinni. Þessi gjöf verður
aldrei að fullu metin til fjár.“
Að sögn Gunnars B. Kvaran for-
stöðumanna listasafna Reykjavík-
urborgar, er nokkuð um liðið síðan
Erró fór að hugsa um að gefa
Reykjavíkurborg safn verka sinna.
„Það eru mörg söfn í borgum
Frakklands sem hafa falast eftir
þessu safni,“ sagði Gunnar. „Það
fylgir mikil áb, rgð að taka við slíkri
gjöf.“
Sjá baksíðufrétt, svipmynd um
Erró bls. 6, ræðu Davíðs Odds-
sonar bls. 14 C og grein Eiríks
Þorlákssonar um «„stórfenglega
listaverkagjöf Errós" á bls. 23 C.