Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 17.09.1989, Qupperneq 16
wc MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 eftir Hjalto Jón Sveinsson SIGURÐUR HARALDSSON bóndi í Kirkjubæ á Rangárvöllum varð sjötugur í vor. Hann var staðráðinn í því að vera að heiman á afmælisdaginn til þess að koma í veg fyrir að fólk færi að gera eitthvert veður út af þessu. Þau Evelin kona hans, sem er þýsk, hugðust dvelja í Þýskalandi á afmælinu, en hin slæma tíð síðastliðinn vetur kom í veg fyrir það, — þau þorðu ekki að fara frá hrossunum. Þess í stað ákváðu þau að fara til Húsavíkur af þessu tileihi og sækja heim Sigurð Hallmarsson, en þeir nafharnir hafa verið miklir mátar um langt skeið. Þau urðu að snúa við á miðri leið vegna ófærðar og þannig fóru leikar að þau eyddu kvöldi afmælisdagsins á meðal vina og kunningja í Mosfellsbæ. „Ég held ég sé búinn að halda einar þrjár aftnælisveislur síðan,“ sagði hann, „það hafa verið að koma til mín hópar fólks og færa mér eitthvað.“ Enginn þarf svo sem að undrast það. Sigurður er vinmargur auk þess sem hann hefúr eignast ógrynni kunningja í gegnum störf sín að félagsmálum hvort sem er fyrir sveit sína eða hreyfingu hestamanna. SIGDRÐIH IIAR\lhSSO\. bóndl á Iiirkjubæ á RangárvöUum, er þjóðknnnnr fyrir hros§arækl sína og sjálfur á hann þjóðknnn alkvæmi. - HaJla og Ladda... Morgunblaðið/Hjalti Jón Sveinsson Hann á rætur sínar í Rang- árþingi og honum hefur alla tíð runnið blóðið til skyldunnar. Hann hefur líka í hálfa öld unnið ötullega að félagsmálum hestamanna og hefur meðal annars setið í stjórn Lands- sambands hestamanna í mörg ár. Kunnastur er þó Sigurður fyrir starf sitt í Kirkjubæ, þar sem hann hefur búið síðan 1967. Fyrirrennarar hans höfðu komið þessu erfiða verkefni nokkuð á leið þegar hann kom til skjalanna og óhætt er að fullyrða að árangurinn hafi verið mikill síðan, — um það bera hrossin frá Kirkjubæ og frammistaða þeirra best vitni. Þau eru fyrir löngu orðin þjóðkunn auk þess sem orðstírinn hefur borist víða um lönd. Sigurður er níu barna faðir. Tveir synir hans eru landsfrægir og þekktastir undir nöfnunum Halli og IMÍVIH i\l)IK ÞVOTTASMRl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.