Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 21
MORGUNBI.AÐH) FJÖLMIÐLAR sunnudágur it.
SEPTEMBER'1989
Œ 21
Aflog í skólum
Tomma og
Jenna að kenna?
B
> ugs Bunny, Andrés önd og
'Tommi og Jennj auka árásar-
hneigð barna að því er fram kom á
þingi samtaka breskra kennara ný-
lega. Samtökin kröfðust þess að
minna yrði sýnt af ofbeldi í sjónvarpi
og skoruðu á foreldra að gera sér
grein fyrir þeim áhrifum, sem sjón-
varp hefði á börn þeirra.
Sagt var frá því á þinginu að þess
væru dæmi að þriggja ára börn
meiddu hvert annað þegar þau líktu
eftir atriðum úr teiknimyndum. Þeg-
ar slíkt komi fyrir verði börnin undr-
andi á því að þau skuli meiðast.
Varaskólastýra barnaskóla nokk-
urs, frú Anne Spencer, gagnrýndi
Tomma sérstaklega fyrir að vera
vondur við Jenna. Hún spurði for-
eldra: „Sættið þið ykkur í raun og
veru við það að dýrum sé sýnd
grimmd, jafnvel þótt aðeins sé um
mús í teiknimynd að ræða?“
Kennslukona frá Hull sagði: „Allt
að sex morð eru framin á skjánum
Dagskrárstjórar
Rásar 1 og 2;
Stefán Jón
og Margrét
Frá og með næstu áramótum verð-
ur sú breyting á stjórnun Ríkisút-
varpins hljóðvarps að stofnaðar
verða stöður dagskrársljóra yfir
útvarpsrásunum tveimur. Yfir-
maður Rásar 1 verður Margrét
Oddsdóttir sem gegnt hefur stöðu
dagskrárstjóra fræðslu- og
skemmtideildar. Dagskrársljóri
Rásar 2 verður Stefán Jón Haf-
stein yfirmaður dægurmáladeilar.
Dagskrárstjórarnir munu hafa
yfirumsjón með öllu efni, bæði
tónlist og töluðu efni. Þetta nýja
fyrirkomulag mun ekki hafa neinar
breytingar á dagskrá Ríkisútvarpsins
í för með sér og deildarskipulag inn-
an þess breytist ekki að öðru leyti.
Nefnd sú sem unnið hefur að því
að endurskoða starfshætti Ríkisút-
varpsins mun ekki skila áliti fyrr en
um áramót, en ein af tillögum hénn-
ar mun vera sú að staða aðstoðar-
framkvæmdastjóra verði lögð niður.
Samtök lands-
málablaða
sett á stofti
Stofnfúndur Samtaka landsmála-
blaða er fyrirhugaður síðari hluta
októbermánaðar næstkomandi, en
alls eru starfrækt um 60 héraðs-
og kjördæmablöð vítt og breitt um
landið. Er nýju samtökunum fyrst
og fremst ætlað að gæta sameigin-
legra hagsmuna þeirra er að útg-
áfu landsmálablaða standa.
Fríða Proppé ritstjóri Fjarðar-
póstsins í Hafnarfirði er ein
þriggja sem sæti eiga í undirbúnings-
nefnd samtakanna. Sagði hún að
útgefendur landsmálablaða hefðu
ýmissa sameiginlegra hagsmuna að
gæta. Bæri helst að nefna áralanga
baráttu þeirra við ríkisvaldið vegna
kröfu þeirra um eðlilega hlutdeild
að auglýsingum á vegum hins opin-
bera. Minnti Fríða á áskorun til
stjórnvalda sem 43 þingmenn undir-
rituðu nýverið, að verða við kröfum
útgefenda héraðs- og kjördæmablaða
um að þeir verði.látnir sitja við sama
borð og aðrir íjölmiðlar í landinu í
þessum efnum.
Samhliða stofnfundi nýju samtak-
anna í október verður haldin ráð-
stefna þar sem kallaðir verða til
ýmsir aðilar úrþjóðfélaginu, fulltrúar
' ríkisvaldsins svo og auglýsingastofa
þar sem ofangreind auglýsingamál
verða meðal annars rædd.
Bugs Bunny. sakað-
ur um að æsa börn
til ofbeldis.
heima hjá ykkar á hveiju kvöldi."
Þó slík atriði sjáist ekki fyrr en eftir
kl. 9 á kvöldin í Bretlandi hafi það
ekkert að segja, því að flestir eigi
myndbandstæki og stálpuð börn þar
séu ekki farin að hátta kl. 9.
Fjalakötturinn á Stöð 2:
Sovéskar myndir allsráðandi
Vetrardagskrá Fjalakattarins, kvikmyndaklúbbs Stöðvar 2, hefst
næstkomandi mánudag 18. september með sýningu myndarinnar
Frankenstein eftir James Whale Irá árinu 1931. Alls verða sýnd-
ar um 30 myndir í vetur og mest áhersla lögð á sovéska kvik-
myndagerð.
Að sögn Páls Baldvins Bald-
vinssonar umsjónarmanns
Fjalakattarins hefur gengið
þokkalega að afla kvikmynda til
sýninga í vetur. í nóvember hefj-
ast sýningar á verkum rússneska
kvikmyndagerðamannsins Sergei
Eisenstein og verða þtjár mynda
hans sýndar fyrir jói; Verkfall,
Beitiskipið Potemkin og Október.
Eftir áramót verða seinni kvik-
myndir hans á dagskrá, frá árun-
um 1929 til 1946. Þá verða sýnd-
ar nýjar sovéskar kvikmyndir eft-
ir lchikawa, Ozu, Mezaros, Losey,
Bokova og Vertov.
Jafnframt verða á dagskrá
nokkrar ítalskar myndir eftir
Olmi, Antonioni, Taviani-bræður,
Fellini, Bertolucci og Visconti, frá
árunum 1950 til 1982. Af öðrum
myndum má nefna Scarface eftir
Howard Hawks frá 1932 og Mon-
key Business eftir Marx-bræður
frá árinu 1931. Þá verður sýnd
kvikmyndin Orustan um Alsíreft-
ir Gillo Pontecorvo frá árinu 1965,
en hún var tilnefnd til þriggja
Óskarsverðlauna.
ÁGÆTI NÁMSMAÐUR!
Nóma Landsbankans er þjónusta sem léttir undir meS námsmennum,
I.KGGÐUiFKÁ * 1»ÉR
jafnvel þótt þeir hafi úr litlu aö spila. í Námuna getur þú sótt þjónustu
BÓKINA^ANDARTAK,
á borÖ vii útreikninga á greiðslubyrði, sveigjanlegri afberganir lána,
-HUGSAÐU UM NÁMU.
yfirdráttarheimild, VISA-kort og afhendingu skjala vegna LÍN. Fyrstu
VEISTU AÐ I
LANDS-
þrjú tékkheftin færðu endurgjaldslaust og með tímanum eignastu svo
BANKANUM ER NÁMA
Einkanámu! Með þátttöku í Námunni öftlast þú einnig rétt til aö sækja
FYRI
NAMSFOLK.
um 100.000 króna námsstyrk og námslokalán, allt aÖ 500.000 krénum.
Náman er ný fjármálaþjónusta í
Landsbankanum, sérstaklega ætl-
uö námsfólki frá 18 ára aldri. Því
ekki aö hefjast handa nú þegar og sækja í námu
Landsbankans. Með því að skapa þér gott orð í
Landsbankanum - þó í litlu sé, leggurðu grunninn að
fjárhagslega öruggri framtíð. Allar nánari upplýsing-
ar, fúslega veittar í næsta Landsbanka. Yið bjóðum
námsfólk velkomið.
Nýttu þér námuna.
LAHPSBANKI
Í S L A N D S
N * A • M • A ■ N