Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 27
MORGru^Bi^ÐiÐ MIN NI NCiAR^ifsWJipwsvff ^sesptemp^r 1^9
mikinn metnað í að gera sem snyrti-
legast. Þar eignaðist hún marga
góða vinnufélaga sem ég veit að
sakna hennar mikið.
Eftir að afi Guðmundur dó árið
1975 og amma varð ein sýndi
mamma henni mikla umhyggju.
Alltaf var mikill gestagangur hjá
mömmu og hún höfðingi heim að
sækja. Fyrr en varði hafði henni
tekist að töfra fram veisluborð,
jafnvel úr því sem hversdagslegt
þykir.
Þrátt fyrir mikla vinnu utan
heimilis var heimilið ávallt fínt og
fágað. Voru mamma og pabbi mjög
samhent í þeim efnum.
Við erum 5 systkini sem áttum
því láni að fagna að eiga svo góða
móður. Lengi vel var barnahópurinn
lítill, reyndar bara einn strákur sem
fékk óskipta athygli í 12 ár. Þegar
mamma er 36 ára koma þijár stúlk-
ur hver á sínu árinu og 1973 fæð-
ist síðan yngsta dóttirin. Það var
því líf og fjör á heimilinu eins og
nærri má geta. Ömmubörnin eru
nú orðin þijú og von er á því fjórða.
Það verður því sárt fyrir þau að
geta ekki lengur komið til ömmu
Gunnu í heimsókn. Hennar sem allt-
af var til í að koma í laugina og
alltaf gaf leyfi til að fá svolítið
nammi í poka þrátt fyrir mótmæli
pabba og mömmu.
Það er komið haust. Mamma fór
í sína hinstu för án ákveðins
áfangastaðar. Við sem trúum því
að líf okkar sé ekki án tilgangs,
án markmiðs, vitum að áfangastað-
urinn er ákveðinn þegar í upphafi.
Við vitum einnig að vel er tekið á
móti mömmu þar sem hún dvelur
eftirleiðis.
Við sem eftir sitjum með sorg í
hjarta verðum að beygja okkur
undir vilja þess sem öllu ræður og
trúa því að ákveðinn tilgangur sé
með því sem gerst hefur. Eg bið
Guð að blessa minningu ástkærrar
móður minnar og þakka henni fyrir
allt sem hún var mér. Einnig bið
ég Guð að gefa föður mínum og
systrum styrk til að líta fram á
veginn. Þrátt fyrir að skammdegið
sé í nánd rís sól að nýju og fyrr
en varir er aftur komið vor.
Sonur
Fyrir rúmri viku lést í Kaup-
mannahöfn mágkona mín, Guðrún
Jónína Guðmundsdóttir.
Gunna var ásamt eiginmanni
sínum, Olgeiri Jóhannssyni, á leið
í sumarfrí, ferð sem tók óvænta
stefnu. Það er oft ótrúlega stutt á
milli gleði og sorgarstundanna í lífi
okkar.
Ég kynntist Gunnu fyrst í Vest-
mannaeyjum, þegar ég flutti þang-
að 1969, en þar byrjuðu þau Olli
sinn búskap, á Heiðavegi 60. Þá
og alla tíð síðan, eftir að við fluttum
öll til Reykjavíkur, var hún mér
alltaf traustur og góður vinur, sem
hægt var að leita til í blíðu og stríðu.
Heimilið á Háaleitisbrautinni bar
vott um smekkvísi hennar og þann
hlýleika sem henni fylgdi. Alltaf
þegar okkur datt í hug að líta inn,
var heitt á könnunni og margt
skrafað og skeggrætt. Það eru svo
ótal margar góðar minningar, sem
leita á hugann. Ég man alltaf þeg-
ar við Gunna fórum út í Klauf að
tína söl með krakkana og hvað mér
fannst þetta vont. Ég skyldi nú
samt læra að meta þetta hollmeti
hvað sem tautaði!
En nú eiga margir um sárt að
binda, Olli, börnin þeirra fimm,
tengdadóttir og barnabörn, Þór-
hildur tengdamamma mín, og
systkinin, sem sjá nú að baki ann-
arri systur sinni, með fárra ára
millibili.
Ég bið góðan guð að styrkja
ykkur öll í ykkar miklu sorg. Eg
kveð Gunnu mína með mínum fá-
tæklegu orðum, en um leið með
þessum fallega sálmi eftir afa minn,
Valdimar V. Snævarr.
Hinsti bjarmi dagsins dvín,
dimman foldu vefur.
Astarfaðir upp til þín
önd vor glöð sig hefur.
Send oss vernd, af himni hljótt
helgra máttarvalda.
Láttu engla nú í nótt
náttvörð um oss halda.
Stella mágkona
Q 2,1
*
Ragnar Ag. Sigurðs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 26. ágúst 1966
Dáinn 30. júlí 1989
Það var á Þjóðhátíð í Eyjum
1986 að kynni okkar við Ragga
hófust. Þá lék allt í lyndi og
skemmtum við okkur konunglega í
góðra vina hópi.
Einnig stunduðum við saman
nám í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Það var ávallt gott að
sjá og tala við þennan góða vin
okkar, ætíð með bros á vör og létt-
ur í lund. Við gátum talað um allt
milli himins og jarðar og ávallt var
slegið á létta strengi. Engin orð fá
því lýst hversu vænt okkur þótti
um Ragga.
Það ríkir mikil sorg í hjörtum
okkar að hafa misst svo yndislegan
vin sem Raggi var. Fréttin um hið
hörmulega flugslys kom sem reiðar-
slag yfir okkur. Það er erfitt að
sætta sig við að vinur manns sé
hrifinri á braut svo úngur að árum
og með framtíðina fyrir sér. Hann
var vinur í raun, traustur og vina-
margur.
Það var ósjaldan að við stöllurnar
rákumst á Ragga í brekkunum í
Skálafelli þar sem að hann aðstoð-
aði unga, efnilega skíðakappa.
Sjálfur var Raggi mjög góður á
skíðum og mikill íþróttamaður. Allt
sem að hann tók sér fyrir hendur
leysti hann með festu og þraut-
seigju. Það er erfitt að finna hans
líka, svo innilegan og góðan strák
sem Raggi var.
Það eru svo sannarlega orð að
sönnu að vegir guðs eru órannsak-
anlegir. Missirinn er mikill og ristir
djúp sár í hjörtu okkar, en minning-
in um góðan dreng mun ætíð lifa.
Við vottum foreldrum Ragnars,
ættingjum og vinum okkar dýpstu
samúð.
Hildur Björk og Halla Karen
Birting a fmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjóm blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafii-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili. .
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legsteinar
MARGAR GERÐIR
Mmom/Granít
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjöröur
Blómastofa
Fnðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Legstelnar
Framleiðum ailar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
Ifi S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ r J'
I SKEMMUVEGI 48-SÍMI 76677
+
Útför
HARALDAR STEINGRÍMSSONAR
rafvirkja,
Hvassaleiti 127,
fe: fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. september kl. 13.30.
Þyrí Gisladóttir,
Steingrímur V. Haraldsson, Alma Birgisdóttir,
Guðni Á. Haraldsson, Stefania Jónsdóttir,
Fríða Sigrún Haraldsdóttir, Sigurbjörn Helgason,
Guðrún Steingrímsdóttir, Már Egilsson,
Margrét Steingrímsdóttir, Gunnar Árnason,
Rannveig Steingrímsdóttir, Ásta Steingrímsdóttir,
Þór Steingrímsson, Magnea Þorsteinsdóttir,
Tryggvi Steingrímsson, Ása Karlsdóttir
og barnabörn.
Ástkær sonur okkar, faðir, tengdafað-
ir og afi,
KARL STEINAR KARLSSON
bifreiðastjóri,
Asparfelii 6,
Reykjavík,
verður jarðsunginn í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 20. september kl. 13.30.
Svanfríður Guðjónsdóttir, Karl Finnbogason,
Hrafnhildur Steinarsdóttir,
Eyþór Steinarsson,
Þorbjörg Steinarsdóttir,
Birgir Hafliði Steinarsson,
Ingibjörg Steinarsdóttir
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför föður okkar, afa og langafa,
PÁLS KRISTÍNS MARÍUSSONAR,
Skipholti 28,
Reykjavík.
Kristjón Sævar Pálsson, Pálín Ármannsdóttir,
Svala Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför sonar
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÁGÚSTAR VALS EINARSSONAR,
Álfhóisveg 26,
Kópavogi,
Rögnvaldína Ágústsdóttir,
Emil Ágústsson,
Erla Ragna Ágústsdóttir,
Helga Ingunn Ágústsdóttir,
Einar Ágústsson,
Anna María Ágústsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okk-
ur samúð og heiðruðu minningu sonar
okkar, vinar, bróður og mágs,
ÞÓRÐAR JÓHANNS
GUNNARSSONAR
íþróttakennara.
Sérstakar þakkir til félaga úr sunddeild
Selfoss.
Helga Þorðardóttir, Gunnar Jónsson,
Arne Daugbjerg,
Eygló Gunnarsdóttir,
Ásta Gunnarsdóttir,
Oddrún Gunnarsdóttir,
Erla Bára Gunnarsdóttir,
Símon Ingi Gunnarsson,
Gunnar Gunnarssson,
Trausti Gunnarsson,
Ingvar Eiríksson,
Sveinn Aðalbergsson,
Stefán Jónsson,
Magnús Þorsteinsson,
Kolfinna Sigtryggsdóttir,
Gyða Steindórsdóttir,
Margrét Gunnarsdóttir.
Lokað
Skrifstofa vor verður lokuð eftir hádegi mánudag-
inn 18. september vegna jarðarfarar HARALDAR
STEINGRÍMSSONAR.
Lögmenn, Lækjargötu 2,
Reykjavík.