Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.09.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Stónðja styrkir þióðarbúið Skuggalegar fréttir berast frá þeim sem eru að rannsaka fiskstofna umhverfis landið. í Morgunblaðsfrétt á laugardag kom fram, að viðkoma þorsk- stofnsins hefði brugðist fjórða árið í röð, ef marka mætti árang- ur af árlegum seiðaleiðangri haf- rannsóknaskipanna Bjarna Sæ- mundssonar og Árna Friðriks- sonar. Þá liggja fyrir tillögur fiskifræðinga um niðurskurð á leyfilegum hámarksafla á næsta ári. Ollum Islendingum er ljóst, að í þessu 'hvoru tveggja felast vísbendingar um versnandi af- komu þjóðarbúsins og þar með skerðingu lífskjara. Aðeins tvennt getur brúað það bil sem myndast, að meira verð fáist fyrir aflann en áður eða aðrar atvinnugreinar gefi af sér meiri erlendar tekjur. Að sjálfsögðu lifum við í voninni um fyrri kost- inn og getum vissulega gert margt til að sú von rætist, síðari kosturinn ætti að vera innan seil- ingar, ef pólitískur vilji er til þess að nýta hann. Fátt hefur orðið íslensku þjóð- inni dýrkeyptara á síðari hluta tuttugustu aldar en það tillit sem tekið hefur verið til afturhalds- stefnu Alþýðubandalagsins í stóriðjumálum og til erlendrar fjárfestingar í orkufrekum iðn- aði. Með því að afhenda Al- þýðubandalaginu iðnaðarráðu- neytið í vinstri stjórninni 1971 vildu vinstri flokkamir leggja áherslu á að tekin yrði upp önn- ur stefna í stóriðjumálum en á tímum viðreisnarstjórnarinnar, þegar þessi mál voru í höndum sjálfstæðismanna og samið var um smíði álversins í Straumsvík og ráðist í að virkja við Búrfell. Á þessum árum var hamrað á því að með Búrfellsvirkjun og samningunum við Alusuisse um álverið hefði þjóðinni verið steypt í óbærilegar skuldir og ráðist að lífskjömnum. Minnti sá áróður helst á offors alþýðubandalags- manna vegna Leifsstöðvar á Keflavíkurflugvelli nú, þótt miklu meira væri auðvitað í húfi. 1978 var enn á ný mynduð vinstri stjórn og þá var Alþýðu- bandalaginu enn á ný afhent iðn- aðarráðuneytið og var stjórn þess í höndum Hjörleifs Guttormsson- ar til 1983. Þessi fimm ár voru í raun notuð til pólitískra árása á þá, sem samið höfðu við okkur um nýtingu á raforku. Lagði iðn- aðarráðherra sig sérstaklega fram um að fæla þá frá, sem áhuga kynnu að hafa á því að fjárfesta hér. Nú er Alþýðu- bandalagið enn í ríkisstjórn og bendir ýmislegt til þess að það eigi að hafa neitunarvald í stór- iðjumálum, að minnsta kosti tek- ur forsætisráðherra ekki af skar- ið til stuðnings iðnaðarráðherra, þegar hann kynnir mikil áform um virkjanir og orkufrekan iðnað með erlendri fjárfestingu. Enn kann svo að fara að pólitísk þröngsýni komi í veg fyrir að skynsamleg stefnumótun nái fram að ganga í stóriðjumálum, stefna sem myndi treysta undir- stöður þjóðarbúsins á viðsjálum tímum. I Morgunblaðinu í fyrradag er skýrt frá því að miðstjórn Málm- og skipasmíðasambands- ins, félagsfundur hjá járniðnað- armönnum og stjórn Verka- mannasambands íslands hafi lýst yfir .stuðningi við stórvirkjanir og stóriðju. í ályktun stjórnar Verkamannasambandsins segir að afar brýnt sé að teknar séu ákvarðanir um nýjan orkufrekan iðnað og stórvirkjanir í tengslum við hann. Fyrirsjáanlegur sam- dráttur í þorskveiðum geri þetta brýnt til að tryggja atvinnu og tekjur í næstu framtíð ekki síst fyrir félaga í Verkamannasam- bandinu. Málm- og skipasmíðasam- bandið lýsir bæði yfir stuðningi við stækkun álversins í Straumsvík og frekari stóriðju utan höfuðborgarsvæðisins. Örn Friðriksson, formaður Málm- og skipasmíðasambandsins og vara- forseti Alþýðusambands Islands, sagði í Morgunblaðssamtali að við mat á hagkvæmni stóriðju mætti ekki einblína á raforku- verðið, eins og Hjörleifur Gutt- ormsson og skoðanabræður hans í Alþýðubandalaginu hafa gert. Taldi Örn, að það ætti að vera unnt að tryggja íslenskum fyrir- tækjum hlut í smíðum og upp- setningu tækja vegna stóriðju, þótt þau gætu auðvitað ekki annað því öllu á skömmum tíma. Þá ætti að endurnýja tæki hér á landi. Þróunin hefði verið í þá átt í Straumsvík og nefndi hann þar smíði kera. Eftir reynsluna sem við höfum fengið af álverinu í Straumsvík og járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga er með ólíkindum að um það skuli þurfi að rífast í ríkisstjórn íslands hvort halda eigi áfram á þessari braut. Allar þjóðir leita eftir því að fá traust fyrirtæki til að fjárfesta innan landamæra sinna til að styrkja atvinnulíf og þjóðarafkomu. Að sjálfsögðu eigum við að nýta auðæfin sem felast í vatni og gufu og selja orkuna til að afla okkur tekna. Afturhaldsstefna Alþýðubandalagsins í þessum málaflokki hefur þegar valdið nógu miklu tjóni. Fjölmiðlaslys eftir Harald Bessason Dr. Valdimar K. Jónsson vara- rektor Háskóla íslands sendi Há- skólanum á Akureyri að því er virðist fremur hryssingslegar kveðjur i sjónvarpserindi fimmtu- daginn 14. september síðastliðinn. Eg bið starfsfólk og stúdenta við Háskólann á Akureyri velvirð- ingar á því hversu seinn ég hef orðið til svara, en hef mér það til afsökunar að ég missti af erindi Valdimars og varð mér ekki úti um greinanlegan texta fyrr en 18. þessa mánaðar. Því miður hlýt ég að játa að textagreining er í flestum tilvikum erfið viðfangs. Freistandi er að leggja beinan skilning í orð, en gæta þess þó jafnframt að fletta upp í orðabókum ef vafi leikur á um merkingu. Þar með er þó sag- an ekki öll sögð. „Svo er margt sinnið sem skinnið,“ mælti kerling- in. Höfundar tjá sig á mismunandi vegu. Til að mynda velti ég því fyrir mér hvort líta bæri á ræðu Valdimars sem „allegóríu“, en þá yrði að gera ráð fyrir því að merk- ingarkjarni frásagnar (í þessu til- viki Ieikrænnar tjáningar í litum) sé í heild sinni mjög á annan veg en ráðið verður af grunnfærnis- legri athugun á beinu samhengi orða og setninga. í íslenskum bókmenntum má finna mýmörg dæmi þessu til stuðnings. Þannig skiluðu ræðu- skörungar Snorra Sturlusonar jafnan alvarlegum tíðindum áleiðis undir hjúpi sakleysislegrar frá- sagnar. Með þessi sérstöku stílbrögð i huga mætti því spyija hvort Valdimar K. Jónsson hafi í raun sagt eitthvað allt annað held- ur en hann sagði í áðurnefndum fyrirlestri, að Háskólinn á Akur- eyri, og einkum sjávarútvegsdeild þeirrar stofnunar, ætti sér bjarta og blessunarríka framtíð og þar fram eftir götunum. Enn verð ég að geta þess að það flögraði að mér hvort Valdi- mar hefði beitt „refhvörfum“ (oxy- moron) í ræðu sinni, það er raðað þar saman hugtökum andhverfrar merkingar. Sú ágiskun fær þó varla staðist, þar sem refhvarfa er helst að leita í bundnu máli, en ræða Valdimars var nær einvörð- ungu í óbundnu máli. Hinu er ekki að neita að sé litið á umræddan ræðutexta sem heildstæða ein- ingu, myndar hann allskýra and- hverfu viðfangsefnis. Hvorki flokkast ræða prófessors Valdimars undir leiðslubókmenntir (draumsýnir) né heimsslitabók- menntir í hefðbundnum skilningi, en þó má skoða hana í heild sem spá um hrakfarir og dauða. Væri þá hér á ferðinni „apocalyptiskt“ verk sem ijallaði um lokaorrustuna milli góðs og ills. Er þá helst til ráða að lifa áfram í voninni um lokasigur hins góða, og má, í því sambandi vísa til alkunnra erinda við lok Völuspár. Frekari hugleiðingar um texta- skýringar eru óþarfar. Sjálfur skil ég orðsendingu dr. Valdimars á þann veg að hún sé stílfræðilega umbúðalaus áfellisdómur þess efn- is að æðri menntir við Háskólann á Akureyri skuli aldrei þrífast. Málfar þess dóms og framsetningu mætti ræða nokkru nánar, en ég læt nægja að víkja stuttlega að orðinu undinnálsmenntun, sem Valdimar telur okkur hér nyrðra láta stúdentum í té. Skilningur hans á þessu nafnorði er í sam- ræmi við túlkun orðabóka. Þannig skilgreinir íslensk orðabók (1983) undivmálsmann sem lítilhæfan mann, þ.e.a.s. mann neðan við meðallag að hæfileikum. Þótt orðabækur séu gagnlegar, eru þær ekki einhlítar. Þess eru mörg dæmi að orð öðlist aukamerkingar í vit- und fólks vegna hljóðlíkingar við önnur orð, enda þótt um ólíkan uppruna sé að ræða. Þannig er nafnorðið undirmál í hvorugkyni fleirtölu kunnugt úr fornu máli og nýju og merkir m.a. undirferli, fals eða svik. Dreg ég ekki í efa að í hugum margra sé undirmáls- maður því ekki einungis sá sem er undir meðallagi að sálar- og líkamsþrótti, heldur einhvers kon- ar leiðindapjakkur sem í engu sé treystandi. Varla er það nein til- viljun að í grein sinni Mannasiðir tekur Halldór Laxness svo til orða að ríkur maður sem vanræki jafn- ingjaboðorð í umgengni sinni við alþýðufólk sé „undirmálsmaður og auvirðileg persóna í áugum íslend- inga,.. (Vettvangur dagsins, bls. 391). Enn segir Laxness í Skáldatíma (bls. 148) um útlend- ing nokkurn: „Hann var fljót- greindur undirmálsmaður og minti á Göbbels.“ Maður sá sem Halldór notar hér til viðmiðunar hét fullu nafni Paul Joseph Göbbels, lést voveifiega 1. maí vorið 1945 og hlaut slæm eftirmæli. Þessi dæmi læt ég nægja til sönnunar því að snjallir rithöfund- ar lauma stundum aukamerking- um í orð án þess að semjendur orðabóka verði þess varir. „Ekki í askana 1 — eða skattlagning skóli eftirHeimi Pálsson Undanfarnar vikur hafa staðið háværar umræður um skattlagn- ingu matvæla og er það að vonum að neytendur geri kröfur í því efni. En eins og stundum áður hefur orðið nokkur slagsíða á neysluræð- unum því engu er líkara en tals- menn neytenda (t.d. forsvarsmenn verkalýðsfélaga) hafi gleymt þeim fornu sannindum að maðurinn lifir ekki af einu saman brauði. Hann lifir meira að segja ekki mann- sæmandi lífi þótt hann fái ketbita með brauðinu nema fleira komi til. Nú er ekki hugmynd mín að gerast sérstakur talsmaður þess ágæta boðskapar sem gengur út af munni presta þótt það orð sé vísast líka nauðsynlegt sumum. Áhyggjuefni mitt er allt það orð sem hingað til hefur verið undir- staða íslenskrar þjóðmenningar þó svo alþýðuspeki hafi einhvem tíma talað með lítilsvirðingu um það bókvit sem ekki verði í askana látið. Á alþingi íslendinga árið 1988 voru samþykkt lög um virðisauka- skatt, sem leysa skal af hólmi sölu- skattinn sem hingað til hefur ver- ið lagður á vörur og tekur virðis- aukaskatturinn við um næstu ára- mót. Til þess hníga ýmis skynsam- leg rök að'hið nýja skattlagningar- form sé hagnýtara og betra en það sem tíðkast hefur og skal ekkert að breytingunni fundið. Hins vegar gildir hér að skýst þótt skýr sé og ekki er allt gott sem hinir vísu landsfeður kveða. Meðal röksemdanna sem einatt hefur verið beitt gegn söluskattin- um er það að undanþágur frá hon- um voru orðnar mýmargar. Börðu skattasinnar sér á brjóst og sögðu hvað eftir annað á þá leið að frá virðisaukaskatti yrðu engar und- anþágur, nú yrði eitt látið yfir alla ganga. En svo einfalt er mannlífið ekki. Raunar má spyrja í tnikilli alvöru hvort það sé ekki nokkuð Iangt gengið t nauðhyggju að sjá þann kost helstan við skattakerfi að það komi jafnilla niður á ölluml Það að vera maður leggur nefni- lega aðrar skyldur á okkur. Við verðum að geta metið einstök til- vik og flokka tilvika, tekið skyn- samlega og mannlega afstöðu hve- nær sem þörf er á. Þetta gerðist á alþingi við af- greiðslu virðisaukaskattlaganna. Þar var strax tekið til við að veita undanþágur. Þær beindust í fleiri en eina átt en m.a. var lögð áhersla á skattfrelsi hugverka („Starfsemi rithöfunda og tónskálda við samn- ingu hugverka og sambærileg listastarfsemi“ er meðal þess sem undan er þegið), menningarstarf- semi („starfsemi safna og bóka- safna og hliðstæð menningarstarf- semi“ er í undanþáguflokki), fjöl- miðlun („sala dagblaða og sam- bærilegra landsmála- og héraðs- „En hvernig sem ég reyni að skilja löggjaf- ann þá er mér hulin ráðgáta hvernig menn geta komist að þeirri niðurstöðu að nauðsyn- legt sé að skattleggja íslenskar bækur með fullum þunga.“ fréttablaða, svo og afnotagjöld útvarpsstöðva“ koma í undan- þáguflokk) og loks er sala tímarita undanþegin virðisaukaskatti til þess að jafna samkeppnisaðstöðu íslenskra rita við erlend. Ekki dettur mér annað í hug en löggjafarsamkundan hafi gaumgæft iþessi mál vandlega. Það sýna líka þær umræður sem birtar hafa verið í Alþingistíðind- um. Þar hefur margt verið sagt af skynsamlegu viti. En hvernig sem ég reyni að skilja löggjafann þá er mér hulin ráðgáta hvernig menn geta komist að þeirri niðurstöðu að nauðsyn- legt sé að skattleggja íslenskar bækur með fullum þunga. Ég skal ekki minnast í þessu samhengi á þau alvarlegu áhrif sem þessi skattlagning hefur á almennt bókaverð í landinu. Það liggur i augum uppi að bækur hljóta alltaf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.